Morgunblaðið - 24.02.1980, Side 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
SUNRISE — Þennan skemmtilega grip er hægt aö fá handsmíöaðan fyrir minnst 12 milljónir króna.
I
„Engin almennileg bílasýning nema hand-
bragð gömlu meistaranna fái notió sín“
ROLLS ROYCE — Ekki má gleyma gamla rollsinum.
Gamlir bílar
eru sífellt að
verða vinsælli í
Bandaríkjunum
„Það er engin almennileg bíla-
sýning nema handbragð gömlu
meistaranna fái þar notið sín,“
sagði Eli Bloom, er Mbl. ræddi við
hann fyrir skömmu, er stærsta
bílasýning veraldar, „The New
York Greater Auto Show“, var
opnuð, en Bloom er formaður
sýningarnefndarinnar. „Fólkið
hefur í raun og veru mun meiri
áhuga á „görnlu" bílunum en þeim
nýju þegar það kemur á sýningu
eins og þessa," sagði Bloom enn-
fremur.
Þetta voru orð að sönnu, því
vart var hægt að þverfóta fyrir
áhugasömum skoðendum í kring-
um „gömlu" bílana, sem voru um
það bil sjötti hluti bílanna á
sýningunni, eða um 100. Það kom
ennfremur fram hjá nokkrum
sýnenda, að- „gamlir" bílar væru
sífellt að verða vinsælli og vin-
sælli og fólk vel í efnum greiddi
gífurlegar upphæðir ef um sér-
stæða bíla væri að ræða.
Á sýningunni vakti „CLÉNET"
bíllinn tvímælalaust mestu at-
hyglina af þeim sem voru með
gamla laginu. Línurnar eru mjög
góðar og krafturinn ekki síðri. 8
strokka vél að sjálfsögðu. Eintak
af slíkum dýrgrip kostar í dag um
100 þúsund dollara, eða sem næst
40 milljónir íslenzkra króna. Á
sýmngunm var CLÉNETINN a
afgirtu svæði og fengu ekki nema
vinir og vandamenn að gera sér
dælt við gripinn, nema því aðeins
að menn væru augljóslega vel í
efnum og gætu verið hugsanlegir
kaupendur. Það er ennþá hægt að
fá þennan fágæta grip smíðaðan
af framleiðendunum í Kaliforníu
og er það allt gert í höndunum.
Framleiðendur bílsins sögðust
smíða í kringum 30 bíla á ári en
eftirspurnin væri mun meiri.
Fleiri bílar vöktu athygli á
sýningunni og má þar nefna Cab-
allista, sem framleiddur er enn
þann dag í dag, þótt útlitið hafi
haldið sér í um 40 ár. Slíkur
gripur kostar um 80 þúsund doll-
ara, eða um 33 milljónir íslenzkra
króna.
Þá má nefna SUNRISE, sem
framleiddur er í um 200 eintökum
árlega og kostar „aðeins" um 30
þúsund dollara, eða um 12 milljón-
ir íslenzkra króna í ódýrustu
útgáfu, en venjulegur Cadillac,
sem þykir nú ekkert slor, kostar
um 15 þúsund dollara, eða um 6
milljónir íslenzkra króna.
Af þeim bílum, sem voru á
sýningunni, en eru ekki í fram-
leiðslu ennþá, vakti FORD frá
árinu 1927 hvað mesta athygli,
auk '35 módels af ALFA ROMEO,
en báðir þessir bílar eru ennþá í
fullu fjöri.
Þá voru á sýningunni ýmiss
konar sérútgáfur, svo sem lengdir
Cadillacbílar með sérhannaðri
innréttingu fyrir fyrirmenni og
aðra slíka.