Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 Frlmerki eftir JÓN AÐALSTEIN JÓNSSON V etrarstarf frímerk ja- safnara er að hef iast Svo hefur ráðizt, að ég hafi enn á hendi þátt um frímerki hér í blaðinu, en svo hefur verið óslitið síðastliðna þrjá vetur, eins og þeir vita, sem áhuga hafa á þessu efni. Raunar var ætlunin að hefja þennan þátt fyrir hálf- um mánuði, eða um miðjan mánuðinn, svo sem gert var í fyrra, enda eru safnarar nú óðum að taka fram frímerki sín og albúm eftir hvíld sumarsins. Því miður gat ég ekki haldið þá áætlun, en nú skal þess freistað að hefja þáttinn. í fyrravetur var þessi frímerkjaþáttur hálfsmánaðar- lega, og tókst nokkurn veginn að halda þeirri reglu. Slíkt getur að vísu verið allbindandi — ekki sízt fyrir einn mann, — jafnvel þótt af nægu efni sé að taka. Sannleikurinn er sá, að tiltöiu- lega auðvelt er að fitja upp á umræðuefni í tómstundaþætti sem þessum, ef bæði tími og vilji er fyrir hendi, en vitaskuld verður efnið misjafnt að gæðum. Hinu neita ég svo ekki, að mér þóttu lesendur um of tregir eða hlédrægir til að senda þættinum línur til birtingar á síðasta vetri, en vonandi taka einhverjir rögg á sig á vetri komanda. Þá vil ég þegar í upphafi taka það fram, að ekki er víst, að unnt verði fyrir mig að halda sömu reglu og í fyrra, en um hitt verður reynt að sjá til, að þáttur þessi birtist annaðhvort á laugardegi eða sunnudegi. Lesendur mega sem sagt ekki búast við honum hálfs- mánaðarlega, enda þótt þess verði vissulega freistað. Hitt gæti svo aftur komið fyrir, ef sérstakar ástæður verða til, að nýr þáttur kæmi út að viku liðinni. Ný frímerki Frá því er síðasti þáttur birt- ist 21. júlí sl., hefur Póst- og símamálastofnunin gefið út tvö frímerki. Er annað þeirra 140 kr. að verðgildi og tileinkað Al- þjóðaári barnsins. Hitt merkið er 500 kr. og gefið út í tilefni þess, að Stjórnarráð íslands varð 75 ára 1. febrúar sl. Þar sem þessi frímerki hafa verið í umferð síðan 12. sept., er ástæðulaust að lýsa þeim nánar hér. Þó get ég ekki látið hjá líða að fara um þau nokkrum orðum. Barnaársmerkið er teiknað af „ungri listakonu, Nönnu Huld Reykdal (f. 1971)“, eins og segir í tilkynningu póststjórnarinnar. Að mínum dómi er þetta merki stílhreint og mynd þess í fullu samræmi viö tilefnið. Stjórnar- ráðsmerkið hefur Þröstur Magn- ússon teiknað. Þar finnst mér vanta alveg ramma utan um sjálft myndefnið, þannig að allt rennur út í eitt, þegar frímerkið er límt á hvítt umslag. Er ég satt að segja hissa á, að vanur teiknari skuli ekki sjá þessa missmíði á annars þokkalegu merki, sem sýnir okkur skjaldar- merki íslands fyrir 1904 og svo eftir til ársins 1919. Vitaskuld má deila um, hvernig bezt sé að hafa eða orða þann texta, sem settur er á frímerki. En hér hefði ég kosið að sleppa ákveðna greininum og segja einungis: Skjaldarmerki til 1904 og svo Skjaldarmerki 1904—1919. Of- notkun greinis er aldrei til fyrirmyndar og hér hefði hann að ósekju mátt missa sig. Þegar Póst- og símamála- stofnunin sendi út tilkynningu sína um ofangreind tvö frímerki, tilkynnir hún ósköp sakleysis- lega um útkomu „nýs merkis". Þar segir svo: „Nr. 184, 30. IV. 1979 110 kr. 3.500.000 (leiðrétt- ing, correction)." Ef þessi klausa skyldi hafa farið fram hjá ein- hverjum safnara, vil ég vekja athygli á henni. Hér hefur póststjórnin sem sagt bætt 2 milljónum við 110 kr. Evrópumerkið frá í vor, því að hún var þegar búin að gefa upp upplag þess, 1.500.000, og var það jafnstórt og af 190 kr. merkinu