Morgunblaðið - 27.10.1979, Page 13

Morgunblaðið - 27.10.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979 13 Árni Ketilbjarnar frá Stykkishólmi: Ávarp til launþega og verkalýðssinn- aðra sjálfstæðis- manna í Reykjavík í síðustu kosningum voru tveir ágætir menn felldir úr hópi sjálf- stæðismanna á Alþingi, úr verka- lýðsarmi Sjálfstæðisflokksins, þeir Guðmundur Garðarsson, fyrrverandi þingmaður og formað- ur Verzlunarmannafélags Reykja- víkur, og Pétur Sigurðsson, og töldu margir hugsandi menn að á rangri braut væri þar gengið. Nú er það vitað mál, að Sjálf- stæðisflokkurinn er annar stærsti verkalýðsflokkur landsins, og snýnist mér því, að farið sé aftan að hlutunum, þegar formanni fjöl- mennasta verkalýðsfélags lands- ins er sparkað úr röðum sjálfstæð- ismanna. Ég er í engum vafa um að aðalforustumenn Sjálfstæðis- flokksins, þeir Geir Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen, eru hlut- Guðmundur H. Garðarsson verki sínu að fullu vaxnir, enda þjóðkunnir heiðursmenn sem unn- ið hafa landi sínu og þjóð mikil- væg störf sem þeim ber að þakka. Þrátt fyrir það, að við sjálfstæð- ismenn höfum mjög góða forustu- menn, þá lít ég svo á, að nýju blóði beri að veita inn í raðir sjálfstæð- ismanna í Reykjavík og öðrum kjördæmum landsins í væntan- legu prófkjöri sem verða mun seint í þessum mánuði. Ég skora því á alla launþega og verkalýðs- sinnaða kjósendur að koma með prófkjöri sínu Guðmundi Garð- arssyni formanni Verzlunarfélags Reykjavíkur, sem er fjölmennasta verkalýðsfélag landsins, í öruggt þingsæti hér í Reykjavík, annað væri Sjálfstæðisflokknum til van- sæmdar. Eins og ég hefi áður nefnt í þessu ávarpi mínu, tel ég nauðsyn- legt að velja að nokkru leyti nýja þingmenn hér i Reykjavík, í því sambandi sýnist mér að yfirveg- uðu máli, að Halldór Blöndal myndi sóma sér vel á Alþingi, það sýna hin ágætu skrif hans í Morgunblaðinu og hin góða frammistaða hans í sjónvarpi. Við sjálfstæðismenn, sem til- heyrum verkalýðsarmi flokksins, munum vinna vel og örugglega að kjöri Guðmundar Garðarssonar formanns Verzlunarfélags Reykjavíkur, enda hefur hann sýnt og sannað að hann er dug- mikill foringi, og hefur unnið merk störf á Alþingi, og mætti í því sambandi minna á störf hans í þágu lífeyrissjóðanna og fleira. Stöndum því sterkan vörð um komu Guðmundar til næsta Al- þingis og veitum honum öruggan stuðning i prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðismenn og fólk úr öðr- um flokkum, sem varð fyrir mikl- um vonbrigðum vegna getuleysis og kosningasvika hinnar þriðju vesölu vinstristjórnar, sem aðeins hékk við völd í eina 13 mánuði, og sló því met í ræfildómi og kosn- ingasvikum, sem sagt hundadaga- stjórn, ættu nú að fylkja sér um Sjálfstæðisflokkinn, sem er sá eini flokkur sem möguleika hefur á því að ná meirihluta á Alþingi íslend- inga. Gefum Sjálfstæðisflokknum tækifæri til þess að sýna hvað hann getur gert til þess að stöðva hina miklu verðbólgu á íslandi, sem öllum er til bölvunar, að minnsta kosti þeim lægst launuðu. Verðbólguna verður að stöðva, ella er voðinn vís í efnahagslífi Islendinga. Kommúnistana þurfum við að þurrka út úr Alþingi íslendinga, því þeir eru þar til óþurftar. Flestir muna þegar Jakinn reyndi að stöðva allan útflutning Islendinga með lögleysu sinni, og hefði með því kollvarpað öllu efnahagslífi landsmanna. Að síðustu, fólk úr öllum stétt- um hefur fengið að kenna á skattpíningu vinstri stjórnarinnar og kosningasvikum hennar, því ætti fólk úr öllum flokkum að fylkja sér um Sjálfstæðisflokkinn og fá nú einu sinni ábyrga ríkis- stjórn. íslendingar, kjósum því Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosn- ingum og tryggjum framtíð íslenzku þjóðarinnar. Sigrum og stjórnum vel. „Kjósum ungt fólk,, Bæklingur Heimdallar i Reykjavík HEIMDALLUR, samtök ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hef- ur gefið út bækling vcgna próf- kjörsins um helgina, sem ber yfirskriftina „Kjósum ungt fólk". Þar er sérstaklega minnt á prófkjörið sem fram fer á sunnudag og mánudag, og hvatt er til þess að veita ungum frambjóðendum braut- argengi. Minnt er á, að kosninga- rétt í prófkjörinu á ungt fólk á aldrinum 16 til 20 ára, sé það í Heimdalli eða öðrum félögum sjálf- stæðismanna í Reykjavík. Þeir ungn frambjóðendur sem_nú gefa kost á sér eru Bessí Jóhanns- dóttir, Friðrik Sophusson, Hall- varður Sigurðsson, Haraldur Blöndal, Hreggviður Jónsson og Kristján Guðbjartsson. Erum með stórgólfteppa- sýningu frá kl. 10 á morgun \ *eS .vCV^ N'\V- Áskorun Vekjum athygli á framboðum eftirtalinna trúnaöarmanna í launþegasamtökunum, er taka þátt í prófkjörum Sjálfstæöis-flokksins. Reykjaneskjördæmi Ágúst Geirsson form. Félags íslenskra símamanna. Bjarni S. Jakobsson form. Iðju. Kristján E. Haraldsson form. Múrarasambands íslands. Reykjavík Kristján Ottósson form. Félags blikksmiða. Guömundur H. Garðarsson form. V.R. Pétur Sigurðsson form. Sjómannadagsráðs. Gerum hlut launþega sem mestan. Sýnum í verki aö Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra stétta. AUGLÝSING Stuðningsmenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.