Morgunblaðið - 27.10.1979, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1979
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ny <iJArnPK~aa'u í?
fræðast um á hvaða forsendum
það var gert og hvaða aðilar það
eru í dag, sem fylgjast með því að
reglur um lágmarksaldur gesta
séu ekki brotnar.
Hvert geta foreldrar, sem vita
að börn þeirra undir aldri stunda
slíka staði, snúið sér?
Hvaða viðurlögum er beitt verði
vínveitingaskemmtistaðir upp-
vísir að því að brjóta reglur í
þessum efnum.
Vonandi munu stjórnvöld sjá til
þess, að ekki skapist það ástand,
að fjölmennustu hóparnir á
vínveitingastöðunum verði úr röð-
um æskufólks, því það að hleypa
þeim inn, er að leggjast á garðinn,
þar sem hann er lægstur. Utilokað
er að sjá fyrir hversu miklu böli
það muni valda bæði unglingunum
sjálfum og svo þjóðfélaginu í
heild.
Móðir í Reykjavík
• Bölvaldur
hinn mikli
Eftirfarandi ljóð er ort í
tilefni „Viku gegn vímuefnum":
Mótstöðuaflið er mannsins máttur
minnkar ætíð hans undansláttur
sigrast þá á heimsins böli
brennivíni og sterku öli.
Bregðast margir börnum sinum
birta skal ég með þessum línum
ljósið dvinar, lifsbraut gengin
gráta börnin þvi móðir engin.
Velkjast þær í vínsins vímu,
váleg stund við heimsins glimu
siðan fara i sorp og falla
friðlaus börnin á móður kalla.
Bakkus gamli bölvun ætið eykur
brosandi tælir, en ljótur er eftirleikur
veltandi um strætin varnarlausir feður
fórna sinu heimili, það daglega skeður.
Hælin þau fyllast, hörmung er að heyra
haltrandi um gólfið, þeir geta ekki meira
manndómur horfinn, margt þá særir
sjást fáir vinir, sem voru þeim kærir.
Þjóðfélagið missir sína þegna
þvilik eymd, það er vínsins vegna
vanmáttur mikill, þeir verjast ekki grandi
gifurleg plága á þessu fagra landi.
H.Þ.
Þessir hringdu . .
• Þakkir
Elfn, Birkimel 10, hringdi til
Velvakanda og vildi koma á fram-
færi þakklæti til Ómars Ragn-
arssonar fyrir að hafa vakið máls
á þeirri undarlegu málvenju fólks
að segja „gerðu svo vel“ í tíma og
ótíma.
„í stað þess að nota ensku
slettuna „gerðu svo vel“ er hægur
vandinn að segja „ekkert að
þakka“ eða „takk“. Ég hef aldrei
skilið hvað fólk á við með því að
segja „gerðu svo vel“ en það
virðist vera mikið notað, sérstak-
lega í síma.“
• Trimm og sólbað
við Sundlaug
vesturbæjar
Gestur í Sundlaug vestur-
bæjar hringdi til Velvakanda og
vildi koma þeirri spurningu á
framfæri til forráðamanna sund-
laugarinnar hvers vegna ekki væri
hægt að fara í sólbað eða trimma
á grasinu sem er í kringum
laugina. Erlingur Jóhannsson for-
stöðumaður Sundlaugar Vestur-
bæjar sagði í samtali við Velvak-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á minningarmótinu um Paul
Keres sem haldið var í Tallin í
Eistlandi í vor kom þessi staða
upp í skák þeirra Mikhails Tal,
fyrrum heimsmeistara, sem hafði
hvítt og átti leik, og Rantanens,
Finnlandi.
28. Bh8! - Kxf7, 29. Dxf6+ -
Kg8, 30. Dg7 mát.
Tigran Petrosjan, fyrrum
heimsmeistari sigraði á mótinu,
hann hlaut 12 v. af 16 mögulegum.
Næstir komu þeir Tal og Vagan-
jan með 1114 v. í fjórða sætinu
varð enn einn gamall kunningi,
David Bronstein með 10 v.
anda að grassvæðið, sem er í eigu
sundlaugarinnar, hefði ekki verið
útbúið til þess að hægt væri að
nota það sem sólbaðasðstöðu en
hins vegar væri ekkert því til
fyrirstöðu að sundlaugargestir
trimmuðu á svæðinu.
Erlingur sagði að til þess að
hægt yrði að fara í sólbað á
grasinu yrði að koma upp þannig
aðstöðu að allir þeir sem færu af
grasinu út í laugina aftur færu í
gegnum sturtur. Hann sagði að
starfsfólk sundlaugarinnar gæti
ómögulega staðið í því að reka alla
þá sem færu í sólbað á grasinu inn
í búningsklefana aftur til að fara í
sturtur. En það væri hins vegar
augljóst að það myndi valda mikl-
um sóðaskap í lauginni færu
sólbaðsgestir ekki í sturtu áður en
þeir færu aftur út í laugina. Þar
til sturtuaðstöðu við grassvæðið
hefði verið komið upp yrði því ekki
hægt að nota grassvæðið kringum
Sundlaug Vesturbæjar til sólbaða.
HÖGNI HREKKVÍSI
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
MINNUM
■
ELINU
— Vegna beinna kynna hennar af borgarbúum og
málefnum þeirra sem borgarfulltrúi í Reykjavík og sem
blaöamaöur.
— Vegna þess aö hún hefur hugkvæmni, kjark og
dugnaö til aö nýta sína reynslu og þekkingu og koma
málum fram.
— Vegna þess aö í henni er fólginn möguleiki á aö rétta
aftur hlut kvenna í þingliði Sjálfstæöisflokksins og fá
tvær konur kjörnar á þing í Reykjavík.
Stuðningsmenn
AUGLYSING
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi
27.-28. okt. 1979
Sjálfstæölsfólk I
Reykjaneskjördæmi!
Takið þátt í prófkjörinu um helgina.
Eflið styrk Sjálfstæðisflokksins,
standið saman til sigurs.
Við stuðningsmenn Richards Björgvins-
sonar kynnum frambjóðanda okkar.
Við teljum sigur hans sigur
Sjálfstæðisflokksins.
Greiðið atkvæði í prófkjörinu, greiðið
Richard Björgvinssyni atkvæði,
traustum manni til traustra verka.
Látið ekki ykkar eftir liggja, mætið ölf.
ILi
Kjósum Richard Björgvinsson
J
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLVSlNGA-
SÍMINN ER:
22480