Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 36 Viðar Helgason bygg- mgameistari - Minning Fæddur 29. ágúst 1938. Dáinn 17. október 1979. Viðar Helgason, byggingameist- ari, Akureyri, lést miðvikudaginn 17. október s.l. Útför hans verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag. Við vinir Viðars vissum að hann gekk ekki heill til skógar hin síðari ár, en þrátt fyrir það kom fráfall hans yfir okkur sem reið- arslag. Hann var í blóma lífsins, einungis 41 árs að aldri, fyllri lífsorku og óbilandi dugnaði en flest okkar, sem efti'r lifum, en enginp má sköpum renna og nú er þessi góði drengur horfinn yfir móðuna miklu. Viðar Helgason var fæddur í Ólafsfirði 29. ágúst 1938. Foreldr- ar hans voru Pálína Jóhannsdótt- ir, sem lifir son sinn 82 ára að aldri, og Helgi Jóhannesson, mik- ill hagleiksmaður og völundur á hvaðeina, sem hann tók sér fyrir hendur. Hann lést á síðasta ári, en Pálína býr hjá dóttur sinni á Ólafsfirði. Þau Helgi og Pálína bjuggu lengst af í húsi, sem nefnt er Syðstibær í Ólafsfirði og áttu þau 12 börn. Viðar var næst yngstur. Eina dóttur misstu þau unga, en nú eru 10 systkini Viðars á lífi. Viðar fluttist að heiman 18 ára að aldri og hóf nám hjá Ágústi Jónssyni á Akureyri síðla sumars 1956 og meistararéttindi í húsa- smíðaiðn hlaut hann 1963. Um líkt leyti og Viðar fluttist jafnaldri hans frá Ólafsfirði til náms í húsasmíði til Akureyrar, Aðalgeir Finnsson frá Ytri-Á. Þeir Aðal- geir og Viðar höfðu þá lítið þekkst í Ólafsfirði. Þeir gengu þar ekki í sama skóla. Aðalgeir sótti skóla á Kleifum en Viðar í þorpinu í Ólafsfirði. Þegar til Ákureyrar kom lágu leiðir þeirra saman, m.a. borðuðu þeir saman sem ungir námsmenn á Hólabraut 22 hjá Rut Ófeigsdóttur, síðar tengdamóður Viðars. Þessir ungu samhentu félagar Aðalgeir og Viðar, færðust síðar mikið í fang. Þeir voru ásamt fleirum stofnendur fyrirtækisins Haga h.f. árið 1961 og með því hófst samvinna þeirra. Árið 1963 stofnuðu þeir svo sitt eigið fyrir- tæki, Aðalgeir og Viðar h.f., sem nú er orðið eitt af stærstu bygg- ingarfyrirtækjum hér á landi. Þar var þó ekki látið við sitja. Aðalgeir og Viðar stofnuðu íspan h.f. 1971 og ári síðar Glerborg h.f. í Hafn- arfirði, ásamt Bjarna Kristinssyni og fleirum. Gler og spegla h.f, stofnuðu þeir ásamt Finni Magn- ússyni 1974, og Tölvang h.f. 1977 ásamt fleirum en það fyrirtæki sér um tölvuvinnslu fyrir Aðalgeir og Viðar h.f. Þessi upptalning segir sína sögu um fádæma dugnað og áræði Viðars og Aðalgeirs, en þó í raun og veru ekki um það sem máli skiptir. Samstarf og samheldni þessara vina minna er óhætt að segja að sé alveg einstök. Þeir voru óíkir að skapferli, en þó unnu þeir það þrekvirki á stuttum tíma að byggja upp stórfyrirtæki, þótt tómhentir námsmenn væru í fyrstu. Á samstarf þeirra bar aldrei skugga. Þar ríkti fullt og óskorað trúnaðartraust, sem var þeirra aðalsmerki. Það er til marks um einstæða vináttu og samheldni þeirra og eiginkvenna þeirra að þau fóru oftast saman í frí og nutu ríkulega samvistanna öll fjögur, þegar tækifæri gafst til að hverfa um stund frá amstri atvinnurekstrarins. Nú sakna Lilja og Aðalgeir vinar í stað, frábærs starfsfélaga og