Morgunblaðið - 26.05.1979, Side 40
AHiIASlNí.ASIMINN ER:
22480
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979
Síminn á afgreiöslunni er
83033
jn*r0unblnt>it)
Sjálfstæöisílokkurinn átti 50 ára afmæli f gær og var opið hús í Valhöli við Háaleitisbraut á afmæiisdaginn.
Úér cru þau Geir Hailgrímsson og Erna Finnsdóttir að taka á Ólafi Björnssyni, prófessor. Til hægri er
Svcinn //. Skúlason.
Undanþágu til
SH var hafnað
VERKFALLSNEFND Farmanna- ok íiskimannasambands íslands tók
ekki afstöóu til undanþáKubeiðni EimskipafélaKs íslands h.f. í gær, er
félagið fór fram á að fá að flytja fisk til Bandaríkjanna fyrir
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Sögðust farmenn ekki ráða við málið
sjálfir. þar sem verkbann væri f jfildi á undirmenn á Eimskipafélagsskip-
unum. Myndu þeir þvf ekki taka afstöðu til beiðni Eimskipafélags
íslands. fyrr en verkbanni hefði vcrið aflýst.
MorKunblaðið hafði í gær sam-
band við Þorstein Pálsson, fram-
kvæmdastjóra VSÍ, og spurðist
fyrir um það, hvort vinnuveitendur
myndu aflýsa verkfalli til þess að
le.vsa vandamál Coldwater Seafood
Corporation, sölufyrirtækis SH í
Bandaríkjunum. Þorsteinn kvað
slíkar hótanir, sem fælust í for-
sendum FFSÍ fyrir synjun undan-
þágubeiðninnar, ekki hafa áhrif á
vinnuveitendur. „Það eru þeir sem
settu á verkfall og á meðan það
stendur, þá eru þessir erfiðleikar
fyrir höndum. Sú alvarlega staða,
sem komin er upp vegna okkar
markaðsmála erlendis, er alfarið á
ábyrgð farmanna. Er því fáránlegt
af þeim að reyna að skjóta sér
undan henni með tali sem þessu.
Þeir eru í verkfalli og um leið og
þeir aflýsa því, aflýsum við okkar
verkbanni og þar með er deilan
leyst.“
Afleiðingar farmannaverkfallsins:
Neyðarástand að skap-
ast viða vegna olíuskorts
Olíufélögin kenna farmönnum um, þeir kenna olíufélögunum
NEYÐARÁSTAND er að skapast
vi'ða um land vegna olfuskorts,
sem stafar af verkfalli yfirmanna
á farskipum. Sauðárkrókur, Hrís-
ey og Dalvfk eru nú olfulaus, um
hclgina má gera ráð fyrir að
Húsavfk verði olfulaus og Akur-
eyri um miðja næstu viku. í
bynun vikunnar verður olfulaust
á Olafsfirði, eftir 4 til 5 daga í
Bolungarvfk og f Siglufirði, en
þessir þrír sfðastnefndu staðir fá
allir rafmagn frá dísilstöðvum.
Litlar olfubirgðir eru um allt
Norðurland og á Austfjörðum er
að verða bensínlaust.
Önundur Ásgeirsson, forstjóri
Olíuverzlunar ísiands, skýrði
Morgunblaðinu frá því í gær að
síðastliðinn þriðjudag hefði OLÍS
ritað viðskiptaráðuneytinu bréf,
þar sem bent var á yfirvofandi
neyðarástand. Önundur sagði að
bréfið hefði verið ritað í trausti
þess að ráðuneytið gæti í einhverju
um bætt og þar var sagt að nauð-
synlegt væri að þau tvö olíuskip,
sem önnuðust dreifingu á olíu
innanlands hæfu nú þegar flutn-
inga með fullum og óskertum
afköstum. Ekki væri grundvöllur
fyrir rekstri skipsins með 26%
afköstum. Alls eru 57 birgðastöðv-
ar olíu á landinu og eru mjög
margir þessara staða komnir að
neyðarástandi.
Indriði Pálsson, forstjóri Olíufé-
lagsins Skeljungs, kvað eigendur
Kyndils hafa farið fram á margar
undanþágur þennan tíma, sem
verkfallið hefði staðið til þess að
fullnægja þörf fólksins úti um
land. Beiðni olíufélaganna hefur
jafnan verið um almenna undan-
þágu og sagði Indriði, að útgerð
Kyndils hefði ekki verið boðin
undanþága miðað við dagvinnu
eina saman. Enda þótt slíkt hefði
verið boðið, þá kvað Indriði það
hreinan leikaraskap, því að enginn
vissi betur en farmenn, að slík
undanþága væri ekki raunhæf. Ef
verkfallið leystist strax kvað hann
of nauman tíma til þess að afstýra
neyðarástandi um einhvern tíma.
Á blaðamannafundi hjá FFSÍ í
gær kom fram að olíufélögunum
hefði átt að vera í lófa lagið að
haga svo siglingum skipanna,
Kyndils og Litlafells, innan þess
ramma, sem losun og lestun í
dagvinnu leyfði, að neyðarástand
yrði ekki. Farmenn veittu leyfi til
Aðeins veitt undan-
þága fyrir undan-
rennu og nýmjólk
MJÓLKURFRÆÐINGAR og við-
semjendur þeirra sátu sáttaíund í
ga‘r. cn hann varð árangurslaus.
