Morgunblaðið - 15.09.1979, Page 16
\ 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
Jónas Blöndal:
Kreppir að á Bandaríkja-
markaði í framtíðinni
Hér fer á eftir erindi, sem Jónas
Blöndal flutti á fundi Rotaryklúbbs
Reykjavíkur í síðustu viku.
Öllum er í stórum dráttum
kunnug sú framvinda, sem orðið
hefur á síðustu árum á sviði
hafréttarmála. Ein afleiðing þess-
arar þróunar, sem menn hafa ekki
gefið mikinn gaum að, eru breyt-
ingar á mörkuðum fyrir sjávaraf-
urðir. Augljóst er þó að þessar
breytingar verða allvíðtækar, og
koma til með að snerta okkur í
verulegum mæli. í stuttu máli eru
þær fólgnar í því, í fyrsta lagi, að
hefðbundin fiskútflutnignslönd,
koma til með að ráða yfir og nýta
sér mun gjöfulli sjávarauðlindir,
en raun hefur verið á til þessa. I
öðru lagi fá ýmis ríki, sem flutt
hafa inn fisk, yfirráð yfir fisk-
stofnum, sem þau væntanlega
nýta til eigin þarfa eða jafnvel til
útflutnings. í þriðja lagi verður
minnkun á afla ríkja, sem stundað
hafa veiðar á fjarlægum miðum.
Ýmis þessara ríkja fá í staðinn
stofna, sem lítt eða ekki hafa verið
nýttir af þeim til þessa.
Aukið framboð
fiskafurða
Ef við lítum aðeins á þau áhrif,
sem þessi framvinda getur haft á
okkur er ljóst að vænta má veru-
legrar aukningar á framboði fisk-
afurða frá þeim ríkjum, sem fyrst
voru nefnd. Kanadamenn áætla að
auka sinn afla af þorski upp í milli
fimm og sex hundruð þús. tonn
fram til ársins 1985, úr rúmum
200 þús. tonnum 1976. Á Ný-
fundnalandi er áætlað að botn-
fiskafli verði kominn í 1200 þús.
tonn árið 1985, en hann var 278
þús. tonn árið 1977. Þessi þróun
hefur orðið hæg í Kanada af þeim
ástæðum að yfirvöld hafa viljað
fara hægt í sakirnar. Forsendur
fyrir því voru að þeir ætla sér að
koma stofnunum sem fyrst í gott
horf og nota árangur þeirrar
verndar til að auka hagkvæmni
þeirra veiða og vinnslu sem fyrir
hendi er þannig að atvinnugreinin
geti staðið á eigin fótum, en henni
hefur um árabil verið haldið gang-
andi með opinberum styrkjum.
Þessu markmiði hefur nú verið
náð og allir beinir styrkir aflagðir.
Framleiðni hefur vaxið það mikið,
að greinin er orðin samkeppnisfær
við aðrar atvinnugreinar í landinu
og er farin að draga til sín
fjármagn, vinnuafl og þekkingu,
sem nauðsynleg er til frekari
þróunar, en möguleikarnir eru
miklir.
Takist Norðmönnum að koma
sínum lögsögumálum í annað horf
þó illa horfi um stund má einnig
búast við allmikilli aukningu frá
þeim, þó svo þeir verði háðir
samningum við önnur ríki, einkum
Sovétmenn vegna legu landsins og
fiskgangna. I stuttu máli má
búast við verulegri aukningu í
útflutningi landa, sem hafa verið
harðastir keppinautar á hefð-
bundnum mörkuðum okkar.
í öðrum flokkum eru ríki, sem
lítt hafa lagt sig eftir fiskveiðum
og flutt inn fiskafurðir til að
fullnægja innanlandseftirspurn.
Fremst í þessum flokki eru
Bandarikin, en við tilkomu 200
mílna lögsögunnar öðluðust þau
yfirráðarétt yfir gífurlegum auð-
lindum. Áætla þeir að eingöngu
botnfisktegundirnar geti gefið af
sér um 3.5 millj. tonna á ári, sem
er rúmlega fjórfalt það magn, sem
við getum veitt og nærri 3-falt það
magn, sem núverandi neysla
þeirra nemur. Tegundasamsetning
þessara auðlinda er þó nokkuð
frábrugðin þeirri samsetningu,
sem verið hefur ríkjandi í neyslu
þeirra. Á hitt ber þó að líta, að
Bandaríkjamenn eru tiltölulega
óhefðbundnir í matargerð og nota
mikið sósur og ýmis bragðefni
með mat. Þetta, ásamt því að
fiskur á þessum markaði er mikið
unninn, ætti að auðvelda kynn-
ingu og sölu á framandi tegund-
um. Sú hefur einnig verið reyndin,
að nýjar tegundir hafa átt tiltölu-
lega greiðari leið á þessum mark-
aði en öðrum. Nægir þar að nefna
Alaskaufsann, sem olli okkur
vandkvæðum er hann streymdi
inn á markaðinn fyrir nokkrum
árum.
