Morgunblaðið - 23.01.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1980
Heimilistölvan
Tölvuskóli
Borgartúni 29,
sími 23280.
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Ný hraönámskeiö á smátölvur
(microcomputers) hefjast um
mánaöarmótin.
Námskeiöin eru sniöin fyrir alla þá sem vilja kynna sér
og læra aö hagnýta hina margvíslegu möguleika sem
smátölvur hafa upp á að bjóöa.
Námskeiðin eru stutt, efnismikil og samþjöppuö, og
eftir 20 stunda nám hafa nemendur öölast staðgóða
grundvallarþekkingu á forritunarmálinu BASIC.
Engar sérstakar forkröfur eru geröar til nemenda um
tæknimenntun eöa þekkingu á tölvum, og kennslan fer
öll fram á íslensku.
Nú er rétta tækifæriö til aö iæra meöferö tölva. Eftir
örfá ár veröa smátölvur komnar inn í hvert fyrirtæki og
jafnvel inn á hvert heimili.
Sími Tölvuskólans er 00000
Innritun stendur yfir 4.0^01/
OPIÐ HÚS sunnud. 27. jan. kl. 14.00-18.00
Komið og kynnist starfsemi skólans af eigin raun.
WttWlflHI-HIHWIWIIMIMMMHIt
m
m
9
m
símanúmer
RITSTJÓRN OG
SKRIFSTOFUR:
10100
22480
83033
immmmmmmmmí m *#####§#
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Nokkrir þeirra er fram koma á tónleikunum í kvöld, frá vinstri: Anna Málfríður Sigurðardóttir,
undirleikari, Elisabet F. Eiríksdóttir, Krystyna Cortes undirleikari, Baldur Karlsson, Hrönn
Hafliðadóttir, Þuríður Pálsdóttir, Jórunn Viðar undirleikari, Valgerður J. Gunnarsdóttir og Ásrún
Davíðsdóttir, en á myndina vantar Pál Jóhannesson. Ljósm. Emilía
Myrkir músíkdagar:
Nemendur Söngskólans
kynna söngljóðagerð
Nemendur Söngskólans í
Reykjavík og Þuríður Pálsdóttir
sjá um tónleika í kvöld kl. 20:30 i
Félagsstofnun stúdenta og eru
það þriðju tónleikar í hátiðinni
Myrkir músikdagar. Þarna
kynna þau islenska söngljóða-
gerð í tali og tónum og hefur
Þuriður Pálsdóttir tekið saman
Enn í fremstu
röð í skákinni
35 árum síðar
FJÓRUM umferðum er nú
lokið af 11 á Skákþingi
Reykjavíkur, en teflt er eftir
Monrad-kerfi í einum flokki
og keppendur liðlega 80 tals-
ins. 5. umferð verður tefld í
kvöld í Skákheimilinu við
Grensásveg. Þá er einnig teflt
í unglingaflokki.
Fjórir skákmenn hafa unnið
allar skákir sínar í mótinu til
þessa, þeir eru Björn Sigur-
jónsson, TK, Guðmundur Ág-
ústsson, TR, Jóhann Hjartar-
son, TR, og Haraldur Haralds-
son, Mjölni. Nokkrir eru með
3V2 vinning og margir með 3
vinninga, þannig að hart er
barist. Þess má geta að Guð-
mundur Ágústsson, sem er
meðal þeirra er verma efsta
sætið, varð Reykjavíkurmeist-
ari í skák árið 1945 eða fyrir
réttum 35 árum.
^Dale .
(Jarnegie
námskeiðið
★ Meira hugrekki.
★ Stærri vinahópur.
★ Minni áhyggjur.
★ Meiri lífskraftur.
PERSÓNULEGUR
ÞROSKI
STJÓRNUNARSKÓUNN
Konráö Adolphsson
Sími 82411
Ný námskeið eru að hefjast.
efnisskrána og kynnir hún jafn-
framt lögin.
Áður en Tónlistarskólinn í
Reykjavík tók til starfa og síðar
Sinfóníuhljómsveitin, sömdu ís-
lensk tónskáld einkum sönglög og
kórlög, sem mörg lifa góðu lífi
með þjóðinni í dag og er ætlunin
að gera nokkra grein fyrir verkum
þeirra tónskálda sem voru braut-
ryðjendur tónsköpunar hér á landi
og er nú farnir, einnig að sýna
sönglagagerð í dag, segir m.a. í
kynningu fyrir tónleikana.
Þuríður Pálsdóttir var í vikunni
með nokkra nemendur Söngskól-
ans að æfa fyrir tónleikana er
Mbl. fékk að líta inn sem snöggv-
ast og taka af þeim mynd. Koma
fram á tónleikunum 6 einsöngvar-
ar og þrír undirleikarar þeirra.
Þau eru komin mismunandi langt
í söngnáminu en hafa komið fram
áður við ýmis tækifæri.
Stiklað verður á stóru í þessari
kynningu á íslenskum tónskáldum
og er elstur höfundanna Svein-
björn Sveinbjörnsson og yngstur
Jórunn Viðar.
Einar Baldvinsson listmálari við eitt af verkum sínum
Sýningu Einars
lýkur á sunnudag
EINAR G. Baldvinsson opnaði sl.
sunnudag yfirlitssýningu á verk-
um sinum á Kjarvalsstöðum.
Einar sýnir þar myndir frá 20 ára
tímabili, alls 120 verk. í gær höfðu
1200 manns séð sýningu Einars en
henni mun ljúka n.k. sunnudag,
26. janúar.
jT
Island leggur 10 millj.
til flóttamannahjálpar
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sinum í gærdag að verða við
tvcimur beiðnum um framlög til
brýnna líknarverkefna, sem bor-
ist hafa frá Poul Hartling, flótta-
mannafulltrúa Sameinuðu þjóð-
anna, að upphæð 25 þúsund
bandarikjadollarar, eða sem nem-
ur um 10 milljónum islenzkra
króna.
Ríkisstjórnin ákvað að ísland
legði fram til hjálparstarfsins
vegna flóttafólks frá Afganistan
18 þúsund dollara eða sem nemur
um 7,2 milljónum íslenzkra króna
og segir í frétt frá ríkisstjórninni
að þessi fólksflótti eigi sér stað í
fjalllendi í vetrarhörkum og því sé
þörf á matvælum, klæðnaði, sæng-
urfatnaði og húsaskjóli.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna hefur einnig tekið að sér
að standa straum af heimflutningi
flóttafólks til Zimbabwe-Rhódesíu
frá nágrannalöndunum og hefur
ríkisstjórnin ákveðið að ísland
leggi fram 7 þúsund dollara til
þessa verkefnis en það er um 2,8
milljónir íslenzkra króna.