Morgunblaðið - 26.05.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri um Kópavogshæli:
„Túlkum umræðumar á Alþingi
sem heimild til úrlausnar”
Forráðamenn Kópavogshælis og yfirmenn heil-
brigðisráðuneytisins fjölluðu um málefni Kópavogs-
hælis á fundi s.l. miðvikudag. Fundinn sátu f.h.
Kópavogshælis Sævar Halldórsson læknir og Jón
Sigurður Karlsson sálfræðingur og f.h. ráðuneytisins
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri og Jón Ingimarsson
skrifstofustjóri. Mbl. hafði samband við Jón Sigurð
Karlsson og Pál Sigurðsson eftir fundinn á miðviku-
dag til að afla upplýsinga um niðurstöður hans.
Jón Karlsson sagði, að þeir
væru hinir hressustu með niður-
stöðurnar. „Við getum ekki
dregið aðrar ályktanir en að
málin verði leyst og vorum við
allir sammála um nauðsyn þess.“
Páll Sigurðsson hafði eftirfar-
andi áð segja: „Málin voru rædd
og það fór vel á með okkur eins
og vant er. Við í ráðuneitinu
getum ekki túlkað þær umræður
sem áttu sér stað á Alþingi í gær
öðru vísi en svo, að vilji sé fyrir
hendi um lausn vandans.
Það er augljóst, að það sem við
höfum verið að gera í ráðuneyt-
inu og í stjórnarnefnd ríkis-
spítalanna er aðeins að fylgja
eftir ákvörðunum fjárveitinga-
valdsins á Alþingi. En ég lít svo
á, að það sem kom fram á
Alþingi í gær sé mótandi. Þar
voru allir sammála og var ekki
fundið að því að starfsmanna-
fjöldinn sé of mikill. Þeir hafa
ákveðið að víkja frá fyrri
ákvörðunum — þeir hafa
kannski ekki vitað hvað þeir
samþykktu um áramótin eða
tekið ákvörðun um að breyta því.
Mín niðurstaða se sú, að ég
mun gefa framkvæmdastjóra
ríkisspítalanna heimild til að
hafa á Kópavogshæli það starfs-
lið sem þarf til að veita þar góða
þjónustu, ef ekki kemur beint
bann við því frá ríkisvaldinu.„
Páll sagði, að til að halda
þjónustunni óbreyttri þyrfti að
auka fjárveitingar til hælisins
um a.m.k. 60—70 millj. kr., en til
að veita þá þjónustu sem fyrir-
hugað var að gera í áætlunum
fyrir þetta fjárhagsár, og þeir
teldu nauðsynlega, þyrfti að
auka þær um 130—150 millj. kr.
Aðspurður sagði hann að ráðu-
neytið hefði ekki yfir þessari
viðbótarfjárhæð að ráða og teldi
hann að fjárveitingavaldið
mundi hlaupa hér undir bagga
með sérstakri viðbótarfjárveit-
ingu. „Öðru vísi er ekki hægt að
túlka umræðurnar á Alþingi í
gær, allavega mælti enginn því í
mót.“
Páll sagði einnig: „Vegna
yfirlýsingar Geirs Gunnarsson-
ar formanns fjárveitinganefndar
í gær um að heilbrigðisyfirvöld
hefðu fengið 210 millj. kr. til að
fjölga starfsmönnum á ríkis-
spítölunum, og af þeirri fjárhæð
hefði Kópavogshælið aðeins
fengið níu starfsmenn vil ég
taka eftirfarandi fram: Þegar
þetta mál kom til okkar í
ráðuneytinu þá fylgdi því sú
yfirlýsing, að hér væri um að
ræða fjárveitingu, sem ekki ætti
að verja til nýrra starfsmanna á
eldri deil<}um heldur til að
manna tvær nýjar deildir, þ.e.
geðdeild við Landspítala og
göngudeild í Hátúni. Ef við
hefðum talið, að þetta fé ætti að
vera til þess að fjölga starfsliði á
eldri spítaladeildum þá hefðum
við að sjálfsögðu varið mun
stærri hluta til Kópavogshælis,
því þörfin er þar brýn.“
Páll sagði að lokum, að
heilbrigðisyfirvöldum væri mjög
vel kunnugt um, að varla fyndist
innan heilbrigðisþjónustunnar
meira vinnuálag en á Kópavogs-
hæli. „Hjúkrun þess fólks, sem
þar dvelst er mjög erfið og til að
eiga ekki á hættu að missa það
fólk, sem þar starfar nú, er
áriðandi að fjölga starfsmönn-
um hið fyrsta. Við teljum, að við
höfum nú heimild til þess.“
Starfsfólk Kópavogshælis
hafði fyrirhugað að efna til
mótmælagöngu nú um helgina.
