Morgunblaðið - 27.10.1979, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
27
dar. Áskilið var, að slík
breyting á verðflokkun
gæti tekið gildi frá og með
1. nóvember 1979, enda fæli
hún ekki í sér verðbreyt-
ingu, þegar á heildina er
litið, miðað við ársafla. Á
vegum Verðlagsráðsins
hefur verið unnið að undir-
búningi þessarar breyt-
ingar frájiví um síðastliðin
áramót. Á fundi sínum 25.
október 1979 ákvað Verð-
lagsráðið að taka upp nýtt
verðlagningarkerfi fyrir
þorsk og ýsu frá og með 1.
nóvember 1979 í samræmi
við þennan fyrirvara.
Frá og með 1. nóvember, 1979
verður því verð á þorski og ýsu
ákveðið eftir þyngd í stað lengdar.
Fjökli ungmenna nýtir frí-
tima sinn ekki gagnlega
ÞEGAR fiskverð var
ákveðið fyrir tímabilið 1.
október til 31. desember
1979, var sá fyrirvari gerð-
ur, að Verðlagsráð sjávar-
útvegsins gæti ákveðið að
taka upp aðra stærðar-
flokkun en gilt hefur, þann-
ig að fiskur væri verðlagð-
ur eftir þyngd í stað leng-
Kumar P. Gera ásamt forsvarsmönnum JC á íslandi. Á myndinni eru (f.v.) Bergþór Úlfarsson, fráfarandi
landsforseti JC, Kumar P. Gera, Haukur Gíslason, landsforseti JC, og Magnús Gunnarsson, sem sér um
erlend samskipti JC. Ljósm. Mbl. Kristján.
Verð á þorski og ýsu
framvegis ákveðið eft-
ir þyngd í stað lengdar
Kumar P. Gera ásamt konu sinni og börnum. Eiginkonan heitir
Nalini, en börnin (f.v.) Rohit, Rohena og Nikhil.
— segir Kumar
P. Gera, heims-
forseti JCI, sem
vill fá ungmennin
í sínar raðir
Fyrir nokkrum dögum
var staddur hér á landi
heimsforseti Junior Cham-
ber, Indverjinn Kumar P.
Gera. Hafði hann hér
tæpra tveggja sólarhringa
viðdvöl og átti mjög
annríkt, en hann gaf sér þó
tíma til að spjalla við Mbl.
Var Kumar P. Gera fyrst
að því spurður hvert væri
hlutverk JCI, hvar og hven-
ær samtökin hefðu verið
stofnuð og hversu útbreidd
þau væru. Fara svör hans
hér á eftir:
JCI eru samtök ungs fólks á
aldrinum 18—40 ára. Samtökin
eru opin öllum án tillits til
þjóðernis, stéttar, kynþáttar eða
trúar. Samtökin voru stofnuð í St;
Louis í Missouri-fylki í Bandaríkj-
unum árið 1915, en árið 1944 urðu
þau alþjóðleg. í dag eru um
600.000 manns í JC-félögum í 84
löndum og eykst fjöldi félaga
stöðugt. Við gerum okkur vonir
um að JC-félagar verði orðnir
milli 5—6 milljónir að tveimur
áratugum liðnum. Höfuðstöðvar
JCI eru í Florida í Bandaríkjunum
og þar starfa um 30 manns í fullu
starfi.
Tilgangur og takmark samtak-
anna er að vinna að málum sem
geta orðið mannkyninu til far-
sældar. JC-félögin eru ekki góð-
gerðafélög í sjálfu sér, þau reyna
að láta gott af sér leiða og hjálpa
öðrum til framkvæmda. Hafa
JC-félög mikið starfað að málefn-
um barna, einkum á þessu ári, ári
barnsins.
Megin markmið JCI er þó að
stuðla að þroska einstaklingsins.
Það er álit okkar, að í hverjum
einstaklingi felist ákveðnir eigin-
leikar. Fá þessir eiginleikar ekki
notið sín nema viðkomandi séu
gefin tækifæri til þess að þroska
þessa hæfileika. í þeim tilgangi
halda JC-félögin námskeið í ræðu-
mennsku, fundarsköpun, skipu-
lagningu o.s.frv. Má í þessu sam-
bandi bera einstaklinginn saman
við óslípaðan gimstein. Óslípaður
gimsteinn er ekki mikils virði
miðað við slípaöan gimstein.
Miðast starf JCI við að gera
einstaklinginn hæfari til að starfa
í þjóðfélaginu, vekja hann til
umhugsunar og gera hann að
ábyrgðarfullum þjóðfélagsþegn.
Einnig miðast starf JCI við að
efla gagnkvæman skilning og vel
vilja milli ólíkra þjóða. JCI eru þó
ekki pólitísk samtök. Þá er hér um
að ræða hreyfingu sjálfboðaliða,
hreyfingu sem ekki er rekin í
ágóðaskyni.
„Starf einstakra félagsdeilda
hefur venjulega miðast við eitt-
hvað sem brýnt hefur verið að
gera eða að vekja athygli á
félagssvæði viðkomandi félags. í
tilefni barnaárs Sameinuðu þjóð-
anna hefur starfið á þessu ári þó
fyrst og fremst miðast við börn og
málefni þeirra. Takmarkið á þessu
ári var að starfið næði til um
einnar milljónar barna, en að því
er næst verður komist sýnist mér
að starf JCI á þessu ári muni ná
til um þriggja milljóna barna.