úr sömu seríu. Eitthvert feimn- ismál virðist þetta vera hjá stofnuninni, því að ég hef aldrei heyrt það fyrr, að endurprentun frímerkis væri „leiðrétting". Sennilega á þetta að vera ein- hver afsökun við safnara, því að þeir eru vitanlega ekki of hressir yfir því, að gripið sé til endur- prentana sama merkis út úr neyð eða af mistökum póst- stjórnarinnar. Vonandi endist svo þetta nýja upplag fram að næstu burðargjaldshækkun, sem trúlega er ekki langt undan, ef að líkum lætur. Ekki hef ég heyrt um nokkurn mismun á „fyrri" og „seinni" prentun, enda er svissneska prentsmiðjan svo vönduð við sitt verk, að ég á tæplega von á því. En ég held, að samtök frímerkjasafnara þurfi að vera vel á verði, ef íslenzka póststjórnin leikur aftur þennan leik. Næstkomandi fimmtudag, 1. nóvember, er svo von á tveimur nýjum minningarfrímerkjum. Er lægra verðgildið 150 krónur, og ber það merki mynd þeirra hjóna Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar Einarsdóttur. En í desember eru eitt hundrað ár liðin frá láti þeirra, og af því tilefni er frímerkið gefið út. Þröstur Magnússon hefur teikn- að þetta merki og notað sem fyrirmynd næsta sjaldgæfa ljósmynd af þeim hjónum, sem birtist í Bréfasafni Jóns, er út kom á aldarafmæli hans árið 1911. Mun þessi mynd hafa verið tekin um sama eða svipað leyti og þau gengu í hjónaband árið 1845. Hitt frímerkið er 200 krónur að verðgildi, og er út- koma þess tengd frægasta rit- höfundi Islendinga að fornu, Snorra Sturlusyni, en á þessu ári eru átta aldir liðnar frá fæðingu hans. Þessa afmælis hefur þegar verið minnzt á veglegan hátt af Háskóla Islands og ríkisstjórn- inni með samkomu í hátíðasal Háskólans í júní síðastliðnum og svo sýningu á handritum og útgáfum á ritum Snorra í Boga- sal Þjóðminjasafnsins. Stóð sú sýning lengi sumars. Vel hefði farið á því, að minningarfrí- merki póststjórnarinnar hefði komið út um leið og afmælisins var minnzt í sumar og raunar sjálfsagt. Trúlega hefur hér ver- ið eitthvert sambandsleysi milli réttra aðila. Engu að síður afsakar það ekki, að póststjórn okkar er því miður oft anzi svifasein í útgáfu- málum sínum. Myndefni þessa frímerkis er hluti af því eina blaði, sem varðveitzt hefur úr Kringlu, elzta handriti Heims- kringlu, sem vitað er um og ritað var um 1260. Hér hefur þess vegna einnig bætzt enn eitt merki í flokk íslenzkra handrita- frímerkja, og fer vel á því. Dagur frí- merkisins verður að þessu sinni haldinn þriðjudaginn 6. nóv. n.k. Segja má, að hann verði með hefð- bundnum hætti, enda er hann kominn í nokkuð fastan farveg og orðinn árviss atburður í samskiptum íslenzkra frí- merkjasafnara og íslenzku póst- stjórnarinnar. Hefur hún eins og áður látið gera sérstimpil til nota á aðalpósthúsinu í Reykjavík, og sést i honum telpa að leik. Er stimpillinn þannig tengdur barnaári Sameinuðu þjóðanna, og á það vissulega vel við. I tilkynningu póststjórnarinn- ar um Dag frímerkisins er tekið fram, að lágmarksburðargjald undir bréf sé 110 kr. og 90 kr. undir prentað mál. Þetta verða menn að hafa í huga, þegar þeir frímerkja umslög sín, því að ella fá þeir þau ekki stimpluð. Um leið og ég bendi á þetta, sakar ekki að minna safnara á að nota mismunandi frímerki á umslög- in, ef þess er kostur, því að það eykur fjölbreytnina. Þá þarf tæplega að nefna það við safn- ara, að Félag frímerkjasafnara gefur að venju út sérumslög til nota við stimplun á Degi frímerkisins, og fást þau í frímerkjaverzlunum og eins hjá félaginu sjálfu. Félagar