meðeiganda, og starfsfólk fyrirtækjanna saknar Viðars, sem var í senn mikill mannasættir, drenglundaður stjórnandi og stór- huga framkvæmdamaður, sem viðskiptavinir jafnt og starfsfólk virtu og báru hlýhug til. Viðar Helgason hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum — eins og raunar á fleiri sviðum. Hann fylgdi Sjálfstæðisflokknum að málum og vann margvísleg trún- aðarstörf fyrir hann, m.a. í nefnd- um á vegum bæjarins. Hann gekk í Frímúrararegluna 1973 og tók virkan þátt í því starfi eins og öðru, sem hann tók sér fyrir hendur. Viðar kvæntist 6. sept. 1959 Birnu Eiríksdóttur frá Akureyri. Þau áttu fimm börn: Reyni, f. 1960, Björk, f. 1962, Hörpu og Gígju, tvíbura, f. 1964, og Ruth, sem er 9 ára. Viðar var mikill gæfumaður í einkalífi. Hann unni heimili sínu konu og börnum öðru fremur og helgaði sig heimilinu svo sem mest hann mátti, þrátt fyrir umsvif í atvinnurekstri. Birna bjó Viðari einstaklega fag- urt og hlýlegt heimili, sem þau bæði þreyttust aldrei á að fegra utan húss og innan. Garðurinn er einn fegursti á Akureyri og segir það sína sögu. Á heimili þeirra Birnu og Viðars var notalegt að koma og ræða málin. Þar var að finna fölskvalausa vináttu, hreinskilni, lifandi áhuga á þjó- málaumræðu, leik og starfi, ásamt þeirri gestrisni, sem verið hefur aðall íslenzkustu heimila fyrr og síðar. Ég þekkti Viðar Helgason frá barnæsku, en kynntist honum mest eftir að við hjón fluttumst til Akureyrar. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund, harðdugleg- ur, tápmikill, skapmikill, en hlýr og hvort sem hann var harður húsbóndi eða umburðarlyndur vildi hann samstarfsfólki sínu og samferðarmönnum vel enda vart hægt að finna trölltryggari vin. Ég veit að söknuður og eftirsjá Aðalgeirs og konu hans, Lilju, er ósegjanlegur og ennfremur sam- starfsmanna hans, en mestur og sárastur harmur er kveðinn að Birnu konu hans og börnum. Ég bið góðan Guð að styrkja þau og styðja í sinni djúpu sorg. Megi minningin um svo góðan dreng verða þeim huggun. Vidda þakka ég samfylgdina, drengskap- inn og vináttuna. Við Rúna send- um Birnu og börnunum, aldraðri móður og systkinum Viðars og Aðalgeiri og Lilju innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi okkur öllum minningu Viðars Helgasonar. Lárus Jónsson Viðar Helgason var fæddur þann 29. ágúst 1938 í Ólafsfirði og ólst upp í foreldrahúsum, en hann var sonur hjónanna Pálínu Jó- hannsdóttur og Helga Jóhannes- sonar og var hann næst yngstur 12 barna þeirra. Átján ára gamall lagði hann leið sína til Akureyrar til náms í húsasmíði. Árið 1963 stofnaði hann fyrirtækið Aðalgeir og Viðar h.f., með vini sínum Aðalgeir Finnssyni sem er Ólafsfirðingur og hafði einnig lokið námi í húsasmíðum á Ákureyri. í hönd- um þeirra hefur þetta samstarf þróast upp í eitt stærsta bygg- ingafyrirtæki á Akureyri. Kynni okkar Viðars hófust fyrir allmörgum árum, þegar þeir fé- lagar tóku að sér bygginga- framkvæmdir á vegum þess fyrir- tækis sem ég starfa við. Það kom í minn hlut að hafa dagleg viðskipti við Viðar í um það bil tvö ár, á meðan á byggingaframkvæmdum stóð. Viðar var hamhleypa til vinnu og sagði sínar skoðanir umbúða- laust, jafnvel svo að