Morgunblaðið - 26.02.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
Þjóðverjarnir harð-
neituðu sakargiftum
SKIPVERJARNIR þrír af vestur-
þýzka togaranum Geeste, sem
íslenzk kona kærði fyrir nauðgun
á laugardaginn, harðneituðu öll-
um sakargiftum við yfirheyrslur
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
um helgina.
Þegar konan kom á lögreglustöð-
ina s.l. laugardagmorgun til þess að
kæra atburðinn voru föt hennar
rifin. Skipverjar, sem kallaðir voru
til yfirheyrslu sem vitni og sögðust
hafa séð konuna fara frá borði,
kváðust ekkert óeðlilegt hafa séð í
fari konunnar og föt hennar hefðu
ekki verið rifin.
Stóð því fullyrðing gegn fullyrð-
ingu í málinu og var mönnunum
sleppt. Togarinn hélt síðan frá
Reykjavík aðfararnótt sunnudags,
hálfum sólarhring eftir að hann var
kyrrsettur á ytri höfninni. Einn
mannanna óskaði að hætta á skipinu
og fór hann flugleiðis til Þýzkalands
í gærmorgun.
Flugmannadeilan:
Sáttafundur
á morgun
SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu flug-
manna og vinnuveitenda þeirra hef-
ur verið boðaður á morgun klukkan
16. Það er nýskipaður aðstoðar-
sáttasemjari, Gunnar G. Schram,
sem boðar til fundarins.
Á síðasta fundi komust viðræður
milli aðilanna ekki í gang, þar sem
vinnuveitendur kváðust ekki til við-
ræðu, nema um einn samning við alla
flugmenn, en Félag íslenzkra at-
vinnuflugmanna neitaði að sitja
sameiginlega fundi með Félagi Loft-
leiðaflugmanna.
Þjóðleikhúsfólk
til Bandaríkjanna
ÞRJÁTfU MANNA hópur starfs-
manna Þjóðleikhússins mun fyrstu
vikuna i marz ferðast vestur um
haf til Bandarikjanna og kynna
sér leikhúslif þar. Dagana 1.—8.
marz er Þjóðleikhúsið lokað vegna
þings Norðurlandaráðs og notar
hópurinn tækifærið til þess að
kynna sér leikstarfsemi i New
York.
Að sögn Þjóðleikhússtjóra er
þetta kærkomið tækifæri til að
kynna sér leikhússtarf í öðrum
löndum meðan það er í fullum
gangi, en síðast fóru starfsmenn
Þjóðleikússins ferð sem þessa fyrir
5 árum, þegar síðast var haldið þing
Norðurlandaráðs hérlendis. Strax
að lokinni þessari vikuferð hefst
starfsemi að nýju í Þjóðleikhúsinu
með eðlilegum hætti.
Banaslys um borð
í þýzkum togara
VESTUR-þýzki togarinn Sconbrus togarinn var á veiðum við Græn-
kom til Reykjavíkur í fyrrinótt land. Verður líkið flutt flugleiðis
með lík 45 ára gamals skipverja, til Þýzkalands. Togarinn hafði
sem hafði látizt í vinnuslysi um aðeins stutta viðdvöl hér en hélt
borð s.l. laugardagsmorgun, þegar síðan á veiðar.
Gæzluvarðhald í hassmálinu
TALSVERÐAR hræringar eru
nú í hassmálinu. sem fiknicfna-
deild lögreglunnar í Rcykjavik
hefur nú til meðferðar.
Á föstudag var gæzluvarðhald
Vandræði frysti-
iðnaðarins rædd
á rikisstjórnar-
fundi i dag
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í dag
verður fjallað um þann mikla
vanda sem um þessar mundir
steðjar að frystiiðnaðinum í land-
inu og er beðið með nokkurri
óþreyju eftir viðbrögðum stjórn-
valda vegna þessa vanda.
framlengt yfir tveimur mönnum,
sem setið höfðu inni í tæpan
mánuð vegna rannsóknar málsins.
Gæzluvarðhald þeirra var fram-
lengt um 10 daga. Þá var þriðja
manninum sleppt úr gæzluvarð-
haldi en híns vegar var einn
maður til viðbótar úrskurðaður í
gæzluvarðhald í 10 daga vegna
málsins.
Bíómiðinn
hækkar
SAMÞYKKT hefur verið 10%
hækkun á aðgöngumiðum kvik-
myndahúsanna. Hækkar miðinn
úr 1000 í 1100 krónur og barna-
miði hækkar úr 500 í 550 krónur.
Lenti á síðustu
eldsneytisdropunum
Höfn, Hornafiröi, 25. febrúar.
í GÆRKVÖLDI lenti hér flug-
vél, sem verið var að ferja frá
Prestwick í Skotlandi til
Reykjavíkur. Vegna mjög mik-
ils mótvinds á leiðinni yfir
hafið sá ferjuflugmaðurinn
fram á, að eldsneytið dygði ekki
til Reykjavíkur. Var hann þá
staddur vestur yfir Skarðs-
fjöru.
Sneri hann við hingað til
Hafnar, en þar sem þá var orðið
tvísýnt með eldsneytið gerði
Loftskeytastöðin á Höfn bátum
aðvart, sem voru á milli Ing-
ólfshöfða og Hornafjarðar.
Einnig var björgunarsveitin hér
sett í viðbragðsstöðu ef á þyrfti
að halda. Flugvélin kom hér inn
til lendingar og um ieið kláraðist
síðasti eldsneytisdropinn svo að
vélin gat ekki keyrt út af flug-
brautinni að flugskýlinu fyrir
eigin vélarafli. Flugvélin, sem er
af gerðinni Aero Commander 680,
bíður nú eftir að veður lægi svo
hægt verði að halda áfram til
Reykjavíkur.
