Morgunblaðið - 24.02.1980, Side 1
64 SÍÐUR
46. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Neyðarástand og hörkubardagar í Kabúl
Hundruð manna falln-
ir í uppreisnartilraun
Kabúl — 23. febrúar — AP.
MÖRG hundruð manns létu lífið í bardögum milli
uppreisnarmanna og sovézk-afganska stjórnarhersins í
Kabúl í gær. í morgun var bardögum haldið áfram af
hörku og hafði mannfall orðið mikið þegar síðast
fréttist, en þó virðist heldur hafa dregið úr. Eldar loga
víða í borginni, lík og sært fólk liggur eins og hráviði
um götur og torg og sjúkrahús hafa ekki við að taka á
móti fólki, sem þarf á læknishjálp að halda.
Engar áreiðanlegar tölur
liggja fyrir um mannfall, en
vitað er að fjöldi sovézkra
hermanna hefur fallið í þessum
átökum, og þúsundir hafa
særzt. Nýjum tálmunum hefur
verið komið fyrir víða í borg-
inni. Sovézkar Mig-sprengju-
þotur þjóta rétt yfir húsaþök-
unum og vélbyssuþyrlur halda
uppi árásum á stöðvar upp-
reisnarmanna, en frá því að
Sovétríkin gerðu innrásina í
landið hefur ástandið aldrei
verið alvarlegra, að því er
heimildamenn í Kabúl telja.
Bardagarnir í gær hófust
samtímis á mörgum stöðum í
höfuðborginni og nágrenni
hennar, og er því greinilega um
að ræða skipulagða uppreisn-
artilraun gegn Sovétmönnum,
en eins og fyrr segir er ástæða
til að ætla þessa stundina að
sovézk-afganska hernum sé að
takast að bæla hana niður.
Sem dæmi um ástandið má
nefna að vestrænn diplómat,
sem flutti særðan mann í
sjúkrahús, taldi fimmtíu lík í
röð á gólfi fordyris Joumour-
iet-sjúkrahússins í Kabúl. Allt
atvinnulíf í borginni liggur
niðri og verzlanir hafa verið
lokaðar frá því á fimmtudag-
inn.
Árás hrundiö í
San Salvador
San Salvador, E1 Salvador,
23. febrúar. AP.
STJÓRNARHERMENN
hrundu í nótt árás vinstri-
sinna á aðalstöðvar her-
ráðs heraflans í San Salva-
dor, höfuðborg E1 Salva-
dor.
Áður hafði lögreglan
skipzt á skotum við vopn-
aða unglinga og drepið tvo
þeirra. Unglingarnir
höfðu skotið hjólbarða
nokkurra strætisvagna og
lokað með því mikilvægum
gatnamótum i höfuðborg-
inni.
Sumir sjónarvottar sögðu, að
lögreglan hefði skotið á stræt-
isvagn sem vinstrisinnar hefðu
lagt undir sig og að tveir þeirra
hefðu beðið bana. Aðrir segja
að fólk í strætisvagninum hafi
skotið á lögreglu og skothríð-
inni hafi verið svarað.
Sex menn voru vegnir á
götum San Salvador í gær.
Tugir gísla eru enn á valdi
námsmanna í þremur gagn-
fræðaskólum. Námsmennirnir
vilja styrki til að ferðast með
strætisvögnum, lægri skóla-
gjöld og meiri áhrif á stjórn
skólanna.
Aðrir vinstrisinnar hafa 25
manns á valdi sínu í mennta-
málaráðuneytinu og krefjast
þess, að pólitískir fangar verði
látnir lausir. Um 500 síma-
menn hafa lagt niður vinnu og
krefjast þess, að fimm félagar
þeirra, sem voru reknir fyrir að
reyna að stofna verkalýðsfélag,
fái aftur vinnu.
Ljósm. Mbl. Gmilia.
ORKUVER RÍS í ÓBYGGÐUM - Um 100 manns
vinna um þessar mundir við byggingu Hrauneyja-
fossvirkjunar en í sumar, þegar framkvæmdir
standa hæst munu vinna þar rúmlega 600 manns.
Frá Hrauneyjafossvirkjun segir nánar á bls. 28—29.
Solzhenitsyn
spáir sigri
fyrir Kína
París, 23. febrúar. AP.
