Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐLESBÓK 236. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 27.0KTÓBER 1979 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Park forseti S-Kóreu skotinn til bana Hin nýja ríkisstjórn Dan- merkur að loknum fundi með Margréti Danadrottn- ingu í Amalienborgarhöll. Jörgensen forsætisráð- herra er fyrir miðju en vinstra megin við hann er Kjell Olesen. hinn nýi utanrikisráðherra Dan- merkur. (Sfmamynd AP) Choi Kyu-Heh forsætis- ráðherra tók í kvöld við embætti forseta. Herlög hafa tekið gildi í landinu og útgöngubann er í gildi í nótt. Bandaríkjastjórn gaf í Park kvöld út yfirlýsingu, þar sem segir að brugðizt verði hart við hverri tilraun utanaðkomandi aðila til þess að færa sér ástandið í Suður-Kóreu í nyt og bandarískir hermenn í landinu hafa fengið fyrir- mæli um að vera við öllu búnir. Park Chung-Hee komst til valda í Suður-Kóreu í byltingu árið 1961. Hann var síðan þrívegis kjörinn forseti, en tók sér á árinu 1972 nær öll völd í landinu og hefur stjórnað þar með harðri hendi síðan. Mjög róstusamt hefur verið í stjórnmálum í S-Kóreu undanfarið eða frá því að Park forseti lét reka leið- toga helzta stjórnarand- stöðuflokksins af þingi. Kosningar meðal Palest- inubúa um heimast jórn London, 26. október. AP. Reuter. FULLTRÚAR Egyptalands, ísraels og Bandarfkjanna, sem nú sitja á ráðstefnu i London um hvernig komið skuli á sjálfstjórn Palestínuaraha á Vesturbakka Jórdanár og Gazasvæðinu, hafa komið sér saman um að efnt skuli til frjálsra kosninga meðal Ar- aba á þessum svæðum um framtið þeirra. Verður framkvæmd kosn- inganna i höndum borgaralegra yfirvalda og er fulltrúum er- iendra fjölmiðla heimilað að fylgjast með þeim. Tilkynningin um þessar kosn- ingar er talin stórt skref fram á við í þeim viðræðum, sem nú fara fram, en ljóst er að ýmis vanda- mál verður að leysa áður en hægt verður að boða til kosninganna. Jórdaníustjórn hefur verið boðið að taka þátt í undirbúningi kosn- inganna og fulltrúum Palestínu- íranskeisara ljóst að hann á skammt ólif að í íran vonast ayatollar eftir því ad unnt verði að koma í veg fyrir borgarastyrjöld New York. Teheran, 26. okt. AP. Reuter. Á BLAÐAMANNAFUNDI, sem var haldinn á sjúkrahúsinu þar sem Reza Pahlavi, fyrrverandi transkeisari, var skorinn upp, voru læknar spurðir að því hvort nokkur sjúklingur annar en íranskeisari fengi aðra eins meðhöndlun. „Ég skal láta yður fá nafnspjaldið mitt,“ segir AP að Björn borbjarnarson, íslenzki læknirinn, sem stýrði skurðað- gerðinni. hafi þá sagt og segir að aðrir læknar og hjúkrunarfólk hafi klappað honum lof i lófa fyrir tilsvarið. Maður, sem er vel kunnugur sjúkrahúsinu sagði: „Peningar keisarans skipta engu máli í þessu sambandi. Þetta eru beztu læknar í heimi og ynnu aldrei vegna fjár- munanna einna." í AP-frétt frá New York segir einnig, að íranskeisara hafi verið gerð grein fyrir því hvernig ástand hans væri á þeim hinum sama degi og hann átti 60 ára afmæli. Læknar hans sögðu að keisarinn hefði tekið tíðindunum um að hann ætti líklega mjög skammt eftir ólifað „með reisn“. Læknarnir segja, að nauðsynlegt sé að keisarinn verði að minnsta kosti hálft næsta ár undir læknis- hendi og trúlega á sjúkrahúsi. Einkalæknir keisarans, dr. Ben- jamin Kean, sagði að hefði keisar- inn ekki komizt undir læknishend- ur nú hefði hann dáið innan fárra daga. I Teheran þyrptust þúsundir manna i dag út á götur og virtist einkum vaka fyrir lýðnum að láta í ljós stuðning við Khomeini, eftir að hann hafði undanfarið flutt nokkrar mjög bölsýnislegar skammarræður um það hverja stefnu byltingin í íran væri að taka. Hafa þessar ræður Khomeinis vakið mikla athygli og nokkra undrun. Hann sagði við hóp stuðn- ingsmanna sinna í Qom í fyrradag: „Við vissum ekki hvað gerðist eftir byltinguna... og nú er byltingin um garð gengin og við sjáum að úr verður ringulreið...“ I viðtali við Reuter í dag sagði ayatollah Kazem Shariat Madari, að öngþveiti ríkti í landinu og ágreiningur væri alvarlegur en allt yrði gert til þess að koma í veg fyrir að borgarastyrjöld brytist út. araba sömuleiðis. Ekkert hefur enn verið látið uppi um hvernig að kosningunum verður staðið í smá- atriðum. Strauss, samningamaður Bandaríkjanna í Miðausturlanda- deilunni, virtist í dag nokkuð ánægður með þann árangur, sem náðst hefur, en enn hefur ekkert verið minnzt á framtíð austur- hluta Jerúsalem né hve víðtæk völd skuli falin heimastjórn Pal- estínumanna. Fulltrúi Egypta á ráðstefnunni er Khalil forsætisráðherra, en ísraelsmenn sendu innanríkisráð- herra sinn, Yosef Burg, til fundar- ins. Kjell Olesen utanríkisráð- herra Dana Kaupmannahðfn, 26. október. FrA fréttaritara Mbl.. Erik Larsen. ANKER Jörgensen tilkynnti i dag formlega ráðherralista hinnar nýju ríkisstjórnar sinnar að loknum fundi með Margréti drottningu. Athygli vekur, að Knud Heinesen, fráfarandi fjármálaráðherra, hefur ekkert ráðuneyti í stjórninni, en búizt hafði verið við að hann yrði efnahagsmálaráðherra. Við því emb- ætti tekur nú Ivar Nörgaard, sem einnig er umhverfismálaráðherra. Einnig vekur athygli, að Kjell Ole- sen, varaformaður danska jafnað- armannaflokksins, verður utanríkis- ráðherra, en almennt hafði verið búizt við því að Nörgaard yrði utanríkisráðherra. Svend Jakobsen verður fjármála- ráðherra hinnar nýju stjórnar og Henning Rasmussen, borgarstjóri í Esbjerg, verður dóms- og innanríkis- ráðherra. Karl Hjortnæs, sem var dómsmálaráðherra, verður ráðherra skatta- og tollamála. Poul Sögaard er varnarmálaráðherra sem fyrr. Herlög 1 landinu Seoul. WaNhintfton. 26. október. AP. Reuter. PARK forseti Suður-Kóreu beið í kvöld bana, eftir að hann varð fyrir skoti úr byssu yfirmanns leyniþjónustu landsins. Park var í kvöldverðarboði hjá Kim Jae-Kyu, yfirmanni leyniþjónustu Suður-Kóreu, KCIA, þegar atburðurinn varð. Að því er segir í tilkynningu frá upplýsingamálaráðherra landsins, risu deilur í boðinu milli Kims og eins af lífvörðum forsetans með þeim afleiðingum að Kim dró upp byssu sína og skaut á lífvörðinn. Ekki tókst þó betur til en svo, að skotið fór í höfuð Parks forseta og særði hann til ólífis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.