Morgunblaðið - 11.11.1979, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
75
ÁNÆSTUNNI
NÝJA BÍÓ : MAGIC — Næsta mynd hér verður að öllum
líkindum MAGIC, sem byggð er á skáldsögu eins kunnasta
kvikmyndahandritahöfundar okkar tíma, Wiliiam Goldmans.
Eftir hann liggja m.a. kvikmyndahandritin og bækurnar
MARATHON MAN og THE GREAT WALDO PEPPER, og
kvikmyndahandritin BUTCH CASSIDY AND THE SUN-
DANCE KID, ALL THE PRESIDENTS MEN og A BRIDGE
TOO FAR. Nafn hans er því talsverð trygging fyrir góðri
skemmtun. Með aðalhlutverkin fara Ann-Margret, Anthony
Hopkins og Burgess Meredidth, leikstjóri er Sir Richard
Attenborough. Goldman segir MAGIC vera sína Hitchcock-
mynd, en hún fjallar einmitt um búktalara sem er að missa
tökin á veruleikanum...
GERT ÚT Á HIMINHVOLFIÐ
Þriöji og síöasti dagurinn
minn í London, aö þessu
sinni, var runninn upp, og
nú skyldi þriöja og síðasta
atlagan gjörö að miöasölum
kvikmyndahússins Odeon
viö Leicester Square. En allt
fór á sömu leið og fyrr.
Biöröðin aldrei óárennilegri
og blööin farin að gefa
þessari nýjustu múgsefjun
stórborgarinnar talsvert
pláss á síöum sínum.
Óprúttnir menn voru á
sveimi um torgiö og buöu
aðgöngumiöa á okurveröi
— með dágóöum árangri.
En mörlöndum þykir sjálf-
sagt flestum æriö nóg að
borga sem svarar hálft
þriðja þúsund fyrir miöann,
hvaö þá heldur fjórfalt þaö
verð.
Myndin sem olli öllu
þessu fjaörafoki var engin
önnur ern „geimhrollvekjan"
ALIEN, en hún hefur gengiö
um allan heim mynda best á
þessu ári. Er hún eitt af
hinum fjölmörgu „afkvæm-
um“ geimmyndanna vel
heppnuöu. STAR WARS og
CLOSE ENCOUNTERS . . .,
sem um þessar mundir eru
aö skjóta upp kollinum meö
stuttu millibili.
Efnislega er ALIEN í anda
gömlu hrollvekjanna, aöeins
umhverfiö er framandi, eöa
geimskip sem er á leiö til
jarðar aö lokinni langri úti-
veru. Þá er komiö viö á lítilli
en ókennilegri reikistjörnu,
hvar leiöangursmenn finna
egg óþekktrar lífveru og
hafa þaö á brott meö sér.
Og ekki er aö sökum aö
spurja, nú taka hinir óhugn-
anlegustu atburðir aö ger-
ast um borö.
Leikstjóri ALIEN er lítt
þekktur Breti, Ridley Scott,
en ALIEN er aðeins önnur
mynd hans. Sú fyrsta nefnd-
ist THE DUELLISTS, og var
sýnd hér í sumar sem leiö,
ákaflega falleg fyrir augaö
en krafkraftlítil myndgerð
einnar sögu Conrads. Sumir
vilja gera því skóna aö meö
ALIEN ætli Scott að slá við
meistara Kubrick, en fyrsta
hrollvekja þess ágæta leik-
stjóra verður einmitt frum-
sýnd í næsta mánuði, og
nefnist THE SHINING,
byggö á samnefndri sögu
Stephen King. Og ef myndin
heldur óhugnanlegri spennu
bókarinnar, sem næsta
fullvíst má teljast frá hendi
Kubricks, er meö ólíkindum
Ein nýjasta
stefna kvik-
myndaiðnaöar-
ins eru myndir
sem að mestu
leyti gerast utan
gufuhvolfeins
aö Scott flói hinum gamal-
reynda snillingi heitt.
