Morgunblaðið - 26.05.1979, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979
Snillingar í
Laugardalnum
NAFN íslands í knatt-
spyrnuheiminum hefur sífellt
stækkað á undanförnum árum ok
það þykir ekki leniíur tiltökumál
að snillinKar eins ok leikmenn
v-þýzka jandsliðsins heimsæki
okkur. Á síðustu árum hafa
leikið á LauKardalsvellinum lið
eins ok það a-þýzka,
Ólympíumcistarar á sínum tíma.
lið Hollands, silfurþeKar frá
tveimur síðustu Heimsmeistara-
mótum. Svíar, BelKar ok Pólverj-
ar. Ekki áhuKamannalið þessara
þjóða, heldur harðsnúnustu
atvinnumenn þeirra. Við höfum
auKum litið oftar en einu sinni
knattspyrnumenn Evrópu. menn
eins ok Simonsen, Cryuff ok
Blokhin.
í dag leika síðan á Laugardals-
veilinum leikmenn Vestur-þýzka
landsliðsins, leikmenn þeirrar
þjóðar, sem mest úrval á af
snillingum þessarar íþróttar.
Island hefur ekki leikið við
V-Þýzkaland síðan í júlí 1968 er
við töpuðum 1:3 fyrir
áhugamönnum Þjóðverja. 3. ágúst
1960 var einnig leikið við
V-Þjóðverja og sú viðureign
tapaðist 0:5. íslenzka landsliðið
ríður tæpast feitum hestu frá
viðureigninni í dag, leikurinn er
nú einu sinni gegn heimsmeistur-
unum f^á 1974 og þó svo að
nokkrir beztu menn þess liðs séu
ekki lengur í þýzka landsliðinu, þá
eru þar þó enn menn eins og Sepp
Maier og fleiri, sem voru í lands-
liðshópnum það herrans ár.
Maier markvörður hefur oft
verið kailaður trúðurinn i þýzku
knattspyrnunni. Þessi 35 ára
gamli leikmaður er sífellt með
bros á vör og gamanyrði eru
sjaldan fjarri þegar Maier er
annars vegar. En han er ekki
aðeins eitthvert leikfífl, hann er
maður, sem tekur atvinnu sína
alverlegar en nokkur annar, æfir
manna mest og þegar alvaran er
annarsvegar bregst Maier ekki.
. Undirritaður fylgdist með
æfingu v-þýzka landsliðsins á
Laugardalsvellinum á
fimmtudagsmorgun og það fór
ekki á milli mála að þar voru
atvinnumenn á ferð. Gengið var til
æfingarinnar af ákveðni og
hlutirnir framkvæmdir um leið og
af því er virtist af brennandi
áhuga þó svo að keppnistímabili
þessara manna sé að ljúka. Ekkert
hangs var yfir mönnum og engar
óþarfa málalengingar, sem því
miður setja oft leiðinlegan svip á
æfingar okkar manna og eru til
þess fallnar að drepa niður áhuga.
Æft var á aðalleikvanginum í
Laugardal, þar sem leikurinn
hefst klukkan 14 í dag. Mesta
furða er hvað völlurinn er orðinn
góður og þó hann sé ekki
iðjagrænn er hann þó betri en oft
áður. Hann vantar vætu eins og
alla aðra grasvelli hér á
Suðvesturhorninu, en hefur verið
vökvaður linnulaust síðustu daga.
Mörkin voru ekki komin á sinn
stað, heldur lágu þau í gryfjunni
undir stúkunni og Þjóðverjunum
var bannað hreyfa þau þaðan. Þeir
létu slík fyrirmæli þó ekki aftra
sér og náðu einfandlega í þau,
ákveðni og oft frekja þýzku
þjóðarinnar kom vel í ljós með
þessu litla atviki.
MARKVERÐIR
TVEGGJA KYNSLÓÐA
Sjepp Maier er 35 ára gamall og
er því kominn á síðasta snúning
sem markvörður í „heimsklassa".
Hann þarf að æfa meira en aðrir
til að halda sér á toppnum og
kappinn veit greinilega af því.
Meðan aðrir leikmenn liðsins hit-
uðu upp og tóku síðan lengri
leikfimiæfingar en maður er
vanur að sjá hjá íslenzkum liðum
hitaði Maier sig sjálfur úti í horni
vallarins. Hann dró þó hvergi af
sér. Síðan tók Jupp Derwall
einvaldur þýzka landsliðsins
markverðina tvo, Maier og
Schumacher markvörð Kölnar-
liðsins, sem lék hér síðastliðið
haust gegn Skagamönnum.
