Morgunblaðið - 27.10.1979, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
Birgir Isl. Gunnarsson:
Prófkiörin
í stjórnmálalífinu einkennist
þessi helgi fyrst og fremst af
prófkjörum. Umfangsmest eru
prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og Reykjanesi, en
einnig vekja athygli prófkjör
Alþýðuflokksins. Fyrstur
íslenzkra stjórnmálaflokka til að
taka upp prófkjör var Sjálfstæð-
isflokkurinn. Þá sögu má reynd-
ar rekja aftur til ársins 1945, en
þá hafði Sjálfstæðisflokkurinn
prófkjör við val á lista flokksins
til bæjarstjórnarkosninga. í
Reykjavík, sem fram fóru í
janúar 1946.
Fyrsta
prófkjörið
Það prófkjör fór þannig fram,
að fyrst gafst öllum flokks-
bundnum Sjálfstæðismönnum
kostur á að senda óbundnar
tillögur um ákveðinn fjölda
manna (15) til kjörnefndar. A
grundvelli þeirrar niðurstöðu
var gerður listi með 48 nöfnum
og síðan fór fram bundin kosn-
ing á milli þeirra og áttu menn
að merkja við nöfn þeirra 10
manna, sem þeir vildu hafa á
listanum. Þátttaka var bundin
við félaga í Sjálfstæðisfélögun-
um í Reykjavík. Kjörnefnd sam-
þykkti síðan að fylgja undan-
tekningarlaust úrslitum próf-
kjörsins um val 10 efstu manna
listans. Bjarni Benediktsson var
þá borgarstjóri og oddviti Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Reykjavíkur og hlaut hann mik-
ið traust í þessu prófkjöri og
skipaði efsta sæti listans.
Lýðræðisleg
aðferð
Um þessa aðferð við val á
frambjóðendum sagði Mbl. í
forystugrein þ. 28. nóv. 1945:
„Með þessum prófkosningum
hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt
í verki, að hann er hinn sanni
lýðræðisflokkur. Hann hefur
hvatt kjósendur flokksins til
ráða um val manna á framboðs-
lista við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar. Þetta er algjör ný-
lunda við ákvörðun framboðs-
lista hér í Reykjavík. Hér fær
lýðræðið notið sín til fulls. Þökk
sé Sjálfstæðisflokknum fyrir
víðsýni hans og frjálslyndi".
Opin
prófkjör
Eftir þetta fóru prófkjör oft
fram við val á frambjóðendum
til borgarstjórnar, en var þá
jafnan bundið við flokksmenn og
úrslit fyrst og fremst leiðbein-
andi, en ekki bindandi. Arið 1970
reið Sjálfstæðisflokkurinn á
vaðið og efndi til opins prófkjörs
fyrir borgarstjórnarkosningar
það ár. Sú ákvörðun var vissu-
lega umdeild innan flokksins.
Margir töldu að hér væri allt of
djarft teflt og áfram ætti að
binda þátttöku við flokksbundna
menn. Niðurstaðan varð hins
24 síður og Lesbók 8 síður
♦ ‘
- Sunnudagur 30. desember 1945
ísafoldarprentsmiftj* b.f
Framboðslisti Sjálfstæðismanna:
, þetta er listinn, sem
Ifólkið sjálft hefir ákvedið
„Bretar ákváðu styrjöldina
þrem árum íyriríram"
Erfðaskrá Hillers fundin.
Frsgur flotaforingi þessu framboði verð-
ur fylgt fram til sigurs
Uondon í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgbl frá Reuter.
jBANDARÍKJAHERSVEIT ein hefir fundifi erfðaskra Hitlers
I ýms mefifylgjandi skjöl i fylgsni cinu vifi Ticgervatn í Sufiur-
|yern. Erffiaskráin er i tvennu lagi, persónuleg og poht.sk.
Ilgiskjöl eru vígsluvottorð Hitlers og Evu Braun og brjef
|tlers til Dönitz flotaforingja.
kOll skjölin eru dagsett 29. april 1945 ________
|retum afi kenna“.
_í pólitísku erfðaskránni seg-1
I Hitler þafi svörtustu lygi. að
■ófiverjar hafi átt upptökin
1 heimsstyrjöldinni. — Til
■imsstyrjaldarinnar hafi kom-
Ifycir tilstilli Breta. — Þrem
\im áður cn styrjöldin hófst
Ifðu ráðandi menn i Bretlanjii
|áðið að hefja styrjöld við
þðverja. A8 því marki hefðu
_ir ee róið síðan og ekkert hægt
Ljer við sáttaumleitanir Þjóð-
Francosljórnin
kvarfar yfir andróðri
Madrid i
Ljefið til Dönitz.