í F.F. minnast dagsins á ýmsan hátt, en nú mun áreið- anlega margur sakna Sigurðar Ágústssonar, sem sá allt frá upphafi um, að margs konar efni var sýnt á nokkrum stöðum í Reykjavík þennan dag, en auð- vitað naut hann til þessa aðstoð- ar ýmissa ágætra félaga. Þegar þetta er ritað, mun ekki að fullu ráðið um gluggasýningar í sam- bandi við Dag frímerkisins að þessu sinni. Þó hef ég heyrt, að reynt muni verða að hafa sýn- ingu í gluggum Landsbankans að Laugavegi 77 og þá e.t.v. sýnt eitthvað af þeim hjálpargögnum, sem safnarar nota við söfnunina, t.d. frímerkjalistar og bækur og blöð um frímerki. En þetta kemur allt í ljós síðar. Þá er ákveðið, að frímerkja- safnarar í Reykjavík og ná- grenni geti hitzt og rabbað saman um hugðarefni sín á Hótel Holti (í Þingholti) að kvöldi Dags frimerkisins, svo sem venja hefur verið um nokk- ur ár. Hefst samkoman kl. 20.30, og eru safnarar hvattir til að fjölmenna. Frímerkja- uppboð í dag Hlekkur sf. heldur 5. frí- merkjauppboð sitt í dag í ráð- stefnusal Hótels Loftleiða, og hefst það kl. 14. Uppboðsefnið verður til sýnis frá kl. 10—11.30 á sama stað. Þar sem uppboðið er svo nærri, er ástæðulaust að lýsa efninu nákvæmlega hér. Alls eru 420 númer og vissulega allmikil fjölbreytni í efni. Þó verður að segja eins og er, að heldur virðist þar færra um verulega áhugavert efni en á fyrri uppboðum Hlekksins. En þrátt fyrir það geta vafalaust margir gert þar góð kaup, og því er sjálfsagt að hvetja frímerkja- safnara til að fara á það. Þess vegna minnist ég á uppboðið hér, þótt seint sé. Eru peningarnir ydar kannski dýrmætari en þér haldid...? VERÐLAG er síbreytilegt á slíkum verðbólgutímum, sem við nú lifum á, og verð á mynt og seðlum virðist halda vel í við verðbólguna. Gull- og silfurmynt hefur undanfarið hækkað mjög mikið, miðað við hvaða gjaldmiðil sem er. Verðskráning á íslenskri mynt og seðlum er í verðlistanum íslenskar myntir. Ég ætla rétt aðeins að benda á, að 10 eyringar frá 1925 og 1929 eru þar metnir á þetta 7 þús. til 27 þús. krónur stykkið. Það væri þó alveg einstök tilviljun ef einhver ætti 10 eyring frá 1925 eða 1929, sem hefur aldrei farið í umferð, og er eins og nýr úr sláttunni en svoleiðis peningar eru örugglega 27 þús. króna virði. Ég - hefi tekið 10 eyringana hér sem dæmi, en í sumar keypti ég 2 krónu pening frá 1925 á 37 þús. Einn alKennanti verðliatinn sem ialenHk- ir myntsafnarar nota. Hér er nýjanta llttíáfa hans. krónur. Sá peningur er líka eins og nýsleginn. 1 eyringar, 2 eyringar si«a* mentkatalog 1980 Norden WJ079 11. UDQAVE eftir RAGNAR BORG_____________ og 5 eyringar hafa enn ekki náð neinu umtalsverðu verði, en allar upplýsingar um verð á íslenskri mynt er að finna í verðlistanum íslenskar myntir 1980, sem m.a. er seldur á Myntsýningunni í Boga- salnum. Gamlir gull- og silfurpen- ingar geta haft töluvert verðgildi. Við myntsafnarar veitum þeim, sem koma á Myntsýninguna í dag, og taka með sér gömlu peningana, íslenska eða útlenda, ókeypis þjón- Myntin á myndinnl er til sðlu hjá Möntstuen i Kaupmannahöfn. Peninsur nr. 2 kostar 4250 danskar krónur. Peninxar nr. 20 otc 21 eru svo dýrir ott sjaldtcœfir, að beðið er um tilboð i þá. Aðrir penintcar á myndinni kosta þetta 675 til 1200 danskar krónur. ustu við að meta verðmæti þeirra. Við munum hafa með okkur verð- lista yfir gamla og nýja peninga. Myntsýningin er opin frá kl. 14.00 til 22.00 og þetta er næst síðasti dagur sýningarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.