Hversu ört Bandaríkjamenn
koma til með að byggja upp sinn
sjávarútveg er ekki vitað á þessu
stigi. Þeir hafa í fyrstu tekið sömu
afstöðu og Kanadamenn, — að
nota það svigrúm, sem minnkuð
erlend sókn veitir til að byggja
upp sína stofna. Hefur ítarlegum
áætlunum um helstu stofna verið
hrundið í framkvæmd. Jafnframt
þessu er verið að vinna að áætlun-
um um auknar veiðar og vinnslu,
sem miða að því, að neyslu verði
fullnægt með innlendri fram-
leiðslu, en þeir flytja nú inn um
60% þeirra fiskafurða, sem þeir
neyta. Liggja nokkur frumvörp
þess efnis þegar fyrir þinginu.
Með tiiliti til þess, sem að
framan er sagt má því vænta, að
allverulega kreppi að okkur á
þessum markaði í framtíðinni.
Samdráttur
í framboði
í V-Evrópu
Það er hins vegar ljóst, að
samdráttur verður í framboði
hefðbundinna tegunda á markaði í
Vestur-Evrópu. I þessum ríkjum
er hinsvegar lögð mikil áhersla á
það um þessar mundir að finna
leiðir til að bæta upp þennann
skort. Beinist sú viðleitni einkum
að því, að þróa aðferðir til veiða og
vinnslu á ýmsum tegundum, sem
til þessa hafa ekki verið veiddar
eða ekki nýttar til manneldis.
Hvernig til tekst verður tíminn að
leiða í ljós, en hinu er ekki að
leyna, að ætla má að ýmis vand-
kvæði verði á því að afla þessum
afurðum viðurkenningar markað-
arins, þó svo hægt verði að gera
framleiðslu tæknilega framkvæm-
anlega. Koma þar til hefðir í
fiskneyslu, sem eru mjög grónar í
flestum þessara ríkja. Verði hins
vegar árangur af þessari viðleitni
og verði þróunin í vesturheimi í
líkingu við það sem að framan er
sagt, má samt búast við að ekki
verði svigrúm á þessum markaði
nema í harðri samkeppni við
önnur framleiðslulönd. Þegar er
farið að bera á þessari samkeppni
á síldarmörkuðunum. í viðtali við
Gunnar Flovents nýlega kom
fram, að Kanadamenn bjóða nú
síld á % þess verðs, sem við teljum
okkur geta framleitt og selt fyrir.
Annað, sem getur valdið okkur
erfiðleikum er að við höfum lagt
litla rækt við markaðinn í Vest-
ur-Evrópu og höfum' ekki söiu- og
dreifingarkerfi í gangi þar. Má
vænta þess, að það kosti verulega
fjármuni að koma því á laggirnar
og vinna upp það forskot, sem
aðrir, einkum Norðmenn hafa.
Af öllu þessu má draga þá
meginályktun að svigrúm okkar
þrengist verulega á mörkuðum á
næstu árum og við komum til með
að mæta narðnandi samkeppni
þjóða sem koma til með að reka
afkastamikinn og arðvænlegan
sjávarútveg eða þjóða, sem eyða
verulegum fjármunum til að gera
sjávarútveg sínum kleift að mæta
slíkri samkeppni. En hvernig ber
okkar að snúast við?
Tveir leiðir
Að mínu mati er aðallega um
tvær leiðir að ræða. Önnur þess-
ara leiða er aðgreining okkar
afurða til að draga úr áhrifum
þessarar auknu samkeppni. Með
þessu móti er hægt að halda við
nokkuð tryggri stöðu gagnvart
samkeppni þótt það einangri ekki
frá henni, og við verðum áfram
háðir sveiflum í verðlagi. Þetta er
hins vegar dýr leið, þar sem hún
útheimtir merkjavöru, sem verður
að leggja fjármuni í að kynna. Sú
leið er að vísu fær að gera lang-
tímasamninga við fyrirtæki sem
eiga þekkt merki um að framleiða
undir því merki, sem er mun
óaðgengilegri leið ef litið er fram-
hjá kynningarkostnaði. Samt
kynni þetta að reynast hagkvæmt
í ýmsum tilvikum.
í framleiðslu og sölu merkja-
vöru erum við illa settir, ef undan
eru skildar frystu afurðirnar á
ákveðnum mörkuðum. Aðrar af-
urðir eru meira og minna í beinni
samkeppni við sambærilegar af-
urðir annarra þjóða og eru háðar
verðmyndun markaðarins.
