Morgunblaðið - 26.02.1980, Blaðsíða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
25
HEIDEN
MAÐUR ólympiuleikanna í Lake Placid er án nokkurs vafa
Bandaríkjamaðurinn Eric Heiden, en hann vann það afrek sem ekki
er víst að verði nokkurn tima leikið eftir, að vinna fimm gullverðlaun
i jafnmörgum greinum. Ef einhvern timann hefur verið hægt að tala
um einokun, þá á það við i þessu tilviki. Heiden keppti i 500, 1.000,
1.500, 5.000 og 10.000 metra skautahlaupi og vann allar greinarnar,
setti ný ólympiumet í fjórum fyrstu greinunum en gerði enn betur i
10.000 metrunum, bætti heimsmetið um 6,2 sekúndur. Engu að síður
var 10.000 metra hlaupið talið vera veiki punkturinn hjá Heiden. Þá
geta menn imyndað sér hvernig hann er i sinum sterkari greinum.
„Ég vonaðist til að vinna
kannski eitt eða tvö hlaup, en ég
gerði mér engar vonir um þau öll
fimm. Annars er mér svo sem
alveg sama um þessa gripi, þeir
fara væntaniega þangað sem ég
geymi alla aðra verðlaunapeninga,
inn í skáp hjá móður minni, þar
safna þeir ryki. Mér eru þessir
peningar ekki sérlega mikils virði,
það er vinnan sem liggur að baki
þessum árangri sem skiptir öllu
rnáli," sagði þessi 21 árs gamli
snillingur í skautahlaupi. Slíkir
voru yfirburðir hans í 10.000
metrunum, að þjálfari hans,
Diane Holum, var farin að gefa
honum merki um að hægja ferðina
og þegar hann var kominn í mark
hélt hann áfram á fleygiferð mörg
hundruð metra í viðbót.
Heiden er læknastúdent og er
borinn og barnfæddur í Madison í
Wisconsin. Skautahlaup iðka fleiri
í fjölskyldunni, litla systir hans
Beth, 20 ára, vann ein bronsverð-
„Eric og
Beth Heiden
eiga heima
hér skammt
frá“
laun í Lake Placid og í smáþorpi
40 kílómetra frá Madison er stórt
skilti við þjóðbrautina. Á því
stendur. „Eric og Beth Heiden
eiga heima hér skammt frá“.
Wisconsin-búar svífa skýjum ofar
þessa dagana og fullyrða að um
þetta verði talað næstu 50 árin eða
meira.
En hvað tekur við hjá meistar-
anum mikla að leikunum loknum?
Eitthvað breytist. A.m.k. slitnar
upp úr margra ára samvinnu hans
og þjálfarans Diane Holum sem er
ekki miklu eldri en hann sjálfur.
Ástæðan fyrir því að leiðir þeirra
skilja, í bili a.m.k., er sú, að
Heiden hyggur á framhaldslækna-
nám í Noregi. Hann ætlar sér að
leggja stund á íþróttameiðsl og
helst að verða doktor í þeim
efnum.
Eric (og Beth reyndar einnig)
skaut mjög skyndilega upp á
stjörnuhimininn. Fyrir þremur
árum, þá 18 ára, fór hann til
Evrópu til að reyna með sér og
öðrum skautahlaupurum. Hann
fór til Heerenveen í Hollandi þar
sem heimsmeistarakeppnin fór
fram. Fram að því hafði hann
reyndar keppt í Innsbruck, en ekki
gert þar neinar rósir. En í Heeren-
veen gerðist það öllum og ekki síst
honum sjálfum til mikillar undr-
unar, að hann varð heimsmeistari.
1978 varð Heiden aftur heims-
meistari í Svíþjóð og enn 1979, þá
í Noregi. Og nú Ólympíumeistari.
Hvað kemur svo næst?
Norðmenn dragast
aftur úr
NOREGUR hlaut engin gullverðlaun í norrænu skíðagreinunum á
leikunum í Lake Placid. Er það í fyrsta skiptið síðan að byrjað var að
halda vetrarleika i Chamonix í Frakklandi 1924, sem það gerist.
