Morgunblaðið - 11.11.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 11.11.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979 53 Enda þótt félagarnir... eigi það sam- eiginlegt að hafa glataö krúnunni, erhérum mjög sundurlausan söfnuð að raeða (Sjá: Kóngafóik) Bokassa bætist í hópinn • Enn á ný hefur fjölgað í hópi landflótta þjóðhöfðingja, en sú fína klíka hefur fariö stækkandi undanfarin ár. Enda þótt félagarnir í þessum hópi eigi það sameiginlegt að hafa glatað krúnunni, er hér um mjög sundurlausan söfnuð aö ræða, og vart má við því búast, að margir verði til þess að bjóða hinn nýja félaga velkominn. Þaö er hinn skelfilegi varúlfur Bokassa, sem steypt var af stóli í Miö-Afríku keisaradæminu fyrir skömmu. En hversu Ijót sem saga hans er, getur hann meö réttu tekið sér sess meö „frændum“ sínum frá Albaníu, Frakklandi, Rússlandi, Júgóslavíu, Búlgaríu og Grikklandi, sem og öörum kórónu- og landlausum kóngum og prinsum í Evrópu. Það voru yfirleitt alræöisstjórn- ir kommúnista, sem sviptu evr- ópsku þjóöhöföingjana völdum, og var saga margra þeirra heldur óskemmtileg. Eigi aö síöur telja þeir sig hátt yfir Bokassa hafna og raunar á hann fáa sína líka í þessum hópi. Á okkar tímum hafa mörg forn konung- og keisaradæmi í Norður-Afríku hruniö, t.d. í Libyu, Yemen, Eþíópíu, Túnis og íran. Fall íranskeisara þótti mestum tíöindum sæta, og hann er betur settur fjárhagslega en flestir þjáningabræöur hans þar til hann var fluttur í skyndingu til New York bjó hann í einskonar virki á kiettasnös og t öryggisskyni er aöeins haföur á því einn inngang- ur. Kóngafólk þaö, sem hefur hreiöraö um sig í Evrópu, lifir miklu þægilegra Itfi, enda þótt þaö kvarti síknt og heilagt um peningaleysi. Mariam prinsessa af Eþíópíu, sonardóttir Haile Selassíe, fyrrum keisara býr í stórri íbúð í West End í London. En hún veröur aö borga dýra leigu og jafnframt aö sjá fyrir foreldrum sínum, krón- prinsi og krónprinsessu Eþíópíu, og til þess aö ráöa fram úr því, stundar hún skrifstofuvinnu ásamt systrum sínum þremur. Mariam prinsessa þvertekur fyrir það, að afi hennar hafi verið vellauöugur maður, og kveöst bara óska þess, aö svo heföi veriö. Leka, konungur Albaníu bjó ásamt konu sinni, sem er áströlsk aö þjóöerni í rammgerðri bygg- ingu rétt fyrir utan Madrid, þar til spænsk yfirvöld báöu þau aö flytjast úr landi. Þau fengu aö setjast aö í Ródesíu. Mariam prinsessa þvertekur fyrir það að afi henn- ar hafi verið vellauðugur og kveðst bara óska þess að _ „ svo hafi verið J Simeon konungur af Búlgaríu er eins konunglegur og nokkur getur veriö. Hann er afkomandi Victoríu drottningar og þar af leiöandi náskyldur Elizabetu drottningu og Filipusi prins. Hann er barnabarn Umberto ítalíukon- ungs og Luois Mountbatten lá- varöur var náfrændi hans. Hann er á einn eöa annan hátt skyldur bókstaflega öllu kóngafólki í Evr- ópu. Simeon varö Búlgaríukon- ungur aöeins 7 ára aö aldri. Skömmu síöar var hann beöinn um aö fara úr landi og hann flúöi til Egyptalands ásamt móöur sinni og systur. Þar bjuggu þau í nokkur ár. Síöar settist hann aö í Madrid og býr þar ásamt spænskri eiginkonu sinni og fimm börnum þeirra. Einn af náfrændum Simeon er Tomislav prins af Júgóslavíu. Kona hans er Margarita prins- essa, en hún er fædd í Þýzkalandi og systkinabarn Filipusar prins. Þessi eöalbornu hjón stunda búskap í Surrey á Englandi. Fátt er vitað um Konstantín Grikkjakonung og hann sést sjaldan í London, en hann býr í úthverfi borgarinnar, Hampstead. Sagt er, aö hann láti lítið á sér