Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 Amundi Loftsson: Feður lyginnar Enn einu sinni hefur íslenska þjóðin, náð lærdómsríkum áfanga. Enn ein vinstri stjórnin, öllu þá heldur stjórnleysan, er að engu orðin, stjórn sundrungar ósamstöðu og ráðaleysis, stjórn- in sem meirihluti okkar batt vonir sínar og traust við. Stjórn sem lofaði okkur bættum lífs- kjörum, auknu jafnrétti og bylt- ingu í félagslegum umbótum. Jæja lesandi góður, hver er svo staðan þegar upp er staðið eftir rúmlega ár, og stjórnin okkar leggur á flótta? Hvar er þinn hagvöxtur, hvar höndlar þú enn loforð stjórnarinnar, ert þú ekki eftir allt saman hinn ánægðasti? Þeir sögðu nú greyin að meginmarkmiðið hefði reynd- ar náðst, og það var að full atvinna héldist. Ja, sei sei, það hefur sem sagt verið á þeirra stefnuskrá, að það myndi mok- fiskast allt í kringum landið, sem er undirstaða atvinnulífs- ins, og verð yrði sæmilega gott fyrir afurðirnar. Þetta hlýtur að vera mikilsverður liður á stefnu- skrá, og þeim tókst sem sé að framkvæma þennan lið, og við héldum vinnunni. ÞÖKK SÉ ÞEIM ER AÐ STÓÐU. Velmegun sósíalismans Og við unum glaðir við síversnandi launakjör, aukið misrétti, og að sjálfsögðu meiri skatta, ja hætt er nú við. Ekki nenni ég nú að fara með þessa gömlu loforða-þulu fyrri stjórnarflokka, enda kann þjóðin hana utan að. En við sjáum öll ef við viljum, að lyginni var ausið yfir okkur, „fagurskreyttri lygi“. Svo stóðu þeir eins og þursar þegar þeir sáu að fólkið hafði trúað þeim, og þá var úr vöndu að ráða. Rúma tvo mánuði tók að hnoða þessum óskapnaði saman. Hvað olli? Óttinn við afleiðingu lyginnar, og ekkert annað, enda vill enginn þeirra kannast við skammir sínar og svik og ráða- leysi. Hvað eigum við svo að kalla þetta, „velmegun sósíal- ismans" eða eitthvað þessháttar, þetta má heita hvað sem það vill fyrir mér. En eitt er víst að lygin lagar ekki okkar vanda, við skulum ekki reyna það aftur. Framsýni sósíalismans Nú verðum við að brjóta odd af oflæti okkar og fela einum flokki átökin við vandann. Flokki sem vinnur af festu og öryggi og gerir sér glögga grein fyrir eðli hans og afleiðingum og viðurkennir staðreyndir s.s. síhækkandi olíuverð svo dæmi sé tekið. Eg minnist þess að á viðreisnarárunum í tíð Jóhanns Hafstein sem iðnaðarráðherra, sýndu nokkrir ágætir sjálfstæð- ismenn því mikinn áhuga að reist yrði olíuhreinsunarstöð hér á landi. Og hverjir voru á móti aðrir en þeir sem alltaf eru á móti? Það voru kommúnistar, framsýni sósíalismans gerið þið svo vel. Hvað ætli hún væri búi'n að spara mörg þúsund milljónir sú? Það var ógæfulegt bjástur á viðskiptaráðherra okkar fyrr- verandi, þegar hann var að reyna að gráta nokkra olíudropa út úr vinum sínum Rússum undir verði og allt kom fyrir ekki. Það er annars athyglisvert hvað kommúnistar ygla sig hver framan í annan, þessir bræðra- lagseiíglar. Völdin aðalmálið Ég get ábyrgst það sem fyrr- verandi harðlínukommúnisti, að þeir sem gefa Alþýðubandalag- inu atkvæði sitt í kosningum, halda fyrst og fremst að þeir séu Ámundi Loftsson. að kjósa hærra kaup sér til handa, en nú hefur sá ágæti flokkur fært okkur heim sann- inn um eitthvað allt annað, eða öllu heldur ekki neitt, enda hrekkur það út úr þeim annað slagið, að vandinn sé ekki aðal- málið, heldur völdin, að geta drottnað yfir okkur. Ég er viss um að Gvendur á Eyrinpi hafði of lítið kaup, en ég er hins vegar ekkert viss um að hann hafi viljað miðstýringu og ríkisforsjá á öllum sköpuðum hlutum. Við verðum að læra betur