Morgunblaðið - 15.09.1979, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
47
Öruggur
-sigur
HIÐ UNGA og bráðefnilega lið KR bar sigurorð af Fram, 2—0, í
síðasta leik liðanna i 1. deildinni í knattspyrnu á Laugardalsvellinum
í gærkvöldi. Sigur KR-inga var fyllilega verðskuidaður, þeir léku
allan tímann mun betur og áttu mörg góð marktækifæri. Frammi-
staða KR í 1. deildinni í sumar er með mikium ágætum og eru þeir nú
í efsta sæti 1. deildar ásamt ÍBV og Val sem reyndar eiga einn leik
eftir. bað er orðið langt síðan, ef það hefur þá nokkurn tímann gerst.
að lið sem kemur upp úr 2. deild spjari sig jafnvel og KR hefur gert í
sumar i 1. deildinni og er full ástæða til að óska leikmönnum liðsins og
þjáifara til hamingju með árangurinn.
KR O.
FRAM fai
Framan af leiknum í gær var
nokkurt jafnræði með liðunum en
er líða tók á leikinn tóku KR-ingar
völdin í sínar hendur og áttu
frumkvæðið. Voru þeir fljótari á
knöttinn og baráttuglaðari.
Á 26. mínútu leiksins skora
KR-ingar laglega með skalla, en
Magnús Pétursson dæmdi markið
af. Eftir leikinn gaf hann þá
skýringu að leikmaðurinn hefði
verið rangstæður. Virtist undirrit-
uðum þetta nokkuð hæpinn dóm-
ur, en vissulega var dómarinn í
betri aðstöðu til að sjá atvikið.
En markið lá í loftinu og á 36.
mínútu skorar Jón Oddson eftir
góða fyrirgjöf frá Sverri Her-
bertssyni. Fylgdi Jón vel á eftir og
skoraði af stuttu færi. brátt fyrir
ágæt tækifæri tókst KR-ingum
ekki að bæta marki við. Staðan í
hálfleik var 1—0.
Það lifnaði lítið yfri leik Fram í
síðari hálfleik, og virtust flestir
leikmenn hafa lítinn áhuga á
leiknum. KR-ingar hafa verið þess
vel meðvitandi að sigur í leiknum
gæfi þeim örlitla von um að vera í
toppbaráttunni, gáfu aldrei eftir
og sóttu lengst af. Annað mark
leiksins kom á 71. mínútu. Elías
gaf góða sendingu inn á Jón
Oddsson sem skoraði fallega. Rétt
þremur mínútum síðar skall svo
hurð nærri hælum við mark KR,
en Rafni Rafnssyni tókst aö
bjarga naumlega á línu.
Lið KR lék þennan leik vel, og
voru allir leikmenn liðsins vel með
í leiknum. Bestu menn liðsins voru
þeir Jón Oddsson og Otto Guð-
mundsson.
Lið Fram virkaði afar slakt,
leikmenn sýndu lítinn áhuga, og
enginn einn var öðrum fremri.
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1. deild Laugardals-
völlur 14. sept.
FRAM - KR 0-2 (0-1)
MÖRK KR: Jón Oddsson á 36.
mínútu og á 71. mínútu.
ÁMINNING: Kristinn Atlason og
Pétur Ormslev gult spjald.
ÁHORFENDUR: 594.
- Þr.
Einkunnagjöfin
Fram: Guömundur Baldursson 2, Símon Kristjánsson 2, Gunnar Bjarnason 1,
Friðrik Egilsson 1, Kristinn Atlason 1, Ásgeir Elíasson 2, Rafn Rafnsson 3,
Pétur Ormslev 2, Guömundur Steinsson 2, Baldvin Elíasson 2, Lárus
Grétarsson 1, vm, Gunnar Orrason 1, vm.
KR: Hreiðar Sigtryggsson 2, Stefán Örn Sigurðsson 2, Siguröur Pétursson 2,
Ottó Guðmundsson 3, Börkur Ingvarsson 2, Jón Oddsson 4, Birgir
Guðjónsson 2, Elías Guðjónsson 2, Sverrir Herbertsson 3, Sæbjörn
Guðmundsson 3, Sigurður Indriðason 2, Örn Guðmundsson 2, Wilhelm
Fredrikssen 2.
Dómari Magnús Pétursson 2.
