Morgunblaðið - 18.01.1980, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980
(Simamynd AP.)
ERLENDIR stúdentar í Peking brenndu í fyrradag sovéska fánann framan við sendiráð
Sovétríkjanna í Peking til að mótmæla innrásinni í Afganistan. Stúlkan fremst til vinstri á myndinni
hcitir Marit Wilhelmsen og er norsk. Teiknimyndin á baki hennar sýnir Brezhnev forseta
Sovétríkjanna skauta á skriðdrekum.
Spánn:
Tekur Hussein þátt í
V esturbakkav iðr æðum?
Washington, Kairó 17. jan. AP.
SHAMUEL Tamir. dómsmálaráð-
herra ísraels, sagði i dag, að
„fáein merki“ hefðu borizt frá
Ilussein Jórdaníukonungi, sem
bentu til þess að hann hefði
fengið endurnýjaðan áhuga á að
eiga aðild að því að móta framtið
Vesturbakkans. Tamir sagði, að
Hussein yrði að vera mjög var-
færinn vegna afstöðu róttækra,
arabískra stjórnmálaleiðtoga
sem berðust eindregið gegn
þessu. „Ef hann gengur til þess-
ara samninga mun það verða
þeim mjög til framdráttar og
allri friðarþróun í þessum heims-
hluta,“ sagði Tamir rétt áður en
hann hitti að máli Vance, utan-
rikisráðherra Bandarikjanna.
Hussein hefur tekið undir gagn-
rýni annarra Arabaleiðtoga á frið-
arsamning Egypta og ísraela og
hann neitar að ísraelar hafi rétt
til að semja um framtíð Vestur-
bakkans — sem áður var í Jórd-
aníu — en þar búa um sjö hundruð
þúsund Palestínu-Arabar.
Tamir sagði, að Hussein hefði
látið í ljós ákveðinn vilja til að
komast á einhvern máta inn í
samningana.
Jórdanir náðu svæði þessu í
stríðinu 1948, en misstu það síðan
í sex daga stríðinu.
Þriggja daga viðræðum fulltrúa
ísraela og Egypta um sjálfsstjórn-
arfyrirkomulag Vesturbakkans
lauk í Kairó í dag og varð árangur
að sögn lítill sem enginn frekar en
fyrri daginn.
Veöur
Akureyri 2 alskýjaó
Amsterdam -1 skýjaó
Aþena 15 heiöríkt
Barcelona 7 þokumóóa
Berlín -3 bjart
BrOssel -4 bjart
Chicago 12 skýjað
Denpasar Bali 30 skýjaó
Dublin 3 skýjað
Frankfurt Iskýjað
Qenf -2 þoka
Helsinki -2 skýjað
Hong Kong 18 bjart
Jerúsalem 10 skýjað
Jóhannesarborg 26 bjart
Kaupmannahöfr i 1 bjart
Las Palmas 19 skýjaö
Lissabon 12 rigning
London 5 heiöríkt
Los Angeles 18 rigning
Madríd 10 skýjað
Malaga 11 skýjað
Mallorca 10 skýjaö
Miami 22 bjart
Moskva -9 heiðríkt
Nýja Delhi 22 bjart
New York 9 bjart
Ósló -2 skýjaö
París 1 heiðríkt
Reykjavík 2 rigning
Rio de Janeiro 27 rigning
Rómaborg 11 heiðrfkt
San Francisco 16 rigning
Stokkhólmur -1 skýjað
Sydney 21 rigníng
Tel Aviv 16 bjart
Tókýó 10 bjart
Toronto -1 bjart
Vancouver 7 skýjað
Vínarborg -2 snjókoma
Sprenging á Hot-
el Mount Royal
Londun 17. jan. AP.
UNGUR maður frá Ba-
hrain, Mohammed Solt-
arai, lézt í dag í spreng-
ingu í Hótel Avenue Royal
í miðborg Lundúna. Þýzk-
ur gestur á hótelinu slas-
aðist og verulegar
skemmdir urðu á a.m.k.
fimm herbergjum gisti-
hússins, sem stendur við
Oxford-stræti gegnt
Marble Arch.
Ekki spyrzt
til sekkja-
bófanna
Rómaburg — 17. jan. — AP.