Vegna þessara málaloka hefur
göngunni verið aflýst og sögðu
forsvarsmenn starfsfólksins, að
það væri gert í þeirri góðu trú,
að málin væru nú komin í höfn.
Þinglausnir sl.
miðvikudag:
82 lög og 29
þingsályktanir
Alþingi íslendinga, 100. lög-
gjaíarþingi, lauk í gær. Þingið
stóð samtals í 193 daga, frá 10.
október til 22. desember 1978 og
frá 25. janúar til 23. maí 1979.
Þingfundir urðu alls 325: 101 f
neðri doild, 119 í efri deild og 105
í sameinuðu þingi.
AIIs voru lögð fram 92
stjórnarfrumvörp: 34 f neðri
deild. 56 f efri deild og 2 f
sameinuðu þingi. 80 þingmanna-
frumvörp voru lögð fram: 46 í
neðri deild og 34 f cfri deild. Af
þessum frumvörpum voru 82
samþykkt sem lög, 61 stjórnar-
frujmvarp og 21 þingmanna-
frumvarp. Eitt þingmannafrum-
varp var fellt. Þrem stjórnar-
frumvörpum og þrem þing-
mannafrumvörpum var vísað til
ríkisstjórnar. Þrjú frumvröp
voru afgreidd með rökstuddri
dagskrá. — 25 stjórnarfrumvörp
og 55 þingmannafrumvörp, eða
samtals 80, urðu ekki útrædd.
Fram voru lagðar 102 tillögur
til þingsályktunar: 95 í samein-
uðu þingi. 1 f neðri deild og 6 f
efri deild. Ályktanir Alþingis
urðu 29. 7 tillögum var vísað til
ríkisstjórnar, 1 afgreidd með
rökstuddri dagskrá og 65 urðu
ekki útra’ddar. Fyrirspurnir í
sameinuðu þingi urðu 78 og voru
allar ræddar nema ein. Mál til
meðferðar í þinginu voru alls
319. Skýrslur ráðherra voru 7 og
tala prentaðra þingskjala 900.
Framanritað kom fram í stuttu
þingyfirliti Gils Guðmundssonar,
forseta Sameinaðs þings. Hann
sagði m.a. að ágreiningur hefði
risið á Alþingi um eitt og annaö.
Deilur hefðu risið nokkuð hátt og
skyggt á hin merkari málin, sem
þingið hefði um fjallað og afgreitt.
Það er von mín, sagði forseti
þingsins, að þegar upp er staðið,
megi störf þessa þings, sem nú er
að ljúka, verða þjóðinni til nytja.
Hann þakkaði þingmönnum og
starfsliði þingsins gott samstarf
og árnaði gæfu og gengis í þing-
hléi.
Gunnar Thoroddsen, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna,
þakkaði forseta, í nafni þing-
manna allra, sanngirni, réttdæmi
og trausta fundarstjórn.
Forseti íslands, herra Kristján
Eldjárn, las síðan forsetabréf um
þinglausnir og árnaði þingi og
þjóð heilla. Forsætisráðherra,
Ólafur Jóhannesson, mælti loks,
samkvæmt þinghefð: „Heill
forseta vorum og fósturjörð —
ísland lifi“ en þingmenn tóku
undir með ferföldu húrra. Þannig
lauk á ýmsan hátt nýstárlegu
þingi með hefbundnum hætti.
Rafafl og ríkisreikningurinn:
Gils Guðmundsson, forseti Sameinaðs þings, ræðir við Albert
Guðmundsson (S)
Fjórföld greidsla f jár-
hæðar verksamnings
Meðal mála sem voru á dag-
skrá neðri deildar sl. föstudag
var rikisreikningurinn fyrir ár-
ið 1977. Vilmundur Gylfason
(S) vakti athygli á athugasemd-
um yfirskoðunarmanna ríkis-
reikningsins, sérstaklega varð-
andi verksamning við Rafafl,
samvinnufélag, sem Kröflu-
nefnd gerði. Vilmundur
sagði að verktilboði Rafafls,
samvinnufélags, hefði vtntTZS'.
m. kr., verksamningurinn heföi
hins vegar hljóðað upp á 3 m.
kr. Samkvæmt rfkisreikningn-
um hefði þessu verktaka-
fyrirtæki hinsvegar verið
greiddar 123 m.kr. eða meira en
Lög frá Alþingi
Meðal laga, sem samþykk,
vóru á Alþingi síðustu daga þess
og ekki hafa enn verið tíunduð á
þingsíðu Mbl., eru:
Lög um húsaleigusamninga.
Lög um heimild til hækkunar
framíags íslands til Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins, kvóti hækk-
aður úr 29 m. kr. í 43,5 m. kr.
sérstakra dráttarréttinda.
Lög um stofnun og slit hjú-
skapar; aldursmark lækkað úr 20
í 18 ár.
