Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 Hér eru myndir af drögt- um samkvæmt nýjustu tízku. Myndirnar þurfa ekki skýringa við. En greinilegt er, að það má gæta í fataskápinn henn- ar mömmu — eða jafnvel hennar ömmu. n * i |. « PARIS, MILAN, NEW YOfíK. LONDON Þá eru það yfir- hafnirnar, þar kennir ýmissa grasa, eins og sjá má á mynd- unum. Það er liðin sú tíð, er eingöngu var notaður hér steyttur, hvítur pipar við matargerðina. Hvítur pipar stendur fyrir sínu þótt fleiri tegundir af pipar, ásamt fleiri kryddtegundum, hafi verið fáanlegar hérlendis um árabil, enda notaður í Evrópu um alda- raðir. Krydd var forfeðrum okk- ar lífsnauðsyn, eins og kunnugt er, þar sem það var nær eina meðalið til að varðveita matvæli, fyrir tíma kæli- og frystitækni. Það er því ekki undarlegt, að farnir voru leiðangrar til fjar- lægra staða til að reyna að afla þessa nauðsynjavarnings. Við það fundu menn áður óþekkt lönd og jafnvel heimsálfur, eins og segir í mannkynssögunni okk- ar. Hvíti piparinn er upprunninn í Austurlöndum fjær og nú víða ræktaður í hitabeltisloftslagi, viðurinn minnir um margt á vínviðinn. Kryddið er unnið úr berjum viðarins, sem eru á stærð við baunir. Ef berin eru tínd af rétt áður en þau eru fullþroskuð, fást græn piparkorn, sem yfir- leitt eru seld niðursoðin. En ef berin eru á þessu þroskastigi látin þorna í sólinni, en við það rýrna þau og verða svört, fást svörtu piparkornin, sem allir þekkja. Séu berin hins vegar látin fullþroskast á trénu og síðan lögð í bleyti þar til yzta lag dettur af, verða eftir hvít pipar- korn. Þegar hvítu piparkornin eru steytt, verða þau að þessum venjulega hvíta pipar, sem tal- inn er allra algengasta kryddið enn í dag. Hvítt piparduft er sterkara en svart, sem sömuleið- is er framleitt úr steyttum, svörtum piparkornum. Svartur pipar er þó almennt talinn bragðbetri. Rauður pipar telzt til annarr- ar tegundar, „capsicum". Paprika (capsicum annuum) er framleidd úr rauðum pipar, sem er þurrkaður eftir að kjarninn er fjarlægður og síðan steyttur. Paprika getur þó verið missterk. Onnur tegund (capsicum frut- escens) er „chili" pipar, sem fáanlegur er í mismunandi styrkleika. Sterkasta afbrigði af rauðum pipar er „cayenne" pipar. Einnig er selt annað piparafbrigði, steyttur pipar, einfaldlega kall- að rauður pipar og er all-sterkt. Lithr telpur með Simpson húfur Margir hafa áreiðanlega fylgst með þáttunum um Játvarð og frú Simpson og séð, að frúin var glæsilega búin fötum og skartgripum. Ekki veit ég, hvort frú Simpson hefur orðið öðrum til eftirbreytni í klæðnaði á sínum tíma, það er ekki ólíklegt, hún þótti skartkona mikil. En svo mikið er víst, að einhver framleiðandi úti í heimi sá sér leik á borði, gerði eftirlíkingu af húfu, sem frú Simpson sást með, og seldi alla leið til íslands. Það mun hafa verið rétt við stríðsbyrjun, sem litlar telpur hér í Reykjavík eignuðust Simpson-húfur til að nota spari. En á þeim tíma voru börn klædd upp á sunnudögum, þó ekki væri nema til að fara með þau niður í bæ að „spássera", til að sýna sig og sjá aðra. Simpson-húfan líktist dálítið stóru alpahúfunum (spanjólunum), sem nú eru algengar, sat aftarlega á kollinum (sjálfsagt verið teygjuband undir kverk), úr mjúku filtefni og á brún húfunnar var fest um tveggja cm breitt rifsband hringinn í kring og löfðu endarnir niður á bakið. Voru aðeins í einum lit, dökkbláar. Man dálkahöf. ekki betur, en við værum afskaplega fínar með þetta höfuðfat og þættum mikið til þess koma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.