Ekki hefur verið unnið á sama
hátt í hinum ýmsu löndum, þar
sem aðstæður og þarfir eru mis-
munandi. í þriðja heiminum
hrjáir vannæring börn auk þess
sem heilbrigðis- og menntamálum
er þar mjög ábótavant. í hinum
vestræna heimi er ofneyzla vímu-
gjafa hins vegar helzti bölvaldur-
inn.
Af þessum sökum hefur starfið
t.d. í Indlandi, heimalandi mínu,
miðast við að sjá börnum í þorp-
um þar sem læknishjálp er lítil
fyrir bólusetningu, en um er að
ræða kvartmilljón barna. Þar
hafa einnig verið reistir skólar
fyrir blind börn, og mikið starf
verið unnið að því að kenna
blindum börnum á hljóðfæri svo
að börnin geti haft í sig og á af
hljóðfæraleik.
I þróuðum ríkjum hefur starfið
hins vegar miðast við að hvetja
foreldra til að verja meiri tíma
með börnum sínum en raun ber
vitni um. Vanræki foreldrar börn
sín leiðir það til óöryggiskenndar
hjá börnunum, en sökum afskipta-
leysi" hafa fleiri og fleiri orðið
vímu pöfum að bráð og leiðst út í
afbrot. Þá má nefna að í Banda-
ríkjunum miðast starf JC-samtak-
anna þar á þessu ári einkum við
aðstoð við fólk sem á við vöðva-
rýrnun að etja. Verkefnin eru
fjölb"eytt, en stefnan hefur verið
að vinna að einhverju sem gæti
orðið til gagns.“
Kumar P. Gera sagði að upp- 1
haflega hefðu samtökin verið
stofnuð af nokkrum ungmennum
sem ekkert hefðu haft við að vera,
en vildu ólm láta eitthvað gott af
sér leiða. Sagði hann að fjöldinn
allur af ungmennum í dag nýtti
ekki frítíma sinn til gagns. Væri
það takmark JCI að fá þessi
ungmenni í sínar raðir. Með inn-
göngu í JC-félag fengju þessi
ungmenni öll tækifæri til aukins
þroska er yrði þeim sjálfum og
þjóðfélaginu til góða.
Á íslandi eru 27 JC-félög og
innan þeirra um 1.200 félagsmenn.
Var Kumar P. Gera viðstaddur
stofnun nýs félags í Árbæjar-
hverfi á þriðjudagskvöld.
Kumar P. Gera sem er 33 ára,
var kosinn forseti JCI fyrir -árið
1979 á ársþingi JCI á Filipseyjum
í fyrrahaust. Aðeins gegna menn
einu sinni sama embætti innan
JC-samtakanna og aðeins í eitt ár.
Verður nýr eftirmaður hans kos-
inn á ársþingi JCI í Gautaborg í
nóvember nk. Áður hefur Gera
gegnt embætti varaforseta og
gjaldkera heimssamtaka JC.
Hann gerðist meðlimur í JC-félagi
í heimahéraði sinu á Indlandi 1967
og varð m.a. forseti þess félags.
Varð hann landsforseti JC á Ind-
landi 1975. Kumar P. Gera er
verkfræðingur að mennt og á
húsgagnaverksmiðju í heimaborg
sinni, Poona. Hann er kvx.itur og
þriggja barna faðir. Tjáði hann
blm. að vegna starfs síns sem
heimsforseti JCI yrði hann ekki í
faðmi fjölskyldunnar nema í 10—
12 vikur á þessu ári.
Breytingin er við það miðuð, að
meðalverð þessara tegunda hald-
ist óbreytt, þegar litið er á ársafl-
ann.
í stað þess að taka sýnishorn úr
afla og flokka eftir lengd skal nú
fundin með sýnatöku meðalþyngd
fisks í farmi fyrir hvora tegund
fyrir sig; og ræðst verðmæti
farmsins af þessari meðalþyngd
og gæðaflokkun. Framleiðslueft-
irlit sjávarafurða mun annast
þessa sýnatöku og útreikning á
meðalþyngd.
Hæsta verð pr. kg af þorski
miðað við slægðan fisk næst,
þegar meðalþyngd þorsks í farmi
er 4 kg eða meiri, þ.e. 25 eða færri
fiskar eru í hverjum 100 kg.
Hæsta verð pr. kg af ýsu næst,
þegar meðalþyngd ýsu i farmi er 2
kg eða meiri miðað við slægðan
fisk, þ.e. 50 eða færri fiskar eru í
hverjum 100 kg. Verðið fer síðan
lækkandi með lækkandi meðal-
þyngd, þannig að frá hæsta verði
dregst ákveðin auratala fyrir
hvern fisk, sem þarf umfram 25 í
100 kg af þorski, en umfram 50 í
100 kg af ýsu.
Prófkjör sjálfstæðismanna
NEYTENDUR
ER
HAGSMUNA
OKKAR
GÆTT?
Viö höfum þörf fyrir menn meö þekkingu og
áhuga á neytendamálum á Alþingi. Viö
tökum þátt í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins
og kjósum
Jónas Bjarnason í 7. sæti.
AUGLYSING
Stuöningsmenn