Breyting á lögum um meðferð
opinberra mála (um réttar-
gæzlumenn handtekinna og
samneyti verjanda sökunautar,
þegar hann er í gæzlu).
Lög um landhelgi, efnahags-
lögsögu og landgrunn.
Breyting á lögum um Háskóla
íslands (m.a. varðandi reglugerð
fyrir skólann).
Lög um dómvexti (með hlið-
sjón af varðveizlu verðgildis
fjármagns skv. dómum).
fjórföld fjárhæð verksamnings.
Eg er hér i' umboði skattborg-
ara, sagði VG, og ég get ekki
látið rfkisreikninginn renna f
gegn um þingið, umræðulaust,
þegar athugasemd yfir-
skoðunarmanna hefur tilefni til
að staldra við og skoða mál
betur
VG sagði m.a. að viðhlítandi
skýring hefði ekki fengist á
þessum mun verksamningi og
greiðslu, þótt eftir hafi verið
leitað. Vilmundur sagði Rafafl
hafa keypt húsnæði þao af
Þjóðviljanum, sem blaðið hefði
verið í (við Skólavörðustíg) áður
en það fluttist í nýbyggingu sína
við Síðumúla. Hann vakti og
athygli á því, að fv. formaður
Alþýðubandalagsins, Ragnar
Arnalds, ætti sæti í Kröflu-
nefnd, og spurði, hvort hér væri
tengsl á milli. Ef húsbyggingar-
sjóður Framsóknarflokksins og
Kristinn Finnbogason kæmu hér
við sögu, sagði VG, myndu þeir
Alþýðubandalagsmenn
örugglega taka undir könnunar-
kröfu á þessu atriði. Þá minnti
VG á kjallaragrein ólafs
Ragnars Grímssonar í Dagblað-
inu, sem lýst hafi því á tárvekj-
andi hátt, hve vel færi á, að
samvinnufélag rafiðnaðarmanna
tæki við húsnæði, hvar skrifaðar
hafi verið um áratugi
baráttugreinar í þágu verkalýðs.
Ef hér er um svindl að ræða, þá
er það svindl, þó breitt sé yfir
með tilfinningavaðli. VG vakti
enn athygli á því að rafverktaka-
sambandið hefði mótmælt þeim
verksamningi, sem hér um
ræddi, og talið rangt staðið að
gerð hans. Pólitískir flokkshags-
munir eiga ekki að hafa áhrif á,
hvern veg fjármunum skatt-
borgaranna er varið, og
samvinnufélög eiga að sæta
sama aðhaldi og einkarekstur.
VG gagnrýndi og ýmsa fleiri
þætti í verksamningum Kröflu-
nefndar, sem hann taldi flokkast
undir samtryggingarkerfi flokk-
anna, en hér væri um afmarkað
mál að ræða, sem sérstök
athugasemd yfirskoðunarmanna
gæfi tilefni til að ræða sérstak-
lega. Það er skylda Alþingis að
halda vöku sinni í þessu efni.
Halldór E. Sigurðsson (F),
sem mælt hafði fyrir nefnd-
aráliti meirihlutans, gerði grein
fyrir svari iðnaðarráðuneytisins,
varðandi athugasemdir yfir-
skoðunarmanna, en þar kom
fram, í stuttu máli sagt, að
tilgreind greiðsla hefði einnig
spannað verk umfram það, sem
var innan ramma útboðs og
verksamnings. HES sagði rétt,
að siðferðis þyrfti að gæta í
verksamningum og ráðstöfun
opinbers fjár en vel færi á því
einnig, að þess gætti í málflutn-
ingi manna, einkum og sér í lagi
þegar rætt væri um fjarstadda
einstaklinga, er ekki hefðu
aðstöðu til að bera hönd fyrir
höfuð sér.
Framhaldsumræður urðu um
þetta mál síðla kvölds sl. mánudag
þar sem Kjartan ólafsson (Abl)
Veittist harðlega að Vilmundi
Gylfasyni (A), vegna ásakana á
hendur Rafafli og Kröflustjórn.
Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings
hefðu metið gildar skýringar
iðnaðarráðuneytis á greiðslum
umfram verksamning, sem annars
vegar stöfuðu af 40% kauphækk-
un frá samningsgerð og í raun
(meðalkaup á verktíma) og verk-
auka umfram útboð og verksamn-
ing. Taldi hann málflutning VG
„subbuskap", sem byggðist á fljót-
færni og athugunarleysi en ekki
agnarögn staðreynda. VG taldi
enn að mikið skorti á, að nægjan-
Iegar skýringar væru fram komn-
ar á fjórfaldri greiðslu til Rafafls,
miðað við verksamning, eða ýms-
um öðrum fjármálahliðum
Kröflumála, þó „samtryggingar-
kerfi og flokkar" reyndu að fela
atburðarás með þögninni.