bera, vegna þess aö hann lifl enn í voninni um að veröa leiddur til hásætis á Grikklandi á nýjan leik. En ekki telur annaö kóngafólk aö þaö sé líklegt. Þaö heldur aö hann hafi ekki meiri möguleika á aö endurheimta ríki sitt en skelm- irinn Bokassa. — BARRY EVER- INGHAM. AÐVORUNl „Varúð: Inniholdur eíni. som jjeta þronst sér í gejrnum húðina og valdið krabbamoini eins og komið hofur í ljós við tilraunir á dvrum.” • í síðasta mánuði skipaði bandaríska matvæla- og lyfja- málaráðuneytið svo fyrir, að þessi aðvörunarorð skyldu prent- uð á allar umbúðir um hárlitun- arefni, sem innihéldi ákveðið efnasamband; fimm árum eftir að vísindamenn í Kaliforníu vör- uðu við efninu. Akveðið hefur verið, að sams konar aðvörunum verði komið fyrir á snyrtistofum. Hið háska- ur hárlitunarefna hafa jafnvel kvartað um að þvagið verði brúnleitt eftir að þeir hafa litað hárið með ákveðnum efnum. En hvað þá með hin efnin sex og „nýju efnin“ sem iðnaðurinn er farinn að nota? „Rannsóknir fara nú fram á þeim,“ segir dr. John Winninger, snyrtisérfræð- ingur ráðuneytisins. „Þegar þeim lýkur býst ég við að varað verði við fleiri efnum.“ Það var dr. Bruce Ames, líf- efnafræðingur við Kaliforníuhá- skóla, sem kom af stað umræðum um hárlitunarefnin árið 1975. „Ég var við kennslu og hafði látið nemendurna koma með ýmis al- geng efni og síðan athuguðum við hvort þau yllu stökkbreytingum á bakteríum." Tvö efnasambönd höfðu þau áhrif: sígarettutjara og hárlitunarefni. Ames hélt áfram með tilraununum og athugaði 169 tegundir hárlitunarefna og komst að raun um að 150 ollu stökk- breytingum og voru þess vegna líkleg til að valda krabbameini. Sú uppgötvun hrinti af stað rannsóknum og tilraunum Krabbameinsstofnunarinnar með dýr og leiddi að lokum til aðvör- unarorðanna á umbúðunum. Víðtækari rannsóknir hafa síðan Hárlitunarefnið þrengir sér gegn- um húðina og út í blóðstrauminn Þrátt fyrir þetta er hætt við, að þær 40 milljónir Bandaríkja- manna, sem fara með 400 millj. dala í hárlitunarefni á ári hverju, verði lítt varar við þessar upplýs- ingar og er ástæðan sú, að flestir stærstu framleiðendurnir í Bandaríkjunum hafa „umskapað" framleiðsluna og útilokað þannig þetta hættulega efni að eigin sögn. Fulltrúar matvæla- og lyfjaráðuneytisins halda því þó fram, að sumir framleiðendur hafi aðeins skipt á 4-MMPD, efnasambandinu varasama, og öðrum koltjöruefnasamböndum, sem einnig eru talin geta valdið krabbameini. Snemma á arinu 1978 skýrði Krabbameinsstofnunin banda- ríska svo frá, að af 13 algengum hárlitunarefnum, sem gerðar hefðu verið tilraunir með, hefðu sjö valdið krabbameini í rottum og músum. Af þeim reyndust 4-MMPD langhættulegast. Eins og önnur hárlitunarefni þrengir það sér auðveldlega í gegnum húðina og berst síðan með blóð- inu um líkamann. Sumir notend- l komið í kjölfarið, t.d. sýndu vísindamenn við New York- háskólann fram á fyrr á þessu ári, að konum, sem hafa litað hár sitt að staðaldri um tíu ára skeið, er miklu hættara við brjóst- krabba en öðrum. Sú stofnun í Bandaríkjunum, sem fjallar um hollustuhætti á vinnustöðum, hefur einnig bent á, að rannsóknir sýni, að tíðni krabbameins í hárgreiðslufólki og fólki, sem fæst við snyrtingu, er mjög há, einkum í kynfærum. En hve mikil er hættan af þessum efnum? „Það veit raunar enginn með vissu,“ segir dr. Ames. „Kannski mjög rnikil, kannski ekki. Hér er þörf miklu víðtækari rannsókna, og þá eink- um á fólki sem hefur verið í langvarandi snertingu við efnin.“ - VILLIAM SCOBIE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.