Frumforsenda þess að merkja-
vara öðlist sess, sem hún getur
haldið er að gæði hennar séu
fullnægjandi og stöðug og að fyrir
liggi viðurkenning markaðarins á
því. Þetta hefur tekist með frystu
afurðirnar og höfum við þar veru-
legt forskot fram yfir ýmsa stóra
útflytjendur, þó svo virðist, að
þetta forskot fari minnkandi. Á
öðrum sviðum hafa keppinautarn-
ir jafnvel forskot svo sem í mjöl-
framleiðslu. Það ber að leggja alla
áherslu á að viðhalda eða auka
eftir því sem kleift er gæði þeirra
sjávarafurða, sem framleiddar
eru. Kann það að kosta allmikla
fjárfestingu, en hjá því verður
vart komist.
Lausnin á gæðavandamálunum
er hinsvegar ekki öll fólgin í
aukinni fjárfestingu heldur ekki
síður í breyttu hugarfari, breyttu
skipulagi og jafnvel breyttri veiði-
tækni. Ég ræði þetta mál ekki
frekar hér enda efni í erindi, og
það fleira en eitt að gera þessum
málum fullnægjandi skil.
„Undirboð“
Kanadamanna
á síldarmörkuðum
Hvers vegna bera íslenskir síld-
arútvegsmenn sig upp undan því,
sem þeir nefna undirboð Kanada-
manna á síldarmörkuðum? Sam-
kvæmt venjulegum skilningi á
hugtakinu „undirboð" þýðir það að
HLUTFALLSLEG NÝTING
AFKASTAGETU
SKUTTOGARAR
ÖLL FISKISKIP
SÍÐUTOGARAR
iiiiiniiiiii
BÁTAR
’68 71 74 77 ÁR
Hér eru sýndar þær hlutfallslegu breytingar, sem orðið hafa á
afla botnfisktegunda og sókn í þær. Teknar eru tvær viðmiðanir,
sem þó gefa i meginatriðum sömu niðurstöðu: Mestu afköst og
meðalafköst hvers hóps á timabilinu. Forsendan, sem gengið er
út frá er sú, að ef ákveðinn hópur hefur náð einhverjum
ákveðnum afla (mest eða að meðaltaii) eigi útgerð hans í annan
tíma að öðru óbreyttu að skila sama magni á land. í þessu dæmi
er ekki tekið tillit til tæknibreytinga, sem að sjálfsögðu hefði þau
áhrif, að sóknin ætti að aukast enn meir, en myndin sýnir. Ef út
frá þessu er gengið fæst sú niðurstaða, að heildarsókn í botnfisk
hafi vaxið um tæp 60% frá 1968 eða um tæp 50% frá 1970. Frá
1970 hefur afli hins vegar aukist óverulega, sem að sjálfsögðu
þýðir að afli á hverja sóknareiningu hefur farið minnkandi eða
um 30% frá 1970.
%
SÓKNARBREYTINGAR
%
Á þessari mynd eru sýndar þær breytingar, sem orðið hafa á
nýtingu afkastagetu flotans á umliðnum áratug. Þessar niður-
stöður eru fengnar á þann hátt, að afli á úthaldsdag fyrir hvern
stærðar- og veiðarfærahóp fyrir sig er borinn saman við það, sem
þeir sömu hópar gerðu best á umræddu tímabili. Ef ákveðinn
hópur hefur á einhverju ári náð t.d. 10 tunnum á dag er best lét,
er það notað sem viðmiðun. Ef hann siðan á öðru timabili skilar
einungis 8 tonnum á dag er nýting afkastagetu hans 80%. Þessar
niðurstöður eru síðan vegnar saman með hlutfallslegri þýðingu
hvers hóps i heildinni.
Eins og sjá má af þessu hefur nýting afkastagetu bátaflotans
rýrnað veruiega á timabilinu og er á siðustu árum einungis
rúmlega helmingur af þvi, sem þeir hafa best gert. Hjá
skuttogurunum gegnir nokkuð öðru máli. Það má rekja til þess,
að ef til vili er ekki raunhæf viðmiðun fyrir þessi skip innan þess
tima, sem þeir hafa verið i gangi, sem að sjálfsögðu þýðir, að sú
viðmiðun, sem notuð er er of lág. Til þessa bendir samanburður
við siðutogarana. Árið 1956, sem er ekki sérstakt ár hvað
aflabrögð snertir, skiiuðu siðutogararnir á land um 17 tonnum á
úthaldsdag. Ef farið er enn lengra aftur í timann þá fengu gömlu
siðutogararnir, sem við áttum fyrir strið alit upp i 25 tonn að
meðaitali á dag. Sú viðmiðun, sem notuð er fyrir siðutogarana er
milli 10 og 11 tonn á dag sem er slakt, miðað við þessar tölur, sem
nefndar hafa verið.