Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980 23 Æsispennandi lokakafli í leik KR og Fram s= 17:17 ÞEIR voru heppnir KR-ingar að ná i annað stigið er þeir mættu Fram á laugardaginn i 1. deild- inni i handknattleik. Þegar að- eins 3 sek. voru til leiksloka jafnaði Björn Pétursson með lúmsku undirskoti sem fór á milli fóta Snæbjörns markvarðar Fram. Jafntefli 17—17 eftir æsi- spennandi lokakafla. Lið Fram hafði forystuna allan leikinn frá byrjun til enda og því slysalegt niður í eitt mark 17—16. í næstu sókn var dæmd töf á Framara sem greinilega voru ragir við að reyna skot. KR-ingar fá dæmt vítakast í næstu sókn en bráðefnilegur markvörður Fram Snæbjörn Arn- grímsson varði frá Konráði. Það dugði ekki til. I síðustu sókn sinni missa Frammarar boltann út af, léku ákaflega óyfirvegað í lokin. KR-ingar brunuðu upp og eins og áður sagði skaut Björn Pétursson á síðustu sekúndunni og jafnaði metin. Var það fyrsta mark hans í leiknum og fögnuðu félagar hans honum ákaft. Það sem réð einna helst bagga- muninn í leiknum var stórgóð • Björn Pétursson fær flugferð hjá félögum sinum eftir að hafa jafnað leikinn. Ljósm. Guðjón að láta KR jafna leikinn á lokaaugnablikinu. Leikurinn var nokkuð vel leikinn hjá báðum liðum og mikil barátta var i honum enda hafa leikmenn gert sér grein fyrir því hversu mikil- væg stigin voru fyrir liðin sem bæði eru i botnbaráttunni. Alls var leikmönnum visað átta sinn- um af velli, enda nokkur harka i leiknum. Frammarar náðu fljótlega und- irtökunum í leiknum, léku þeir mun betur. Liðinu hefur farið mikið fram í síðustu leikjum sínum, og allur leikur þess beittari en áður. í fyrri hálfleiknum var lengst af þriggja marka munur á liðunum og staðan í hálfleik var 11—8, Fram í vil. í síðari hálfleiknum var mikið fjör í leiknum. KR-ingar reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna metin í leiknum og gáfust aldrei upp. Þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum tókst Símoni Unndórssyni að minnka muninn markvarsla hjá Sigurði Þórarins- syni. Þá kom ungur nýliði Snæ- björn Arngírmsson inn á og varði þrívegis vítaköst í leiknum. Hjá Fram var Hannes Leifsson bestur útileikmanna en Andrés, Egill og Erlendur áttu ailir nokkuð góðan leik. Hjá KR var Ólafur Lárusson bestur. Gísli Felix varði nokkuð vel í markinu eftir að hann kom inn á. Jóhannes Stefánsson var sterkur í vörninni að vanda. I stuttu máli: íslandsmótið 1. dcild. I.auKardalshóll 23. febrúar Fram—KR 17— 17 (11-8). Mörk Fram: Hannes 7 (3v), Andrés 3, Erlendur 3 (lv), Egill 2, Jón Árni 1, Sigurbergur 1. Mðrk KR: Ólafur I.árusson 5 (2v). Haukur 4v, Konráð 2. Jóhannes 2, Simon 1, Friðrik 1, Björn 1 og Ingi Steinn 1. Misheppnuð vitaköst' Snæbjörn Arn- grímsson varði þrjú vítaköst frá Hauki Ottcsen, Konráði Jónssyni og Ólafi Lárus- syni. Haukur Ottesen skaut 1 þverslá á 46. min. Brottvisun af leikvelli: Sigurbergur 2 min. Erlendur 2. min, Andrés i 4 min, allir Fram. Konráð Jónsson KR i 4 min og Haukur Ottesen KR i 2 min. —þr. Boltinn smellur í netinu, eftir að hafa farift milli fótanna á hinum