sumum þótti nóg um. Alrrei fór þó svo í þau tvö ár sem við unnum saman að við skildum ekki sáttir, þótt báðir hefðum við okkar skoðanir. En tengslin rofnuðu ekki þótt daglegum viðskiptum væri lokið. Samgangur okkar og fjölskyldna okkar óx, og nú hófust kynni af heimilisföður og einkavini sem var ljúfmenni og gleðimaður í vina- hópi. Það voru skemmtilegar stundir sem við hjónin áttum með Birnu og Viðari í Hamragerði 2 og Lerkilundi 22 og það verða þær stundir sem verða skýrastar í minningunni um Viðar. Um hádegi hinn 17. október s.l. barst fréttin um lát Viðars. Þótt við vissum að hann gengi ekki heill til skógar, kom fregnin svo óvænt að erfiðlega gekk að trúa henni. Það er erfitt að trúa því að maður eigi ekki eftir að hitta jafn lífsglaðan og ágætan félaga og Viðar var. Hinn 6. sept. 1959 kvæntist Viðar eftirlifandi konu sinni, Birnu Eiríksdóttur og varð þeim fimm barna auðið, Reynis, 19 ára, Bjarkar 17 ára, Gígju og Hörpu, 15 ára og Ruthar, 9 ára. I Hamragerði 2 ríkir mikil sorg eftir þau miklu umskipti sem hafa orðið og er það ósk og von að hinn hæsti höfuðsmiður lini þær þján- ingar. Eitt vitum við, að þær ljúfu endurminningar, sem þau eiga, eru þeim huggun í harmi. Frá okkur Ingu fylgja kveðjur og þakkir fyrir ánægjuleg kynni og einlægar bænir til Birnu og barnanna á erfiðri stundu. Gunnar bórsson Við ókum burt frá gröíinni, enginn sagöi neitt, og undarleg var gangan heim í hlaöið, þvi fjaliiÖ hans og bærinn og ailt var orðið breytt, þó auönin væri mest, þar sem kistan hafði staðið. bó ennþá blöktu í stjökunum örfá kertaljós, var allsstaðar í húsinu döpur rökkurmóða. Á miðju stofugólfi lá föl og fannhvit rós, sem fallið hafði af kistu drengsins góða. Ég laut þar yfir rósina, svo enginn annar sá, að öllum sóttu lífsins þungu gátur. Svo kyrrt var þarna inni, að klukkan hætti að slá, en klökkvans þögn er innibyrgður grátur. í silfurvasa lét ég mina sumarbjörtu rós, en samt var henni þrotið lif og styrkur. Svo brunnu þau að stjökum hin bleiku kertaljós. og blómið hvarf mér — inn iii ögn og myrkur. Davið Stefánsson. Okkur setti öll hljóð er harm- fregnin barst, laust fyrir hádegi 17. okt. sl., þess efnis að Viðar væri látinn. Slíku er ekki hægt að trúa, getur þetta verið satt, hann var hérna rétt áðan, ég var að tala við hann, hann ætlaði að koma eftir hádegi og ræða betur við mig, þurfti aðeins að skreppa heim sagði hann. Er ekkert réttlæti til, hver er tilgangurinn með því að hrífa burtu athafnamann í blóma lífsins frá konu, börnum og gróskumiklum fyrirtækjum? Hann var vanur að koma snemma á morgnana, gustmikill í fasi og myndarlegur á velli, berandi með sér lífsþróttinn og athafnaþrána við upphaf hvers vinnudags, þessa ómetanlega eiginleika til fang- bragða við umfangsmikið daglegt starf. Jú, því miður er þetta víst satt og þess vegna höfum við öll verið svo hljóð og talað svo lágt, því hvort sem menn líta á endalok mannlegs lífs sem upphaf annars æðra tilverustigs eða ekki, eru sorg og tregi fylginautar dauðans, þessa óhjákvæmilega atburðar sem fylgir öllu lífi. Það mun verða gengið hljóðlega um lengi lengi í fyrirtækjunum. Við munum reyna að rækja okkar störf af vand- virkni og