Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.10.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 ___ 5 Þing Iðnnemasambands íslands var sett kl. 15 i gærdag á Hótel Esju. Fara þingstörfin siðan að mestu fram i dag og á morgun, en myndin var tekin viö þingsetninguna i gær. Stjórn Olíumalar: Engar nýjar upplýsing- ar um frekari fjárvöntun Hr. ritstjóri. Vegna frétta í Vísi og Dagblað- inu í gær um yfirvofandi gjaldþrot Olíumalar h.f. bið ég yður að birta eftirfarandi: Stjórn félagsins hefur á undan- förnum mánuðum unnið að því að auka hlutafé félagsins um allt að 400 milljónir króna, eins og sam- þykkt var á aðalfundi i vor. Af ýmsum ástæðum er því verki ekki enn lokið. Vegna margítrekaðra yfirlýsinga ráðherra og annarra stjórnvalda um aðstoð við að rétta Vitni vantar að árekstrum ÞRIÐJUDAGINN 16. október s.l. klukkan 18.30 varð árekstur milli Lödu-fólksbifreiðar, sem var að beygja af Álfheimum upp að húsinu númer 50 við sömu götu og vörubifreiðar, sem kom i gagnstæða átt. Talsvert miklar skemmdir urðu á fólksbifreiðinni en vörubifreiðin, Mercedes Benz, græn að lit, ók áfram og stöðvaði ekki. Er ökumaðurinn beðinn að gefa sig fram, svo og vitni, við lögregluna. Þá er auglýst eftir vitnum að atburði sem varð á Vesturbergi miðvikudaginn 24. október s.l. klukkan 12.45. Piltur á skellinöðru ók eftir Vesturbergi þegar bifreið kom skyndilega út úr húsagötu við Vesturberg 1—47 og ók í veg fyrir hjólið. Skall hjólið á bílnum en síðan á gangstéttinni og skemmd- ist. Bifreiðin, brún Mercury Com- et, ók hins vegar á brott án þess að stöðva. ökumaður hennar og vitni eru beðin að gefa sig fram við rannsóknadeild lögreglunnar. hag félagsins, hefur ekki komið til tals í stjórn þess að lýsa það gjaldþrota. Það er ekki rétt hjá fjármála- ráðherra að Framkvæmdasjóður hafi lagt fram sitt hlutafé og sveitarfélögunum hefur ekkert verið lánað úr Framkvæmdasjóði vegna hlutafjáraukningarinnar, þrátt fyrir samþykktir í þá átt. Hins vegar hefur Framkvæmda- sjóður veitt félaginu fyrirgreiðslu til bráðabirgða og stutt félagið á ýmsan hátt. Stjórn félagsins mun áfram vinna að málinu í trausti þess að stjórnvöld standi við upphaflega gefin loforð og að áfram verði unnið að lagningu bundins slitlags á þjóðvegi og götur. Engar nýjar upplýsingar hafa komið fram frá því í vor um frekari fjárvöntun en þá var áætluð. En vegna þess að hið nýja hlutafé hefur ekki fengist inn- borgað, hefur staða félagsins versnað, auk þess sem verkefni hafa verið í algjöru lágmarki. Tómas H. Sveinsson form. stjórnar Olíumalar h/f Athugasemd VEGNA ummæla Magnúsar Kjartanssonar í sjónvarpsfrétt- um sl. föstudagskvöld þess efnis að stjórnmálaflokkarnir hafi ekki hugsað til öryrkja þegar kosningar ættu í hlut vill hverfa- félag sjálfstæðismanna í Laugar- neshverfi taka eftirfarandi fram: Við kosningarnar vorið 1978 var fyrir tilstilli hverfafélagsins opin kjördeild í Sjálfsbjargarhúsinu í Reykjavík sem þjónaði íbúum þess og Öryrkjabandalagsins. Við próf- kjör sjálfstæðismanna í Reykjavík nú um helgina verður einnig opin kjördeild þar fyrir fólkið til að auðvelda því þátttöku í vali manna á framboðslista flokksins. Unga konu í 8. sœtið Bessí Jóhannsdóttir kennari er í próíkjöri Sjálfstæðisflokksins< Stuðningsmcnn. AUGLYSING Prófkjör Sjálfstæöisflokksins Hvers vegna Pétur Sigurðsson? Vegna baráttumála hans, sem eru m.a.: • Öryggismál sjómanna s.b.r. lögin um tilkynningarskyldu skipa. • Stórbætt og ný skipan öldrunarþjónustu meö samstilltu átaki opinberra- og einkaaöila. • Bættur hagur atvinnuveganna er grundvallaratriði fyrir bættum hag launþeganna. • Uppbygging nýrra iöngreina á grundvelli nýtingar eigin orkulinda. • Bætt aöstaöa sjúkra og öryrkja og vernd láglauna fólks gegn afleiöingum óöaveröbólgu. Pétur aftur á þing Pétur Sigurösson sjómaöur, Goöheimum 20. Stuðningsmenn. BÚTASALAI k DAGA Allskonar gluggatjaldaefni í bútum og heilum ströngum. Hagstætt verö. Tilbúin eldhúsgluggatjöld. OPIÐ TIL HÁDEGIS í DAG SKIPHOLTI17A SÍM117563 rSKSy-.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.