Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Stórsigur íslendinga gegn
írum í körfuknattleik io8rio
ÍSLAND vann næsta auð-
veldan sigur gegn slöku
írsku liði í íþróttahúsinu í
Njarðvík í gærkvöld, 108
gegn 80. Islenska liðið
hafði yfirburði á öllum
sviðum, hittni þeirra var
mun betri, þeir voru fljót-
ari í .sókninni og hraða-
upphlaupin þeirra nýttust
vel. írska liðið olli von-
brigðum í Njarðvík í gær-
kvöldi, baráttan sem ein-
kennt hefur irsk lið í
gegnum árin var ekki
fyrir hendi. Hraðaupp-
hlaup voru vart reynd hjá
liðinu. Hvað eftir annað
misstu leikmenn boltann
klaufalega og eldfljótir
leikmenn íslenska liðsins
beinlínis skildu þá eftir.
Liðin fóru sér
hægt í byrjun
Það var Símon Ólafsson sem
skoraði fyrstu körfuna í leiknum
en hann ásamt Jóni Sigurðssyni,
Kristni Jörundssyni, Gunnari
Þorvarðarsyni, og Kristni Ag-
ústssyni hófu leikinn fyrir Island.
Bæði liðin fóru afar rólega af stað
í byrjun leiksins og þreifuðu fyrir
sér. Eftir 5 mínútna leik var
staðan 8—8, en upp úr því náði
ísland undirtökunum í leiknum og
forystu án þess þó að vera afger-
andi betra liðið á vellinum.
Staðan breyttist í 21—14 og 10
stiga munur var á liðunum í
hálfleik 43-33.
Yfirburðir íslands
koma í Ijós
I síðari hálfleiknum komu yfir-
burðir íslenska liðsins berlega i
ljós, og stigin hrönnuðust upp.
Hraðaupphlaupin heppnuðust vel
og kunnu írarnir ekkert svar við
þeim. Þá voru íslensku leikmenn-
irnir afar harðir í fráköstunum og
hittni þeirra var mjög góð. Eftir
11 mínútna leik í síðari hálfleik
var staðan orðin 77—52 og á 15.
mínútu 87—65. Islendingar
stefndu ákveðið að 100 stiga mark-
inu og það tókst að rjúfa 100 stiga
múrinn á 18. mínútu síðari hálf-
leiksins en þá skoraði Gunnar
Þorvarðarson og staðan varð 101
gegn 71. 30 stiga munur og var það
mesti munurinn á liðunum í leikn-
um.
íslenska liðið
Þrír nýliðar léku með islenska
landsliðinu. Þeir Július Valgeirs-
son, Gísli Gíslason og Árni Lárus-
son. Þeir komu allir mjög vel frá
leiknum, sýndu góða frammistöðu
og börðust vel.
Jón Sigurðsson hafði sig frekar
lítið í frammi, gerði mest af því að
leika meðspilara sína uppi.
Bestu menn íslenska liðsins
voru þeir Gunnar Þorvarðarson
sem skoraði 21 stig, Símon Ólafss-
on sem skoraði 19 stig og Kristján
Ágústsson sem var með 18 stig.
Aðrir sem skoruðu fyrir Island í
leiknum voru: Kristinn Jörunds-
son 10 stig, Þorvaldur Geirsson 8
stig, Júlíus Valgeirsson 10 stig,
Guðsteinn Ingimarsson 8 stig,
Gísli Gíslason 7 stig, Jón Sigurðs-
son 4 stig, Árni Lárusson 4 stig.
Stigahæstur íranna var Marty
White með 19 stig og Andy
Houlinov með 18 stig. Þeir voru
jafnframt bestu menn liðsins.
Sagt eftir leikinn:
Einar Bollason landsliðsþjálf-
ari. — Þessi stórsigur kom mér
nokkuð á óvart. Ég átti von á
írunum mun sterkari. Annars er
það skoðun mín að góð frammi-
staða íslenska liðsins í kvöld og
góður leikur þess hafi endurspegl-
að þær miklu framfarir sem átt
hafa sér stað hér á landi í
körfuknattleiknum. Strákarnir
gerðu eins og fyrir þá var lagt,
sýndu mikla hörku og góða bar-
áttu í vörninni. Þær gagnrýnis-
raddir sem verið hafa um valið á
ungu strákunum í liðið, ættu að
breytast því að þeir stóðu sig allir
með mikilli prýði.
