Morgunblaðið - 11.11.1979, Page 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
3. grein
skyldi
eiga sam-
leið með
hverjum?
Vogin/Vogin
23. september—23. október
EFTIR að hafa metið ákvarðanir sínar
lengi lengi, hikað og verið með og á móti,
tekst voginni loks að ná jafnvægi. Vogir
látast aldrei vita það sem þær vita ekki,
eins og mörgum merkjum hættir til. Þær
eru ófeimnar við að spyrja. Þær velta
síðan málunum fyrir sér þvers og kruss.
Séu þær í vafa viðurkenna þær það
fúslega. Þær eru gagnteknar þeirri mór-
ölsku þörf að gera það sem er rétt. Annað
truflar samvizku þeirra óþyrmilega. Þetta
er meðal annars ástæðan fyrir því að
komist nú vogin loks að niðurstöðu er
undantekning ef ekki er hægt að treysta.
því í hvívetna. Og þær víkja ekki eftir það.
Ekki af þrjósku. Þær eru bara svo vissar
um að niðurstaða þeirra sé rétt. Það
skiptir síðan ekki sköpum, hvort þeim hafa
þarna orðið á mistök — öllum má ljós vera
einlægni þeirra. Þetta er eitt af því sem
gerir vogir svo geðfelldar. Vogir hafa
margar fengið á sig þann stimpil að þær
séu óáreiðanlegar og skipti sýknt og
heilagt um skoðun. En því finnst vogum
gott að eiga hvorri við aðra. Það ríkir
skilningur á því að þær vildu alténd gera
rétt.
Tvær vogir saman munu tala mikið.
Hvert mál er brotið til mergjar. Vogin er
intellektúelt merki og ræðir málin jafnan
út frá því sjónarmiði, heldur en að láta
tilfinningar ráða. Fái vogir að vera
óáreittar una þær sér vel. Þær hafa yndi af
öllu sem er fallegt, þola ekki óhreinindi og
allt sem er ljótt og argt meiðir í þeim
sálina. Raunir og bágindi annarra hafa
djúp áhrif á þær, en þar með er ekki sagt
að þær hafi orku né úthald til að gera
eitthvað í málinu.
Tvær vogir þurfa ekki að leggja hart að
sér til að samskiptin verði farsæl. Þær
hafa mjúk og góð áhrif hvor á aðra og
báðir aðilar þannig gerðir að þeir vilja frið
og kyrrð.
Vogir eru viðkvæmar nokkuð, listrænar
og njóta lista og yfirleitt alls sem fagurt er
af ívið meiri innileik en mörg önnur merki.
Vog/ sporðdreki
23. september—23. október
23. október—22. nóv.
Sporðdrekinn sýnir misbrestum vogar
óvenjulegt umburðarlyndi en samt er
ákveðin gætni nauðsynleg, þegar sporð-
dreki og vog nálgast hvort annað. Þau
laðast mjög hvort að öðru, en ekki er hægt
að segja að þau séu allra heppilegasta par.
Sporðdrekinn er að vísu umburðarlyndur
gagnvart henni eins og áður sagði, en
sveiflur vogar geta líka oft farið ákaft í
taugarnar á honum. Vogin er næm og
getur haft mikinn ávinning af því að
kynnast sporðdreka og færa sér vísdóm
hans í nyt. En vogin gleypir þó engan
veginn við öllu sem sporðdrekinn segir —
að minnsta kosti ekki nema leggja nokkur
velvalin orði í belg.