Loks fengu
Finnar gull
LOKSINS hrepptu Finnar gull á ólympiuleikunum i Lake Placid, en
það var 90 metra skiðastökkvarinn Jouku Tormanen sem bjargaði
andliti Finna. Af 90 metra pallinum stökk Tormanen 114 og 117 metra
og fékk þannig samanlagða stigafjöldann 271 stig.
Hubert Neuper frá Austurriki varð annar með 262,4 stig og landi
Tormanen, Jari Piukonen, varð þriðji með 245,7 stig. Tony Innauer
frá Austurriki og sigurvegarinn af 70 metra palli, varð fjórði með
245,7 stig.
Einn keppenda, Jan Holmlund frá Sviþjóð, hlaut ekki öfundsvert
hlutskipti i stökkinu. Hann missti jafnvægið þegar verst stóð á,
þ.e.a.s. i háloftunum, skall illa niður á brautina eftir að hafa svifið 75
metra og rúllaði siðan niður á jafnsléttu. Slapp Holmlund með brotið
viðbein og þótti það vel sloppið.
hefur enginn leikið eftir honum
og þykir mörgum vafasamt að
afrek hans verði jafnað í náinni
framtið.
Heiden var ekkert að skafa
utan af þvi, timi hans var um 6
sekúndum betri heldur en gamla
heimsmetið í greininni. Tíminn
var 14:28,13 minútur. f öðru
sætinu varð Piet Kleine frá Hol-
landi, sigurvegarinn frá síðustu
ólympiuleikum, en tími hans var
14:36,03 mínútur. Tom Erik Ox-
holm frá Noregi varð þriðji á
timanum 14:36,60 minútur.
„Ég átti ekki von á því að slíkir
tímar næðust og bæði Kleine og
Oxholm kepptu á undan mér.
Þegar ég sá til þeirra varð ég
logandi hræddur og ég vissi að nú
var ekki um annað að ræða en að
duga eða drepast. Ég náði miklu
betri tíma en mig óraði fyrir og ég
átti aldrei von á því áður en
leikarnir hófust, að ég myndi
standa uppi með fimm gullverð-
laun,“ sagði Eric Heiden eftir
10.000 metrana og gat ómögulega
farið dult með gleði sína.
Mike Woods frá Bandaríkjunum
varð fjórði á 14:39,53, Eyvindur
Tveter frá Noregi varð fimmti á
14:43,53. í sjötta sæti varð Hilbert
Van Der Duim frá Hollandi á
14:47,58. Þessir sex fyrstu kappar
slógu allir gamla Ólympíumetið.
með gifurlegum yfirburðum í
10.000 metra skautahlaupi karla.
Hefur Heiden þar með slegið eign
sinni á gullverðlaunin i öllum
skautahlaupsgreinunum, en það
• Maður vetrarólymp-
íuleikanna, Eric Heiden
frá Bandaríkjunum. Hann
hlaut fimm gullverðlaun í
leikunum, setti fimm ný
ólympíumet og eitt
heimsmet í skautahlaupi.
ERIC Heiden frá Bandarikjunum
vann það fá- eða ódæma afrek i
Lake Placid um helgina, að sigra
Sovéska þjóðlagið sterkara
en gamli finnski polkinn
AF MÖRGUM erfiðum keppnis-
greinum er 50 kilómetra gangan
að öðrum greinum ólöstuðum sú
erfiðasta. Keppendur, þ.e.a.s.
þeir sem ljúka keppninni, koma i
mark með þjáningarsvip, sumir
falla þegar í stað til jarðar, aðrir
leggjast yfir skíðastafi sína og
enn aðrir hreinlega kasta upp og
eru studdir af vettvangi. Þrátt
fyrir brunagadd, mætti vinda
svitann úr skíðagalla þeirra. Bill
Koch, einn af bandarísku kepp-
endunum, sagði eftir keppnina
þar sem hann hafnaði í 13. sæti,
að það væri hreinlega sigur út af
fyrir sig að klára keppnina.