Ekki hefur verið boðaður nýr
fundur í deilunni. cn Mjólkur-
fra“ðingafélag íslands sendi í ga>r
frá sér frétt þar sem segir m.a. að
undanþága sem semþykkt hefði
verið á félagsfundi 20. maí hefði
gilt til miðvikudagskvölds. Hefði
hún síðan verið framlengd til
föstudagskvölds í trausti þess að
eitthvað þokaðist í samkomulags-
átt.
Þar sem fundi er nú lokið án
nokkurs árangurs, sjáum við ekki
ástæðu til að veita neina undan-
þágu á annað en nýmjólk og
undanrennu. Verður því gefin und-
anþága til sölu á samtals 280
þúsund lítrum af nýmjólk og und-
anrennu á viku frá og með næsta
mánudegi og gildir það fyrir sam-
sölusvæðið í Reykjavík, segir í frétt
frá félaginu.
Nýja flug-
stöðin
í Keflavík
minnkuð um
þriðjung?
UM ÞESSAR mundir er
unnið að frumhönnun
nýrrar fluKstöðvarbygg-
ingar á Keflavíkurflug-
velli. Hafa sérfræðingar
utanríkisráðuneytisins
unnið úr tillögum
danskra sérfræðinga sem
lagðar hafa verið fram og
hefur m.a. komið til tals
að byggingin verði allt að
‘/3 minni en upphaflegar
hugmyndir ráðgerðu.
Ekkert hefur enn verið
ákveðið endanlega
stærð eða útlit, en
lendir arkitektar
teikna stöðvarbygging-
una þegar frumathugun-
um er lokið.
um
er-
munu
vinnu allan sólarhringinn, tak-
mörkuðu aðeins lestun og losun
skipanna í dagvinnu. Litlafell hefði
þrisvar fengið undanþágu, hinn 8.
maí hefði það dreift olíu frá Seyð-
isfirði á Áustfjarðahafnir, en 11.
maí hefði borizt bréf að fengist
ekki leyfi til afgreiðslu allan sólar-
hringinn, yrði því lagt. Leyfið var
ekki veitt og var skipinu þá stefnt
til Reykjavíkur, þar sem það lá í 9
daga. 21. maí var veitt undanþága
til flutnings á olíu og bensíni til
Vestmannaeyja, 8. maí var leyfi
veitt til olíuflutninga til Vestur- og
Norðurlandshafna. Var það Kynd-
ill, sem annaðist þá flutninga, en
að lokinni ferðinni var skipinu lagt
og liggur það enn. Farmenn heim-
ila aðeins lestun og losun í dag-
vinnu. Þeir eru í verkfalli og
krefjast m.a. vaktaálags. Þeir segj-
ast vilja leysa brýn nauðsynjamál
landsmanna, en á meðan ekki er
anzað kröfum um álag á vinnu utan
dagvinnutíma, sjá þeir sér ekki
fært að leyfa afgreiðslu skipa utan
þess tíma.
Sjá nánar frá blaðamanna-
fundi farmanna á bls. 2.
Sepp
med
seppa
ÍSLENDINGAR leika landslcik
í knattspyrnu við V-Þjóðverja á
Laugardaisvollinum í dag og
hefst leikurinn klukkan 14. í liði
Þjóðverjanna eru margir heims-
þekktir knattspyrnumenn og
nokkrir þeirra urðu heimsmeist-
arar í íþróttinni árið 1974. Eng-
inn er þó þekktari en
markvörðurinn Sepp Maier, sem
sést á meðfylgjandi mynd með
seppann Kobba, en myndin er
tekin á Laugardalsvelli á
fimmtudagsmorgun. Sepp Maier
þ.vkir einstaklega snjall
markvörður auk þess, sem hann
er þekktur fyrir að vera hrókur
alls fagnaðar hvar sem hann fer.
Á íþróttasíðum blaðsins, síðum
38 og 39, er fjallað um liðin, sem
leika í dag, í máli og myndum.
(Ljósm. Bml. RAX)
Undirmenn boða
verkfall hjá
verkbannsaðilum
SAMKVÆMT áðurfengnu
umboði, ákvað stjórn og
saminganefnd Sjómannafé-
lags Reykjavíkur á fundi
sínum í gær að boða til
vinnustöðvunar á farskipum
þeirra útgerða er verkbann
hafa boðað á félagsmenn í
Sjómannafélagi Reykjavík-
ur, hafi samningar ekki tek-
izt fyrir 3. júní n.k., þ.e.
klukkan 24 kemur til vinnu-
stöðvunar á kaupskipum
verkbannsaðila, hf. Eim-
skipafélagi íslands, Hafskip
hf., Nesskip hf. og Jöklum hf.
frá og með 4. júní 1979, þar
til samningar um kjör far-
manna hjá ofangreindum
útgerðum hafa tekizt.