Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 1
201. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tékkneskir dipló-
matar útilokaðir frá
ársfundi Verka-
mannaflokksins
Verkamannaflokkurinn
brezki hefur formlega far-
ið fram á að tékkneskir
diplómatar haldi sig f jarri
ársfundi flokksins í Brigh-
ton í næsta mánuði, og á
þessi ákvörðun að endur-
spegla andúð flokksins á
mannréttindastefnu
Tékkóslóvakíu, að því er
talsmenn flokksins skýrðu
frá í dag.
Sendiherra Tékkóslóvakíu í
Bretlandi var tilkynnt þessi
ákvörðun bréflega. Sagði í bréfinu
að þar sem sendiherrann hefði
skorast undan því að ræða mann-
réttindamál í Tékkóslóvakíu við
fulltrúa Verkamannaflokksins
hefði verið ákveðið að afturkalla
boð tékkneskra diplómata á árs-
fund flokksins.
Forystumenn í Verkamanna-
flokknum lýstu handtöku 10
tékkneskra mannréttindabaráttu-
manna í júlí sem „verstu kúgunar-
aðgerðum í Tékkóslóvakíu frá því
á sjötta áratugnum".
Yasser Arafat leiðtogi PLO og Adolfo Suarez forsætisráðherra Spánar fallast í faðma við upphaf
fundar þeirra í skrifstofu Suarezar í gærmorgun. Diplómatiskar heimildir hermdu að Spánverjar
kynnu að viðurkenna PLO í kjölfar heimsóknar Arafaís til Spánar, og að Suarez hefði heitið því að
tala máli PLO þegar hann ræðir á næstu mánuðum við leiðtoga allra ríkja Efnahagsbandalagsins i
sambandi við væntanlega inngöngu Spánverja í EBE. Leiðtogar Gyðinga á Spáni mótmæltu heimsókn
Arafats til Spánar og einn helzti leiðtogi íhaldsmanna. Manuel Fraga Iribarne. afþakkaði boð um að
ræða VÍð Arafat. Simamynd — AP.
Bandarískt herlið
í grennd við Kúbu?
anna í Washington ræddust í dag
við, þriðja sinni í vikunni, um
herlið Sovétríkjanna á Kúbu.
Utanríkisráðuneytið vildi ekkert
láta uppi um gang viðræðnanna,
en fundurinn stóð í 45 mínútur og
hefur annar verið boðaður.
Carter forseti ræddi í dag og
gær við ýmsa áhrifamikla öld-
ungadeildarmenn um SALT II
sáttmálann, en talið er að vitn-
eskjan um sovézku hersveitirnar á
Kúbu kunni að hafa mikil áhrif á
afstöðu þingmanna til sáttmálans.
Samkvæmt skoðanakönnun
AP-fréttastofunnar og NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar, er birt var í
dag, eru þrír fjórðu Bandaríkja-
manna því andvígir að öldunga-
deild Bandaríkjaþings greiði at-
kvæði um SALT II sáttmálann.
væri hæít í fregnum þess
efnis að Bandaríkin hefðu
sent 2.000 hermenn til
landsins þegar ljóst varð
að Sovétríkin hefðu hátt á
þriðja þúsund manna her-
lið á Kúbu. Sendiherrann
sagði að 280 manna herlið
hefði komið til eyjunnar
sem er austur af Kúbu.
Liðið hefði verið vopnlaust
og tæki þátt í björgunar-
starfi vegna fellibyljarins
Davíðs.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Anatoly
Dobrynin sendiherra Sovétríkj-
Santo Domingo, Washington.
14. ágúst. AP. Reuter.
SENDIHERRA Bandaríkj-
anna í Dómíníkanska lýð-
veldinu, Robert L. Yost,
neitaði í dag að nokkuð
Svíþjód:
N aumur fy lgismunur
mikla samstaða borgaraflokkanna.
Enn eru um 13 af hundraði kjós-
enda óákveðnir og kjósa margir
þeirra nú í fyrsta sinn.
Gösta Bohman, leiðtogi Hægri
flokksins, lýsti sig í dag sammála
99,9% stefnumála Þjóðarflokksins
og Miðflokksins. Ef þessir flokkar ná
meirihluta er búist við löngum og
ströngum viðræðum um stjórnar-
myndun. Þótt Hægri flokkurinn sé
stærstur þessara flokka, miðað við
skoðanakannanir, ei ljóst að hvorki
Þjóðarflokkurinn né Miðflokkurinn
getur sætt sig við Bohman sem
forsætisráðherra.
í kvöld var skýrt frá því í fréttum
að gallar hefðu komið í ljós í
kjarnorkuveri í Ringhals og er ekki
loku fyrir það skotið að þessi upp-
ljóstrun eigi eftir að hafa áhrif á
kosningaúrslitin, að því er sænska
sjónvarpið sagði í kvóld.
Sjá bls. 24.
Norsborg, 14. ágúst. Frá Sigrúnu
Gisladóttur, fróttaritara Mbl.
BÚIST er við mjög tvísýnum úrslit-
um i sænsku kosningunum á sunnu-
dag, en skoðanakannanir i dag
bentu til þess að borgaraflokkarnir
hefðu 0,3 af hundraði meira fylgi en
vinstri flokkarnir. , , ,
1 kvöld mættu
leiðtogar fimm helztu flokkanna i
sjónvarpssal og það sem mest ein-
kenndi viðræður þeirra var hin
48,4 £
Sæði gegn
sjúkdómum
Múnchen, 14. ágúst. Reuter.
SÆÐI manna og dýra gæti orðið gagnlegt í
baráttunni við ýmsa sjúkdóma, að því er vísinda-
menn við Max Planck vísindstofnunina skýrðu frá
í dag.
Vísindamönnunum hef-
ur tekist að einangra efni
úr sæðinu er nefnist semi-
plasmin. Þetta efni hefur í
tilraunum reynst veirum
skæðara en nokkurt
fúkkalyf.
Semiplasmin þykir
einkum athyglisvert þar
sem það smýgur auðveld-
lega í gegnum frumu-
himnu veirunnar, en á
hins vegar ekki aftur-
kvæmt úr veirunni. Sam-
eindir semiplasminsins
festast svo við veiruna og
drepa hana.
Talið er að þessi upp-
götvun eigi eftir að valda
byltingu í viðureigninni
við ýmsa sjúkdóma. Upp-
götvunin er árangur sjö
ára umfangsmikilla rann-
sókna indverskra og
vestur-þýzkra vísinda-
manna á sæði manna og
dýra.
A-vítamín gegn krabba
Washington, 14. áRÚst. AP.
VÍSINDAMENN hafa fundið
upp nýjar gerðir af A-vítamíni,
sem þeir segja að lofi góðu i
viðureigninni við krabbamein.
Vítamínin voru framleidd í til-
raunastofu en ekki fengin úr
náttúrunni, og hafa þau ekki i
för með sér hættulegar auka-
verkanir.
Tilraunir á dýrum þykja eink-
um lofa góðu í sambandi við
krabba í lungum, húð, þvag-
blöðru og brjóstum. I tilraunun-
um kom í ljós að efnin safnast
ekki saman í lifrinni og valda
ekki skemmdum á líffærum eins
og náttúrleg A-vítamín.
Sérfræðingar segja að líklega
verði nytsemi nýju A-vítamín-
anna mest þegar um er að ræða
að koma í veg fyrir krabbamein í
einstaklingum sem líklegir
þykja til að fá krabba.