Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 5 Breska sjónvarpsleikritið Sérvitringar i sumarleyfi er á dagskrá sjónvarpsins klukkan 21.05 annað kvöld. Sjónvarp annað kvöld: Sérvitringar í sumarleyfi A dagskrá sjónvarpsins stystu máli það, að maður annað kvöld, mánudags- nokkur, ekki laus við að vera kvöld, er meðal annars sérvitur, fer í tjaldútilegu breska sjónvarpsleikritið ásamt eiginkonu sinni. Á Sérvitringar í sumarleyfi. tjaldsvæðinu sem þau Með aðalhlutverk fara hyggjast búa á gilda hins Roger Sloman og Alison vegar mjög strangar um- Steadman. Þýðandi er Heba gengnisreglur, og brátt Júlíusdóttir. dregur til tíðinda... Efni leikritsins er í sem Sjónvarp íkvöld klukkan 20.35: Um óbyggðir með Guðmundi Jónassyni Á dagskrá sjónvarps í kvöld, sunnudagskvöld, er mynd sem ber yfirskrift- ina Til umhugsunar í óbyggðum. Sjónvarpsmenn fara í stutta ferð með Guð- mundi Jónassyni í Þórs- mörk og Landmannalaug- ar, og þar ber væntanlega ýmislegt fyrir augu sem leiðir hugann að um- gengni og ferðamáta á fjöllum og öræfum lands- ins. Löngum hefur mönn- um þótt sem ekki sé nægi- lega vel um landið gengið, og verður væntanlega komið inn á þau mál í kvöld. göngur og réttir nú sem hæst, og vaxandi fjöldi fólks ferðast um óbyggðir íslands á öllum árstímum. Kvikmyndun annaðist Sigmundur Arthúrsson, hljóð Oddur Gústafsson, klippingu ísidór Her- mannsson og umsjón Ómar Ragnarsson. En um þetta leyti árs er einmitt mikil umferð fólks og búfjár um afrétti landsins, enda standa Ljósm: Snorri Snorrason. Fólk er nú farið að ferðast um óbyggðir tslands á öllum árstimum. Þessi mynd er tekin í Hveradölum í Kerlingarfjöllum. Sjónvarp kl. 21.05: Nýr bandarískur framhalds- mynda- flokkur í kvöld klukkan 21.05 hefur göngu sína í sjónvarpinu nýr, bandarískur framhaldsmynda- flokkur, alls fjórir þættir. Myndaflokkurinn er byggður á skáldsögunni „The Money- changers" eftir Árthur Hailey. Á íslensku hefur þáttunum verið gefið nafnið „Seðlaspil". Það eru öngvir aukvisar sem fara með aðalhlutverkin í þátt- um þessum, því meðal leikara eru hinir heimskunnu kvik- myndaleikarar Kirk Douglas og Christopher Plummer. Auk þeirra kemur fjöldi þekktra leikara við sögu í þáttunum, svo sem Timmothy Bottoms, Anne Baxter, Lorne Greene, Helen Hayes, Joan Collins og Jean Peters. í fyrsta þætti gerist það helst, að þegar fréttist að forstjóri stórbanka sé að dauða kominn af krabbameini, hefst gífurleg barátta meðal þeirra sem telja sig kallaða til að taka við starfi hans. Fyrsti þáttur þessa nýja framhaldsmyndaflokks er sem fyrr segir á dagskrá sjónvarps- ins klukkan 21.05 í kvöld, og síðan þrjú næstu sunnudags- kvöld. Fyrsti þáttur er um einn og hálfur tími að lengd, en hinir eru um tuttugu mínútum styttri. Þýðandi Seðlaspils er Dóra Hafsteinsdóttir. Atriði úr nýja framhalds- myndaflokknum, „Seðlaspili". Það er kominn sn jó r í Esjuna.. og kuldajakkarnir eru loksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.