K brjefinu til Dönitz gerði
Itler ráðstafanir til þess að ný
■órn yrði mynduð í Þýska-
I>di til þess að halda styrjöld-
,i áfram. Dönitz átti að vera
seti hennar, en Göring ríkia
■nslari.
lára drengur.
Bdeð skjölunum eru þrjár
Bndir Tvær þeirra eru af Evu
Taun, en ein af dreng, á að
Tka 12 ára gömlum. Eru hern
Jryfirvöld Bandamanna að
Ita fyrir sjer, hver drengur
^si geti verið.
tmislegt þykir einkennilegt
I skjöl þessi, en ekki hafa
Lur atriði en þau, sem að
n greinir, enn verið birt.
SPÁNSKA stjórnin hefir birt
yfirlýsingu. þar sem hún kvart
ai mjóg yfir ásökunum og and
úð. sem að henni streymi frá
„róttækum ofstækismönnum"
i mörgum löndum. Segir stjórn
in ásakanir þcssar alveg áslseðu
lausar og i hæsta máta órjett-1
»tar. — Segir og í yfirlýs-
ingu stjórnarinnar. að hún
muni alls ekki þola það. að ónn
ur riki reyni nokkuð til ihlut-
unar um innanrikjsmálefni
Spánar. — Reutcr.
Byrnes kominn
CHESTER NIMITZ flotaforingi
Bandaríkjamanna á Kyrrahafi
hcfir orðið átrúnaðargoð þjóð-
sinnar fyrlr frækUega
frammistöðu í styrjöldinni. —
Þessi mynd var tckin af flota-
foringjanuni, er hann var að á-
arpa fund uppgjafahermanna
i Chicago fyrir skömmu.
heim
greglan í Bata-
Washington i gærkvöld
BYRNES. utanrikisráðherra
Bandarikjanna. kom í dag til
Washington frá ráðstefnu utan
'rikisráðherranna i Moskva.
Hafði flugvjel hans seinkað all
Imikið vegna óveðurs. Var ráð-
herrann þreyttur eftir ferðina.
I en þó ljettur i lund og ánægð-
ur með ferðina. — Hann mun
á morgun flytja ræðu. sem út-
varpað verður um öll Banda-
rikin Mun hann ræða utanrík-
isráðherrafundinn og árangur
hans. — Reuter
Attlee skýrl frá
ulanríkisráðherra-
fundinum
London i gærkvöldi
BEVIN, utanrikisráðherra
Bretlands. hefir gengið á fund
Attlec forsætisráðherra og
skýrt honum frá ráðstefnu ut-
anrikisráðherra þriveldanna l
Moskva. Attlee mun hafa þótt
árangurinn allgóður. — Á ráð-
herrafundi á mánudag mun
Bevin segja nánar frá fundin
um. — Bevin hefir nú um langt
FRAMBOÐSLISTI SJÁLFSTÆÐISMANNA vifi bæjj
arstjórnarkosningarnar í Reykjavík var samþyktur i gœr|
á fundi íulltrúaráðs Sjálfstæíiisfjelaganna. ,
Tillögur kjórnefndar um framboð.S voru samþyktar I
cinum rómi. en kjörnelndin fylgdi undanteknmg,rl.ust ^
úrslitum prófkosninganna, sem fram hafa fanð^hjer
bænum meíal almenníngs um val manna a framboðs-
Lstann.
Listinn er þannig skipaðui:
1. Bjarni Bencdiktsson. borgarstjóri. Eiriksgotu 19
2. Guðmundur Ásbjörnsson. útgerðarmaður. Fjölmsvegi
3 Frú Auður Auðuns. cand. jur.. Reymmel 32
4. Sigurðu. Sigurðsson. bcrklayfirlæknir. Skcgg,agotu 2
5 Gunnai Thoroddsen. prófessor. Frikirkjuvegi 3
6. Hallgrimur Bened.ktsson. stórkaupmaður. Fjolugotu
7 Friðrik Ólafsson. skólastjóri. Sjómannaskolanum.
8 Jóhann Hafstein. framkvæmdastjóri Sjálfstæðisfl.. Smár.
9 Eyjólfur Jóhannsson. framkvæmdastjóri. Oð.nsgotu 5
,0. Gisli Halldórsson. vjelaverkíræðingur. Flokagotu 6
11 Frú Guðrún Jónasson, kaupkona. Amtmannssttg 5
!2. Sveinbjörn Hannesson. verkamaður. Ásvallagotu 65
; 3 Guðm Helgi Guðmundsson, húsgagnasmíðam. Bræðr. l »
