Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 2 1
„Menn voru með hug-
ann annars staóar“
„MENN voru með hugann annars
staðar, við Evrópuleikinn við
Atletico i næstu viku, annars
verður ekki af Víkingum tekið,
að þeir léku skínandi vel og allt
gekk upp hjá þeim. Á hinn
bóginn gerðum við þeim allt til
geðs og réttum þeim knottinn
hvað eftir annað upp i hendurn-
ar,“ sagði Hilmar Björnsson
þjálfari Vals í spjalli við Mbl.
eftir að hans menn höfðu verið
rassskelltir af Víkingum í 1.
deild íslandsmótsins i handbolta
um helgina.
Úrslit leiksins eru ekki gott
vegarnesti fyrir Valsmenn í jafn
mikilvægan leik, en ef menn
þekkja Valsmenn rétt, verða þeir
búnir að gleyma honum um
næstu helgi og standa sig þegar
að einhverju raunhæfu er að
keppa.
Og Valsmenn verða að
gleyma þessu leik sem fyrst. En
þó ekki fyrr en þeir hafa lært af
mistökunum. Um leik Vals og
Vikings og annan handknattleik
um helgina má lesa nánar á
blaðsiðu 23.
Fékk fimm egg í
höfuðið í leiknum
— Viggó skoraði 11 mörk
— MÉR gekk vel i leiknum,
skoraði 11 mörk af 26, þar af
þrjú úr vitaköstum. Þessi sigur
okkar, 26—22, var dýrmætur, við
eigum nú tvo leiki eftir og ef við
sigrum í þeim báðum erum við
orðnir spænskir meistarar, sagði
Viggó Sigurðsson á sunnudags-
kvöldið er Mbl. ræddi við hann.
Lið Viggós, F.C. Barcelona, sigr-
aði lið Atietico Madrid í Madrid á
laugardaginn. Leikurinn fór
fram i sömu höll og Valsmenn
eiga að leika i á laugardaginn
næstkomandi.
— Valsmenn eiga erfiðan leik
fyrir höndum, sagði Viggó.
Stemmningin hjá áhangendum
Atletico er óskapleg í orðsins
fyllstu merkingu. Ég fékk fimm
egg í höfuðið og í það minnsta 30
peseta. Ég var orðinn dauðhrædd-
ur. Átta sinnum þurfti að stöðva
leikinn til þess að hreinsa upp
drasl af vellinum. Þá voru hrópin
óskapleg allan tímann. Lið Atle-
tico er mjög sterkt, sérstaklega í
hraðaupphlaupum. Þá eiga þeir
eina skyttu sem er stórhættuleg.
Maður sem jafnvel þarf að taka úr
umferð. Það er nú þegar orðin
mikil spenna hér á Spáni yfir
Evrópuleiknum. Honum verður
sjónvarpað beint um allan Spán.
Viggó sagði að lokum, að hann
væri að íhuga tilboð frá þremur
v-þýskum liðum, Grambke,
Nettlested og Kiel. Það er ekki
fott að segja hvað verður ofan á.
!g hef mikinn áhuga á að leika
þar næsta ár ef ég fæ nægilega
gott tilboð sagði Viggó. — þr.
Býður
Dortmund
í Atla?
í NÝJASTA hefti Welt Am Son-
tag, er lítil grein og stutt á
iþróttasiðu, i slúðurdálki siðunn-
ar. Þar stendur að 1. deildar
félagið Borussia Dortmund, sem
lengi framan af vetri var í efsta
sæti deildarinnar, hafi áhuga á
að fá Atla Eðvaldsson, Valsmann-
inn sterka, i sinar raðir (eða
Attila Edvaldsson eins og stend-
ur í WAS). Segir blaðið að
Dortmund sé reiðubúið að greiða
Val 300.000 mörk fyrir piltinn,
en það eru nærri 70 milljónir
islenskra króna.
• Atli Eðvaldsson.
• Ólympíuleikunum í Lake
Placid var slitið á sunnudag
með mikilli athöfn og há-
tíðlegri. Á bls. 24 og 25 má
finna fréttir af leikunum.
Stjörnur
EFTIRTALDIR afreksmenn
hlutu fleiri en ein verðlaun á
ólympiuleikunum: Bandariski
skautahlauparinn Eric Heiden
hlaut fimm gullverðlaun, sovéski
skiðagöngumaðurinn Nikolai
Zimyatov hlaut þrenn gullverð-
laun. Hanni Wenzel frá Licht-
enstein hlaut tvenn gullverðlaun,
fyrir svig og stórsvig, og silfur-
verðlaun i bruni, góður árangur
það. Anatoli Aljabiev frá Sovét-
ríkjunum hlaut 2 gullverðlaun og
ein silfurverðlaun fyrir skiða-
göngu og skotfimi. Frank Ullrich
frá A-Þýskalandi hlaut 1 gull-
verðlaun og tvenn silfurverðlaun
fyrir skiðagöngu og skotfimi.
