Morgunblaðið - 24.02.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
19
Jón Ingi við sundlaugargrunn Sjálfsbjargar.
Jón Ingi Guðmunds-
son leggur sundlaugar-
byggingu Sjálfsbjargar lið
JÓN Ingi Guðmundsson, sund-
kennari og sundgarpur, varð sjö-
tugur á síðastliðnu hausti, þann 16.
september.
Af því tilefni beindi hann því til
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, að sér væri kært ef þeir sem
hefðu hug á að minnast sín vegna
þessara tímamóta, létu Sundlaug-
arsjóð Sjalfsbjargar njóta þess.
Jón á að baki langa starfsævi
sem sundkennari, en hann hóf
kennslu við Austurbæjarskólann í
Reykjavík árið 1944. Áður hafði
hann starfað þar sem baðvörður
um tólf ára skeið. Þar að auki
hefur hann haldið ótal sundnám-
skeið, enda munu þeir skipta tug-
þúsundum, sem hafa lært sundtök-
in hjá Jóni. Jón Ingi varð sund-
kóngur íslands árið 1927 og þre-
mur árum áður varð hann sund-
kóngur Hafnarfjarðar. Hann er
einn af stofnendum Sundfélagsins
Ægis.
Afmælisdagur Jóns er að vísu
liðinn fyrir nokkru, en sundlaug
Sjálfsbjargar er enn í smíðum.
Byggingin er nú komin undir þak
og framkvæmdum miðar vel.
Ákveðið er að hún verði tekin í
notkun fyrir árslok.
Þessi gleðilega staðreynd er ár-
angurinn af samstilltu átaki lands-
manna. Ekki er þó enn séð fyrir
endann á fjárþörfinni og samtökin
eru þess fullviss, að margir nem-
endur Jóns muni hylla hann sjöt-
ugan með því að efla Sundlaug-
arsjóð Sjálfsbjargar.
Framlögum er veitt víðtaka á
skrifstofu Sjálfsbjargar 1. s.f., Há-
túni 12, Reykjavík. Einnig er fólki
bent á gíróþjónustuna. Við flytjum
Jóni Inga alúðarþakkir svo og
öllum þeim, er hafa lagst á eitt um
að ljúka verkinu.
Fréttatilkynning
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Yiltu Keflavíkur-
sjónvarpið af tur?
Geir R. Andersen kynnir blm. undirskriftasöfnunina fyrir opnun
Keflavíkursjónvarpsins. l.josin. MM. KristjAn.
rita nöfn sin á listann þeir, er
kosningarétt hafa, sagði Geir.
Hann sagði ennfremur að þeir
sem hefðu áhuga á að gerast
umboðsmenn fyrir undirskrifta-
söfnunina gætu snúið sér til hans
í síma 23533 eftir kl. 8 á kvöldin,
fyrst um sinn a.m.k., eða þar til
nánar verður auglýst um miðstöð
söfnunarinnar á Reykjavíkur-
svæðinu. Ennfremur gæti fólk
utan af landsbyggðinni haft sam-
band við hann í framangreindum
síma.
Undirskriftasöfnun fyrir opnun
Keflavíkursjónvarpsins af stað
NÚ Á NÆSTU dögum verður hleypt af stokkunum undirskriftasöfnun
fyrir opnun Keflavikursjónvarpsins. Aðalhvatamaðurinn að söfnun-
inni er Geir R. Andersen. og sagði hann um tiigang söfnunarinnar i
spjalli við Mbl. i gær:
„Þetta er gagnsókn gegn frels-
isskerðingu, reyndar liðurí sjálf-
s. eðisbaráttu landsmanna, sem er
ævarandi. Þetta er barátta fyrir
auknu frelsi til þess að mega velja
og hafna, svo fremi að það stríði
ekki gegn frelsi annarra.
Söfnunin er ópólitískt mál að
mínu mati, mál allra landsmanna
til umfjöllunar og það án flokka-
drátta. Eins er þetta mál algjör-
lega óviðkomandi efni íslenzka
sjónvarpsins.
Ég hef talað við margt fólk um
þetta mál, og óhætt er að segja að
nánast allir eru hlynntir opnun
stöðvarinnar. Örfáir menn fengu
því framgengt að stöðinni var
lokað, 60-menningarnir svo-
nefndu. Hef ég talað við suma
þeirra og hafa þeir linast í afstöðu
sinni og m.a. lýst því við mig, að
þeir muni ekki setja sig upp á móti
málinu.
Ein af forsendunum fyrir undir-
skriftasöfnuninni er sú, að nú eru
brostnar vonir manna með að með
komu jarðstöðvar og Nordsat geti
menn fengið erlent sjónvarpsefni
beint inn í stofu til sín. Það er og
verður íslenzka sjónvarpið sem
tekur á móti efni um jarðstöðina
og velur svo til útsendingar. Þá
verður ekki fyrr en eftir 10 ár
tekin ákvörðun um hvort Nordsat
komi, og eftir að sú ákvörðun
hefur verið tekin líða svo enn
nokkur ár áður en gervihnötturinn
kemur í gagnið.
Ætlunin er, að ein aðalmiðstöð
verði fyrir söfnun undirskrifta í
hverju kjördæmi og sú miðstöð
sjái um dreifingu lista til áhuga-
fólks, sem taka vill að sér söfnun
undirskrifta.
Undirskriftalistinn er í raun
áskorun til alþingismanna okkar
um að bregðast vel við óskum
kjósenda þeirra, sem ljá þessu lið,
og veita málinu brautargengi á
Alþingi.
Á undirskriftarskjalinu segir
orðrétt: „Það er staðreynd, að
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
rekur fullkomna sjónvarpsstöð í
landi okkar og ennfremur, að
íslenskir sjónvarpsnotendur búa
ekki við þau skilyrði, sem nálægar
þjóðir njóta, t.d. í vali milli
sjónvarpsstöðva, innlendra og er-
lendra.
Þar eð slík skilyrði eru ekki í
augsýn hér um fyrirsjáanlega
framtíð, skorum við undirritaðir á
alþingismenn að veita þeirri
áskorun okkar brautargengi, að
hafist verði handa um samninga-
gerð við yfirmenn varnarliðs
Bandaríkjanna á Keflavíkurflug-
velli um afnot af sjónvarpi þeirra
fyrir ALLA LANDSMENN“. -
Tekið er fram að einungis skuli
■BLÓMtÁVEXIIR
Hafnarstræti 3, sími 12717 — 23317.