Morgunblaðið - 23.09.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979
19
Margrét Einþórsdóttir
—Minningarorð
Fædd 16. október 1913.
Dáin 7. september 1979.
Kom, vornótt, og yng þltt barn i blund!
Bve blitt þitt vögguljóð og hlý þin mund
— ég þrái þig,
breið þú húmsins mjúku verndarvængi,
væra nótt, yfir mig.
Draumljúfa nótt, fær mér þinn frið,
firr þú mig dagsins hireysti og klið,
ó, kom þú fljótt!
Elfur timans ifram rennur,
ennþi hjartasirið brennur,
— skapanorn, ó gef mér stundargrið!
Kom, Ijúfa nótt,
sigra sorg og harm,
svæf mig við þinn barm,
— svæf giaumsins klið
og gef mér frið,
góða nótt.
Jón fri Ljirskógum.
Elsku amma er dáin. Algóður
guð kallaði hana til sín alltof
fljótt. Við höfðum vonast til að fá
að njóta samveru hennar lengur,
en kannski vissi guð, að amma var
lasin og þreytt. Nú vitum við, að
henni líður vel, þar sem hún
dvelur og þangað leitar hugurinn í
þakklæti fyrir allt það sem hún
var okkur barnabörnunum.
Við biðjum góðan guð að hugga
og styrkja afa okkar. Við þökkum
elsku ömmu fórnfýsi hennar og
kærleika sem umvafði okkur öll.
Guð blessi hana.
Barnabörnin.
Doktorsritgerð
í jarðf ræði um
Suðausturland
HINN 7. maí síðastliðinn varði
Helgi Torfason doktorsritgerð
sína um jarðfræði við háskólann
í Liverpool. Ritgerðin nefnist
„Investigations into the struct-
ure of south-eastern Iceland" og
fjallar hún um jarðfræðilega
byggingu suð-austurlands, með
sérstöku tilliti til innskotavirkni
og halla jarðlaga á svæðinu frá
Lónsöræfum suður að Breiða-
merkurjökli. Megineldstöðin á
Lónsöræfum var einnig kortlögð
í grófum dráttum í sambandi við
þetta verkefni. Á suð-austur-
landi er jarðskorpan á íslandi
einna dýpst rofin og er þar
óvenju mikill fjöldi innskota,
sem eru bæði tengd megineld-
stöðvum og umbrotum í eldgosa-
beltum landsins. Þessum rann-
sóknum verður haldið áfram.
Gagnrýnendur við doktors-
vörnina voru dr. J. Watterson
(The University of Liverpool), dr.
B.G.J. Upton (The University of
Edinburgh) og dr. J.D.A. Piper
(The University of Liverpool).
Hefur Helgi nú fengið vottorð
háskólans í Liverpool um að
honum hafi verið veitt doktors-
gráða 12. júlí 1979.
Helgi er fæddur í Reykjavík
13. ágúst 1949, sonur Torfa Ól-
afssonar og Jóhönnu Gunnars.
Hann lauk stúdentsprófi frá
stærðfræðideild Menntaskóla
Reykjavíkur 1970, hóf nám við
Háskóla íslands þá um haustið
og auk þaðan B.S.-prófi í jarð-
fræði vorið 1974. Sama ár um
haustið hóf hann nám við háskól-
ann í Liverpool og lauk því með
vörn doktorsritgerðar sinnar s.l.
vor eins og fyrr getur. Helgi er
kvæntur Ellu B. Bjarnason
sjúkraþjálfara og eiga þau eina
dóttur barna. Hann starfar nú
hjá Jarðhitadeild Orkustofnun-
INNLENTV
t síðasta þætti var varpað
fram þessum fyrri hluta:
Verkföll boða víst að sinni,
vilja bæta kjörin þó,
Og Móri botnar:
trúa þvi, ef enginn ynni,
allir fengju loksins nóg.
Af bréfum barst lítið, líkast
því sem verkfall grafískra hafi
haft þar einhver áhrif á. Vona
ég, að fljótt sæki í hið fyrra
horfið, því að einum mér ásamt
Móra er naumast ætlandi að
halda þvílíkum leik uppi sem
þessum, svo að vel sé.
Harðindin núna eru einstök,
svo að enginn má muna annað
eins, þótt gamall sé. í Árbók
Þingeyinga 1975 er sagt frá því,
að á köldu hausti hafi nokkrir
menn verið samankomnir á
fundi og einhver þeirra þá kom-
ist svo að orði: Eftir sumar stutt
og stirt". Þessi hending var
gripin á lofti og á orði haft, að
menn skyldu prjóna við hana í
hjáverkum meðan á fundinum
stæði, en afköstin yrðu síðan
könnuð í lokin. Allmargar vísur
komu í leitirnar og þar á meðal
þessar:
Eftir sumar stutt og stirt
stunda gumar haustsins önn.