Derwall skaut á markverðina frá
ýmsum hornum og með ýmsum
aðferðum og var sérstaklega
skemmtilegt að sjá hversu mjög
markverðirnir fórnuðu sér.
Maier var greinilega orðinn
útkeyrður þegar þessu var lokið,
en þá var leikmönnum skipt í tvö
lið og leikið á öðrum helmingi
vallarins. Aðeins mátti snerta
knöttinn einu sinni og átti að leika
knettinum yfir hliðarlínu til að
HELGI Dani'elsson, núverandi formaður landsliðsnefndar, dvaldi á
sínum tíma í Þýzkalandi og æfði þar knattspyrnu sem ungur maður.
Fritz Buchloh var Helga mjög innan handar og var þá þessi heldur
snjáða mynd tekin af þeim. Buchloh er staddur hér á landi þessa
dagana í boði v-þýzka knattspyrnusambandsins.
skora mark. Maier er greinilega
algjör klaufi úti á vellinum, en eigi
að síður hljóp hann völlinn þveran
og endilangan eins og
byssubrenndur. Kom sjaldan við
boltann, en oftar við and-
stæðingana, sem hann hljóp
gjarnan niður. Maier tók á eins og
framast var hægt og eftir mestu
sprettina lafði tungan út úr
munnvikinu og að æfingunni lok-
inni bogaði svitinn af honum.
Mörgum þykir Maier ekki lengur
bezti markvörður V-Þýzkalands
og að íhaldssemi ráði vali hans í
liðið. Hann er sér meðvitandi um
þetta og tekur því meira á en
nokkru sinni.
Sepp Maier hefur varið mark
Bayern Múnchen af stakri prýði í
meira en áratug og unnið til æðstu
metorða í knattspyrnunni. Hvað
eftir annað hafa
varamarkverðirnir verið keyptir
til félagsins, en ævinlega hafa þeir
gefist upp á dvölinni hjá félaginu,
þeir hafa ekki enzt til að verma
varamannabekkinn og vera í
skugga Maiers. Þeir hafa verið
seldir til annarra félaga og gjarn-
an gert góða hluti þar.
Látum þetta nægja um Sepp
Maier og félaga hans í landsliðinu,
en sjón er sögu ríkari og þessir
kallar verða vonandi í essinu sínu
í Laugardalnum í dag.
í för með v-þýzka landsliðinu
hér er íslandsvinurinn Buchloch,
sem í sinni tíð var landsliðsmark-
vörður Þýzkalands. Hann stóð að
vísu um tíma í skugga Maiers þess
tíma, markvarðarins Hans
Jakobs, en stóð sig mjög vel þegar
hann lék með þýzka landsliðinu.
Buchloch gerðist þjálfari að
leikmannsferli sínum loknum og
þótti snjall, bæði með félagslið og
úrvalslið.
Hann þjálfaði Víking 1939 og 10
árum síðar þjálfaði hann lands-
liðið, Víking og Val um tíma. Þá
lék hann með íslenzku liði gegn
sænska liðinu Djurgaarden og
hefur alla tíð verið mikili íslands-
vinur. Hann á fjölmarga vini hér á
landi, menn eins og Hauk Óskars-
son, Þorstein Olafsson, Karl
Guðmundsson, Helga Daníelsson
og fleiri. Hermann heitinn
Hermannsson markvörður Vals og
íslenzka landsliðsins átti náin
samskipti við Buchloch og
Herberger á sínum tíma og fleiri
menn mætti nefna.
Buchloch er hér í boði v-þýzka
knattspyrnusambandsins.
BYRJA TVEIR NÝLIÐAR
LEIKINN í DAG?
Að bera saman íslenzka lands-
liðið og það v-þýzka er í rauninni
ógerningur, annars vegar er um
lið frá knattspyrnuveldinu þýzka
og hins vegar lið áhugamanna að
mestu, sem eru að byrja sitt
keppnistímabil. Hluti íslenzka
liðsins stundar að vísu
atvinnumennsku erlendis og því
eru leikmenn íslenzka liðsins mjög
misjafnlega á vegi staddir sumir
að þyrja tímabilið, aðrir að ljúka
vertíðinni.