- H. Halls./þr.
Þorunn gerist
sundþjálfari
Frá Sundfélaginu Ægi
Um þessar mundir eru að hefj-
ast sundæfingar hjá Sundfélaginu
Ægi. Hefst vetrarstarfið nokkru
seinna nú en undanfarin ár, vegna
lokunar Sundhallar Reykjavíkur.
Afreksfólk félagsins hefur þó
æft nú um tveggja mánaða skeið.
Æfingar fyrir yngri félaga og
nýja félaga hefjast þriðjudaginn
30. október í Sundhöll Reykja-
víkur.
Æft verður þrisvar í viku, þ.e.
þriðjudaga, fimmtudaga og föstu-
daga kl. 18.50.
Þeim sem æfa er skipt í getu-
hópa, þannig að hver fái verkefni
við sitt hæfi.
Sundfélagið Ægir hefur ávallt
lagt mikla rækt við unglingaþjálf-
un og mun í vetur vanda til
hennar jafnvel enn betur en
nokkru sinni fyrr.
Hefur félagið ráðið þrjá þjálf-
ara til þess að þjálfa. Þeir eru
Guðmundur Harðarson, sem um
langt árabil hefur verið landsliðs-
þjáifari í sundi, Kristinn Kol-
beinsson, sem hefur getið sér gott
orð undanfarin ár við þjálfun hjá
Ægi og Þórunn Alfreðsdóttir, en
hún var eins og flestum er kunn-
ugt besta sundkona okkar um
árabil.
Munu allir þessir þjálfarar
þjálfa yngri flokka félagsins. Nán-
ari upplýsingar veita Guðmundur
Harðarson í síma 30022, og Hall-
dór Hafliðason í síma 35723.
Þórunn Alfreðsdóttir
• Kristinn Jörundsson fyrirliði íslenska landsliðsins í körfuknattleik brunar í
hraðaupphlaupi í landsleiknum í gærkvöldi í Njarðvík. Til vinstri á myndinni eru
tveir bestu menn íslenska liðsins, þeir Gunnar Þorvarðarson lengst til vinstri og
KrÍStján ÁgUStSSOn. I.jrtKmynd RAX.
Við munum leggja allt
í sölurnar til að sigra
Vestur-Þjóðverja í dag“
segir Olafur Jónsson fararstjóri
unglingaliðsins á HM
möguleika tslands. — Takist
okkur að ná upp jafn sterkum
varnarleik og á móti Rússum í
fyrradag þá sigrum við í leiknum
sagði Olafur. — Ég er mjög
bjartsýnn á sigur. Það er mikil
stemmning í hópnum og það
verður allt lagt í sölurnar. Við
höfum verið i allt kvöld að horfa
á leiki Þjóðverjanna á myndseg-
ulbandi og reynum að finna út
veikleika þeirra. Þeirra mesti
styrkleiki liggur í hversu góðan
varnarleik þeir spila.
Vestur-Þjóðverjar sigruðu Hol-
lendinga með 20 mörkum gegn 9
í fyrradag. Þeir sem hvíla í
leiknum í dag verða Kristján
Arason, Ársæll Hafsteinsson og
ölafur Guðjónsson. Þess má geta,
sagði ólafur, að hinn frægi þjálf-
ari Þjóðverja Stenzel fór heim í
fýlu í upphafi keppninnar, en ef
Þjóðverjum tekst að sigra á
morgun og tryggja sig í átta liða
úrslitin halda menn að hann
komi aftur til Danmerkur, sagði
Olafur að lokum.
- þr.
Sigurður Gunnarsson Viking hef-
ur átt mjög góða leikl úti og er
markhæsti maður liðsins.
í DAG kl. 13.30 að islenskum
tima leikur unglingalandsliðið i
handknattleik afar þýðingarmik-
inn leik i IIM-keppninni i hand-
knattleik sem nú fer fram i
Danmörku. íslendingarnir mæta
þá Vestur-Þjóðverjum og takist
þeim að sigra i leiknum eru þeir
komnir i átta liða úrslit keppn-
innar. Það er þvi til mikils að
vinna. Mbl. ræddi i gærkvöldi við
fararstjóra hópsins ólaf Aðal-
stein Jónsson og spurði hann um
Ársþing
B.S.Í.
ÁRSÞING badmintonsam-
bands Islands fer fram í
dag að Snorrabúð í Aust-
urbæjarbíó og hefst þingið
klukkan 10.00.