Morgunblaðið - 27.10.1979, Side 44

Morgunblaðið - 27.10.1979, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 1 Hann er á heimsmælikvarða — enginn vafi! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Oft er bilið milli vandvirkni og óvandvirkni furðu stutt og segja má, að spilið í dag geti talist dæmi um það. Vinningur virðist háður sviningu og spilið því auðvelt viðfangs. Við lítum á það sem úrspilsæf- ingu, norður gefur og allir á hættu en austur-vestur segja alltaf pass. Norður S. ÁKD H. ÁD T. K642 L. Á753 Suður S. G10983 H. 753 T. Á83 L. 94 COSPER Viltu enn halda því fram að það sé skotvegur þangað vestur? Um eftirlit á vinveit- ingaskemmtistöðum Hvernig stendur á því, að ungl- ingum 15—16 ára er hleypt inn á skemmtistaði eins og t.d. „Klúbb- inn“. Það er ekki að ástæðulausu að ég varpa fram þessari spurningu. Ég veit nefnilega að dóttir mín, sem er aðeins 16 ára gömul, stærir sig af því, að henni sé alltaf hleypt inn í „Klúbbinn". Er dyravörðum ekki skylt að skoða nafnskírteini allra þeirra ungmenna, sem vín- veitingastaði sækja. Það getur ekki verið á færi nokkurs mann að dæma um hversu gamalt unga fólkið er, eins þroskað, frjálslegt og fullorðinslegt og það er í dag. Mér er kunnugt um að kvenlög- reglan hafi á sínum tíma strangt eftirlit með danshúsum bæjarins með góðum árangri, en illu heilli var það lagt niður. Gaman væri að E Lausnargjald í Persíu Eftir Evelyn Anthony Jóhanna hristjónsdóttir sneri á íslenzku Þrju grönd, spiluð í norður, eru greinilega besti samningurinn. En lesendur ættu að mynda sér skoð- un um úrspil í 4 spöðum, eftir að vestur spilar út lágu trompi. Séu vinningsslagirnir taldir sjást níu, 5 á tromp og 4 á hina litina og tíunda slaginn má fá á hjartadrottningu eigi vestur kóng- inn. En hvað skeður ef svíningin tekst ekki? Lítum á þann mögu- leika. Útspilið tökum við í blindum, spilum þá tígli á ásinn til að svína hjartanu. Það tekst ekki, austur tekur með kóng og spilar trompi. Og nú er slæmt að eiga ekki innkomu á hendina svo að fá mætti tíunda slaginn með því að trompa hjarta í blindum. Og spilum við laufi þá spilar vörnin eflaust trompi í þriðja sinn og við fáum ekki nema níu slagi. Þannig er greinilegast, að útspil vesturs veldur því, að við verðum að sleppa svíningunni alveg. Strax í öðrum slag tökum við á hjartaás og spilum síðan drottningunni. Eftir það geta andstæðingarnir ekki komið í veg fyrir, að við trompum hjarta á blindum og vinnum okkar spil. Örýggisspilamennska sem þessi er auðvitað rétt og sjálfsögð bæði í rúbertubridge og sveitakeppni. En í tvímenning getur hún gefið lélegan árangur því þeir sem svína í svona stöðu fá góða skor þegar legan er þeim hagstæð. 98 Þau boð höfðu komið um talstöðina nóttina áður. 4- Auðvitað. sagði Eileen. — Heimskuiegt af mér að hugsa ekki út í það. Hann er kaup- sýslumaður. Hann gerir ekkert nema útspekúlerað. — Seztu þarna, sagði hann og talaðu inn í þennan hljóð- nema. Hún yppti öxlum. Hann hafði aldrei orðið var við beiskju hjá henni fyrr. — Hvað á ég að segja? Viltu senda þeim peninga ella drepa þau mig. Hann hlýtur að vita það. Peters hallaði sér fram. Boð- in siðustu nótt höfðu verið svartsýnislegri en fyrri skýrsl- ur. Logan Field var ekkert að ílýta sér. Hann hafði látið undirmann sinn um að semja um lokaáfangann við Homsi. Þessi undirmaður viidi sönnun um að konan væri á lífi, áður en hann tæki afstöðu. — Sjáðu nú til, sagði hann — nú hefurðu tök á því að tala við hann. Þetta er ekki sízt þín vegna. Hún settist niður og spennti greipar. Hún leit á hann. — Ég ætla ekki að grátbiðja um ncitt, sagði hún hljóðlega. — Og það breytir heldur svo sem engu. Hann gæti verið búinn að greiða lausnargjaidið fyrir Iöngu ef hann hefði haft einhverjar verulegar áhyggjur af mér. — Þér skjátlast, sagði Pet- ers. — Það er ekki svona einfalt. Þetta mál varð ekki útkljáð í einu vettfangi. — Er þá ekki um pcninga að tefla? Hann hikaði. Hann vildi að hún sendi boðin og þau yrðu eins skiimerkileg og hægt var. Hvað svo sem hélt aftur af þessum eiginmannsræfli henn- ar þá gæti verið að angistarbón frá henni gæti loks leitt þetta mál til lykta. — Nei, það eru ekki pen- ingar í þess orðs merkingu ... Ilann sá hana líta niður og svo snöggt á hann. — Guð hjálpi mér — ef það stendur eitthvað í sambandi við Imperialoliuna, sagði hún. Hann setti kassettu i tækið. — Láttu ekki svona, sagði hann. — Gefðu honum tæki- færi. Hann vili fá þig aftur. Nú skaltu tala inn í þetta, segja til þín. Hafðu það eins persónulegt og þér er unnt, svo að hann skilji að þetta er ekta. Og í hamingju bænum reyndu ekki að vera með belging. Þú hefur engin efni á bvi. Hún tók litla hljóðnemann og bar hann að vörum sinum. Hún gerði eins og hann bað, sagði til sin og hvaða dagur væri. Hún kvaðst vera við góða heilsu og á lífi og bað að hann fengi sig leysta úr haldi, svo að hún gæti farið aftur til Lucy. „Ég óska þér og Janet alls góðs.“ Peters slökkti á tækinu. — Hvers vegna sagðirðu þetta? Hver er Janet? Hvað þýðir það? — Þú þarft ekki að vera tortrygginn, sagði Eilcen hljóðlega. — Það sannar honum bara að boðin eru ósvikin. — Þetta var of hlutlaust. sagði hann. Hann var argur vegna þess hún vildi ekkerf gera sjálíri sér til bjargar. — Nú þurrka ég þetta út og þú endurtekur þetta. Segöu honum að þú sért í hættu og þú sért hrædd. Hún stóð upp. — Ég sagði þér það, sagði hún. — Ég grátbið engan um neitt. Ef þú þurrkar þetta út segi ég ekkert i staðinn. Hann veit upp á hár hvaða hlutskipti biður min. Það gæti bara verið sá möguleiki að honum væri sama. Pcters tók saman tækið. — Allt í lagi, sagði hann. — Ilafðu það eins og þú vilt. Þegar hann var kominn að dyrunum fann hann að hún var hjá honum og snart hönd hans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.