Morgunblaðið - 26.02.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1980
39
Guðni Rúnar Hall-
dörsson — Minning
Sigurvegararnir bera saman bækur sínar. Á myndina vantar einn
sveitarmeðlima, Þóri Sigurðsson.
Sveit Hjalfa Elíassonar
Rvíkurmeistari i bridge
SVEIT Hjalta Eliassonar sigraði
örugglega i Reykjavikurmótinu i
sveitakeppni sem lauk um helg-
ina. Spilaði sveitin 64 spila úr-
slitaleik gegn fyrrverandi
Reykjavíkurmeisturum, sveit
Sævars Þorbjörnssonar og var
um algjöra einstefnu að ræða.
Hlaut sveit Hjalta 262 punkta
gegn 97 og ef um tvo 32 spila
leiki hefði verið að ræða hefðu
Brldge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
lokatöiur þýtt 20 minus 5 i
báðum leikjum.
Undirritaður man ekki eftir
neinum svo ójöfnum leik um
árabil og minnir þetta helzt á
knattspyrnuleik sem fram fór í
Danmörku fyrir nokkrum árum
þar sem íslenzka landsliðið tapaði
fyrir Dönum 14—2. Ásamt Hjalta
voru í sveitinni Ásmundur Páls-
son, Örn Arnþórsson, Þórir Sig-
urðsson og Guðlaugur R. Jó*
hannsson.
Sveit Ólafs Lárussonar sigraði
núverandi íslandsmeistara, sveit
Óðals, í keppni um þriðja sætið í
mótinu. Var spilaður 40 spila
leikur og hafði sveit Ólafs frum-
kvæðið allan leikinn.
Góð tíð — Slysfar-
ir — Félagslíf o. fl.
Fréttabréf úr Miklaholtshreppi
Fæddur 13. nóvember 1954
Dáinn 4. febrúar 1980
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég læ ekki breytt...
kjark til að breyta þvi,
sem ég get breytt. og vit
tii að greina þar á milli.
Maður þarf oft á öllu sínu
æðruleysi að halda þegar maður
fréttir andlát góðra vina. Svo var
það með mig er ég frétti andlát
Guðna Rúnars vinar mína. Við
kynntumst fyrir rúmum tveimur
árum og áttum oft góðar stundir
saman. Guðni var einn dagfars-
prúðasti maður, sem ég hef um-
gengist, snyrtimenni í hvívetna,
rólegur og yfirvegaður. Hann átti
sér marga glæsta drauma um
framtíðina, sem því miður rætast
ekki í þessu lífi. Hann átti oft
erfitt með að finna leiðina gegnum
lífið og ákveða þá leið sem fara
átti, en ég er þess fullviss að hann
mun finna sinn frið þar sem hann
er kominn. Persónuleiki Guðna
Rúnars gerði það að verkum að ég
efast um að hann hafi átt nokkra
óvildarmenn. Hann var alltaf til-
búinn til að rétta hjálparhönd þar
sem þess þurfti og gerði alla hluti
vel sem hann tók að sér.
Ég vil að loknum þessum fáum
línum votta öllu hans venslafólki
mína dýpstu samúð og bið um
kjark því til handa í sorgum
sínum. Sérstaklega vil ég biðja um
styrk til handa litlu börnunum
hans tveim, Gunnhildi og Hauk,
og óska þeim Guðs blessunar á
ókomnum tímum. Megi sál hans
hvíla í friði.
Hemmi
Þessi elskulegi frændi minn lézt
af slysförum 5. þ.m., aðeins tutt-
ugu og fimm ára að aldri. Foreldr-
ar hans eru Sjöfn Jónasdóttir og
Halldór Gunnarsson, stórkaup-
maður. Guðni ólst upp í Reykjavík
ásamt systkinum sínum þremur,
Ólöfu, Jónasi og Þórunni. Þegar
svona hörmulegur atburður á sér
stað skortir orð til að veita þeim
huggun sem eftir lifa. Það reynist
oft erfitt að skilja tilgang þess að
ungt fólk í blóma lífsins er
skyndilega kallað héðan frá okkur.
Og þótt okkur sé ljóst, að eitt sinn
skal hver deyja og við vitum að
þetta bíður okkar allra í samræmi
Fæddur 12. apríl 1961.
Dáinn 11. febrúar 1980.
Skipið var að leggja úr höfn og
skipverjar voru í óða önn að
treysta gámana á þilfarinu og búa
skipið allt undir sjóferðina til
Islands. í hópi þessara vösku
manna tók ég eftir fríðum og
föngulegum pilti, snörum í snún-
ingum. Hann var hreystin dæmi-
gerð og útitekinn, hárið ljóst og
hörundið brúnt af skini brenn-
heitrar sólar Virginíuríkis. Far-
þegar og áhöfn um borð í m/s
Selfossi hlökkuðu til að njóta
kælandi svala úthafsloftsins og
siglingin hófst, samfara önnum
skipverja og sældarlífi farþeg-
anna, sem tekið var opnum örm-
um af áhöfninni. Við hjónin og
börnin vorum þar á meðal.
