Morgunblaðið - 15.09.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Er hægt að auka
viðskiptin?
ER Grænland framtiðarlandið
fyrir einhverja ísienska útflytj-
endur? Nú nýlega hafa borist
fréttir af því að dönsk timbur-
verzlun sem stundað hefur við-
skipti við Grænlendinga lengi jók
sölu sína þangað um 150% á
síðasta ári.
íslendingar hafa t.d. aðstoðað
Grænlendinga við uppbyggingu
mannvirkja og einnig í landbúnaði
og því er bara spurningin hvort
ekki sé hægt að auka verulega
viðskiptin við þá á næstu árum.
Ráðning
starfsfólks
NÚ AÐ undanförnu hefur verið
óvenjumikið um auglýsingar frá
fyrirtækjum þar sem þau óska
eftir starfsfólki til starfa. Til að
kanna stöðuna nánar hafði Við-
skiptasíðan samband við tvo að-
ila í atvinnulífinu og spurði þá
hvernig gengi að fá fólk til
starfa.
Gunnar Snorrason form. Kaup-
mannasamtakanna sagði að alltaf
þyrftu verzlunareigendur að aug-
lýsa eftir fólki og ávallt kemur
nokkur fjöldi til viðtals en því
miður eru það fáir sem hafa
einhverja reynslu í verzlunar-
störfum. Þyrfti nauðsynlega að
koma upp námskeiðum fyrir fólk
sem hyggur á störf í verzlunum.
Mér finnst fólk leita mikið í
fiskvinnsluna og þá einkum á
minni stöðunum úti á landi er það
tilfinnanlegt. Ég hef sjálfur fengið
starfskraft héðan úr hverfinu,
Breiðholtinu, og eru það húsmæð-
ur sem vinna hér hálfan daginn og
hefur það gefist vel fyrir báða
aðila.
Guðjón Tómasson fram-
kvæmdastjóri Sambands málm-
og skipasmiðja sagði að ekki væri
skortur á járniðnaðarmönnum í
Reykjavík en á nokkrum stöðum
úti á landi s.s. Vestfjörðum og
Norðurlandi væri nokkur skortur
á fólki. Hins vegar ber að geta
þess að nú ríkir ekki eins mikil
spenna á markaðnum á Suð-
vestanlands eins og áður og t.d.
eru engar stórframkvæmdir í
gangi núna. Alltaf er eitthvað um
það að þjónustu fyrirtæki þurfa að
auglýsa eftir fólki til sumarafleys-
inga en því fer nú senn að ljúka
sagði Guðjón.
Mikil
veltu-
aukning
Elkem Spiegelverket þrefaldaði
veltu sina á fyrri helmingi þessa
árs samanborið við sama tímabil
1978. Er þetta fyrst og fremst
vegna hærra verðlags á alumin-
ium og kísiljárni en þekkst hefur á
síðari árum.
Norska útflutningsráðið:
Islenski markaður-
inn mjög mikilvægur
Á ALÞJÓÐLEGU vörusýning-
unni sem nú stendur yfir i
Laugardal kynna norsk fyrir-
tæki nú í fyrsta skipti sameigin-
lega vörur sinar. Er það norska
útflutningsráðið sem sér um
framkvæmdina af þeirra hálfu og
veitir til hennar styrk. Viðskipta-
síðan hitti að máli Tore Halfstad
markaðsráðgjafa norska útflutn-
ingsráðsins.
Hann sagði að þátttakendur af
þeirra hálfu væru þrettán fyrir-
tæki og tengdust þau öll sjávarút-
vegi og er þetta þriðja meiriháttar
sjávarútvegsvörusýningin sem við
tökum þátt í á þessu ári. Um orsök
þess að þau tækju þátt í sýningu
sem þessari þá sagði hann að
íslenski markaðurinn væri einn
mikilvægasti markaður þessara
fyrirtækja og því væri afar þýð-
ingarmikið að nota þetta tækifæri
sem gefst til að hitta kaupendurna
alla á sama stað augliti til auglit-
is. Hefur þetta sérstaklega mikla
þýðingu fyrir þá sem kynna nýjar
afurðir eða ný fyrirtæki á mark-
aðnum. Við erum nokkuð ánægðir
með árangur þessarar sýningar en
höfðum þó gert okkur vonir um að
hitta fleira fólk úr sjávarútvegin-
um en þó verður að hafa í huga að
flest þessara fyrirtækja hafa góða
umboðsmenn hér á landi, sagði
Tore Halfstad.
Tore Halfstad markaðsráðgjafi
31
Hestar
Mótssvæðið á Vindheimamelum. Tjaldstæðin eru fremst á myndinni en fjær er sýningarsvæðið.
Landsmót haldið á
Vindheimamelum 1982
— „Óskiljanleg ákvörðun,” segir formaður Léttis á Akureyri
STJÓRN Landssambands hestamannafélaga ákvað
fyrir nokkru að næsta landsmót hestamanna skuli
haldið á Vindheimamelum í Skagafirði sumarið 1982.
Samkvæmt þeirri reglu að landsmót skuli haldin til
skiptist á Suðurlandi og Norðurlandi á næsta
landsmót að verða fyrir norðan og höfðu stjórn LH
borist boð um tvo staði til móthaldsins, Melgerðis-
mela í Eyjafirði og Vindheimamela. Voru bæði stjórn
og varastjórn LH kallaðar saman til fundar til að
taka ákvörðun um mótsstaðinn en áður höfðu þrír
stjórnarmenn, Albert Jóhannsson, Egill Bjarnason
og Stefán Pálsson skoðað báða staðina. Til fundarins
voru boðaðir 10 stjórnar- og varastjórnarmenn en sex
mættu. Var samþykkt með atkvæðum fjögurra að
halda mótið á vindheimamelum en þessir f jórir voru
Egill Bjarnason, Jón Guðmundsson, Hjalti P-álsson og
Stefán Pálsson. Albert Jóhannsson og Pétur Hjálms-
son mæltu báðir með Melgerðismelum.