að virða okkur og aðra sem sjálfstæðar persónur, við verðum að læra að verða ábyrgir gerða okkar og hætta óverðskulduðu heimtu- frekjuvæli og að stappa niður fótunum. Þetta mun Sjálfstæðis- flokkurinn hjálpa okkur við með stefnu sinni, að láta okkur sjálf njóta arðsins af okkar basli. Hann vill færa okkur völdin í hendur, og treysta frelsi ein- staklingsins og virða hann. Hann vill láta atvinnuvegi landsmanna njóta arðs af því sem þeir skapa þeim til'eflingar, og þó sér í lagi til að útrýma kaupránstilhneigingu. Hann vill efla fjölbreytni í iðnaði, þannig að allt hvíli ekki á einni megin- stoð „Sjávarútveginum". Hvað viljum við Við verðum að átta okkur á því hvað við viljum, viljum við síhækkandi verðbólgu? Viljum við aukna miðstýringu og ríkis- forsjá og misbeitingu ríkisvalds? Viljum við útrýma sjálfsbjarg- arviðleitninni og kalla yfir okkur heimtufrekjuaumingja ýmiskon- ar? Viljum við drottnandi vald sem segir okkur að sitja og standa eins og henta þykir? Eða viljum við stöðugt og gott verð- lag? Viljum við traust og góð viðskiptasambönd við aðrar þjóðir? Viljum við efla fjöl- breytni atvinnulífsins og virkja vatnsföllin okkar og koma upp stóriðju? Viljum við yfirleitt ekki þurrka síðasta sultardrop- ann af nefi okkar? Eða eigum við að láta kommúnista ljúga okkur full og láta þá svo auðmýkja okkur og svíkja í annað sinn? Svend-Aage Malmberg haffræðingur: Lúðvik Jósepsson og íslenska loðnan Þessa mynd tók Emilía Björnsdóttir i hinni nýju verslun í Hafnarstræti, og á myndinni eru þær Guftrún Markúsdóttir og Sigrún Hallsdóttir. Verslunin nefnist STRÆTIÐ. Strætið í Hafnarstræti Lúðvík Jósepsson, fyrrverandi alþingismaður, sér astæðu til þess í viðtali við Morgunblaðið 25. október að lasta sjávarútvegsráð- herra, Kjartan Jóhannsson, fyrir fund íslenskra og norskra fiski- fræðinga um sameiginlegar rann- sóknir þeirra á íslensku loðnunni, sem á að halda í Reykjavík í næstu viku. Lúðvík virðjst mer rugla saman rannsóknum fiskifræðinga annars vegar, og ákvörðunartöku stjórn- valda hins vegar. Það er góð og gild venja að haf- og fiskirann- sóknir séu sem frjálsastar þrátt fyrir alla eiginhagsmuni og sér- eign varðandi nýtingu á auðlind- um hafsins. Alþjóða hafrann- sóknaráðið hefur gengið á undan í þessum efnum með góðu fordæmi, enda er óhægt um vik í þessum fræðum að ná árangri ef fara á eftir einhverjum línum á sjókort- um og segja: hingað og ekki lengra. Þannig hittast haf- og fiskifræðingar hinna ýmsu landa, fleiri eða færri, iðulega á hinum og þessum stöðum, til þess að bera saman bækur sínar eins og það er kallað. Okkar menn hafa t.d. sótt margan fundinn í Noregi og reyndar stýrt þeim þar sem m.a. var fjallað um norsk-íslensku síldina, og þá að sjálfsögðu bæði innan og utan norskrar lögsögu. Svend-Aage Malmberg Eins hafa t.d. Sovétmenn sótt fundi hingað heim til viðræðna við starfsbræður sína um m.a. kol- munna bæði utan og innan íslenskrar lögsögu. Þannig má lengi telja. Vissulega eiga þjóðirnar hags- muna að gæta, en hagsmunirnir mega þó ekki koma í veg fyrir að vísindamenn þeirra geti skipst á skoðunum um veigamikil málefni eins og nú um íslensku loðnuna. Sameiginlegt álit fiskifræð- inganna hlýtur reyndar að styrkja málstað okkar ef við göngum út frá því sem vísu að hann sé réttur Vísindalegt mat fiskifræð- inganna á veiðiþoli íslensku loðn unnar snertir ekki beinlínis það, hvað hver fær til skiptanna. Er telji fiskifræðingarnir að loðnu- stofninn sé í hættu, þá leiðir sú niðurstaða til þess að sjónarmið