RITHÖFUNDURINN Alexand-
er Solzhenitsyn sagði i dag að
Vesturlönd mundu sigra Sov-
étríkin. en gætu ekki „haldið
kinnverskum kommúnisma i
skefjum og stöðvað hann á leið
hans til heimsyfirráða“.
Solzhenitsyn segir í vikuritinu
„Rússnesk hugsun", sem kemur
út á rússnesku, að „hinn frjálsi
heimur" geti ekki staðizt komm-
únisma „nema með bandalagi
við þjóðirnar sem eru undir
yfiráðum kommúnista."
En hann segir að vestrænir
diplómatar og stjórnmálamenn
verði að endurskoða hugmyndir
sínar og breyta afstöðu sinni til
kommúnisma.
Hann sakaði frjálslynda Vest-
urlandamenn um að hafa stutt
sovézkan kommúnisma á árun-
um eftir 1920 þegar rússneska
þjóðin hafi orðið að þola „kam-
bódískt þjóðarmorð".
Tito er með
lungnabólgu
Brlsrad. 23. febrúar. AP.
LÆKNAR Josip Broz Tito forseta
skýrðu frá þvi i dag að hann þjáðist
af lungnabólgu og gerðu að engu
vonir um að hann væri á batavegi.
Þeir höfðu áður greint frá því að
lifinu væri haldið i honum með
gervinýra.
Læknarnir hafa ekki minnzt á að
líðan Titos hafi versnað síðan þeir
sögðu fyrir viku að nýrnastarfsemi
hans hefði hrakað. Þeir hafa ekki
minnzt á lungnabólgu fyrr en nú og
ekki talað um hjartabilun síðan 13.
febrúar.
Jafnframt reynir ríkisstjórnin að
láta líta út fyrir að allt sé með felldu
og landinu sé stjórnað eins og ekkert
hafi í skorizt án mannsins sem hefur
ráðið lögum og lofum síðan í heims-
styrjöldinni. Þrátt fyrir tilkynning-
una í dag hefur ekki verið hafinn
flutningur alvarlegrar tónlistar í út-
varpi eins og fyrirskipað var eftir að
Tito veiktist.
46 fórust
Nýju Delhi, 23. febrúar. AP.
Fjörutíu og sex fallhlífaliða-
efni biðu bana í dag þegar
þota indverska flughersins
fórst skömmu eftir flugtak í
Agra, 200 km suðaustur af
Nýju Delhi, eftir sprengingu í
eldsneytisgeymi.
Tveir menn sem köstuðust
út úr þotunni komust lífs af.
Gíslarnir á valdi löggjafarsam-
komu sem hefur ekki verið kjörin
Lundúnum. 23. febrúar. AP
KHOMEINI trúarleiðtogi
í íran sagði í útvarpi í
morgun að enginn gæti
tekið ákvörðun um frelsun
gíslanna í bandaríska
sendiráðinu í Teheran
nema löggjafarsamkoma
þjóðarinnar, en hún hefur
enn ekki verið kjörin.
Þessi ummæli draga énn
- segir Khomeini
frekar en orðið var úr
bjartsýni manna um að
rannsóknarnefnd sú á veg-
um Sameinuðu þjóðanna,
sem lagði af stað til Teher-
an um hádegisbilið, megni
að telja stjórnvöldum í
íran hughvarf og fá lausa
gíslana, sem nú hafa verið
á valdi öfgamanna í 112
daga.
„Eins og ég hef sagt hvað eftir
annað, — við gerum kröfu til þess
að fá keisarann framseldan og við
krefjumst því að fjármunum þjóð-
arinnar verði skilað. íslömsku
námsmennirnir, sem hafa njósna-
hreiðrið á valdi sínu, hafa gefið
þessu heimsvaldagráðuga ríki
Bandaríkjunum verðuga ráðn-
ingu,“ sagði Khomeini, og bætti
við að þar til kjörnir fulltrúar
fólksins í landinu kæmu saman
yrði það verkefni byltingarráðsins
og forseta landsins að halda
áfram tilraunum til að ná aftur
keisaranum og því fé, sem hann
hefði sölsað undir sig og komið úr
landi.
SÞ-nefndin, sem kemur til Te-
heran síðdegis, er skipuð fimm
lögfræðingum, frá Sri Lanka,
Alsír, Frakklandi, Sýrlandi og
Venúzúela.