bráðefnilega Snæbirni Arngrimssyni markverði Fram. Ljósm. Guðjón • Árni Indriðason kominn í íæri á línunni, en það er brotið illa á honum og vítakast er uppskeran. Ljósm. Kristján. Handknattleikur í hæsta gæðaflokki hjá Víkingum Vikingar hreinlega hýddu Vals- menn i 1. deild íslandsmótsins i handknattleik er liðin öttu kappi á sunnudagskvöldið. Unnu Vik- ingar 9 marka sigur, 24—15, eftir að staðan í hálfleik hafði verið furðuleg, 14—5 Víkingum í hag. Er skemmst frá að segja, að annan eins handknattleik hefur Vikingur ekki sýnt það sem af er vetri, eða í annan tíma, yfirburð- ir liðsins voru með ólikindum, einkum i fyrri hálfleik. Vals- mönnum til hróss, hélt liðið þó í við mótherja sina í siðari hálf- leik, en ekki tókst liðinu að minnka muninn og var liðið siðan heppið að fá ekki tíu marka tap í hausinn þegar Sigurður Gunnarsson brenndi af viti eftir að venjulegum leiktíma var lokið, aðeins vitið eftir. Það ætti að vera ljóst á lokatöl- um leiksins, að Valsmenn voru ekki sjálfum sér líkir. Á ýmsu hefur gengið hjá liðinu í vetur, en svona langt niður hefur liðið ekki dottið fyrr en nú. Mikilvægur leikur gegn Atletico Madrid í Barcelona eftir viku er engin afsökun fyrir svona frammistöðu, vegna þess leiks kom tap Vals- manna svo sem ekkert á óvart, en enginn átti von á því sem varð ofan á. Var oft hreint ótrúlegt að sjá til Valsaranna, taugarnar voru í molum, mistökin í sókn voru alls ráðandi, vörnin lak eins og sigti, markvarslan þó þokkaleg þrátt fyrir allt og miðað við aðstæður. Valsmenn reyndu að leika á hraða sem þeir réðu ekkert við, beittu ekki sínu vopni, að hanga á knettinum og lengja sóknirnar fram úr öllu valdi. Aðeins um tíma í síðari hálfleik þegar Vals- menn freistuðu þess að taka bæði Þorberg Aðalsteinsson og Sigurð Gunnarsson úr umferð og taka aðra Víkinga langt úti á vellinum, hálfgerða „maður á mann" vörn, gekk liðinu eitthvað. Staðan var 18—6 (!) þegar Valsmenn tóku það til bragðs og skoruðu þá 6 mörk gegn einu á smákafla. En síðan misstu þeir tökin aftur og Vík- ingar sigu fram úr, skoruðu m.a. þrjú síðustu mörkin í leiknum. Það var enginn veikur hlekkur í liði Víkings og liðið sýndi algera snilldartakta. Markvarsla Jens Einarssonar var á heimsmæli- kvarða, en hann gerði sér lítið fyrir og varð 22 skot í leiknum, mörg þeirra eftir að Valsmenn voru komnir einir í gegn. Þá var vörnin ekki síður framúrskarandi. Vörnin var eins og hreyfanlegur VíkingurQ m — Valur l%J veggur sem var eins og Krossá í vexti, ófær meira að segja stærstu torfærutröllum. Athyglisvert er að líta nánar á þessi fimm mörk Valsmanna í fyrri hálfleik, 2 víti, tvö hraðaupphlaup og eitt úr horni... í síðari hálfleiknum slakaði Víkingur dálítið á og Valsmenn tóku sig að sama skapi dálítið saman í andlitinu, a.m.k. eins og möguleiki var eins og komið var (18—6). En það er ekki síður athyglisvert að gefa því gaum, að Víkingar voru einum færri í sam- tals 14 mínútur af 60. Yfirleitt tókst Valsmönnum alls ekki að nýta sér að vera einum fleiri á vellinum, þvert á móti, þá var einu sinni dæmd töf á liðið er 6 