QxP
42 göngumenn hófu keppni, en
sex þeirra gáfust upp hér og þar á
leiðinni. Fjórir byrjuðu ekki einu
sinni keppnina, m.a. íslensku
keppendurnir. „Leiðin var erfið
frá upphafi til enda, hvergi var
hægt að slaka nokkuð á. En sem
betur fer hef ég undirbúið mig
vel,“ sagði sigurvegarinn Nikolai
Zimjatov, sem vann sín þriðju
gullverðlaun í skíðagöngu í Lake
Placid. Tími Zimjatov var 2:27:-
24,60 klst. og þó að engu sé líkara
en að garpurinn hafi endalaust
úthald, þá virtist hann tíu árum
eldri en 24 ára þegar hann kom í
mark.
Juaa Mieto frá Finnlandi varð
annar og veitti Zimjatov harða
keppni. Tími Mieto var 2:30:20,52
klst. „Ég heyrði andardráttinn og
sá gufubólstrana út úr honum; svo
nálægt mér var hann lengst af. En
í einni af brattari brekkunum
heyrði ég hljóðin fjarlægjast, ég
söng „Kalinka", sovéska þjóðlagið
og einbeitti mér þannig. En Mieto
söng bara gamla polka og í
samkeppni við sovésk þjóðlög var
polkinn vanmáttugur. En afrek
Mieto var mikið, hann var aðeins í
8. sæti þegar gangan var hálfnuð.
Alexander Zavjakov varð þriðji á
2:30:51,52 klst.
Carter býður
til veislu
JIMMY Carter Bandarikjaforseti
hefur boðið öllum bandarísku
keppendunum á vetrarleikunum
í Lake Placid, þjálfurum þeirra
og öðrum nánum hjálparhellum,
til gifurlegs kaffisamsætis í
Hvita húsinu og ætlar hann að
senda einkaþotu sina eftir liðinu.
Þá hefur hann boðið til sömu
veislu bandarisku olympíunefnd-
inni, sem notaði tækifærið og
ítrekaði fyrri yfirlýsingu sína um
að hún myndi hlýða kalli rikis-
stjórnarinnar ef haldið væri til
streitu beiðni um að sniðganga
sumarleikana i Moskvu.
Wenzel einokaði gullið
— Vann gull í svigi kvenna
— þriðju verðlaun sín
í alpagreinum
HANNI Wenzel var ein af skær-
ustu stjörnum Ólympiuleikanna i
Lake Placid, en á laugardaginn
tryggði hún sér öruggan sigur í
svigi kvenna, en hafði áður sigr-
að í stórsvigi og unnið silfurverð-
laun i bruni. Aðeins ein kona
hefur áður unnið til verðlauna i
öllum Alpagreinunum, það var
Rosi Mittermeier frá Vestur-
Þýskalandi. Mittermeier vann
gullverðlaun í bruni og svigi í
Innsbruck fyrir fjórum árum
auk þess sem hún vann silfur-
verðlaun í stórsvigi. Sigurtimi
Wenzel í sviginu var samanlagt
1:25,09 minúta, sem er 1.41 sek-
úndu betri heildartími en Christa
Kinshofer frá Vestur-Þýskalandi
fékk í öðru sæti. Timar Wenzel í
hvorri ferð voru 42,50 og 42,50
sekúndur, en tími Kinshofer var
samanlagður 1:26.50.
Hin 17 ára gamla Erika Hess
frá Sviss kom mjög á óvart og
hreppti þriðja sætið, fékk saman-
lagt tímann 1:27,89 (43,50 og
44,39). Brautin reyndist afar erfið,
hliðin voru 52 og lengdin 461
metri. 21 stúlka féll úr keppninni
af þeim 47 sem hófu hana, meðal
þeirra var Steinunn Sæmunds-
dóttir sem var þó í 19 sæti eftir
fyrri ferðina. Margar frægar féllu
og má þar fyrst og fremst nefna
Reginu Sackl, Leu Solkner og
síðast en ekki síst Anne Marie
Moser Pröll. Þetta á bara við fyrri
ferðina. í síðari ferðinni var
brautin 465 metrar með 53 hliðum
og þá féllu 7 stúlkur í viðbót, m.a.
báðar bestu frá Frakklandi Pelen
og Serrat. Óskemmtilegast var
það fyrir Perrine Pelen sem var í
fjórða sæti eftir fyrri ferðina,
tæpri sekúndu á eftir Wenzel. En
það eru ekki alltaf jólin.
