Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 Ölafur G. Einarsson: Það var ekki ætlun mín að skipta mér af miður vinsamlegum skrifum um fyrirtækið Olíumöl h.f. Þau skrif hafa nú staðið yfir með smá-hvíldum síðan í janúar og greinarnar sjálfsagt orðnar nálægt 30 talsins í einu dag- blaðanna. En þar sem ég hef orðið þess var að málefni félagsins eru notuð gegn mér í prófkjöri því, sem fram fer nú um helgina, og menn vita yfirleitt ekki hvað satt er, verð ég í sem stytstu máli að greina frá staðreyndum. skyldu bæta við sig þar af kr. 200 milljónum, og hafði þeim verið útvegað íán til þess. Fram- kvæmdasjóður hafði samþykkt að gerast meðeigandi með 100 millj- ón króna hlut, og verktakar gátu svo bætt við sig allt að 100 milljónum. Þessar ráðagerðir voru samþykktar á aðalfundi. Af þeim sveitarfélögum, sem hlut áttu í félaginu, höfnuðu fjögur að bæta við eign sína, Seltjarnarnes, Mos- fellssveit, Gerðahreppur og Hafn- arfjörður. lags. Þótt þær yfiriýsingar hafi reynzt marklitlar til þessa, er nú alveg augljóst mál, að því verkefni verður ekki lengur skotið á frest. Því er það sannfæring mín, að næg verkefni séu framundan og þá þarf þetta félag ekki að biðja um hjálp. Tilvera félagsins hefur gjör- breytt gatnakerfi flestra þéttbýl- issveitarfélaga á landinu, og það er einnig því að þakka að þessir stuttu spottar þjóðvegakerfisins hafa verið lagðir, eins og t.d. austur yfir Hellisheiði og um Suðurland, á Reykjanesi, í Mos- fellssveit og víðar. Félagið er vel búið tækjakosti, á fullkomna olíu- stöð í Hafnarfirði og ræður yfir þeirri tækniþekkingu, sem þarf til að anna þeim verkefnum er fyrir Verkefnin framundan næg — og þá þarf þetta fyrirtæki ekki að biðja um hjálp Félagið hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að stríða að undanförnu. Orsakir eru margar, en þessar helstar: of mikil eða hröð fjárfesting, erfiðar erlendar skuldir, sem í verðbólgu, með tilheyrandi gengisfellingum, hafa orðið æ erfiðari, og lítil verkefni miðað við afkastagetu. Fráfarandi stjórn, sem ég var formaður í, skilaði af sér á aðalfundi í vor. Þá hafði hún undirbúið viðreisn félagsins þann- ig, að hlutafé skyldi aukið um allt að kr. 400 milljónir. Sveitarfélög Ríkisstjórnin samþykkti í vor, að heimila Framkvæmdasjóði lán- töku, ef þörf væri, til þess að sjóðurinn gæti lánað framan- greindar upphæðir til sveitarfé- laganna og gerst sjálfur aðili. Bréf var skrifað af fjármálaráðherra, samgöngumálaráðherra og félags- málaráðherra, þar sem hvatt var til þess að félaginu yrði hjálpað yfir erfiðleikana. Þrátt fyrir allar þessar sam- þykktir hefur ekki enn verið gengið endanlega frá hlutafjár- aukingunni. Um orsakir þess ræði ég ekki. Það hefur að sjálfsögðu aukið á erfiðleikana, að ekki hefur tekizt að fá þetta aukna fjármagn inn í reksturinn. Til viðbótar kemur svo, að aumingjaskapur hins opinbera í lagninu bundins slitlags hefur aldrei verið meiri en í ár. Þannig fellur framleiðslan úr rúmlega 70 þús. tonnum í 30 þúsund tonn. Allir, sem við rekst- ur fást, skilja afleiðingarnar. Félagið hefur á ferli sínum tekið trúanlegar yfirlýsingar stjórn- málaflokkanna, að nú yrði að gera stórátak í lagningu bundins siit- liggja. Afkastageta fyrirtækisins er um 170 þúsund tonn á ári. Framleiðsla til þessa er hins vegar á fimmta hundrað þúsund tonn, eða sem svarar slitlagi á veginn frá Reykjavík og austur fyrir Akureyri. Skuldir félagsins eru nú nálægt 1300 milljónum. Eignir þess nema svipaðri upphæð samkvæmt mati, sem unnið var fyrir tæpu ári. Það eignamat er við það miðað, að félagið verði áfram í