Valsmenn sóttu að fimm leik- mönnum Víkinga. Ótrúlegt, en slíkur var varnarleikur Víkinga lengst af og nú vantar aðeins eitt stig til þess að tryggja íslands- meistaratitilinn endanlega. Það var ekki aðeins í vörn og markvörslu' sem Víkingar höfu yfirburði, sóknin var oft stórfengl- eg, 4 hraðaupphlaup í upphafi er Víkingur komst í 6—1 og sex slík mörk af 14 í fyrri'hálfleik. Síðan ýmist mörk eftir hinum fjölbreyti- legustu kerfum, eða eftir einstakl- LIÐ FRAM: Sigurður Þórarins- son 3, Snæbjörn Arngrímsson 3, Birgir Jóhannesson 2. Theódór Guðfinnsson 2, Jóni Arni Rún- arsson 2, Sigurbergur Sigsteins- son 2, Jóhann Kristinsson 1, Erlendur Daviðsson 3, Atli Hilm- arsson 1, Egill Jóhannesson 2, Andrés Bridde 3, Hannes Leifs- son 3. ingsframtak. Var feiknakraftur í Víkingum og fyrri hálfleikurinn a.m.k. eitthvað það besta sem íslenskt lið hefur sýnt í háa herrans tíð. Efast varla nokkur maður um að Víkingur hreppi fljótlega þetta eina stig sem skort- ir. Það er meira að segja ótrúlegt annað en að Víkingur vinni mótið með fullu húsi stiga. Ósanngjarnt er að taka einn Víking fram yfir annan, betra að vísa á allt liðið eða hvern sem er, Jens, Erlend, Þorberg, Steinar, allir náðu alger- umtoppleik. Minna var um dýrðir hjá gersigruðu liði Vals og má heita að Steindór Gunnarsson hafi verið eini leikmaður liðsins sem lék af eðlilegri getu, þó oft hafi hann verið enn betri. Brynjar varði lygilega vel miðað við þá „vörn“ sem hann hafði fyrir fram- an sig. t stuttu máli: IsiandsmótiA i handknattleik, 1. deild Víkingur-Valur 24—15 (14—5). Mörk Vikings: SigurAur Gunnarsson 7/6, Þorberg- ur AAalsteinsson 5, Erlendur Hermannsson 4. Steinar Birgisson og Páli Björgvinsson 3 hvor og Ólaiur Jónsson 2 mörk. Mörk Vals: Stefán Halldórsson 6/5, Steindór 3. Þorbjörn GuAmundsson 2/1 Björn BjOrnsson 2, Bjarni GuAmundsson og Gunnar LúAviksson 1 mark hvor. Víti 1 vaskinn: Jens varAi frá Þorbirni GuAmundssyni. Óli Ben. frá Þorbergi og SigurAur Gunnarsson brenndi tvisvar af. Brottrekstrar: Björn Björnsson útil. Steinar og Þorbergur Vikingi í 4 minútur hvor. Árni. Magnús og Ólafur Vikingi. Steindór. Brynjar HarAarson og Þorbjörn Jensson Val i 2 mínútur hver. LIÐ KR: Pétur Hjálmarsson 1, Gísli Felix Bjarnason 2, Simon Unndórsson 1, ólafur Lárusson 3, Björn Pétursson 1, Friðrik Þorbjörnsson 2, Ingi Steinn 1, Kristinn Ingason 1, Konráð Jónsson 2, Haukur Ottesen 2, Jóhannes Stefánsson 2, Haukur Geirmundsson 2. DÓMARAR: Árni Tómasson. ólafur Steingrimsson 3. gg. Víkingur: Jens Einarsson 5, Kristján Sigmundsson 1, ólafur Jónsson 3, Erlendur Hermannsson 4, Steinar Birgisson 4, Þorbergur Aðalsteinsson 4, Sigurður Gunnarsson 3, Árni Indriðason 3, Páll Björgvinsson 3, Magnús Guðmundsson 2. Valur: Brynjar Kvaran 2, ólafur Benediktsson 1, Steindór Gunnars- son 3, Stefán Halldórsson 2, Gunnar Lúðviksson 1, Brynjar Harðarson 1, Björn Björnsson 2, Stefán Gunnarsson 2, Þorbjörn Jensson 1, Jón Karlsson 1, Bjarni Guðmundsson 1, Þorbjörn Guðmundsson 1. Dómarar: Karl Jóhannsson og óli ólsen 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.