Morgunblaðið - 18.01.1980, Side 32
QUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu
úr tást hjá flestum
úrsmiðum.
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
|M«T0Unl>[AtlÍð
Tveggja
ára birgðir
af loðnu-
hrognum
í Japan
TALIÐ ER að allt að tveggja ára
birgðir aí loðnuhrognum séu nú
til í Japan. en þangað hefur
undanfarin ár verið flutt veru-
legt magn af frystum loðnu-
hrognum og frystri loðnu. Full-
trúar Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna. þeir Eyjólfur ísfeld og
Hjalti Einarsson, eru nú i Japan.
en SH er langstærsti aðiiinn í
frystingu loðnuafurða hér á
iandi. Samband ísl. samvinnufé-
iaga á hins vegar von á sinum
viðsemjendum hingað til lands í
lok janúar.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri Sjvarafurðadeildar
Sambandsins, sagði í gær, að
óhætt væri að segja að markaður
fyrir loðnuhrogn væri daufur og
mikil óvissa varðandi hrognasölu.
Hins vegar sagðist Sigurður
reikna með, að söluhorfur væru
skárri á heilfrystri loðnu og þar
ætti að geta fengist svipað verð í
dollurum og síðastliðinn vetur. A
síðasta ári voru fluttar til Japans
um 3750 lestir af frystum loðnu-
hrognum að verðmæti á fob-verði
um 2.9 milljarðar króna. Ekki
virðist um aðra markaði að ræða
fyrir loðnuhrogn en Japan.
Sigurður sagði, að aðalástæðan
fyrir því hve daufur markaðurinn
væri nú, væru hinar miklu birgðir,
sem til eru í Japan. En einnig
hefðu Norðmenn og Kanadamenn,
einkum þeir fyrrnefndu, verið með
töluvert framboð á þessum mark-
aði.
LOKASTIG framleiðslu kísiljárns í Járnblendiverksmiðjunni
að Grundartanga, en álitið er að hitastig í bræðsluofninum nái
um 2000 stigum. Frá 1. apríl á s.l. ári þegar verksmiðjan tók til
starfa hafa verið framleidd liðlega 17 þúsund tonn af
kísiljárni, en árleg afkastageta verksmiðjunnar er 25—33
þúsund tonn eftir því hversu mikil raforka fæst til framleiðsl-
unnar. Sjá bls. 16.
Ljósmynd Mbl. Kristján.
Sambandið og Samlag skreiÖarframleiðenda:
Skreið fyrir 4 milljarða
til einkaaðila í Nígeríu
Jafntefli hjá
Guðmundi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
gerði jafntefli við bandaríska
stórmeistarann Robert Byrne á
alþjóðlega skákmótinu í Wijk
aan Zee í Hollandi í gærkvöldi.
Guðmundur hafði svart og var
lengst af með betri stöðu en
Byrne tókst að bjarga sér fyrir
horn.
Guðmundur hefur einn vinning
eftir þrjár umferðir. Efstur í
mótinu er Seirawan frá Band-
aríkjunum en staðan er óljós
vegna biðskáka. Stórmeistarinn
Kortchnoi er einn þeirra skák-
manna, sem eiga biðskák.
SKÖMMU fyrir jól sömdu Sam-
band. ísl. samvinnufélaga og
Samlag skreiðarframleiðenda um
sölu á 40 þúsund pökkum af
skreið til einkaaðila í Nígeríu.
Skreiðin er seld á um 4 milljarða
króna og miðað við sama tíma í
fyrra er um 25% hækkun að
ræða, en verðið hefur farið hækk-
andi síðan í haust. Enn er beðið
bankaábyrgða vegna þessara
samninga, en áætlað var að
fyrsta sendingin færi til Port
Harcourt í Nígeríu í lok þessa
mánaðar. Þess er að vænta, að nú
verði sú breyting á í Nígeríu, að
einkaaðilar fái innflutningsleyfi
og geti því komið inn í þessi
viðskipti á ný.
Islenzka umboðssalan hefur
sömuleiðis selt verulegt magn af
skreið til Nígeríu, en hún er seld í
gegnum svissneskt fyrirtæki, sem
haft hefur séraðstöðu á þessum
viðskiptum við Nígeríu undanfar-
in ár.