Pétri boðið til
Werder Bremen
AÐ undanförnu hafa nokkrir
islenskir knattspyrnumenn verið
orðaðir við að vera á förum til
erlendra félaga. Mbl. kannaði
hvað hæft væri í þessum sögu-
sögnum og ræddi við þá Guð-
mund Steinsson og Pétur Orm-
slev úr Fram.
Guðmundur sagði að maður frá
sænska liðinu Örgryte hefði haft
STAÐAN
Staðan í 1. dcild Islandsmóts-
ins í knattspyrnu þegar ein um-
ferð er efi
Valur
ÍBV
KR
Akranes
Keflavík
Fram
Víkingur
bróttur
KA
Haukar
17 9 4 4
17 9 4 4
18 9 4 5
17 9 3 5
17 7 6 4
18 4 9 5
17 6 4 7
17 6 4 7
17 3 5 9
17 1 3 L
34-21 22
25-13 22
29-24 22
25-16 21
22-17 20
25- 23 17
26- 24 16
26-29 16
20-35 11
I 11-41 5
samband við sig í sumar, en hann
hefði strax gefið honum afsvar og
sagt að hann hefði ekki áhuga á að
fara utan. Ljóst er því að Guð-
mundur fer hvergi. Pétur Ormslev
hefur fengið boð um að koma til
Werder Bremen til þess að kynna
sér aðstæður hjá liðinu, en ekki
mun vera um formlegt tilboð að
ræða. Pétur sagði við blaðamann
Mbl. að hann hygðist fara utan
einhvern næstu daga til að kynna
sér málin.
Þá hafa nokkrir Keflvíkingar
verið orðaðir við atvinnumennsku
í Svíþjóð, en ekkert mun liggja
fyrir í þeim efnum.
- þr.
HK
AÐALFUNDUR Blakdeildar IIK
verður haldinn föstudaginn 21.
sept. að Hamraborg 1, Kópavogi,
og hefst hann kl. 17.30. —
Stjórnin.
• Vestur-þýsku meistararnir Hamburger S.V. Þar er valinn maður í hverri stöðu.
TekstValsmönnum
að stöðva Keegan?
EINN stærsti knattspyrnuvið-
burður sumarsins verður á
Laugardalsvcllinum næstkom-
andi miðvikudag er íslandsmeist-
arar Vals mæta býzkalandsmeist-
urunum Hamburger SV. Á blaða-
mannafundi sem knattspyrnu-
deild Vals boðaði til i gær kom
fram að mikill undirbúningur er
i tilefni leiksins og má geta þess
að Valur hefur gefið út sérstakt
blað í tilefni leiksins sem dreift
verður í hvert hús á höfuðborgar-
svæðinu. Eins og fram hefur
komið leikur knattspyrnumaður
Evrópu, Kevin Keegan með liði
Hamburger en hann er einn
frægasti knattspyrnumaður og
um leið sá snjallasti í heiminum í
dag. bá eru ekki færri en sex
vestur-þýskir landsliðsmenn í
liðinu og segir það sina sögu um
styrkleika þess.
Forsalan:
Forsala að leik Vals og Ham-
burger fer fram í sölutjaldi við
Útvegsbankann í Austurstræti
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag kl. 12.00 til 6.15.
Hverjum miða í forsölu fylgir
litprentað veggspjald með stórri
mynd af Kevin Keegan. Auk þess
fylgir hverjum miða í forsölu
ókeypis happdrættismiði. Dregið
verður í leikhléi á leik Vals og
Hamburger 19. september. Vinn-
ingar eru: 20 pör af PATRIC
knattspyrnuskóm og 10 HENSON
íþróttabúningar. Sérstakur auka-
vinningur er 40 þús. króna MITRE
fótbolti, samskonar og leikið verð-
ur með í leik Vals og Hamburger.
Boltinn verður áritaður af Kevin
Keegan.
Vinsælt
knattspyrnu-
félag
Eitt vinsælasta knattspyrnufé-
lag Vestur-Þýskalands fyrr og
síðar er H.S.V. eða Hamburger
Sport Verein, stofnað 1887 og er
því eitt elsta knattspyrnufélag í
Þýzkalandi. En til þess að hafa
náð vinsældum hefur liðið átt
stjörnur á borð við Tull Harder,
Uwe Seeler og í dag Kevin Keegan,
knattspyrnumann Evrópu.
Félagið hefur átt fjöldan allan
af v-þýskum landsliðsmönnum og
oftast verið í fremstu röð í
V-Þýskalandi. Liðið hefur fimm
sinnum orðið þýzkur meistari;
1922, 1923, 1928, 1960 og 1979.