Þeir sem sáu íslenzka liðið leika
í Sviss á þriðjudag eru þó sam-
mála um að einn íslenzku lands-
liðsmannanna sé í sama gæða-
flokki pg þeir v-þýzku, að sjálf-
sögðu Ásgeir Sigurvinsson. Hann
hefur að sögn aldrei verið betri og
er þá mikið sagt. Þá hefur Arnór
Guðjohnsen sýnt mjög miklar
framfarir í vetur og segja fróðir
menn að eftir tvö ár muni hann
ekkert gefa Ásgeiri eftir. Hins
vegar sáu menn minni framfarir
til Péturs, enda er hann mjög
ólíkur leikmaður í alla staði, en
SEPP Maier undi sér hið bezta í góða veðrinu í Laugardalnum á
fimmtudagsmorgun og gerði ýmsar hundakúnstir, stóð á höndum og
fór heljarstökk eins og ekkert væri. í dag verður hans hlutverk að
koma í veg fyrir að nýliðarnir Jón Oddsson og Pétur Ormslev,
framlína íslenzka liðsins, skori ekki mark. (Ljósm.RAX.)
frammistaða hans hjá Feyenoord í
vetur segir e.t.v. meira þeldur en
einn erfiður leikur þar sem tveir
menn áttu að sækja gegn
svissnesku vörninni.
Þessir þrír snjöllu leikmenn
verða því miður ekki með í dag.
Þess vegna er allt útlit fyrir að
tveir nýir leikmenn byrji leikinn í
dag, þeir Jón Oddsson KR-ingur
frá ísafirði og Framarinn snjalli,
Pétur Ormslev. Vera kann að Ingi
Björn byrji leikinn, en undirrit-
aður er þó á því að það verði
nýliðarnir, sem verði með frá
upphafi. Ekki amalegt að fá sitt
fyrsta tækifæri í leik gegn
V-Þjóðverjum. Landsliðsnefnd
valdi Viðar Halldórsson sem 16.
mann í landsliðshópinn og kom
það val nokkuð á óvart, þegar
vantaði miðvallarspilara í liðið
hefði maður haldið að maður eins
og Ásgeir Elíasson kæmi fyrst upp
í hugann.
KR-ingur lék sinn fyrsta leik
gegn Sviss á þriðjudag, Ottó
Guðmundsson, sem kom inn fyrir
Jóhannes Eðvaldsson. Ár og dagur
er síðan KR-ingur hefur leikið í
landsliði, en Stefán Örn Sigurðs-
son var genginn til liðs við
Holbæk þegar hann lék með
landsliðinu gegn A-Þjóðverjum í
fyrra. Það er tímanna tákn í
íslenzkri knattspyrnu og stöðu KR
þar, að liðið á nú á ný orðið 2
menn í landsliðshópnum. Á sínum
tíma átti KR meira en helmingi
leikmanna í íslenzka landsliðinu.
-áij.
AGUST
. INGI
JONSSON:
A EFTIR
BOLTANUM
Jafntefli í
norðanbáli
Reynir og ÍBÍ áttust við í 2. deild íslandsmótsins á miðvikudags-
kvöldið suður í Sandgerði. Heldur viðraði illa til knattspyrnuleiks,
hávaða rok og norðanbál. Leikurinn var tilþrifalftill, enda engin
furða með hliðsjón af atferli verðurguðanna. Hvort lið skoraði eitt
mark, jafntefli.
ÍBÍ lék undan bálinu f fyrri hálfleik og skoraði þá mark sitt. Það
var á 25. mfnútu, en þá skoraði Kristinn Kristjánsson, en bæði hann
og annar ísfirðingur þóttu vera grunsamlega rangstæðir. Að öðru
leyti ógnuðu ísfirðingarnir ekki marki heimamanna, nema með
langskotum sem markvörðurinn Jón Örvar glfmdi við af festu.
Reynismenn nutu aðstoðar roksins f sfðari hálfleik og jafnaði þá Ari
Arason með laglegri kollspyrnu. Reynir hafði næstum sigrað, þegar
markvörður liðsins spyrnti yfir allan völlinn, yfir markvörð ÍBÍ, en
rétt fram hjá stönginni. j^n
Viðar í hópinn
Þegar ljóst varð, að Karl Þórðarson fengi ekki leyfi hjá félagi sínu,
La Louviere, til þess að leika með íslandi gegn Vestur-Þjóðverjum í
dag, varð að velja leikmann f landsliðshópinn f stað Karls. Fyrir
valinu varð FH-ingurinn Viðar Halldórsson.