Vá hefur hrumum vetur birt.
Vorið brumar undir fönn.
Svo orti séra Friðrik A. Frið-
riksson á Húsavík.
Eftir sumar stutt og stirt
stælist þjóðarkraftur.
Það hefur fyrr og svartar
syrt,
samt hefur birt upp aftur.
Svo orti Steingrímur Bald-
vinsson í Nesi.
Eftir sumar stutt og stirt
stopul tíðargæði,
haust og vetur á oss yrt
illa hafa bæði.
Guðmundur Böðvarsson
Þóroddur Guðmundsson
Svo orti Úlfur Indriðason á
Fjalli.
í Vísnakveri Páls lögmans
Vídalíns eru tvær „meðhaldsvís-
ur með Norðlendingum" ortar af
því tilefni, að Gísli Magnússon í
Skálholti spurði eitt sinn,
„hverninn viðra mundi hjá
Norðlingum vorum":
Hjá Norðlenzkum úði er enn
oft má þetta sanna;
guð náði þá góðu menn,
þeir gjalda Sunnlinganna.
Og enn aftur í annað sinn:
Einatt heyri eg eitthvað nýtt,
ýmist gerir að viðra;
núna kemur á norðan hlýtt,
njóti þeir þess hér syðra.
Hinn 18. ágúst sl. var Þór-
oddur Guðmundsson rithöfund-
ur frá Sandi 75 ára og orti þá
Hjörtur Kristmundsson þessi
sléttubönd af munni fram:
Meðan þjóðin funafjör
finnur ljóði sínu,
héðan glóðin ástaör
ylji blóði þínu.
Jón Böðvarsson í Grafardal,
glöggur maður og smekkvís á
skáldskap, kenndi mér þessa
vísu eftir Guðmund bróður sinn
skáld á Kirkjubóli:
Ekki get ég að þvi gert
að mig dreymir stundum
heitt og mjúkt og hvitt og
bert
hold á ungum sprundum.
Þegar þing ungra sjálfstæðis-
manna var sett á Húsavík næst-
liðinn föstudag var veður óvenju
fagurt. Hreiðar Aðalsteinsson
kvað:
Himinn blánar, hlýnar mér
hér við norðurpólinn.
Þar sem ihaldsfólkið fer
fylgir blessuð sólin.
Þorsteinn L. Jónsson, Hafnar-
firði, hefur sent mér botn við
fyrri hluta, sem birtist 30. ágúst,
sem ég þakka fyrir og verður
vísan þá þannig:
Stjórnin lifði árið af,
þótt yrði henni kvillasamt.
Á loforðunum sínum svaf,
svo til loka verður skammt.
Á þessum tíma fara menn á
fjall fyrir sunnan en í göngur
nyrðra og lífið í sveitinni snýst
mestan part um sauðkindina. I
venjulegu árferði myndi margur
geta byrjað stöku þannig:
Eftir göngur getum við
glaðzt á réttardaginn.
Ekki verður meira kveðið að
sinni.
Halldór Blöndal
Skipakóngurinn, ný mynd í Laugarásbíó
Laugarásbió hefur hafið sýn-
ingar á bandarísku kvikmynd-
inni Skipakóngurinn (The Greek
Tycoon).
Framleiðendur myndar-
innar eru Ailen Klein og Eiy
Landau en leikstjóri er Lee
Thompson. Handritið er eftir
Mort Finer samið eftir sögu Nio
Mastorakis, Win Weels og Mort
Fine. Tónlistin við myndina er
eftir Stanley Myers og Mike
Moran. Með aðalhlutverkin fara
Anthony Quinn, Jacqueline Biss-
et, Raf Vailone og Edward Al-
bert.
Camilla Sparv, Anthony Quinn. Jacqueline Bisset og James Franciscus í
hlutverkum Theo Thomasis skipakóngs og konu hans, Simi og James
Cassidy öldungardeildarþingmanns. siðar forseta Bandarikjanna, og konu
hans Liz.
LEGSTEINAR
>v-
S. HELGASON H/F,
STEINSMIÐJA,
SKEMMUVEGI 48, KÓPAVOGI,
SÍMI 76677.
Verð frá kr. 3.990.000.-
P. STEFÁNSSON HF.
SÍÐUMÚLA 33 — SÍMI 83104 - 83105