Þaö er kvikmyndaverið
20th Century — Fox (um-
boö hérlendis: Nýja Bíó),
sem stendur aö baki ALIEN,
en það virðist nú fariö aö
gera út á himinhvolfið meö
meiri og betri árangri —
fjárhagslega — en áður
hefur þekkst. En þetta sama
kvikmyndaver geröi einnig
myndina STAR WARS,
tekjudrýgstu mynd allra
tíma. Og sóknin er aðeins
rétt nýbyrjuð á þessi nýju
miö, því í bígerð er hjá Fox
aö gera einar átta fram-
haldsmyndir STAR WARS,
og sú fyrsta fer fljótlega aö
sjá dagsins Ijós. Nefnist hún
THE EMPIRE STRIKES
BACK, og er meö öllum
sömu persónum og aðal-
leikurum, utan Alec Guinn-
es. Hvenær skyldi þeim
detta í hug aö gera ALIEN
II.?
Columbia fór hægar í
sakirnar, þaö er ekki von á
framhaldi CLOSE EN-
COUNTERS, hins vegar
reyndu þeir aö mjólka kúna
aöeins betur meö því aö fá
leikstjórann, Steve Spiel-
berg, til að gera nýja, for-
vitnilega kafla í myndina og
sýna síöan „endurbætta út-
gáfu".
Jafnvel hið einhæfa og
rótgróna fyrirtæki Walt
Disney er nú langt komið
viö gerö sinnar fystu
geimmyndar. Nefnist hún
THE BLACK HOLE, og er
langdýrasta mynd kvik-
myndaversins frá upphafi.
Fjallar hún um hiö furöulega
fyrirbrigöi, svörtu blettina,
en þaö hefur reynst stjarn-
fræðingum erfitt útskýr-
ingar. Þeir viröast gleypa
heilu pláneturnar sem síðan
hverfa í hiö kolsvarta ginn-
ungagap, hvers kraftur
eykst aö sama skapi.
Leikstjórn þessarar stór-
myndar annast Gary Nelson
(Washington: Behind
Closed doors), en meö aö-
alhlutverkin fara Maximillian
Schnell, Antony Perkins,
Yvette Mimieux og Ernest
Borgnine.
Paramount-kvikmynda-
verið ætlar sér heldur ekki
aö sitja álengdar hvað þess-
ari nýju gróöalind viökemur,
því núna á jólum er von á
rándýrri geimævintýrakvik-
mynd, STAR TREK — THE
MOTION PICTURE, sem
eins og nafniö bendir til, er
afsprengi hinna samnefndu,
vinsælu sjónvarpsþátta.
Leikstjórn annast hinn gam-
alkunni Robert Wise (THE
ANDROMEDA STRAIN), en
meö aöalhlutverk fara sjón-
varpsþáttaleikararnir Leo-
nard Nimoy, William Shat-
ner og DeForest Kelly.
American International
frumsýndi á dögunum sinn
keppinaut, en þaö er dýr-
asta mynd í sögu þessa litla
fyrirtækis, og nefnist hún
METEOR. eöa „Loftsteinn”.
Segir hún af einum slíkum,
sem stefnir á móöur Jörö,
og gerast nú góö ráö dýr.
Þinga í skyndi færustu
geimvísindamenn Rússa og
Bandaríkjamanna, þ.e.
Natalie Wood og Sean
Connery, en allt kemur fyrir
ekki, steinskrattinn lætur
sér ekki segjast og endar
sína ólánsferö á Manhattan,
af öllum stööum.
En þaö mjólka ekki allar
þrílitar kýr vel, og METEOR,
þrátt fyrir geysigóöa tækni-
vinnu, aö sögn, hlaut ekki
nándar nætti jafn góöa að-
sókn og reiknað var meö.
• Leiðangursmenn geimskipsins „Nostromo“ í miður huggulegu
umhverfi ókennilegrar stjörnu. Úr ALIEN • Stjórntölva „Nostrom-
os“, „Mamma“, vekur leiðangursmenn af dásvefni • Anthony
Hopkins sem búktalarinn Corky í myndinni MAGIC.