Morgunblaðið - 27.10.1979, Síða 48
á ritstjórn og skrifsíofu:
10100
3M*rguni>I«ibid
LAUGARDAGUR 27.0KTÓBER 1979
Sími á afgreiöslu:
03033
]W«roimbIobií
Gormánuður heldur innreið
sína í dag með fyrsta vetrar-
degi og mega landsmenn ef-
laust búast við roki og rign-
ingu dag og dag, reyndar eins
og verið hefur víða nema þar
sem bændur hafa verið að nýta
síðbúna þurrkdaga nyrðra til
að bjarga töðu sinni í hlöður.
I.jor-m. I.milm
N eita framsóknarmenn
í Siglufirði að eiga aðild
að f ramboðslistanum?
MIKIL ólga er meðal framsóknarmanna í Siglufirði
vegna þess að ekki fór fram prófkjör til framboðslista
flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra í komandi
kosningum og eru talin áhöld um, hvort Siglfirðingar
tilnefni menn á listann eða ekki og hvort Siglfirðingar
myndu þá taka sæti á listanum, án slíkrar tilnefningar,
þótt kjördæmisráðið setti fram óskir þar um. Kjördæm-
isráðið heldur fund á sunnudaginn, þar sem gengið
verður frá framboðsiistanum.
Ljóst var að Ólafur Jó-
hannesson myndi ekki
skipa efsta sæti listans.
Siglfirðingar sögðu þá, að
þeir teldu eðlilegast að
skipa listann með próf-
kjöri, en að öðrum kosti að
þeir, sem áfram gæfu kost
á sér færðust upp. Síðan
gerðist það, að Guðrún
Benediktsdóttir, Hvamms-
tanga, sem skipaði fjórða
sætið á listanum síðast,
ákvað að gefa ekki kost á
sér, en í fimmta sætinu þá
var Bogi Sigurbjörnsson
skattendurskoðandi, Siglu-
firði. Kjördæmisráðið
hafnaði prófkjöri og var
framsóknarmönnum í
V-Húnavatnssýslu falið að
tilnefna nýjan mann í
þriðja sætið. Munu þeir
hafa leitað m.a. til Gunnars
Sæmundssonar bónda
Hrútatungu, sem ekki gaf
kost á sér, en í gærkvöldi
staðfesti Eiríkur Tryggva-
son Búrfelli, í samtali við
Mbl., að framsóknarmenn í
V-Húnavatnssýslu hefðu
tilnefnt Ingólf Guðnason
sparisjóðsstjóra,
Hvammstanga, í 3. sæti
listans.
í dag á að halda fund í
Framsóknarfélagi Siglu-
fjarðar, þar sem ákvörðun
verður tekin um fram-
boðsmálin.
Tregur
rœkjuafli
RÆKJUVEIÐIN á öxarfirðl hef-
ur gengið mjög treglega að
undanförnu og hafa bátar oft
ekki fengið nema 10—20 kassa i
veiðiferð eða milii 180 og 360 kg
að þvi er Kristján Ármannsson
framkvæmdastjóri Sæbliks á
Kópaskeri tjáðí Mbl.
Kristján sagði að veiðarnar
hefðu byrjað nokkuð vel fyrstu
dagana í október, en nú síðustu
vikur hefðu þær gengið mjög illa
og bátarnir yfirleitt verið með
lítinn afla. Sex bátar stunda
veiðarnar frá Kópaskeri og sami
fjöldi frá Húsavík og hefur hvor
staður 270 tonna kvóta, sem er
mun minna en í fyrra. Ekki
kvaðst Kristján hafa á reiðum
höndum skýringar á minnkandi
afla, en hugsanlega mætti kenna
um ofveiði í fyrra.
