Morgunblaðið - 10.06.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979
23
Grein og
myndir:
Arni Johnsen
meðan hvert lag var leikið hlustuðu allir þannig að það hefði mátt heyra
saumnál detta.
Allt í einu var Jens Kavigar kominn með munnhörpu milli handanna og
hann bar hana upp að vörunum annað veifið og lék rokur í þeim lögum
sem ég var að spila.
Ég lagði vin minn frá mér og kvaðst bíða eftir því að Jens hæfi
munnhörpuleik.
í þessari litlu stofu voru rúm meðfram veggjum og lítið borð á gólfinu.
Rúmin voru 5 og við einn vegginn stóð einnar hellu kabyssa, eldavél og ofn
hússins. Á veggjum voru alls konar myndir úr myndablöðum, mest
dönskum, og nokkrar myndir af Jesú og dönsku konungshjónunum. Alls
konar smáhlutir eins og stundum safnast á eina eldhúshilluna, prýddu
hillur á veggjum og voru í samræmi við manneskjulegt andrúmsloft
hússins. Allir heimamenn og gestir sátu í rólegheitum hver á sínum stað.
Það kom í ljós að nákvæmlega ár var liðið síðan Jens hafði spilað á
munnhörpuna og honum fannst það í rauninni rausn að slá til einu sinni á
ári. Þetta líf var ekkert til að glettast með.
Hann lék snilldarvel á munnhörpuna, valsa, tangó og ræla og
heimamenn fóru að dansa og leika sér. Svo skiptust við Jens á að leika
fyrir dansi og venjulega dansaði eitt par í einu.
Nú leið að því að útstaðarveiðimaðurinn Angutikavsak Dunek fór að
fara á ið og síðan snaraði hann konu sinni fram á dansgólfið og sté
dansinn í mikilúðlegum ísbjarnarskinnbuxum sínum sem ég sá hann
aldrei fara úr þá daga sem við áttum samleið í þorpinu. Þegar leið að
miðri nótt kom elsta heimasætan á bænum heim með lítið barn sitt í
burðarpoka á bakinu. Hún lék á gítarinn og söng eigin lög af mikilli
innlifun. Hún hafði lent til Danmerkur, en liðið illa. Þar starfaði hún með
leikflokki, en taug norðursins var yfirsterkari og hún var aftur komin
heim og ætlaði að vera.
Nú var Angutikavsak setztur á gólfið í forstofunni einn á báti og skar
sér brúnan pappa. Hann iðaði á gólfinu eins og undiraldan við ísinn, iðaði,
en svo rólega að það sást vart og eitthvað tuldraði hann fyrir munni sér.
Skyndilega stóð hann á fætur og gekk inn til okkar í skvaldrið, sló létt en
ákveðið á pappaspjaldið. Trommudansinn var hafinn og svifléttum
skrefum steig hann dansinn stundarkorn unz úti var ævintýr.
Hann var svo glaður og sæll og það var ótrúlegt að heyra það nokkrum
dögum síðar að einmitt þessi sami maður hafði fyrir 10—12 árum komið
fjölskyldu sinni, allt eldra fólki, fyrir kattarnef með því að hrinda því
bundnu niður í íssprungu þar sem það lét lífið. Sjálfur stóð hann einn eftir
klóraður og tættur og þegar til kom vissu allir hvað hafði átt sér stað.
Samt spurði enginn neins, skeð var skeð, harmleikurinn varð ekki aftur
kallaður. Lög merkurinnar um líf og dauða var ekki að finna í neinum
doðröntum. Dómur mannsins var sá að þurfa að búa sjálfur með
atburðinum í hjarta sér. Um átökin, ástæðuna, eða annað var ekki rætt í
þessu samfélagi norðursins.
Um miðnætti uppgötvaði heimafólkið að íslendingurinn var með
myndavél í pússi sínu og það varð uppi-fótur og fit. Myndatökur eru hátíð
í ranni þessa fólks og allt í einu voru allir farnir að hafa fataskipti á fullri
ferð, klæða sig í hátíðarbúninginn, skinn og glitrandi perlusaumaðar
skyrtur og blússur. Klukkan hálf eitt um nóttina stóðu börn og fullorðnir í
fullum skrúða á hlaði hússins og myndatakan fór fram eins og ekkert væri
eðlilegra.
En eins og nóttin kom af sjálfri sér, fjaraði samkvæmið út á eðlilegan
hátt þegar svefninn kallaði til manna, en þegar við vinirnir gengum út úr
veiðimannahúsinu hljómaði ennþá ómurinn frá þýðum og veikum söng
Grænlendinganna.
■
Elzta dóttirin syngur eigin lög.
Skólar í Englandi
Innritun í næstu viku kl. 1—3 e.h. Sumarnám-
skeiö í júlí og ágúst. Haustnámskeið.
Vönduöustu og bestu skólarnir. Verö frá 55
pundum á viku. Afgreiösla aö Sólvallagötu 28,
sími 25149.
Málaskólinn Mímir.
Sendum sjómönnum og
fjölskyldum Þeirra
hamingjuóskir
í tilefni dagsins.
Sjómannafélag
Reykjavíkur.
húsbyggjendur
ylurinn er
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað,
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarpiast | h/f
Borgarneiil timi 93-7370
kvöld 09 helganimi 93 7355
Málverkasýning
Kj arvalsstöðum
26.mai- 17júni
Opið alla daga kl.2-10