Morgunblaðið - 18.01.1980, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.01.1980, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980 Kastljós í kvöld: Mynd frá afmæli sænska sjónvarpsins hinn 29. október siðastliðinn. í afmæli hjá sænska sjónvarpinu Hinn 29. október síðastliðinn var þess minnst að liðin voru 25 ár síðan sænska sjónvarpið hóf útsendingu. Gerður var skemmtiþáttur þar sem tónlist af ýmsu tagi situr í fyrirrúmi. Fyrri hluti. Meðal þeirra sem koma fram eru kór og sinfóníuhljómsveit sænska útvarpsins, Elisabeth Sönderström, Hasse Alfredson, Tage Daniels- son, Sylvia Lindenstrand, Sven-Bertil Taube, Arja Saijonmaa og Frans Helmerson. Síðari hluti verður sýndur sunnudagskvöldið 20. janúar. Þýðandi Hallveig Thorlacius. Skattamál og björgunarmálefni Prúðu leikararnir í kvöld: Lynn Redgrave gestur þáttarins Kastljós er á dagskrá sjónvarps í kvöld eins og venja er til á föstudagskvöldum. Umsjónarmaður þáttarins að þessu sinni er Omar Ragnarsson fréttamaður. Ómar sagði í stuttu spjalli við Morgunblaðið, að hann tæki fyrir tvö málefni að þessu sinni, skattamál og björgunarmál. Rætt verður við ríkisskattstjóra og fleiri kunnáttu- menn um skatta og nýjar reglur og lög þar um og fleira er að skattheimtu snýr. í þeim hluta þáttarins, sem snýr að björgunarmálum, verður fjallað um björgunarmálefni á landi, í tilefni slyssins á Mosfellsheiði meðal annars. Rætt verður við ýmsa aðila, er þau mál varða, svo sem skáta og björgunarsveitarmenn og fulltrúa Slysavarnafélags íslands. ómar Ragnarsson fréttamaður er umsjónarmaður Kastljóss í kvöld. Hér er hann á tali við ráðherrana Magnús H. Magnússon og Benedikt Gröndal. — Pólitíkin verður að vísu ekki á dagskrá í kvöld hjá ómari, heldur mun hann beina kastljósinu að skattamálum og björgunarmálum. Prúðu leikararnir verða á dagskrá sjónvarpsins í kvöld og hefst þáttur þeirra klukkan 20.40. Froskurinn Kermit mun sem fyrr hafa orð fyrir þeim félögum eftir því sem hann getur, en auk þess fá þeir að venju til sín gesti í heimsókn. Að þessu sinni bankar uppá hjá hinum prúðu leikurum leikkonan Lynn Redgrave. Þýðandi þáttarins er eins og áður Þrándur Thoroddsen. Gyltan Svinka í heitu faðmlagi við vin sinn, froskinn Kermit, en þeim bregður að sjálfsögðu báðum fyrir f þættinum i kvöld. Útvarp Reykjavík FÖSTUDAGUR 18. janúar MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Málfríður Gunnarsdóttir lýkur lestri sögunnar „Vorið kemur” eftir Jóhönnu Guð- mundsdóttur (8). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 „Mér eru fornu minnin kær“. Einar Kristjánsson rit- höfundur frá Hermundar- felli sér um þáttinn. 11.00 Morguntónleikar. Concertgebouw-hljómsveitin í Amsterdam leikur forleik- inn „Le Carneval romain“ op. 9 eftir Hector Berlioz; Bernard Haitink stj. / Milan Turkovic og Eugene Ysaye strengjasveitin ieika Kons- ert í F-dúr fyrir fagott og hljómsveit eftir Kari Stam- itz; Bernhard Klee stj. / Ungverska fílharmoníusveit- in leikur sinfóníu nr. 54 í G-dúr eftir Joseph Haydn; Antal Dorati stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍDDEGID_____________________ 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikasyrpa. Léttklassísk tónlist og lög úr ýmsum áttum. 14.30 Miðdegissagan: „Gatan“ eftir Ivar Lo-Johansson. Gunnar Benediktsson þýddi. Halldór Gunnarsson les (18). 15.00 Popp. Vignir Sveinsson kynnir. 15.30 Lesin dagskrá næstu viku. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónieikar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Litli barnatíminn: Ég vil ekki fara að sofa. Sigrún Sigurðardóttir sér um tímann. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Hreinninn fótfrái“ eftir Per Westerlund. Margrét Guð- mundsdóttir les (3). 17.00 Síðdegistónleikar. Josef Bulva leikur Pianósón- ötu í h-moll eftir Franz Liszt / Ásta Thorstensen syngur Álfarímu eftir Gunnar Reyni Sveinsson við ljóð eftir Ástu Sigurðardóttur; hljóðfæra- kvintett leikur með; höfund- urinn stj. / Suisse Romande- hljómsveitin leikur svítuna „Masques et Bergamasques“ eftir Gabriel Fauré, Ernest Ansermet stj. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Víðsjá. 19.45 Til- kynningar. 20.00 Sinfónía nr. 5 í d-moll op. 47 eftir Dmitri Sjostakovitsj. Franska ríkishljómsveitin ieikur; Evgení Svetlanoff stjórnar (hljóðritun frá franska útvarpinu). 20.45 Kvöldvaka a. Einsöngur: Þorsteinn Hannesson syngur islenzk lög. Fritz Weisshappel leik- ur á píanó. b. Sjómaður, bóndi og skáld. Jón R. Hjálmarsson talar við Ragnar Þorsteinsson frá Höfðabrekku; — fyrra sam- tal. c. „Það er líkt og ylur i ómi sumra braga“. Jóhanna Norðf jörð leikkona les kvæði eftir Þorstein Erlingsson. d. Harmsaga einbúans. Ágúst Vigfússon flytur frá- söguþátt. e. Við sjávarsiðuna fyrir vestan. Alda Snæhólm les kafla úr minningum móður sinnar, Elinar Guðmunds- dóttur Snæhólm, um útmán- aðaverk áður fyrri. f. Kórsöngur: Karlakór Ak- ureyrar syngur islenzk lög. Söngstjóri: Áskell Jónsson. Pianóleikari: Guðmundur Jó- hannsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Kvöldsagan: „Hægt and- lát“ eftir Simone de Beau- voir. Bryndís Schram les þýðingu sina (3). 23.00 Áfangar. Umsjónar- menn: Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 18. janúar 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Prúðu leikararnir Leikbrúðurnar skemmta ásamt ieikkonunni Lynn Redgrave. Þýðandi Þránd- ur Thoroddsen. 21.05 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður ómar Ragnarsson 22.05 Afmælisdagskrá frá Sænska sjónvarpinu Hinn 29. október var þess minnst að liðin voru 25 ár siðan Sænska sjónvarpið hóf útsendingu. Gerður var skemmtiþáttur þar sem tónlist af ýmsu tagi situr í fyrirrúmi. Fyrri hluti. Meðal þeirra sem koma fram eru kór og slnfóniu- hljómsveit Sænska útvarps- ins, Elisabeth Söderström, Hasse Alfredson, Tage Danielsson, Sylvia Lind- enstrand. Sven-Bertil Taube, Arja Saijonmaa og Frans Helmerson. Síðari hluti verður sýndur sunnudagskvöldið 20. jan- úar. Þýðandi Hallveig Thorlacius. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 00.05 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.