Voginn kallar það skemmtilegar rök-
ræður — sporðdrekinn segir háðslega að
þetta sé þras. Og þar með getur náttúru-
lega slegið í brýnu. En sporðdrekinn
uppgötur snemma í kynnum þeirra að
vogin er gædd óvenjulegum persónutöfr-
um, hún er ljúf og skemmtileg og það er
gott að vera í návist hennar — að minnsta
kosti svona oftast nær. Eins og alkunna er
hefur sporðdrekinn ákaflega sterka
andúðartilfinningu og þeir eru mjög af-
dráttarlausir í því sem þeim hugnast eða
ekki. Þessar fastmótuðu skoðanir sporð-
dreka geta í samskiptum við vogina kallað
fram töluverða spennu, þegar þær brjóta í
bága við innbyggða tilfinningu vogar fyrir
því sem henni finnst réttlatt og sanngjarn
leikur. Þá lætur vogin óspart í ljós gremju
sína og þar með er líka umburðarlyndi
sporðdrekans fokið út í veður og vind.
Vogin er dálitið löt að upplagi —
kannski væri sanngjarnara að segja að
sveiflur hennar valdi því að hún fari
stundum í athafnalega lægð. Þetta gremst
sporðdrekanum, sem er sérdeilis úthalds-
samur og fullur af orku.
En hvað sem erfiðleikur þeirra líður á
stundum, er sporðdreki veikur fyrir töfr-
um vogarinnar. Sporðdrekinn skynjar að
vogin þarfnast örvunar og þegar vogin
finnur farveg fyrir sköpunar- eða athafna-
þrá er hún fáum lík, mild og fús og vill
mikið gefa til að halda friði og jafnvægi.
Sú auka þolinmæði sem sporðdreki þarf
stundum að sýna henni getur skilað sér vel
til hans aftur.
Vog/ bogmaður
23. september—23. október/
22. nóvember—21. desember
Vog og bogmaður er ákaflega heppilegt
fólk saman. Þau hafa-bæði ólýsanlega þörf
fyrir að tja sig. En gera það á ólíka vegu.
Bogmaðurinn er alltaf að skrifa eitthvað
hjá sér og hann er alltaf að hugsa um allt
milli himins og jarðar. Og veit svo ekkert
skemmtilegra en tala um það. Þrátt fyrir
málgleði beggja nálgast þau tjáningar-
form sitt á ólíkan hátt. Vog er miklu meira
abstrakt og rökréttari í hugsun en bog-
maður sem flögrar út og suður og missir
iðulega samhengið í hugsunum sínum af
því það er svo margt sem leitar á hugann í
einu. Bæði vog og bogmaður er skemmti-
legt fólk, geðfellt og yfirleitt geðgott. En
vog og bogmaður geta ært óstöðugan með
þeirri ólýsanlegu þörf að ræða nánast
hvert einasta smáatriði, fjalla um allar
hliðar á öllu. En þau verða aldrei leið á
málþörf hvort annars. Af því að þau eru
líka svo hrifin hvort af öðru á annan veg.
Vog og bogmanni leiðist aldrei saman.
Þau tala saman af fjálgleik og hafa mjög
hressandi áhrif hvort á annað. Með fáum
undantekningum má segja að þrátt fyrir
að stöku rökræður geti farið út í leiðindi
og argaþras, gangi þetta yfirleitt ósköp vel
og hugnanlega.
Milli þessara merkja geta orðið heitar
ástríður. En það kemur venjulega ekki
fyrr en síðar. Fyrst þurfa þau að kynnast,
tala og segja hvort öðru allt. Þegar
kærleikurinn hefur verið vakinn er trúlegt
að þeim gangi flest í haginn, vegna þess
hve miklu fleira sameinar þetta fólk en
sundrar. Vinátta sem myndast milli þeirra
og traust slitnar ekki svo glatt. Samband
þeirra verður aldrei fyrst og fremst
líkamlegs eðlis, m.a. vegna þess sem fyrr
hefur verið sagt og vegna þess að þau
vekja endalaust forvitni hvort hjá öðru um
hvort annað — þrátt fyrir endalaust tal.
Vogin/ steingeitin
23. september—23. október/
21. desemher—20. janúar
Sagt er um einstaklinga í þessum
merkjum að varla sé nema tvennt til —
l!| jigii ÍAVAvkvIH * jijj
v-' ■> UHé«BÍ