Morgunblaðið - 15.09.1979, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
Grein og myndir: ÁRNI JOHNSEN
VERTU
GUÐ
FAÐIR,
FAÐIR
MINN
Lotning og friöur Skálholts ríkti, rökkriö
færðist yfir, en Ijóskastarar í túninu umhverfis
kirkjuna lýstu þessa stílhreinu byggingu upp. í
kirkju voru þátttakendur organistamótsins
sem embætti söngmaælastjóra &jóðkirkjunnar
stóð fyrir og vægast sagt var mikið sungið í
Skálholti þessa daga. í gegn um steinda
glugga kirkjunnar brugðu Ijósgeislarnir frá
kösturunum á leik og tóku á sig óteljandi liti í
glugganna sem minna á þverskurð af íslenzku
grjóti í smásjá. Birtuleikurinn naut sín sérlega,
því slökkt var inni í kirkjunni. Þar voru hins
vegar um 70 organistar og kórfólk og sungu af
mikilli innlifun, tónvæddum undir stjórn Jón-
asar Ingimundarsonar svo undir tók í kirkjunni
sem hefur einstæðan hljómburð fyrir söng og
tónlist. í lokin var sungið Vertu Guð faðir, faðir
minn og sungu allir án orða nema Guðrún
Tómasdóttir sem söng bænina úr 44. Passíu-
sálmi silfurtærri og fagurri rödd sinni.
Organistamót hafa veriö í Skál-
holti hvert ár um nokkurt skeiö á
vegum Hauks Guölaugssonar
söngmálastjóra Þjóökirkjunnar og
verið sífellt fjölsóttari, enda vel
skipulagt og bæöi gagn og gaman
aö því fyrir þátttakendur og tón-
listarstarf kirkjunnar í heild. Þaö
var þröngt setinn bekkurinn í
húsakynnum Skálholts þessa daga
sem reyndar æði oft og í húsa-
kynnum heimavistarskólans sem
ætlaö er aö hýsa 20 manns voru
nú um 80 manns. Er þaö ekkert
einsdæmi.
í kili norr-
ænnar menningar
Skálholt, þessi staöur sem á
taug inn í hjarta hvers einasta
íslendings og er rauöur þráöur og
kjörviöur í kili norrænnar menning-
ar, hefur allt aö bjóöa til þess aö
vera stórkostlegur ráöstefnustaöur
þar sem fjalla á um málefni meö
virðingu sem ankeri, allt nema
húsakost sem hæfir þessari slag-
æö íslenzkrar þjóðarsálar. Starfiö í
Skálholti er eins og góö útgerð,
ávaxtar sig sjálft. Góöur útgerðar-
maöur hefur allt klárt á skipi sínu,
ávallt, íslenzka þjóöin vill hafa þá
reisn sem ber í Skálholti og því
ættu íslenzkir stjórnmálamenn og
embættismenn aö leggja metnaö
sinn í aö bæta húsakost Skálholts
svo menn geti veriö stoltir af
hverju atriði á staönum.
í hverjum krók og kima þar sem
mögulegt var aö gista í húsnæöi
Skálholtsskólans haföi fólk komiö
sér fyrir, en þaö var blússandi starf
alla daga, söngæfingar, kennsla í
raddbeitingu, orgelþjálfun og fleira
og fleira hjá valinkunnum kennur-
um. Byrjaö er snemma morguns
og veriö aö langt fram á kvöld,
enda áhuginn mikili.
Viö ræddum viö nokkra organ-
ista um starf þeirra og námskeiöiö.
Kórstarf
uppbyggjandi og
skemmtilegt
Helgi Bragason er organisti í
Njarövíkum. „Mér finnst ríkja hér
góö stemmning og mikil vinnu-
gleöi,“ sagöi hann, „geysilegur
áhugi. Svona starf kemur manni til
góöa, því aö maður lærir alltaf
eitthvaö nýtt.“
Helgi nam viö Kirkjutónlistar-
deild Tónlistarháskólans í Vín og
viö spuröum hann hvernig honum
líkaði aö vinna meö kór? „Þaö er
skemmtilegt og uppbyggjandi. f
kórnum hjá mér voru 36 s.l. vetur
og okkur tókst aö flytja Schu-
bertsmessu. Þaö jók áhuga fólks-
ins og þá er gaman aö vinna aö
þessu.“
Organisti í
fjórum kirkjum
Anna Kristín Jónsdóttir frá
Mýrakoti Höföaströnd í Skagafiröi
er organisti í fjórum kirkjum, á
Hofsósi, Hofi, Felli og Baröi. Hún
stjórnar einnig kór á Barði og
öörum fyrir Hofsós og Hof, en á
Felli syngja kirkjugestir kórlaust.
Anna Kristín byrjaöi sem organisti
árið 1974 og hún kvaö þetta
Hluti organiatanna og kórtólksins á æfingu í Skálholtskirkju.
Anna Kristín
heilmikiö starf eins og nærri má
geta. Þá vinnur hún einnig aö
búskap á heimili foreldra sinna og
kennir viö Tónlistarskóla Skaga-
fjaröar á Hofsósi og Sólgöröum í
Fljótum þar sem hún kennir á
gítar, blokkflautu, orgel og píanó.
„Þaö er skemmtilegt aö taka
þátt í svona námskeiöum,“ sagöi
hún, „hér er fólk meö svipuö
áhugamál og svipuö vandamál í
starfi sínu þannig aö þaö er gott
aö bera saman bækur sínar og
menn læra þannig hver af öörum
og njóta reynslu fólks. Ég hef veriö
á öllum námskeiöunum í Skálholti
og þaö er mjög uppörvandi aö
koma hingaö, gefur manni mikiö.
Maöur fær svo mikiö út úr þessu
aö þaö lyftir manni uþp og maöur
Holgi
ræöst jafnvel í þaö sem maður
heföi ekki lagt í áöur. Hér eru
einnig svo góöir kennarar þannig
aö allt gengur upp.“
Uppörvandi að vinna
með kunnáttu-
mönnum
Bjarni Guðráösson bóndi í Nesi
í Reykholtsdal er organisti í
Reykholtskirkju en viö því starfi
tók hann fyrir þremur árum.
„Gagnið aö svona námskeiöi
finnst mér fyrst og fremst vera þaö
að komast í aukið samband við
þetta starf, þaö er uppörvandi aö
vinna meö kunnáttumönnum í fag-
Bjarni
inu og kynnast organistum víös
vegar aö af landinu."
Bjarni er meö 12—14 manns í
kór Reykholtskirkju, en ekki kvaö
hann það samrýmast of vel aö
vera bóndi og organisti.
„Þegar maður á aö spila er
ekkert verið aö spyrja hvernig
maöur sé fyrir kallaöur. Maöur
stendur ef til vill í erfiðu verki og
það kemur fram í spilinu. Stífar
hendur og skrokkur er ekki gott
fyrir orgelleik. Þaö getur tekið lega
fyrir orgeliö en sjaldan getur
maöur búiö aö slíku.
Viö sem komum hingaö erum
mjög þakklát fyrir aö fá tækifæri til
þéss og ég held aö þetta sé
sérstaklega mikil hvatning fyrir
dreifbýlisfólkiö.“
Skálholtskirkja