Morgunblaðið - 23.09.1979, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979
Asgeir Auðunsson á Minni-Völlum, fjallkóngur Landmanna
l \
#"r'|
1*
P * \k Bp m
/'"//í m '4,; '&b. W*" I
4 wlíf\
Smalað var á Land-
mannaafrétti í síðustu
viku. Leitarmenn komu til
byggða með safnið á
fimmtudag sl., en það var
um 4000 fjár. Blm. Mbl.
lagði leið sína austur og fór
til móts við leitarmenn er
þeir komu með safnið í
byggð. Fyrst hittu Morgun-
bíaðsmenn að máli Sigurð
Sigurðsson á Skammbeins-
stöðum, fjallkóng þeirra
Holtamanna.
„Við fórum með hestana upp í
Landmannalaugar á fimmtudag-
inn,“ sagði Sigurður. „Siðan fór
mannskapurinn að Galtalæk á
föstudaginn og þaðan til Land-
mannalauga. Þetta hefur gengið
ágætlega hjá okkur ef frá er
talinn laugardagurinn, en þá var
ofsaveður og snjókoma. Veðrið var
svo hart að meira að segja traktor
fauk um koll niðri í byggð. Ein-
mitt þennan dag komu bílar neðan
úr sveitinni með fólk sem ætlaði
að taka þátt í leitinni og lentu
bílarnir í talsverðum erfiðleikum
vegna snjóa. Hins vegar fór vel
um okkur hin, en við vorum í
Landmannalaugum meðan veðrið
gekk yfir. Ef þessi dagur er und-
anskilinn þá gengu leitirnar vel
sem sést af því, að við höfum
haldið áætlun þrátt fyrir að við
misstum einn dag úr. Þá var féð
spakara en venjulega og er það
líklega vegna veðursins. Mér virð-
ist féð vera sæmilega vænt, svona
eins og í meðalári, sagði Sigurður.
„Þess má geta að við tókum upp á
því fyrir nokkrum árum að hafa
matseld uppi á fjaili. Það er með
okkur eldhúsbíll og tvær ráðskon-
ur og það er geysilegur munur að
fá heitan mat í leitunum. Það er
eitthvað annað en skrínukostur-
inn. Ráðskonurnar okkar hafa
staðið sig með eindæmum vel, en
þær eru systurnar Inga og Stella
Jónsdætur frá Lunansholti í
Landsveit.“
— Hvað hefur þú verið fjall-
kóngur lengi?
„Eg varð fjallkóngur fyrir
10—20 árum. Mér er ómögulegt að
muna það nákvæmlega. Hins veg-
ar hef ég verið í leitum síðastliðin
50 ár og alltaf á þessum afrétti.
Ferðin hefur gengið vel eins og ég
sagði áður og það eru fleiri um það
að finnast göngur eins og sumar-
frí. Þetta eru góðir félagar og það
er einhver sjarmi yfir þessu sem
þeir skilja sem reynt hafa. Það er
dásamlegt að ljúka þessari ferð í
svona góðu veðri, sólskini og hita.
Ég held að ég mæli fyrir munn
margra um leið og ég tek undir
með skáldinu og segi: „Eins mig
fýsir alltaf þó, aftur að fara í
göngur.“
Að þessum orðum töluðum sló
Sigurður undir nára á hestinum,
þeysti á eftir safninu og stjórnaði
rekstrinum af röggsemi.
Afrétturinn
nokkuð snjóþungur
Þessu næst hitti Mbl. að máli
Ólaf Andrésson frá Húsagerði í
Landsveit og innti hann eftir því
hvemig leitirnar hefðu gengið.
„Þær hafa gengið skínandi vel,“
sagði ólafur. „Á laugardaginn var
að vísu vont veður, en við vorum
aldrei týndir, eins og einhvers
staðar kom fram. Við höfum feng-
ið gott veður allt síðan á laugar-
dag, en þá snjóaði nokkuð. Afrétt-
urinn er nokkuð snjóþungur en
það kom ekki verulega að sök.
Landmannaafréttur er að vísu
nokkuð erfiður yfirferðar, mjög
fjöllóttur og því er mikið gengið.
Annars held ég að gott hljóð sé í
mönnum, féð er ágætt og svo
spillir þetta góða veður heldur
ekki fyrir," sagði Ólafur.
í þennan mund bar þar að
Ásgeir Auðunsson frá Minni-Völl-
um, fjallkóng þeirra Landmanna
og tókum við hann tali.
„Leitirnar hafa gengið ágæt-
Iega, nema á laugardag, en síðan
hefur Jietta gengið mjög vel,“
sagði Ásgeir. „Þetta var bylur á
laugardaginn en við sluppum
klakklaust frá honum og eru allir
við bestu heilsu. Það er ekkert að
þegar menn og skepnur eru við
heilsu," sagði Asgeir. „Mér virðist
féð vera í meðallagi vænt og giska
ég á, að hér séu allt að 4000 fjár.
Afrétturinn er svolítið erfiður
yfirferðar, nokkuð fjöllóttur og
því þarf mikið að ganga, en mann-
skapurinn lætur það ekki á sig fá.“
Sá elsti 77 ára
— Hve margir taka þátt í þess-
um göngum?
„Það eru 22 alls. Sá yngsti er 14
ára en sá elsti er 77 ára og
stálsleginn. Það er Haraldur
Runólfsson frá Hólum á Rangár-