ÍTALSKIR leynilögreglumenn
og öryggisverðir sögðu í dag að
ekkert spyrðist enn til bófanna
tveggja, sem hefðu gabbað flug-
stjóra svissneskrar þotu til að
stoppa er hún var að búa sig
undir flugtak.
Voru mennirnir klæddir bún-
ingum flugvallarstarfsmanna og
opnuðu geymslur vélarinnar og
hirtu þaðan tvo sekki fulla af fé og
höfðu á braut með sér. ítalska
lögreglan segir að þarna hafi
augljóslega verið atvinnumenn á
ferð og í blaðafrásögnum og um-
sögnum um þennan atburð skín í
gegn töluverð aðdáun á þessum
kænu bófum að því er AP segir.
Fimm stundum síðar varð önn-
ur sprenging í hótelinu, en sem
eftir fregnum að dæma virðist
enginn hafa slasast þá, en mikil
skelfing greip um sig á hótelinu og
í næsta nágrenni sem jafnan er
fjölfarið.
Yfirmaður sveita þeirra hjá
Scotland Yard, sem eru sérþjálf-
aðar að berjast gegn hryjuverka-
mönnum, voru kvaddar á vettvang
að kanna málið. Bendir flest til
þess að maðurinn sem lézt hafi
verið að bauka við að útbúa eða
koma sprengju fyrir í hótelinu, er
hún sprakk í höndum hans.
Þetta geröist
1979 — Nýr forsætisráðherra
Irans, Shapour Bakthiar, segir
að áframhaldandi ólag í landinu
geti aðeins léitt til „nýrrar
gjörðar einræðis".
1978 — Slitnar skyndilega upp
úr samningaviðræðum Egypta
og ísraela í Jerúsalem, er Sadat
kveður fyrirvaralaust utanríkis-
ráðherra sinn heim.
1977 — Indira Gandhi boðar til
þingkosninga á Indlandi.
1976 — Frakkar reka 40 Sovét-
menn úr landi fyrir njósnir.
1974 — Fundur Kissingers og
Sadats í Aswan.
1960 — Kýpurráðstefna í Lond-
on fer út um þúfur.
1956 — Ráðstefna um sam-
bandsríki Malaysiu hefst.
1952 — Óeirðir sem beinast
gegn Bretum brjótast út í Egypt-
alandi.
Menntamálaráð-
herrann hætti
Madrid. 17. jan. AP.
MANUEL Clavero, menntamála-
ráðherra Spánar, sagði af sér i
morgun vegna ágreinings við
samráðherra sína um sjálfs-
stjórnarmál Andalúsíu. í embætt-
ið var umsvifalítið skipaður Ric-
ardo de la Cierva, að því er
talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði frá. Þetta var fyrsta breyt-
ing á ríkisstjórninni síðan UCD,
flokkasamband Adolfo Suarezar
forsætisráðherra, sigraði í þing-
kosningunum i landinu fyrir tiu
mánuðum.
Clavero virðist hafa ákveðið að
segja af sér vegna þess að hann
var andsnúinn ákvörðun flokks
síns um að mæla með því að menn
greiddu ekki atkvæði í kosningun-
um um heimastjórn þar þann 28.
febrúar. Clavero er formaður
flokks síns í Andalúsíu.
Tveir lögreglumenn
myrtir i Aþenu
Aþenu — 17. jan. — AP.
MJÖG umfangsmikil leit stendur
nú yfir í Aþenu og nágrenni að
mönnum, sem myrtu tvo lög-
reglumenn í morgun. Pantelir
Petrou, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn i óeirðalögreglu Aþenu,
var skotinn til bana þegar hann
var á leið heim úr vinnu í morgun
og bílstjóri hans, Stamoulis,
særðist svo alvarlega að hann
lézt síðdegis. Lögreglan segist
hafa grun um að vinstrisinnar
hafi verið þarna að verki.