Röð og tími næstu keppenda var
þessi:
4) M. R. Quario It. 1:27.92 (43.63 og 44.29)
5) C. Girdiani ít. 1:29.12 (44,42 og 44,70)
6) Patrakeva Sov. 1:29,20 (43,42 og 45,78)
7( D. Zini It. 1:29,22 (45,08 og 44,14)
8) C. Cooper USA 1:29,28 (44,23 og 45,05)
9) Melander Svíþj. 1:29,82 (44,51 og 45,31)
10) W. Gatta It. 1:29,94 (44,46 og 45,48)
Heiden tók fimmta gullið
á nýju glæsilegu heimsmeti
Geysileg harka var i íshokkíinu, hér sést Bandarikjamaðurinn Dave Christian gera
markinu i leik Bandarikjanna og Tékka sem endaði með 7—3 sigri Bandarikjanna.
atlögu að tékkneska
Bandaríkjamenn sigruðu
óvænt í íshokkíinu
LEIKURINN sem réði úrslitum i
íshokkikeppni Ólympíuleikanna
fór fram á milli Bandarikja-
manna og Finna. Bandarikja-
menn skoruðu þrjú glæsileg
mörk í siðustu lotu leiksins og
þessi góði endasprettur tryggði
þeim sigur í leiknum 4—2. Allt
ætlaði um koll að keyra á áhorf-
endapöllunum þegar sigurinn
var í höfn. Enda ekki nema von
þar sem þetta var fyrsta gull
Bandarikjanna í greininni i 20
ár. Maðurinn á bak við velgengni
bandariska liðsins var markvörð-
ur liðsins Jim Craig 22 ára
gamall háskólanemi. Hann átti
hvern stórleikinn af öðrum, en
lék þó best er Rússar voru lagðir
mjög óvænt að velli.
Rússar léku gegn Svium um
þriðja til f jórða sætið i keppninni
og var það leikur kattarins að
músinni. Rússar sigruðu 9—2, og
hrepptu því silfrið. Lokastaðan i
keppninni varð þessi:
Bandarikin 3210 10—7 5
Sovétríkin 3 2 0 1 16—8 4
Sviþjóð 3 0 2 1 7-14 2
Finnland 3 0 1 2 7-11 1
Tindastóll féll í 2. deild
SKALLAGRÍMUR vann Tinda-
stól 73:67 í 1. deildinni í körfu-
knattleik í Borgarnesi um helg-
ina. Þar með féllu Sauðkrækl-
ingarnir niður í 2. deild, en þeir
hafa ekkert stig hlotið i 1.
deildinni.
Leikmenn Tindastóls ætluðu
greinilega að selja sig dýrt enda
síðasta tækifæri þeirra til að
halda sér í deildinni. En Skalla-
grímsmenn voru ekkert á þeim
buxunum að gefa sig og náðu
fljótlega forystunni. Staðan í hálf-
leik var 39:29.
í upphafi seinni hálfleiks tóku
Sauðkræklingarnir sprett og þá
aðallega Kári Maríusson og tókst
þeim að minnka muninn í tvö stig,
41:39. En þá fóru Borgnesingarnir
í gang aftur og tryggðu sér sigur í
leiknum.
Bragði Jónsson var stigahæstur
hjá Skallagrími með 21 stig og
hefur þessi reyndi leikmaður
líklega aldrei verið jafn góður og
nú. Gunnar Jónsson skoraði 20
stig og Dakasta Webester 15 stig,
en hann hirti aragrúa frákasta.