Tvívegis orðið þýzkur bikarmeist-
ari; árið 1963 og 1977.
Stærsti sigur liðsins var árið
1977, er liðið sigraði í Evrópu-
keppninni.
Liðið hefur fjórum sinnum
hafnað í öðru sæti í l.-deildar-
keppninni og tvívegis leikið til
úrslita um þýska bikarinn.
Lið H.S.V. er geysisterkt um
þessar mundir og margir telja að
þeir muni sigra í Meistarakeppni
Evrópu þetta tímabil og verja titil
sinn í Þýskalandi.
Það sem af er þessu keppnis-
tímabili hefur liðinu gengið mjög
vel og unnið stóra sigra í leikjum
sínum.
H.S.V. er ekki eingöngu knatt-
spyrnufélag; 4500 félagar stunda
badminton, körfubolta, fimleika,
frjálsar íþróttir, sund, tennis,
blak, ísknattleik og skák. Heima-
völlur liðsins heitir Volkspark og
tekur 61.418 áhorfendur, þar af
28.618 í sæti.
Ovett hjó nærri
meti Coe’s í 1500
BREZKI hlauparinn Steve Ovett
hjó nærri heimsmetinu í 1500
metra hlaupi á móti sem haldið
var til minningar um hinn
frækna belgíska hlaupara Ivo
van Damme í Brussel fyrir
skömmu. Ovett hljóp á 3:32,2
mínútum og var því aðeins sek-
úndubroti frá heimsmetinu sem
landi hans Sebastian Coe setti á
í GÆRDAG fór fram unglinga-
landsleikur milli íslands og Fær-
eyinga í knattspyrnu. íslenska
liðið sigraði í leiknum 3 — 1, eftir
að staðan hafði verið 2—1 í
hálfleik.
Færeyingar náðu forystu i
leiknum með marki strax á upp-
hafsmínútum leiksins. Var það
móti í Zurich í Sviss fyrir nokkr-
um vikum.
Annar í hlaupinu varð Bretinn
Robson á 3:33,9 mínútum, en þar á
eftir komu frönsku hlaupararnir
Alex Gonzales og Jose Marajo og
hlutu báðir 3:35,1 mínútu.
Einnig náðist mjög góður ár-
angur í 10 kílómetra hlaupi á
Birgir Sandum að verki. Ragnar
Margeirsson jafnaði fyrir tsland
og skömmu síðar náði Sigurður
Grétarsson forystunni, 2—1, með
fallegu marki. Lárus Guðmunds-
son innsiglaði svo sigur íslands
með því að skora úr vítaspyrnu í
iok leiksins. Leikurinn var vel
leikinn og skemmtilegur á að
horfa. — þr.
mótinu. Bretinn Mick McCloud
sigraði á 27:39,8 mínútum, landi
hans Brendan Foster varð annar á
27:41,3 mínútum, en sekúndubroti
á eftir Foster komu Belgíumaður-
inn Leeon Schots og Rússinn Igor
Fedotkin. Á eftir Fedotkin komu
Bretarnir David Black á 27:46,6
mín., og Bernie Ford á 27:47,6 mín.
Rússinn Aleksander Atnipov varð
sjöundi á 27:48,2 mín., og Astralíu-
maðurinn Scott áttundi á 27:48,6.
Tveir til viðbótar hlupu undir 28
mínútum, Cheruyot frá Kenýa
(27:50,3) og Hagelsteens frá Belgíu
(27:52,9). Finnski garpurinn Lasse
Viren virðist vera að komast í gott
form þar sem hann hljóp á 28:04,7
mínútum í hlaupinu.
Af öðrum afrekum mótsins má
nefna að Pólverjinn Kozakiewics
mistóks naumlega í þremur til-
raunum við hæðina 5,71 í stangar-
stökki, en hefði hann farið yfir þá
hæð hefði hann sett nýtt heims-
met. Kozakiewics fór yfir 5,61
metra, en næstu menn stukku 5,50
metra, Desruelles frá Belgíu og
Bellott frá Frakklandi. Gamla
brýnið Emil Puttemans sigraði í
'.,000 metra halupi á 13:28,7 mír
útum og í hlaupinu setti la
hans Eddy de Pauw nýtt heiius-
met unglinga, 13:39,8 mínútur.
Unglingalands-
liðið sigraði
Æ