rekstri. Ef félagið yrði gjaldþrota, fengist ekki þetta verð fyrir eignir þess. Á aðalfundi s.l. vor töldu sumir fulltrúar að til þess að koma málum félagsins í lag þyrfti að losna við framkvæmdastjórann og stjórnarformanninn. Hvort tveggja varð, en erfiðleikum er ekki lokið. Framkvæmdastjórinn hætti snemma sumars að eigin ósk og ég gaf ekki kost á mér sem stjórnarformaður, en sit áfram í stjórn. Sem slíkur hef ég reynt með félögum minum í stjórninni að leggja mitt af mörkum til að halda félaginu gangandi. Það hef- ur tekizt til þessa. Við höfum talið það skyldu okkar gagnvart eigend- um félagsins að gera allt, sem unnt er, til að forða rekstrarstöðv- un. Ef félagið verður gjaldþrota tapa sveitarfélögin ein um 230 milljónum króna. Þeir sveitar- stjórnarmenn, sem leggja stein í götu þess að félagið rétti við, eru ekki að gæta hagsmuna sinna sveitarfélaga. Ef afstaða þeirra byggist hins vegar á því, að ekki sé þörf fyrir framleiðslu félagsins, eða að þessi rekstur sé betur kominn í höndum ríkisins, er hægt að skilja þá. Fyrir starf þessa félags hefur hugsunarháttur fólks gjörbreytzt að því er varðar umhverfi þess. Það unir því ekki að vaða aurinn á götum bæja sinna eða þola rykið, þegar þurrt er. Vaxandi skilning- ur er einnig á nauðsyn þess að leggja bundið slitlag á þjóðvegina. Ef félag þetta hættir störfum verður óhjákvæmilega hlé á þess- ari framleiðslu. Hún mun hins vegar hefjast að nýju síðar, en þá eingöngu í höndum ríkisins. Yfirlýsing fjármálaráöherra í Dagblaðinu í gær er ekki tímabær og ekki gefin af réttum aðila. Það sem þarf til að forða gjaldþroti er að fjármagn, sem lofað var, verði greitt. Auk þess þarf velvilja ráðamanna. Ef fjármálaráðherra telur sig meiri mann af því að gera ekki það, sem í hans valdi stendur, til að koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón ýmissa aðila, þá er það hans mál. Hann er sá maðurinn, sem mestu ræður um framvindu mála. Hreggviður Jónsson: Fyrir nokkrum dögum var kveð- inn upp dómur í bæjarþingi Reykjavíkur. Þetta mál fjallaði um loforð, sem var gefið kjpsend- um, launþegum Reykjavíkurborg- ar fyrir síðustu kosningar og síðan áréttað af sigurvegurunum í borg- arráði og borgarstjórn með sam- þykkt, sem er einstök. Samþykktin var einstök að því leyti, að þar var samþykkt að greiða „öllu starfs- fólki borgarinnar“ í nánar til- greindum áföngum „fuliar verð- bætur skv. ákvæðum kjarasamn- inga“. Þetta mál er mikið mál, grundvallaratriði í siðgæði og í stjórnarfari. Dómurinn sem féll Voru þeir allir á útimarkaðinum við pylsuvagninn? Sjálfstæðis- flokkurinn í borgarstjórn var ein- huga í þessu máli og mótmælti þessu sem ólöglegu og taldi meiri- hlutann fara út fyrir valdsvið sitt. Það stjórnmálalega siðleysi, sem kom fram í vinnubrögðum núverandi meirihluta, er það sem einkennt hefur alla sögu vinstri manna. Þeir telja sig hafna yfir landslög, hvað þá önnur lög. Þegar nýr meirihluti hafði tekið við stjórn Reykjavíkurborgar í fyrsta sinn í hálfa öld voru andstæðingar sjálfstæðisflokksins Launþegar munu stefna atkvæðum sínum til liðs við sjálfstæðisstefnuna var í þágu þeirra upplausnarafla, sem ríkt hafa síðasta áratug og valdið 58 til 75% óðaverðbólgu. Þau hafa lofað, lofað og svikið. Eg gerði kröfu um að það gerræði Reykjavíkurborgar að greiða ekki skv. þessari samþykkt yrði hnekkt, svo varð ekki. Þar féll því dómur um, að lýðræðið sé á undanhaldi. Tími gerræðis og geðþótta ráðamanna er í uppsigl- ingu. Aldrei fyrr í sögu þessa lands hefur verkaiýðsleiðtogum og launþegum verið gerð slík smán. Hvar var Guðmundur J. og