;4 Einar Erlendsson. húsameistari. Skólastræti 5 B
15. Þorstefnn Árnason. vjelstjori. Túngötu 43
16. Hafsteinn Bergþórsson. útgerðarmaður. Marargotu 6
17. Einar Ólafsson. bóndi. Lækjarhvammi
,8. Ludvig Hjálmtýsson. frarr.kvæmdastjóri. Hátun 37
19 Hákon Þorkelsson. verkamaður, GrettisgótirSl A
20 Guðjón Einarsson. bókari, Kjartansgötu 2
21. Jónas B. Jónsson. fræðslufullt.úi, Hringbraut 137.
22. Frú Soffia M Ólafsdóttir. Skólavörðustig 19
23. Guðmundur H. Guðmundsson, sjómaður, Asvallagotu 65
24. Einar B. Guðmundsson, hrm., Hringbraut 201
25 Kristján Þorgrimsson, bifreiðarstjóri, Kirkjuteigi 11
26. Ásgeir Þorsteinsson. verkfræðingur, Fjölnisvegi 12
27. Erlendur Ó. Pjetursson, forstjóri, Viðimel 38
28. Vilhjalmur Þ. Gíslason. skólastjóri, Verslunarskólanum
29. Matthías Einarsson, læknir, SólvallagÖtu 30
30. Ólafur Thors. forsætUráðherra, Garðastræti 41
Þing sameinuðu
þjóðanna hefsl
10. janúar
Eyjólfur Jóhannsson, for-
maður kjörnefndsrinnar. gerði
grein fyrir störfum nefndar-
innar og tiilögum un\ fram-
boðið. Eftir tvennar prófkosn-
ingar meðal þúsunda kjósenda
Þessi mynd sýnir forsiðu Morgunblaðsins 30. desember 1945, en þá var birtur framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins íyrir bæjarstjórnarkosningar, sem fram fóru í janúar 1946. Þetta var fyrsti
framboðslisti, sem ákveðinn var með prófkjöri.
vegar sú, að opna þátttöku fyrir
öllum stuðningsmönnum flokks-
ins og kom fljótt í ljós, að hér
var um mjög vinsæla aðferð að
ræða, sem sýndi að Sjálfstæðis-
flokkurinn fór enn í fararbroddi
um lýðræðislega stjórnarhætti.
Slík opin prófkjör hafa síðan
ávallt verið haldin við undirbún-
ing borgarstjórnarkosninga og
oftast við undirbúning Alþing-
iskosninga í Reykjavík. Þátttaka
hefur ailtaf verið mjög mikil eða
sem hér segir:
1970 Borgarstjórn 6812
1971 Alþingi 9271
1974 Borgarstjórn 8405
1978 Borgarstjórn 10762
1978 Alþingi 9877
Gagnrýni á
prófkjörin
Eftir kosningaósigur Sjálf-
stæðisflokksins 1978 var mikið
rætt innan flokksins um orsakir
ósigursins. Margir þættir í
skipulagi flokksins komu þá til
umræðu þ.á m. prófkjörin. Töldu
ýmsir að þau væru flokknum sízt
til framdráttar, þau sköpuðu
óeiningu og tortryggni manna á
milli auk þess, sem engin trygg-
ing væri fyrir því, að niðurstöður
prófkjara gæfu beztan árangur.
Þá var og á það bent, að margir
kjósendur tækju þátt í prófkjör-
um hjá fleiri en einum flokki og
væri það óeðlilegt.
Lýðræðis-
legasta
aðferðin
Niðurstaða allra þessara um-
ræðna varð samt sú, að halda
bæri prófkjörum áfram, þar sem
unnt væri að koma þeim við.
Þrátt fyrir galla, þá væru
prófkjörin með fjöldaþátttöku
stuðningsmanna flokksins lýð-
ræðislegasta aðferðin til að velja
frambjóðendur. Engin önnur að-
ferð væri líklegri til að fá fram
betri eða óumdeildari niður-
stöðu.
Þetta frumkvæði Sjálfstæðis-
flokksins hefur orðið til þess, að
aðrir flokkar hafa fylgt í fót-
sporið. Alþýðuflokkurinn hefur
stigið skrefið til fulls. Fram-
sóknarflokkurinn gerði það með
hangandi hendi 1978, en ekki nú.
Alþýðubandalagið hefur hins-
vegar í þessu efni eins og öðrum
kosið að hafa gamla lagið á
hlutunum, en það er þeirra mál.
Um þessa helgi efnir Sjálf-
stæðisflokkurinn til prófkjörs í
Reykjavík og Reykjanesi. Eg vil
hvetja sem flesta stuðnings-
menn flokksins til að taka þátt í
þessum prófkjörum og nota þar
með rétt sinn til að velja fram-
bjóðendur flokksins fyrir þær
Alþingiskosningar, sem í hönd
fara.