Forráðamenn hestamannafé-
laganna í Eyjafirði, sem staðið
hafa að uppbyggingu Melgerðis-
mela sem mótssvæðis eru mjög
óánægðir með þessa ákvörðun
stjórnar LH. „Okkur finnst þessi
ákvörðun óskiljanleg," sagði
Bjarni Jónsson, formaður Léttis
á Akureyri," því aðstaðan á
Vindheimamelum og Melgerðis-
melum er sambærileg og þegar
litið er á það að Skagfirðingar
hafa fengið tvö síðustu landsmót
sem haldin hafa verið á Norður-
landi. Þeir héldu landsmót á
Vindheimamelum 1974 og á Hól-
um 1966 en eina landsmótið, sem
haldið hefur verið í Eyjafirði var
árið 1954.“
Bjarni sagði að stjórnir hesta-
mannafélaganna í Eyjafirði
hefðu mótmælt þessari ákvörðun
stjórna LH formlega og þeim
fyndist þessi samþykkt líka
hæpin, þar sem að henni stæðu
aðeins fjórir af þeim 10 mönn-
um, sem til fundarins hefðu
verið boðaðir og í hópi fjórmenn-
inganna væri fulltrúi Skagfirð-
inga í stjórninni. Bréf Eyfirð-
inga verður tekið fyrir á stjórn-
arfundi LH á mánudag.
„Við erum ákaflega óánægðir
með þessa afstöðu stjórnar LH
og sjáum ekki hvaða erindi við
höfum með því að starfa með
LH, þegar störf okkar að upp-
byggiigu mótsstaðar eins og
Melgerðismela eru ekki metin
meira. I okkar huga hefur þessi
uppbygging átt að vera í þágu
hestamennskunnar og hesta-
íþrótta í landinu og menn hafa
hér margir hverjir lagt á sig
mikla vinnu til að búa svæði sem
best úr garði. Ég sé ekki annað
en það sé tvísýnt hvort við eigum
nokkra samleið með LH, ef störf
okkar eru jafn lítils metin og
þessi ákvörðun stjórnarinnar
ber merki um,“ sagði Bjarni
Jónsson formaður Léttis að lok-
um.
Egill Bjarnason á Sauðrár-
króki, stjórnarmaður í LH sagði
að það sem hefði ráðið úrslitum
um að Vindheimamelarnir voru
fremur valdir sem mótsstaður
en Melgerðismelar. hefðu verið
að vellirnir og sýningarsvæðið á
Vindheimamelum væru talin ör-
uggari en að öðru leyti mætti
leggja aðstöðuna á þessum
tveimur stöðum nokkuð að jöfnu.
Fóðurkostnaður hækkar
um tæp
LJÓST er nú að kostnaður við
helstahald hefur stóraukist frá i
fyrravetur og þá sérstaklega hjá
þeim hestaeigendum, sem þurfa
að kaupa ailt hey handa hestum
sinum. Verð á heyi hefur í
mörgum tilvikum meira en
tvöfaldast milli áranna. Sé tekið
dæmi um hest, sem tekinn er inn i
desembermánuði og er á húsi
fram i miðjan júní eða alls 190
daga, má áætla að fóðurkostn-
aðurinn sé milli 100 og 120
þúsund krónur i vetur.
Sé miðað við, að fyrrnefndur
hestur sé inni í 190 daga og fái
daglega 6 kíló af heyi og
kostnaðarverð hvers heykílós, þ.e.
kaupverð og flutningur, sé 80
krónur, étur hesturinn hey fyrir
91.200 krónur yfir veturinn. Með
heyinu er gefið eitt kíló af fóður-
bæti sem áætla má að í vetur kosti
um 130 krónur. Fóðurkostnaðurinn
á dag er þá kominn upp í 610
krónur og fyrir 190 dagana er
kostnaðurinn 115.900 krónur. í
fyrravetur má áætla að almennt
hafi kostnaðarverk heys verið um
35 krónur kílóið og undir vor
100% milli ára
Umsjón: Tryggvi
Gunnarsson
kostaði kílóið af fóðurbæti um 100
krónur. Miðað við þessar tölur var
fóðurkostnaður í fyrravetur því
310 krónur á dag og alls fyrir 190
dagana 58.900 krónur og hefur
fóðurkostnaður hækkað um tæp
97% milli ára.
Þegar rætt er um kostnað við
hestahald verður vitanlega að taka
tillit til fleiri þátta en fóðurkostn-
aðar. Ýmist er um að ræða leigu á
hesthúsi eða eign á slíkri aðstöðu
og þykir því rétt að reikna með að
kostnaður við hesthús verði í vetur
um 50.000 kr. Kostnaður við járn-
ingar í vetur verður vart undir
22.000 krónur í vetur og er þá
miðað við að hestur sé járnaður
fjórum sinnum yfir veturinn og
keyptur sé einn gangur af flat-
skeifum og annar af skafla-
skeifum. Þá má reikna með að
kostnaður við ormagjöf verði 5.000
kr. Til viðbótar koma ýmsir
kost*naðarliðir og þá sérstaklega
laun við hirðingu ef um þau er að
ræða en samtals nema þeir kostn-
aðarliðir, sem tilgreindir hafa
verið hér, 192.900 kr. Tekið skal
fram að þessar tölur eru allar
áætlaðar.