hvar voru þeir leiðtogar verkalýðsfélag- anna, er þetta mál heyrði undir? „himinlifandi". Aðalástæðan fyrir þessum kosningasigri var, að í kosningabaráttunni hafði megin- áherzlan verið lög á kjaramálin undir slagorðinu „samningana í gildi". Hinn nýi meirihluti sóð nú frammi fyrir miklum stjórnmála- legum vanda. Aðeins hálfur mán- uður til Alþingiskosninga og því reið a' að höfuðkosningaloforðið yrði efnt og það þegar í stað, svo hægt yrði að láta kné fylgja kviði í komandi kosningum. Því ákváðu þeir að slá Sjálfstæðisflokkinn út af laginu og gerðu þessa sam- þykkt, sem mun lengi lifa, vegna þess að hún átti aðeins að gilda þegar lög væru sett af ríkisstjórn- in Geirs Hallgrímssonar, en ekki þegar sams konar lög væru sett af nýrri vinstristjórn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar. Þetta eru vinnubrögð, sem ættu vel heima annars staðar í verölainni en hér á landi. Andstæðingum okkar sjálf- stæðismanna hefur því orðið á skekkja í landfræðilegri staðsetn- ingu slíkrar samþykktar. Við er- um allt of vestarlega, til að hægt sé að fara þannig með okkur. Við munum því sýna í verki andstöðu okkar gegn slíkum ólögum og alræði. Launþegar munu stefna atkvæðum sinum til iðs við sjálf- stæðisstefnuna i komandi kosn- kosningum. Hausthappdrætti Krabba- meinsfélagsins hafið Krabbameinsfélagið hefur nýlega hleypt af stokkunum hausthappdrætti sinu og eru vinningar að þessu sinni tíu talsins: Fjórir fólksbilar, Dodge Omni, Saab 99 GL, Citroen Visa Club og Toyota Starlet DL, en hinir sex vinn- ingarnir eru Crown útvarps- og segulbandstæki. Er hcildar- verðmæti vinninga meira cn 22 milljónir króna. Ágóðinn af happdrættinu rennur fyrst og fremst til fræðslustarfsemi krabba- meinssamtakanna svo og krabbameinsleitar, frumu- rannsókna og krabbameins- skráningar. Er öll starfsemin að meira eða minna leyti háð því að landsinenn taki happdrættinu vel, en á það hafa samtökin ætíð getað treyst, segir í frétt frá Krabbameinsfélaginu. Hafa ha- ppdrættismiðar verið sendir skattframteljendum á aldrinum 23—67 ára. Auk þess verða miðar seldir úr happdrættisbíl við Bankastræti og á skrifstof- unni, sem jafnframt veitir nán- ari upplýsingar, en dregið verð- ur 24. desember. Jónas Ragn- arsson starfsmaður Krabba- meinsfélaganna sagði að sú stefnubreyting hefði orðið með vinninga að hafa vinningsbjlana sparneytna og hentuga fremur en stóra og dýra bíla, sem almenningur ætti erfitt með að reka og væru allir happdrættis- bílarnir í ár taldir sparneytnir. Forval Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík SÍÐARI umferð forvals Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik um skipan framboðslista vegna komandi alþingiskosninga fer fram i dag og á morgun að Grettisgötu 3. í dag verður kosið frá 14.00—19.00 og á morgun frá 14.00—23.00. Tilnefningu félagsins til síðari áfanga forvalsins hlutu tólf manns, en Ásmundur Stefánsson og Stella Stefánsdóttir gáfu ekki kost á sér í síðari umferð og í stað þeirra tilnefndi kjörnefnd þau Ester Jónsdóttur og Þröst Ólafsson. í forvalinu taka því þátt þau: Adda Bára Sigfúsdótt- ir, Álfheiður Ingadóttir, Ester Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Guðrún Helga- dóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Sigurður Magnússon, Svavar Gestsson og Þröstur Ólafsson. Síðari áfangi forvalsins miðar að því að velja sex menn til framboðs og rétt til að greiða atkvæði í forvalinu hefur hver sá félagi Alþýðubandalagsins í Reykjavík sem fullgildur er sam- kvæmt flokks- og félagslögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.