Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 32
Finnsk gæðavara, \ / Blöndunartækl í úrvall. ARABIA Hagstætt verö. HREINLÆTISTÆKI BAÐSTOFAN Ármúla 23 • sími 31810 •Nýborgarhúsiö SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 Slys við Akureyri: Sextán ára stúlka beið bana og 21 árs piltur stórslasaðist Akureyri, 22. septemher BANASLYS varð í nótt á Hörgárbraut, skammt norðan við byggðina í Glerárhverfi. Sextán ára stúlka beið bana og 21 árs piltur stórslasaðist og er talinn í lífshættu. Slysið varð um klukkan 01:50 í nótt. Tvær stúlkur og einn piltur voru á gangi suður eftir þjóðveg- inum, sem liggur um Kræklinga- hlíð. Þau voru að koma af dansleik í samkomuhúsinu Hlíðarbæ, og voru á leið inn til Akureyrar. Þá bar þar að fólksbíl sem kom á mikilli ferð úr norðri og svo illa tókst til, að önnur stúlkan og pilturinn urðu fyrir bílnum. Stúlk- an mun hafa beðið bana sam- stundis, en pilturinn slasaðist mjög mikið. Hann var fluttur í Fjórðungssjúkrahúsið. Hin stúlk- an slapp ómeidd. Ökumaður bílsins kveðst ekki hafa orðið fólksins var fyrr en rétt um það bil þegar slysið varð. Ekki er að svo stöddu hægt að birta nafn stúlkunnar sem lézt né held- ur piltsins, sem slasaðist. Sv.P. Sigrún Haraldsdóttir írá Lýtingsstöðum var ein af gangnamönnum Holta- og Landmanna í vikunni leið. Sjá: „Eins mig fýsir alltaf þó, aftur að fara í gönguru — bls. 14 og 15. Bezti dagurinn á loðnuvertíðinni FÖSTUDAGURINN var bezti dagur loðnuvertíðar- innar til þessa, en 26 bátar tilkynntu þá um afla til Loðnunefndar, samtals 18.780 lestir. 47 bátar eru Líður að lokum hval- veiðitímans SENN líður að því að hvalveiði- timabilinu ljúki, en undanfarin ár hefur oftast verið hætt i kringum 20. september. Morgun- blaðið fékk þær upplýsingar i Hvalstöðinni í gær, að veiðunum yrði haldið eitthvað áfram, en það færi þó eftir veðri og veiði hversu lengi. Nú hafa veiðst 433 hvalir, 260 langreyðar, 89 búrhvalir og 84 sandreyðar. í fyrra fengust 380 hvalir, þá var byrjað mun fyrr en í ár og hætt 23. september. nú á loðnuveiðum og eftir hina miklu lotu tvo síðustu sólarhringa voru fáir á miðunum i gær. Nokkur löndunarbið er nú á flest- um stöðum, en skipin landa á Norðurlandshöfn- um og á Austf jörðum. Ósk- ar Halldórsson og Víking- ur héldu þó með aflann, sem skipin fengu á föstu- dag, til Akraness. Á föstudagskvöld tilkynntu eft- irtalin skip um afla: Grindvíking- ur 1000, Huginn 600, Jón Kjart- ansson 1130, Hilmir 530, Arnarnes 600, Stapavík 530. í gærmorgun fengu Örn 580 og Náttfari um 670. Möguleikar á hráolíukaupum í Bretlandi síðla ’80 eða ’81 Vertíðin hefur gengið mjög vel í sumar og á tímabili fyrri hluta vertíðar hafðist varla undan við vinnsluna hjá Hvalstöðinni. KÖNNUN olíuviðskiptanefndar leiddi í ljós, að möguleikar eru á hráolíukaupum frá I sagði Miller. „En að svo stöddu Englandi síðari hluta næsta árs eða árið 1980. Yrði þá um að ræða olíu úr olíulindum tel ég of snemmt að segja af Breta í Norðursjó, sem síðan yrði hreinsuð í Englandi eða Skotlandi, en eins og sakir á um möguleika á við- standa eru fyrir hendi í Englandi miklir ónýttir hreinsunarmöguleikar. 1 sMptiim af þessu tagi.“ Hvalbátarnir fjórir iágu við bryggju í Reykjavík um síðustu helgi, en vonzkuveður var þá á miðum þeirra vestur af landinu. Englendingar hafa í olíu- útflutningi mjög fylgt þeirri stefnu að selja aðildarríkjum að Alþjóðaorkumála- stofnuninni hráolíu, og þá með OPEC-verðmiðun. Ein af á- bendingum orkuviðskipta- nefndar er einmitt um aðild íslands að alþjóðaorkumála- stofnuninni og ein tillagan, sem Kjartan Jóhannsson sjáv- arútvegsráðherra hefur lagt fram í ríkisstjórninni, er um aðild okkar að þessari stofnun. Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra hefur í samtali við Mbl. iýst sig andvígan aðild íslands að Alþjóðaorkumálastofn- uninni. í samtali við Mbl. sagði aðstoðarsölustjóri brezka fyrirtækisins British National Oil Corporation, Miller að nafni, að vissulega væru möguleikar á því að íslend- ingar fengju keypta hráolíu í Englandi, en að svo stöddu vildi hann ekki kveða sterkara að orði. Miller sagði fyrirtæki sitt til þessa eingöngu hafa sinnt öflun og sölu á hráolíu, en væri nú að hefja útvegun á svartolíu fyrir raforkuver og léki enginn vafi á því að fyrirtækið mundi færa út kvíarnar á þessu sviði. „Við myndum að sjálfsögðu með giöðu geði kanna möguleikana á því, hvað við gætum gert fyrir ísland í þessum efnum líka, þegar þar að kæmi," Pottar loga á eldavélum SLÖKKVILIÐIÐ var kallað tvívegis út á síðasta sólarhring, i báðum tilvikum vegna þess að pottar höíðu gleymst á eldavél- um. í öðru tilviki var það pottur með sýru sem gleymst hafði á rafmagnshellu i guil- smiðavinnustofu við Bergstaða- stræti. Þar gaus upp mikill fnykur, en eldur varð ekki laus. Þá logaði upp úr potti með feiti á eldavél í Álftamýri, komst eldur í viftu ofan eldavél- arinnar, en búið var að slökkva eldinn áður en Slökkviliðið kom á vettvang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.