Sjónarvottar voru að þessum
atburði, en þeir gátu ekki tilgreint
hvort árásarmennirnir voru tveir
eða þrír. Plagg var skilið eftir á
morðstaðnum þar sem samtök
sem kölluðu sig „byltingarnefnd
17. nóv.“ kváðust bera ábyrgð á
morðinu. Þann 17. nóv. 1973 dró til
mikilla tíðinda við Aþenuháskóla
er stúdentar gerðu þar uppreist
gegn herforingjastjórninni og her
og lögregla skaut þá til bana 40
manns á götum Aþenu og um tvö
þúsund manns særðust.
Grísk blöð benda á að morðið á
Petrou sé algerlega tilefnislaust,
þar sem hann hafi aldrei verið á
snærum herforingjastjórnarinnar
og hvergi komið nálægt þeim
atburðum sem urðu 17. nóvember
fyrir röskum sjö árum.
Eggjum kast-
að í Kennedy
Newark, New Jersey, 17. jan. AP.
EDWARD Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður, fékk egg í
hausinn er hann var að koma til
samkvæmis í Newark á fimmtu-
dagsmorgun. Var samkvæmið
haldið til að safna fé i kosninga-
sjóð Kcnnedys og var Kennedy að
ganga inn þegar nokkrir menn
hófu að kasta eggjum að þing-
manninum og lenti eitt á hálsin-
um á honum.
Viðkomandi eggjavarpari var
þegar handsamaður og „snúinn
niður“ af öryggisvörðum Kenne-
dys. Hann og tveir aðrir voru
síðan settir í gæzlu meðan mál
þeirra væri kannað. Sjónarvottar
segja, að mennirnir þrír hafi sagt
að þeir væru félagar í kommún-
istaflokknum bandaríska.
Kennedy lét þetta þó ekki á sig
fá. Sagt er að honum hafi hvergi
brugðið og hann hafi leikið á als
1943 — Umsátri Þjóðverja um
Leningrad létt. Þjóðverjar hefja
á ný loftárásir á London.
1919 — Friðarráðstefnan í Ver-
sölum hefst.
1918 — Rússneskt stjórnlaga-
þing sett í Petrograd.
1912 — Robert Scott kemur á
Suðurheimskautið á eftir Am-
undsen.
1871 — Þýzka keisararíkið
stofnað
1788 — Fyrstu ensku landnem-
arnir koma til Ástralíu og
fanganýlenda stofnuð.
1778 — Cook finnur Hawaiieyj-
ar.
1701 — Friðrik III af Branden-
burg er krýndur Friðrik I Prúss-
akonungur.
1520 — Kristján II sigrar Svía
við Asundenvatn og leggur
Svíþjóð undir sig.
oddi í samkvæminu þegar hann
hafði þvegið eggjasletturnar af
hálsi sér og jakkaboðungi.
James og Elísabet
alltaf vinsæl-
ustu nöfnin
Londun. 17. janúar. AP.
JAMES og Elísabet eru áfram
og enn vinsælustu og mest
notuðu nöfnin meðal miðstétt-
ar Breta, að því er segir í Times
í morgun. James hefur verið
vinsælasta drengjanafn í Eng-
landi meðal þessa fjölmenna
hóps í sextán ár og Elísabet
hefur verið á toppnum síðustu
fjögur ár. Næst vinsælasta
nafnið nú á drengjum er
Edward og Sarah er næstvin-
sælasta stúlkunafnið nú, en var
áður sjötta vinsælasta.
18. janúar
Afmæli — Francois Michel De-
tellier, franskur stjórnmála-
maður, 1641 — 1691, Mohammed
Ali, bandarískur hnefaleika-
kappi, 1942 —, Cary Grant,
bandarískur leikari 1904 —,
Danny Kay, bandarískur leikari,
1913 -.
Andlát — Lytton lávarður, rit-
höfundur, Kipling, rithöfundur,
Gaits Kell, br. stjórnmálamaður.
Innlent — ÍSI stofnað 1912,
fyrsti ráðherrafundur 1917, Hó-
tel Borg tekur til starfa 1930,
Sveinbjörn Egilsson fer frá
Lærða skólanum 1850, skozk
skúta strandar undir Eyjafjöll-
um 1821. D. sr. Magnús
Grímsson 1860, f. Georgía
Björnsson, forsetafrú.
Orð dagsins — Borðum til að
lifa, en lifum ekki til að borða. —
Benjamin Franklin.