trúmennsku eins og hann brýndi svo oft fyrir okkur. Það er ekki hægt annað en tala um hann eins og hann væri hérna, því það rúm sem hann fyllti í hugum okkar allra, sem göngum hér að daglegum störfum, er það stórt að án vitundarinnar um nálægð hans er nær óhugsandi að framkvæma það sem fyrir liggur. Er það ekki einkennilegt að sjúkdómurinn sem hann kenndi fyrst fyrir tíu árum síðan og við vitum öll að hann leið mikið fyrir og sem hefir nú fullkomnað verk sitt, kom okkur algjörlega á óvart. Elja hans og vakandi áhugi á öllu því sem var að gerast villti okkur sýn. Kannski hefur Viðar vitað betur. Kannski hefur hann farið á undan til að leggja grundvöll að nýju samstarfi síðar. Guð einn ræður. Viðar Helgason fæddist í Ólafs- firði 29/8 1938, næst yngstur tólf systkina, kom ungur til Akureyrar og nam húsasmíði. Kvæntist eftir- lifandi eiginkonu sinni, Birnu Eiríksdóttur, 1959 og eignuðust þau fimm mannvænleg börn. Fyrirtækið Aðalgeir & Viðar h.f. stofnuðu þeir æskufélagarnir Við- ar og Aðalgeir Finnsson árið 1963. Fjölskyldur þeirra hafa alla tíð verið mjög samrýmdar og djúp er sú sorg sem ríkir hjá Áðalgeir, Lilju og þeirra börnum vegna fráfalls hins besta vinar og félaga. Það er átakanlegt að horfa á þann mikla trega og þá djúpu sorg sem lýsir sér hjá Aðalgeir, sem fyrstur varð til þess að færa okkur, starfsfólki þeirra félaga, harma- fregnina. Aðalgeir minnist hins ánægjulega samstarfs þau ár sem þeir hafa verið saman með rekstur fyrirtækja. Við starfsfólkið höfum alla tíð litið á þá félaga sem eina órofa heild. Aðalgeir og fjölskyldu hans vottum við dýpstu virðingu. Birnu og börnunum vottum við öll dýpstu samúð og hluttekningu í sorg þeirra, og biðjum góðan Guð að styrkja þau og styðja í þeim erfiðleikum sem fráfall hins ástríka föður og elskulegasta eig- inmanns hefir að geyma. Starfsfólk fyrirtækjanna, Aðalgeir & Viðar h.f. tspan h.f. Gler & Speglar s.f. t Móöir okkar og stjúpmóöir LAUFEY JÓNSDÓTTIR Bugöulæk 10 er látin. Helga Kristinsdóttir, Bergur Kristinsson, Elísabet Kristinsdóttir, Gunnlaugur Kriatinsson. t BENEDIKT FRIÐRIKSSON, frá Broddanesi lézt aö heimili sínu Engjaseli 83. aöfaranótt 25. þ.m. Jaröarförin auglýst síöar. Ingibjörg Benediktsdóttir, Torfi Benediktsson, Tryggvi Benediktsson, Svala Noröberg. t Bróöir okkar og mágur, MAGNÚS SIGURÐSSON, Laugavegi82 veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. 13.30. október kl. Margrét Siguröardóttir Jóhanna Siguröardóttir Einar Guöjónsson Anna Soffía Steindórsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúö viö andlát og jaröarför, ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR fré Ekru, Efstasundi 43, Reykjavík. Systkinin. t Þökkum samúö og vináttu viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR Frakkastíg 24. Ósk Guömundsdóttir. Einar Guómundsson, Gunnar Guömundsson, Hilmar Guómundsson, og barnabörn. Gunnþórunn Erlingsdóttir, Ólöf Gísladóttir, Sigrún Ólafsdóttir, t Innilegustu þakkir fyrir allan hlýhug og styrk veittan mér og mínum i veikindum og eftir lát HULDARS SMÁRA ÁSMUNDSSONAR. Fyrir hönd barna, ættingja og vandamanna Björg Siguróardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.