Morgunblaðið - 23.01.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.01.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1980 15 Carter vann stórsigur Des Moines, 22. janúar, AP. CARTER forseti bar mikinn sig- ur úr býtum í kosningunum í Iowa-fylki til flokksþings demó- Sovétmenn efstir á EM Skara, Svíþjóð —22. janúar — AP. SOVÉTMENN hafa tekið forustuna í sveitakeppni Evrópumeistaramóts- ins í skák eftir þrjár umferðir. Sovétmenn fóru hægt af stað, gerðu jafntefli við Englendinga, 4—4, siðan Ungverja 4—4. í 3. umferð stefna þeir í öruggan sigur gegn Svium. Þegar fimm skákum var lokið höfðu Sovétmenn hlotið 4.5 vinninga gegn háifum vinningi Svía. Þrjár skákir fóru i bið, Anderson og Karpov, Petrosian og Schneider og Kasaparov og Ren- man. Schneider er með vinnings- stöðu gegn Petrosian en Kasparov hefur betra tafl gegn Renman. Staðan í biðskák Anderson og Karp- ov er tvísýn. Sovétmenn eru með mjög sterka sveit í Svíþjóð, meðal stórmeistara má nefna Tal, Spassky, Petrosian, Kasparov, Polugaevsky að ógleymd- um sjálfum heimsmeistaranum, Karpov. í 3. umferð urðu úrslit: Ungverjaland—Búlgaría 3—4, ein í bið, Tékkóslóvakía—Bretland 2.5— 1.5, 4 í bið, Júgóslavía 2.5—1.5,4 í bið. Staðan á Evrópumeistaramótinu er nú: Sovétríkin 12.5 — 3 biðskákir. Júgóslavía 12,4 biðskákir. ísrael 11.5, 4 í bið, Ungverjaland 11 — 4 í bið, Búlgaría 10.5, 1 biðskák, Tékkó- slóvakía 9, 4 biðskákir, Bretland 9, 4 biðskákir. Lestina reka Svíar með 7.5 vinninga og 3 biðskákir. 19 sjó- manna saknað Tókýó, 22. janúar, AP. VÖRUFLUTNINGASKIP frá Pan- ama sökk á Japanshafi í nótt eftir að eldsvoði varð um borð og leki kom að skipinu. Skömmu eftir slysið fundust tveir skipverjar á björgunarbáti, en 19 er saknað og óttast er að þeir hafi farist. Þetta gerðist 23. janúar 1979: Ein og hálf milljón ríkis- starfsmanna í Bretlandi leggur niður vinnu; Bokassa keisari í Mið-Afríkuríkinu fær her frá Zaire. 1943: Bretar taka Tripoli. 1719: Furstadæmið Lichtenstein stofnað. 1579: Utrechtsáttmálinn. 1571: Kauphöllin í London opn- uð. Afmæli: Stendahl, franskur rit- höfundur, 1783—1842 - Edouard Manet, franskur listmálari, ^g32__1883 Andlát: Otto keisari II — Will- iám Pitt, stjórnmálamaður, 1806 — Charles Kinsley, skáld, 1875 — Alexander Korda, kvik- myndaframleiðandi, 1956 — Paul Robeson, söngvari, 1976. Innlent: Stórflóð í Grindavík 1925 — F. Helgi Helgason, tón- skáld, 1848 — d. Ormur biskups- efni Þorsteinsson 1321 — d. sr. Sveinn Jónsson á Barði 1687 — 4500 sextán ára nemendur þreyta í fyrsta skipti svokölluð „samræmd próf“ í grunnskólum — f. Þóra Kristjánsdóttir, list- ráðunautur Kjarvalsstaða, 1939. Orð dagsins: Reynslan er bezti kennarinn, en skólagjöldin eru bara of há — Thomas Carlyle, skozkur sagnfræðingur. krata sem velja mun frambjóð- anda flokksins við forsetakosn- ingarnar í haust. Hlaut Carter 29 fulltrúa, en Edward Kennedy, helzti keppinautur hans, hlaut 15. Þátttaka var mikil og talið er að það hafi verið Carter í hag, en hann hlaut 59 af hundraði at- kvæða, Kennedy 31 og aðrir minna. Carter sagði, að útkoman væri kærkomin og bæri vott um stuðn- ing þjóðarinnar við sig á erfiðum tímum. Hann sagði að kosninga- barátta Kennedy-manna í Iowa hefði verið kraftmikil og vel und- irbúin. Næsta forval fer fram í New Hampshire þar sem Kennedy er sagður sterkur, en kunnugir segja að tapi hann þar geti hann allt eins dregið sig út úr barátt- unni um útnefningu flokksins við forsetakosningarnar. í samsvarandi kosningum re- públikana sigraði George Bush, fyrrum sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum og forstöðumaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Bar hann sigurorð af Ronald Reagan sem hafði forskot í skoð- anakönnunum fyrir kosningarnar. Edward Kennedy ásamt lagskonu sinni, ungfrú Lönu Campbell. Myndin birtist í New York Post og þar sagt að hún hafi verið tekin í bátsferð út af Martha’s Vineyard árið 1967. Hafði blaðið eftir ungfrú Campbell. að hún hefði verið lagskona hans um tveggja ára skeið, en þingmaðurinn þvertók fyrir það í sama blaði. Ef myndin prentast vel má sjá að Kennedy er með belti mikið um sig miðjan, og er það vegna meiðsia sem hann hlaut í flugslysi skömmu áður en myndin var tekin. Veöur Akureyri -5 léttskýjaö Amsterdam 7 rigning Aþena 15 heiöskírt Barcelona 19 léttskýjaö Berlín 1 léttskýjaö BrUssel 8 rigning Chicago 0 heiöskírt Frankfurt 0 skýjaö Genf 6 rigning Helsinki -4 skýjað Jerúsalem 15 heiðskírt Jóhannesarborg 26 heiöskírt Kaupmannahöfn -1 snjókoma Las Palmas 22 léttskýjaö Lissabon 15 rigning London 9 heiöskírt Los Angeles 23 heiðskírt Madríd 8 skýjað Malaga 15 léttskýjaö Mallorca vantar Míami 22 skýjaö Moskva -10 skýjað New York 5 rigning Ósló -2 skýjaö París 7 heiöskírt Reykjavík -5 léttskýjaö Rio de Janeiro 35 skýjaö Rómaborg 8 skýjaö Stokkhólmur -1 skýjað Tel Aviv 18 heiðskírt Tókýó 7 heiöskírt Vancouver 5 skýjað Tillögur um að ÓL verði flutt- ir frá Maskvu njóta víða fylgis New York, Kaupmannahöfn. London. Ósló, 22. janúar, AP. BANDARÍSKIR embættismenn og íþróttafrömuðir freistuðu í dag að fá aðrar vestrænar þjóðir til að lýsa stuðningi við tillögur Carters forseta um að ólympíuleikarnir verði færðir frá Moskvu, frestað eða þeim jafnvel aflýst, vegna innrásar og ihlutunar Sovétmanna í Afganistan. Ef það rætist ekki, gera þeir sér a.m.k. vonir um, að svo margar þjóðir hætti við þátttöku í leikunum að þeir missi áróðursgildi fyrir Sovétmenn heima fyrir. Framkvæmdastjóri Alþjóða ÓI- ympíunefndarinnar sagði í dag, að ekki kæmi til greina að leikunum yrði frestað, aflýst eða þeir færðir til annars lands, og Killanin lávarður, forseti nefndarinnar, sagði, að Ól- ympíuhreyfingin en ekki Sovétmenn yrði fyrir áfalli ef Bandaríkin sendu ekki keppendur á leikana. í skoðana- könnun AP og NBC-sjónvarpsstöðv- arinnar lýstu 49 af hundraði sig fylgjandi því að bandarískt íþrótta- fólk sæti heima ef leikarnir yrðu haldnir í Moskvu, 41 af hundraði var andvígur því og 10 af hundraði óákveðnir. Bandaríska Ólympíunefndin kem- ur saman til fundar í Colorado um næstu helgi og verður þá formleg afstaða tekin. Fjölmargir af fremstu íþróttamönnum Bandaríkjanna, þ.á m. heimsmethafar og verðlauna- menn frá síðustu leikum, hafa lýst stuðningi við hugmyndir Carters og hvatt til þess, að bandarískt íþrótta- fólk taki ekki þátt í leikunum vegna atburðanna í Afganistan. Kjeld Olsen, utanríkisráðherra Danmerkur, útilokaði næstum í dag að dönsk stjórnvöld legðust á sveif með Carter forseta. Sagði hann, að ef sú staða kæmi upp að Danir yrðu eina vestræna þjóðin, sem tæki þátt í leikunum, yrði sennilegast breytt um afstöðu. Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs, sagði og að norska stjórnin mundi ekki gefa íþróttasamböndum þar í landi fyrirskipanir hvað snertir þátttöku Norðmanna í leikunum. „Einstök sambönd verða að ákveða sjálf hvort íþróttamenn innan þeirra taka þátt í leikunum í Moskvu," sagði Nordli í viðtali við fréttaritara Mbl. Komið hafa fram kröfur um að norskir íþróttamenn taki ekki þátt í leikunum í Moskvu, en hvorki hafa stjórnmálaflokkar né íþróttasam- bönd tekið afstöðu til þess. Margrét Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, sagðist í dag ætla að rita brezku Ólympíunefndinni bréf og fara þess á leit við hana að nefndin krefðist þess að Ólympíu- leikarnir yrðu fluttir frá Moskvu, og að m.a. yrði boðið að keppni í einstökum Ólympíuíþróttum færi fram á brezkri grund. Brezkir stjórnmálamenn hafa tekið heils hugar undir þær kröfur Carters Bandaríkjaforseta að Ólympíuleik- arnir verði fluttir frá Moskvu. Þá samþykkti Ástralíustjórn í dag að styðja kröfur Carters um að vestrænar og hlutlausar þjóðir hundsi Ólympíuleikana í Moskvu hverfi Sovétmenn ekki á brott með herlið sitt frá Afganistan. Sagði Malcolm Frazer forsætisráðherra í bréfi til áströlsku Ólympíunefndar- innar, að ríkisstjórn hans teldi að meirihluti þjóðarinnar óskaði þess að Sovétmönnum yrði gerð grein fyrir því, að Ástralíubúar væru mjög andvígir aðgerðum þeirra í Afgan- istan, og að vart væri til sterkari leikur til þess en að halda sig fjarri Ólympíuleikunum. Einkum yrði sov- ézku þjóðinni þannig ljós vanþóknun Ástralíumanna og annarra hlut- lausra ríkja á innrás og íhlutun Sovétmanna í Afganistan. Víða annars staðar að bárust fregnir þess efnis, að ráðamenn væru fylgjandi hugmyndum um að Ólympíuleikarnir yrðu færðir frá Moskvu, og kunnugir sögðu, að kröfur þess efnis, að hætt yrði við þátttöku í leikunum, yrðu til að styrkja áskoranir og óskir Kara- manlisar, forsætisráðherra Grikk- lands, um að leikarnir fari framvegis alltaf fram í Grikklandi, og stjórn- málalegt og viðskiptalegt mikilvægi þeirra verði þannig afnumið. Bókmennta- og tónlistarverölaun Norðurlandaráðs: Veitt dönsku tónskáldi og sænskum rithöfundi DÓMNEFNDIR Norðurlanda- ráðs ákváðu í gær að sænski rithöfundurinn Sara Lidman skyldi hljóta bókmenntaverð- laun ráðsins fyrir skáldverkið Vredens Barn, og að danski tónlistarmaðurinn Pelle Gud- mundsen-Holmgren skyldi hljóta tónlistarverðlaun ráðsins fyrir verkið Symfoni-Antifoni. Árni Kristjánsson píanóleik- ari, sem auk Páls Kr. Pálssonar, prganista, var annar fulltrúi Islands í nefndinni, sagði í við- tali við Mbl. í gær, að Gud- mundsen-Holmgren væri fædd- ur árið 1932 og væri verk hans í svokölluðum hlutstæðum stíl. í því brygði fyrir glettni og jafn- vel væri í verkum hans að finna rómantískar hliðar, söngrænir kaflar væru inn á milli í annars margslungnum verkum. Segðist tónskáldið vera í andlegum tengslum við Samuel Beckett og tónverk hans endurspegluðu áhrif frá list Becketts. Árni sagði, að tónverk eftir Gud- mundsen-Holmgren hefðu áður komið til álita í sambandi við úthlutun tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, sem að þessu sinni verða afhent hér á landi 4. marz, en þá hefur sænski full- trúinn Göran Bergendal orð fyrir nefndinni. Sara Lidman er fædd árið 1923 og kom hennar fyrsta bók út árið 1953. Einkenndust bækur henn- ar í fyrstu af svonefndu sál- fræðilegu raunsæi, og einnig þær síðustu, en Vredens Barn fjallar um líf í heimahéruðum hennar í Norðurbotni. Hún hef- ur einnig fjallað um kynþátta- kúgun og verkalýðsbaráttu. Seg- ir í umsögn dómnefndarinnar að verk hennar, Vredens Barn, ein- kennist af auðmýkt og hógværð. Sara Lidman, rithöfundurinn sænski, sem hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína Vredens Barn. Lidman er fyrsta konan sem hlýtur verðlaunin. Simamynd — AP. Danska tónskáldið Pelle Gud- mundsen-Holmgren sem í gær hlaut tónlistarverðlaun Norður- landaráðs fyrir tónverkið Sym- foni-Antifoni Simamynd — AP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.