— Einar
(Ljósm. ÓI.K.Mhk.)
Halldór Laxness ásamt þýzku kvikmyndatökumönnunum i tæknideild Morgunblaðsins í gær. Á
myndinni eru, auk skáldsins, Hassenstein flengst til hægri), Ayck og Schlenkrich.
Þjóðverjar gera heimilda-
mynd um Halldór Laxness
Heimsóttu tæknideild Morgunblaðsins
SJÓNVARPSMENN frá Norð-
ur-þýzka sjónvarpinu, Nord-
deutscher Rundfunk, hafa dval-
ist hér á landi undanfarna tíu
daga og unnið að heimildamynd
um Halldór Laxness. Myndin,
sem verður um klukkustundar-
löng, er ætluð til sýningar
ásamt Paradisarheimt sem sér-
stök heimild um líf skáldsins og
störf — með sögulegan bak-
grunn samtimalifs á íslandi.
Fyrirtækið er nú að ljúka við
meira en tveggja ára starf við
kvikmyndun Paradisarheimtar,
sem verður frumsýnd í haust.
Sýning Paradísarheimtar mun
taka þrjú kvöld í sömu viku, en
myndin verður sýnd bæði í
þýzkumælandi löndum og ann-
ars staðar, t.d. á Norðurlöndum.
í myndinni er íslenzkt tal.
Þýzku sjónvarpsmennirnir
hafa tekið myndir af skáldinu
heima hjá þeim frú Auði að
Gljúfrasteini og annars staðar,
og átt við Halldór mörg samtöl.
Þeir heimsóttu Morgunblaðið í
gær og tóku umhverfismyndir í
tæknideild blaðsins þar sem
Matthías Johannessen, ritstjóri,
talaði við Halldór Laxness
nokkrar mínútur, en myndin
byggist að verulegu leyti á sam-
tölum rithöfundarins Thomas
Ayck við skáldið.
Hér er um viðamikið verkefni
að ræða og hefur þýzka sjón-
varpið sent hingað hóp tækni-
manna undir handleiðslu W.P.
Hassenstein, sem stjórnar upp-
töku og er framleiðandi myndar-
innar ásamt Norddeutscher
Rundfunk.
Aðrir þátttakendur í kvik-
mynduninni eru tæknimennirnir
Arthur Schlenkrich, sem einnig
vann að myndinni um Brekku-
kotsannál, Mischa Haertel,
Joachim Woerler og Michaeí
Tötter.
Keflavíkurflugvöllur teng-
ist Hitaveitu Suðurnesja
-Varnarliðið greiðir lagningarkostnað,en
fær hann síðar endurgreiddan í áföngum
SAMNINGAR hafa nú tekist
milli Hitaveitu Suðurnesja og
Varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli um lagningu hitaveitu á
flugvöllinn og er áætlaður kostn-
aður við verkið um 18 milljónir
dollara, eða sem næst 7,3 millj-
arðar íslenzkra króna.
„Samkvæmt samningnum er
gert ráð fyrir því að aðalvinnan
fari fram á þessu ári og fyrstu
tengingar verði um næstu ára-
mót,“ sagði Albert Sanders bæjar-
stjóri Ytri-Njarðvíkur, en hann
situr í stjórn hitaveitunnar.
„Það er ennfremur gert ráð
fyrir því, að Varnarliðið greiði
allan þann kostnað sem er sam-
fara því að leggja hitaveituna til
þeirra og síðan greiði þeir fyrir
heita vatnið eins og aðrir notend-
Fjármagn þetta fá Varnarliðs-
menn svo til baka á nokkrum
árum enda er hitaveitan alfarið
eign Hitaveitu Suðurnesja og
þetta fjárframlag þeirra kemur
einungis í veg fyrir að taka þurfi
erlend lán til framkvæmdanna.
Þá má geta þess að búist er við
að not flugvallarins alls sé um það
bil þau sömu og allra byggðanna á
Suðurnesjum, sem tengdar eru
hitaveitunni," sagði Albert enn-
fremur.
ur.
Sáttafundur BSRB og ríkisvalds:
Rætt um vinnubrögð
við samningsgerðina
INNLENT
SÁTTAFUNDUR var í gær
haldinn með samninganefnd
Bandalags starfsmanna ríkis
Vilhjálmur Hjálmarsson
formaður útvarpsráðs
Auk Vilhjálms og Ólafs sitja í
útvarpsráði þau Ellert B. Schram,
Erna Ragnarsdóttir og Markús
Örn Antonsson fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, Eiður Guðnason fyrir
Alþýðuflokkinn og Markús Á. Ein-
arsson sem annar fulltrúi Fram-
sóknarflokksins.
VILHJÁLMUR Hjálmarsson
fyrrverandi menntamálaráð-
herra og annar fulltrúi Fram-
sóknarflokksins I útvarpsráði
hefur verið skipaður formaður
þess næsta kiörtímabil og tckur
þvi við af ólafi R. Einarssyni
fuiltrúa Alþýðubandalagsins i
ráðinu.
ys saiiimiiganeind riK-
isins, og stóð hann í röskar
tvær klukkustundir. Rætt var
um vinnubrögð í komandi við-
ræðum um kjarasamning
bandalagsins og var jafnvel
búizt við að nýr fundur yrði
með deiluaðilum í dag, en það
var þó ekki að fullu afráðið.
Engar upplýsingar komu fram á
fundinum, sem bentu til þess, hver
stefna ríkisvaldsins væri gagnvart
opinberum starfsmönnum og
kröfugerð þeirra. Eins og áður
hefur komið fram, hafa opinberir
starfsmenn krafizt grunnkaups-
hækkana, sem nema frá 18 og upp
í 39%. Verði af fundinum í dag er
hann klukkan 13,30.