íslendinga fær væntanlega meiri hljómgrunn en ella og við getum þá líka fylgt málinu betur eftir, innanlands og utan, af festu. Að öðru leyti er það stjórnvalda að ákvarða aflamagn, og að sjálfs- ögðu ráða íslendingar því sjálfir hvað mikið er veitt innan þeirra lögsögu. Um það atriði geta ekki verið neinar deilur. Við ákvörðun- artöku stjórnvalda á aflamagni er gott að geta stuðst við samdóma álit íslenskra og norskra fiski- fræðinga. Þetta veit Kjartan Jó- hannsson, sjávarútvegsráðherra, vænti ég, og því er sem er af hans hálfu. Allt tal sem gerir fund fiskifræðinganna tortryggilegan, er til þess eins að skaða okkar málstað, og reyndar málstað loðn- unnar. Lúðvík Jósepsson hefur líka hingað til látið slíka fundi óátalda að því að ég best veit, bæði í fyrra, í sumar sem leið og oft áður. Hugsanlega er kominn kosn- ingaskjálfti í hinn annars spaka og framsýna mann á sviði fisk- veiðilögsögu við ísland. Lúðvík Jósepsson sér vonandi að sér í þessu máli og gengur í lið með íslensku loðnunni, þótt engan hafi hún kosningaréttinn. Það getur hann t.d. gert með að halda á lofti rannsókna- og fundafrelsi á sviði haf- og fiskirannsókna. Hafnarfirði 26. október 1979 NÝLEGA var opnuð ný verslun í Hafnarstræti í Reykjavík, sem einkum mun versla með kvenfatn- að. Eigendur eru þau hjónin Guð- rún Markúsdóttir og Þór Fannar. Hin nýja verslun ber nafnið Stræt- ift, og er til húsa í Hafnarstræti 18. Hafnarfjörður: Bætt aðstaða víð sundhöllina B/EJARRÁÐ Hafnarfjarðar hef- ur falift íþróttafulltrúa, bæjar- verkfræðingi og skipulagsfull- trúa að vinna að útfærslu hug- mynda um viðbyggingu við sundhöllina i Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir því að hug- myndir liggi fyrir fullmótaðar í desember n.k., en samkvæmt hug- myndinni er gert ráð fyrir því að búnings- og baðaðstaða öll verði bætt verulega. Jens í Kaldalóni: Björgun úr björgum — leiðrétting Bæjum, 18. október 1979. í frétt frá mér í Morgunblaðinu 17. þ.m. um björgun fjár úr björgum, vildi svo illa til að nafn annars þeirra, er að þeirri björgun stóðu misritaðist hjá mér svo hrapallega, að ég vil hér með koma á framfæri leiðréttingu þar um. Nefndur lögfræðingur þar heitir Tryggvi Guðmundsson, en ekki Hinrik eins og þar er skrifað, bið ég viðkomandi afsökunar á þessum mistökum. Tryggvi er ættaður af Strönd- um, sonur Guðmundar Óla Guð- jónssonar í Skjaldarbjarnarvík, og síðar Þaralátursfirði. Hefur hann stundað eggjatöku og fuglatöku í Horn- og Hælavíkurbjargi frá unglingsárum með Kjartani þess- um Sigmundssyni félaga sínum í Bjarnarnúpsförinni, og láta þeir félagar sér ekki allt fyrir brjósti brenna þá komnir eru á vígaslóðir í bjargferðum sínum. Tjáði Tryggvi mér að 2 lömb, af þeim 9 kindum, sem þeir björguðu úr Bjarnarnúp, hefðu þeir orðið að taka upp á vað, mátti ekki tæpara vera en að annar þeirra komst á syllu þá, er þau voru á, til að bregða á þau böndum, þar sem hinn togaði í uppá næstu syllu. K-.ki veit ég um aðra menn hér um slíðir, sem færir eru til slíkra l'eiða, og er mikill skaði að því að sú stétt manna deyi út, svo marga nauðsyn sem þeir leysa kunna í slíkum tilfellum sem þessum. Þá skal einnig tekið fram, að Kjartan Sigmundsson er ættaður úr Hælavík, en ekki Drangavík, eins og fram kom í fyrri frétt. Erí verði þessi mæti lögfræðingur jafnfær og harðskeyttur í lögvís- indum og fuglabjörgum, verður ekki á hann snúið fyrir ekki neitt. En í bjargferðum hygg ég að hann muni geta snúið á koílega sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.