Juha Mieto Finnlandi hlaut
tvenn siflurverðlaun og ein
bronsverðlaun fyrir skiðagöngu.
Ingemar Stenmark hlaut gull-
verðlaun fyrir svig og stórsvig,
og hér á eftir fer svo upptalning
leikanna
á þeim sem hlutu heldur færri
verðlaun:
V. Rochev Sov. norr.greinum 1 gull, 1 silfur
E. Shearer Sviss, bobsleói 1 gull, 1 silfur
J. Benz Sviss bobsledi 1 gull, 1 silfur
B. Musiol A-Þýsk. bobsleði 1 gull, 1 brons
M. Nehmer A-býsk. bobsleði 1 gull, 1 brons
N. Petrusheva Sov. skautahl. 1 gull, 1 brons
L. MUller Band. skautahl. 2 silfur
H. Riihivouri Finnl. norr.greinum 2 silfur
K. A. Stenshjemmet Nor. skautahl. 2 silfur
O. Aunli Nor. norr.greinar 1 silfur, 1 brons
S. Becker A-býsk. skautahl. 1 silfur, 1 brons
T. Oxholm Nor. skautahl. 2 brons
Karfan
STAÐAN í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik er þessi, þeg-
ar leiknar hafa verið 16
umferðir:
Valur
16 12 4 1419-1317 24
Njarðvik
16 12 4 1328-1236 24
KR16 9 7 1327-1261 18
ÍR 16 9 7 1405-1426 18
ÍS 16 4 12 1356-1425 8
Fram
16 2 14 1252-1414 4
Stigahæstu leikmenn
mótsins eru:
Trent Smock ÍS 522
Tim Dwyer Val 451
Mark Christiansen ÍR 409
Símon Ólafsson Fram 357
Kristinn Jörundss. ÍR 354
Jón Sigurðss. KR 347
Gunnar Þorvarðar. UMFN
297
Ted Bee UMFN 293
Marwin Jackson KR 286
Guðst. Ingimarss. UMFN
254
Kristján Ágústss. Val 244
Þorv. Geirss. Fram 223
Jón Héðinsson ÍS 205
Stigahæstu leikmenn í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins:
Jón Sigurðsson KR 57
Kristinn Jörundss. ÍR 56
Gunnar Þorvarðar. UMFN
53
Guðst. Ingimarss. UMFN 52
Simon ólafss. Fram 51
Sjá bls. 27.
Bikarkeppni
Tekst þeim
gömlu leik-
reyndu að
leggja Val?
VALUR og KR eigast við í
bikarkeppni KKÍ í kvöld, og fer
leikurinn fram í Hagaskólanum
og hefst hann klukkan 20.00.
Ekki er víst að Valsmenn fari létt
með B-liðið, margir gamlir refir
eins og t.d. Einar Bollason verða
á fleygiferð með liðinu og gætu
gert Val skráveifu.
Ekki er víst að þeir Tim Dwyer
og Ríkharður Hrafnkelsson geti
leikið með Val. Þeir hafa fengið
þrjú gul spjöld og samkvæmt þvi
eiga þeir yfir höfuð sér leikbann.
Hins vegar er til regla þar sem
dómarar eiga að skrá nöfn
spjaldmanna á leikskýrslur í lok
hvers leiks. Hefur Mbl. fregnað
að þetta hafi ekki verið gert og
því sé ekki víst að Valsmenn
muni hlýta þeim dómum sem
aganefnd KKÍ kann að kveða
upp. Möguleiki er hér á hasar-
máli.
Skipting
verðlauna
á Olympíu-
leikunum
gull silfur hrons
Sovétríkin 10 6 6
A-Þýskal. 9 7 7
Bandaríkin 6 4 2
Austurriki 3 2 2
Sviþjóð 3 - 1
Lichtenstein 2 2 —
Finnland 1 5 3
Noregur 1 3 6
Holland 12 1
Sviss 113
England 1 — —
V-Þýskaland — 2 3
ítalia — 2 —
Kanada — 1 1
Japan — 1 _
Ungverjaiand — 1 —
Búlgaria — — 1
Tékkósl.v. — — 1
Frakkiand — — 1