Magnús G. Friðgeirsson hjá
Sjávarafurðadeild Sambandsins
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
Sambandið og Samlag skreiðar-
framleiðenda væru að reyna að
hefja viðskipti beint við einkaað-
ila í Nígeríu, en það hefði ekki
verið mögulegt í nokkur ár. — Við
teljum að það mál sé nú á
lokastigi og væntum þess, að við
getum opnað markaðina á ný,
sagði Magnús. — Kaupendur eru
einkaaðilar í Nígeríu og okkur
virðist að hinir hefðbundnu
skreiðarkaupendur séu að koma
inn í þetta aftur, en einokunin sé
liðin tíð.
í raun má segja, að við getum
Mikil loðnuveiði
er ísinn lónaði f rá
LOÐNUVEIÐI var sérstaklega
góð í fyrrinótt, en í gærdag gerði
brælu á miðunum. í fyrrinótt
tilkynntu 38 skip um 21.280
lestir og varð sólarhringurinn
einn sá bezti frá upphafi Ioðnu-
Forsetakosningarnar:
Halldór Laxness styöur Pétur
— Guðmundur J. styður Albert
HALLDÓR Laxness rit-
höfundur sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að hann styddi
framboð Péturs Thor-
steinssonar í forsetakosn-
ingunum á sumri kom-
anda. Þá hefur Morgun-
blaðið eftir áreiðanlegum
heimildum, að Guðmund-
ur J. Guðmundsson, al-
þingismaður og formaður
Verkamannasambands
íslands, sé stuðnings-
maður Alberts Guð-
mundssonar.
Halldór Laxness sagði,
er Morgunblaðið spurði
hann í gær hvort hann
styddi Pétur Thorsteins-
son: „Já, ég styð hann. Ég
hef þekkt Pétur lengi og
haft mikið álit á honum.“
veiðanna. Hafís hafði verið á
loðnumiðunum, en lónaði frá í
fyrradag og þá fékkst þessi góða
veiði. Aflinn á vertíðinni er nú
orðinn um 60 þúsund lestir.
Þegar afla fimmtudagsins hefur
verið landað má ætla að allt verði
orðið fullt á löndunarstöðum frá
Krossanesi að Þorlákshöfn, en
loðnu hefur enn ekki verið land-
að annars staðar.
ísleifur 440, Skírnir 440, Hrafn
550, Gullberg 590, Seley 250, Örn
580, Börkur 1100, Jón Finnsson
550, Albert 600, Gísli Árni 610,
Gígja 750, Þórshamar 580, Arn-
arnes 500, Huginn 600, Harpa 400,
Guðmundur 950, Helga II 500,
Pétur Jónsson 670, Dagfari 530,
Helga Guðmundsdóttir 600, Berg-
ur 470, Haförn 700, Ársæll 440,
Kap II 550, Jón KJartansson 100,
Rauðsey 430, Óskar Halldórsson
200, Sæbjörg 300, Þórður Jónasson
280, Hákon 800, Hilmir 540, Júpit-
er 1250, Náttfari 500, Víkingur
1250, Súlan 500, Stapavík 350,
Ljósfari 330, Sigurfari 500.
selt það, sem við getum fengið af
framleiðslunni, en erum búnir að
skuldbinda okkur fyrir 40 þúsund
pökkum. Verðhækkanir eru
nokkrar og hafa verið stígandi
síðan í haust. Þá náðum við um
15—20% hækkunum frá því, sem
verið hafði, og svo virðist, sem enn
sé verið að hækka. Hækkunin er
núna orðin um 25% frá því í
ársbyrjun í fyrra og þessir 40
þúsund pakkar leggja sig á um 4
milljarða króna, sagði Magnús
Friðgeirsson.
Tillögur Alþýðu-
bandalagsins til
Þjóðhagsstofnunar
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ lagði
fram á fyrsta fundi viðræðu-
nefnda vinstri flokkanna í
gærmorgun tillögur um fyrstu
aðgerðir í efnahagsmálum og
„þriggja ára áætlun um hjöðnun
verðbólgu, eflingu atvinnuvega
og jöfnun lífskjara“. Að ósk
Steingríms Hermannssonar,
formanns Framsóknarflokks-
ins, var óskað eftir mati Þjóð-
hagsstofnunar á tillögunum og
mati verðlagsstjóra á þeirri
niðurfærslu, sem í tillögunum
er.
Næsti fundur viðræðunefnd-
anna verður á morgun, laugar-
dag, og óskaði Svavar Gestsson
eftir því í gær, að þá gæfu
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur svör um það, hvort þeir
teldu þessar tillögur Alþýðu-
bandalagsins heppilegan grund-
völl til áframhaldandi viðræðna
um myndun vinstri stjórnar.
Sjá tillögur Alþýðubandalags-
ins bls. 14 og 15.