Samstarfsflokkarnir
í borgarstjórn:
Meiri-
hluta-
fundir
lagðir
nidur
„ÞEGAR beiðni framsóknar-
manna um endurskoðun á mál-
efnasamningnum var komin
fram taldi ég rétt að láta meiri-
hiutafundina falla alveg niður,
þar sem Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
hafði þá ekki sótt siðustu meiri-
hlutafundina og þeir þvi ekki
þjónað tilgangi sínum, þar sem
aðeins 7 borgarfulltrúar sóttu
þá,“ sagði Björgvin Guðmunds-
son borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, er Mbl. leitaði staðfestingar
Jhans á því í gærkvöldi. að sam-
ráðsfundir borgarfulltrúa Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks væru nú
niður fallnir. Mbl. reyndi að ná
tali af Sjöfn Sigurbjörnsdóttur i
gærkvöldi. en árangurslaust.
Björgvin Guðmundsson sagði, að
við upphaf meirihlutasamstarfsins
í borgarstjórn hefðu flokkarnir
komizt að samkomulagi um að
samráðum þeirra í milli skyldi
aðallega háttað með tvennu lagi;
annars vegar svonefndum oddvita-
fundum efstu manna af listunum,
þ.e. Björgvins, Sigurjóns Péturs-
sonar og Kristjáns Benediktssonar,
og hins vegar með meirihlutafund-
um, þar sem allir borgarfulltrúar
flokkanna þriggja mættu. Björgvin
sagði, að meirihlutafundirnir hefðu
ekki verið haldnir reglulega og
hefði Sjöfn sótt þá stopult og þá
síðustu ekki. Hefði hann þá talið
þýðingarlaust að sækja þá einn af
hálfu Alþýðuflokksins og síðan
tekið ákvörðun um að hætta því
eftir að framsóknarmenn settu
fram ósk um endurskoðun mál-
efnasamningsins. Jafnframt kvaðst
Björgvin hafa tilkynnt það, þegar
til fyrsta fundar um endurskoðun-
ina átti að koma, að Alþýðuflokk-
urinn gæti ekki tekið þátt í end-
urskoðun fyrr en búið væri að
skera úr því innan Alþýðuflokks-
ins, hvort meirihlutasamstarfinu
yrði haldið áfram eða ekki.
Ekið á gangandi vegfaranda
ALLMARGIR árekstrar
urðu í höfuðborgarumferð-
inni í gær og voru þeir
orðnir 15 samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í
gærkvöldi.
I einu tilviki var um slys
að ræða. Var það laust eftir
klukkan 16 að ekið var á
gangandi vegfarenda á
Hverfisgötu og var hann
fluttur á slysadeild. Þá var
nokkur órói í Árbæjar-
hverfi er unglingar á vél-
hjólum fóru í flokki um
hverfið og röskuðu næturró
borgaranna.
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík og Reykjanesi
verða haldin um helgina
PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi
vegna komandi alþingiskosninga fara fram nú um helgina. í
Reykjavík er kosið á morgun og mánudag og í Reykjaneskjördæmi
í dag og á morgun. Þá verða fundir í kjördæmisráðum
sjálfstæðismanna á Suðurlandi, Norðurlandi vestra og á Vestur-
landi, haldnir nú um helgina og tekin þar ákvörðun um skipan
framboðslista flokksins við komandi kosningar. Prófkjör flokksins
á Austurlandi fer svo fram um næstu helgi.
Alþýðuflokkurinn heldur Hjá Alþýðubandalaginu verð-
prófkjör í sex kjördæmum um ur seinni umferð forvalsins um
helgina, Reykjavík, Reykjanesi,
Suðurlandi, Norðurlandi eystra,
Norðurlandi vestra, Vestfjörðum
og á Vesturlandi, en sjálfkjörið
var á lista flokksins á Austur-
landi.
hvernig listi flokksins skuli
skipaður í komandi kosningum í
Reykjavík, auk þess sem talin
verða atkvæði í forvali flokksins
í Suðurlandskjördæmi, en kosn-
ing fór þar fram í vikunni. Þá
verða haldnir fundir flokksráða
víða um land, en enn er óráðið
um framboðslista flokksins á
Austurlandi og í Norðurlands-
kjördæmi vestra.
Skoðanakönnunum Framsókn-
arflokksins í Reykjavík og á
Reykjanesi lýkur um helgina,
auk þess sem kjördæmisráð
flokksins víðs vegar um land
munu þinga um framboðslista
flokksins.
Sjá ennfremur um próf-
kjörsmál á bls. 22 og 23.