Hjá Tindastól var Kári í sérflokki
með 33 stig, Sigurjón Magnússon
skoraði 18 stig og Birgir Rafnsson
12 stig.
- HB/SS.
Grindavík vann Þór
GRINDVÍKINGAR sigruðu Þórs-
ara frá Akureyri 110—108 í 1.
deild íslandsmótsins i körfu á
sunnudag og þar með beið Þór
sinn annan ósigur á tveimur
dögum og vonir um sæti í úrvals-
deildinni voru að engu orðnar.
Sigur Grindvíkinga var öruggari
en tölurnar gefa til kynna, þvi
þeir leiddu lengst af með 10
stigum en litlu munaði að þeir
köstuðu frá sér sigrinum undir
lokin.
Grindvíkingar náðu tíu stiga
forustu fljótlega í leiknum. Á 5.
mínútu var staðan 18—8 og á 11.
ÍBK gerði
ÞÓR, Akureyri missti af öllum
möguleikum á að ná Ármanni að
stigum í 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik og þannig ná
fram aukaleik um sæti í úrvals-
deildinni, þegar Keflvíkingar
sigruðu þá i Njarðvikum á laug-
ardag, 113—103. það var örugg-
ur sigur Keflvikinga og þegar
liðlega tvær minútur voru til
leiksloka höfðu Keflvíkingar 20
stiga forustu. Þá fengu minni
spámenn liðsins að reyna sig og
Þór náði að minnka muninn.
mínútu 33—23. Þegar tvær mínút-
ur voru til leikhlés skildu níu stig,
50—41, en eitthvert kæruleysi
hljóp í leik Grindvíkinga og
Keflvíkingar gengu á lagið og
þegar blásið var til leikhlés höfðu
þeir jafnað metin, 52—52.
Grindvíkingar sigu framúr á
fyrstu mínútum síðari hálfleiks og
á 5. mínútu höfðu þeir náð tíu
stiga forustu, 86—77. Á 15. mínútu
höfðu þeir ellefu stiga forustu,
101—90. Enn virtist hlaupa kæru-
leysi í leik liðsins, hvorki gekk né
rak lokamínúturnar og þegar 1
Jafnræði var með liðunum
framan af, eftir 5 mínútna leik
höfðu Þórsarar forustu, 14—12, Þá
skoruðu Keflvíkingar ellefu stig
án svars frá Þór og lögðu grunn að
sigri sínum. í leikhléi skildu sjö
stig, 56—49. Keflvíkingar skoruðu
sex fyrstu stig síðari hálfleiks og
munurinn varð 12 stig. Á 14.
mínútu skildu 10 stig, 89—79, og á
18. mínútu 20 stig, 108—88. Enda-
sprettur Þórsara kom allt of seint
til að fá neinu breytt um úrslit.
Monnie Ostrom átti ágætan leik
mínúta og 40 sekúndur voru eftir
hafði Þór minnkað muninn í þrjú
stig, 107—104. Þegar tuttugu sek-
úndur voru eftir skildu tvö stig,
108—106, en þá skoraði Ólafur
Jóhannsson körfu fyrir Grindvík-
inga og innsiglaði sigur þeirra.
Mark Holmes skoraði 43 stig
fyrir Grindvíkinga, Ólafur Jó-
hannsson 26 og Eyjólfur Guð-
laugsson 12. Danny Schwartz
skoraði 54 stig fyrir Þór, Eiríkur
Sigurðsson 26 og Alfreð Túliníus
11.
HHalls.
með ÍBK, skoraði 39 stig auk þess
að hann var mjög sterkur í
fráköstum. Jón Kr. Gíslason, ungl-
ingalandsliðsmaður hjá ÍBK, skor-
aði 32 stig, flest úr hraðaupp-
hlaupum eftir sendingar frá
Monnie. Einar Sveinsson skoraði
17 stig. Gary Schwartz bar af hjá
Þór, fataðist vart skot og þegar
upp var staðið hafði hann skorað
58 stig. Sigurgeir Sigurðsson skor-
aði 17 stig og Alfreð Túliníus 12.
H Halls.
út um vonir Þórs