Erna Ragnarsdóttir innanhússarkitekt:
Sækjum fram,
friáíslyndir
Eftir skipbrot vinstri stjórnar sem
breytti verðbólgu í óðaverðbólgu tók
við ríkisstjórn Geirs Hallgrímsson-
ar. Hvað sem segja má um þá stjórn
tókst henni að halda fullri atvinnu
og ná jafnframt verðbólgunni niður í
35% þrátt fyrir hatramma andstöðu
verkalýðsarms Alþýðubandalagsins.
Fráfarandi vinstri stjórn hefur
enn vogað sér að skilja eftir þrotabú
með 50— 60%. óðaverðbólgu þrátt
fyrir sívaxandi kjaraskerðingu,
skattpíningu, stórfelldar hækkanir á
lífsnauðsynjum og niðurskurð á
samneyslu á sviði félags- og menn-
ingarmála.
Þannig hefur flokkur þeirra, sem
börðust harðast fyrir samningum í
gildi, svikið alla þá sem að þessari
ríkisstjórn stóðu. Að sigurlaunum fá
nú stórir hópar launafólks hvítan
miða skattheimtunnar frá Alþýðu-
bandalagsráðherrum sem ekki eru
lengur „í gildi".
Bylgja frjálslyndis
Sú bylgja frjálslyndis sem nú
gengur yfir Vesturlönd er ekki
aðeins mótvægi við „vinstri sveiflu"
síðasta áratugar. Hún er enn eiit
merki þess að sósíalisminn er hvar-
vetna í dauðateygjunum. Alls staðar
þar sem sósíalistar hafa farið með
völd blasir nú við hrun, harðstjórn
og andlýðræðislegt stjórnarfar.
Marxisminn hefur aldrei verið
annað en róttæk gagnrýni á kapítal-
isma 19. aldar sem hvergi er enn við
lýði á Vesturlöndum. Marx benti
ekki á neitt raunhæft í staðinn
annað en loðnar lýsingar á fyrir-
komulaginu f hinu fyHrheitna landi.
Og eftir áratuga reynslu í sósíalista-
ríkjunum hefur ekki heldur tekist að
finna neitt raunhæft í staðinn.
En á meðan sósíalisminn hefur
staðnað og víða breyst í fasisma
hefur kapítalisminn þróast í blandað
hagkerfi. I stað stöðnunar austan-
tjalds hefur orðið markviss upp-
bygging og þróun á vesturlöndum.
Aðalvandamál vesturlandabúa eru
of mikil þensla, ofneysla og óhóf. Og
þótt enginn telji að lýðræði sé þar
enn nægilegt er þó ólíku saman að
jafna þar sem eru sósíalistaríkin og
vesturlönd.
Staðreyndin er sú að við getum
ekkert byggt á sósíalistum og marx-
istum. Það verk sem nú þarf að
Erna Ragnarsdóttir.
vinna verða frjálslyndir og þjóðholl-
ir íslendingar hvar í flokki sem þeir
standa að vinna án þeirra liðsinnis.
En þrátt fyrir ófarir sósíalista
megum við ekki ofmetnast. Við erum
ekkert betri þótt þeim hafi nú
endanlega mistekist.
Hverjir eiga að stjórna
Efnahagslegt sjálfstæði þjóðar-
innar hangir á bláþræði. Spurningin
sem allir spyrja er hvort Guðmund-
ur J. og félagar hans í verkalýðsarmi
Alþýðubandalagsins eigi að stjórna
þessu landi eða lýðræðislega kjörnir
fulltrúar fólksins á Alþingi.
ísland er nú að verða láglauna-
svæði í augum umheimsins, enda er
það eðlileg afleiðing þeirra óðaverð-
bólgu sem hér hefur geisað. Tíminn,
peningarnir og átakið fer allt í að
bjarga sér frá degi til dags. Við
höfum siglt frá einni bráðabirgða-
ráðstöfun til annarrar.
Til þess að komast úr því feni sem
við sitjum nú í verða allir að herða
beltisólarnar. Ríkisstjórnin verður
að ganga þar á undan með góðu
fordæmi. Veita þarf ríkinu aðhald á
öllum sviðum og koma í veg fyrir
meiri óarðbærar fjárfestingar Sem
hafa lamað efnahagslíf okkar.
Við verðum að byggja upp raun-
hæf atvinnutækifæri fyrir þann
fjölda íslendinga sem kemur á
vinnumarkaðinn á næstu árum og
tryggja hinum vinnandi manni lífs-
kjör sem eru sambærileg við það
besta sem gerist hjá nágrannalönd-
unum. Það getum við aðeins gert
með því að gera efnahagskerfið
sveigjanlegra og draga úr ríkisaf-
skiptum.
Nú reynir á að valda því verkefni
sem framtíðin leggur okkur á herð-
ar, stétt með stétt, — en til þess
þurfum við samhenta, framsýna og
menningarlega stjórn.