Á leiðinni yfir hafið sl. sumar
kynntumst við Pétri Ragnarssyni
vel, einkum þegar í hans hlut kom
að vera í brúnni, stýrimanni til
aðstoðar. Bar þar margt á góma
langar stundir meðan Selfoss
mjakaðist eftir víðfeðmu At-
lantshafinu, í birtu heiðríkra daga
og niðadimmu úthafskvöldanna.
Fljótt kom í ljós, að Pétur var
vel af guði gerður innra sem ytra,
heilbrigður í skoðunum og eðli-
legur í tali, hispurslaus og glað-
sinna. Það var auðvelt að kynnast
Pétri, líkt og samstillingin hefði
farið fram áður, og við röbbuðum
við lögmál lífsins, þá er engu
líkara þegar kallið kemur til
einhvers ástvinar, en að það komi
manni alltaf mjög á óvart. Það er
að minnsta kosti skiljanlegt, þeg-
ar ungir fara frá okkur óvænt.
Þótt ekki verði komist hjá sorg um
sinn megum við samt ekki gleyma
því, að sá sem farinn er þjáist með
okkur í hryggð okkar. Við verðum
því að láta af því svo skjótt sem
auðið er. Vellíðan og framfarir
hins látna verður ævinlega að vera
markmið okkar, hvað sem líður
eigin vanlíðan. Þegar maður er því
óvænt og skyndilega neyddur til
þess að kveðja þessa jarðartilveru
verðum við að gera okkar besta til
þess að umbreytingin verði honum
ekki of erfið. Þess vegna megum
við aldrei gleyma okkur í sorginni.
Minnumst heldur hins, að hér er
aðeins um tímabundinn skilnað að
ræða. Við munum öll hittast aftur.
Reynum því að sigrast sem fyrst á
sorginni og biðja fyrir hinum
látna vini okkar með blessunar-
óskum. Þær komast til skila.
Kynni okkar Guðna hófust þeg-
ar hann var tíu ára gamall, en þá
var ég nýgift föðurbrður hans.
Aldursmunur var því nokkuð mik-
ill, en bilið milli okíí' - eins og
brúaðist smátt og smátt með
árunum. Strax sem unglingur var
hann hið mesta snyrtimenni og
jafnai^ síðan, einstaklega ljúfur í
framkomu við alla og í rauninni
geislaði . af honum góðleikurinn.
Hann var hljóðlátur og mátti
ekkert aumt sjá, eins og títt er um
um alla heima og geima, nám og
vinnu, menntaskóla, sjómennsku,
Reykjavík og útlönd. Framtíðin
blasti við eins og endalaust At-
lantshafið og þessi tápmikli vinur
okkar, léttur á fæti og léttur í
lund, gaumgæfði betur en ungling-
um er tamt, hvernig hann skyldi
móta þá hálfu öld um það bil, sem
honum myndi ætluð til viðbótar
við árin átján að baki.
Að ferðalokum var líkt og
maður ætti eitthvað í Pétri og
hann ítök í okkur. Var okkur mikil
þá sem hafa næmar tilfinningar
og hlýtt hjarta.
Góð vinátta skapaðist með okk-
ur síðari árin og ekki er langt
síðan við áttum saman trúnað-
arstund, þar sem hann skýrði mér
frá framtíðaráætlunum sínum og
hann var bjartsýnn. Ekki datt mér
þá í hug, að þetta yrði okkar
síðasta samverustund meðan við
dveldum hér bæði á jörðinni.
Þótt við, sem þekktum Guðna,
söknum hans sérlega, þrátt fyrir
það sem ég hef verið að reyna að
segja um sorgina, þá er það okkur
þó huggun að vera sannfærð um
það, að afi hans hefur tekið á móti
honum við landamærin miklu, því
hvern gat grunað að aðeins yrði
mánuður á milli þeirra?
Ég vil svo að lokum aðeins bæta
því við þessi fátæklegu orð, að ég
bið þess, að Guð veiti Helgu og
litlu börnunum styrk til þess að
staridast þessa raun og leiði þau
öll til velfarnaðar og blessunar í
framtíðinni. Ég votta foreldrum
Guðna og systkinum innilega sam-
úð mína. Éinkanlega hef ég þar
Jónas sterklega í huga, því hann
hefur ekki einungis séð á bak
elskuðum bróður sínum, heldur
einnig besta vini.
Guð gefi ykkur öllum styrk og
um leið og ég þakka Guðna
sérstaklega fyrir okkar allt of fáu
samverustundir þá vil ég kveðja
hann með því að minna á það, að
við munum aftur hittast og til
þess hlakka ég.
Anna Leósdóttir.
Við kynntumst í skammdeginu,
þegar jólaljósin voru að tendrast
daginn sem hann varð tuttugu og
fimm ára. I viku áttum við
samleið á ferð inn í framtíð, sem
vonin lýsti upp líkt og jólastjarn-
an á skammdegishimni. Of skært
kannski til þess að við gætum séð,
að leiðin liggur alltaf um óvissuna.
Hann opnaði mér heim drauma-
sinna, hugarheim hins unga
manns, sem var fulur löngunar til
að takast á við þann vanda að vera
maður og þroskast.
Hvorugt okkar grunaði þá að
vegamótin væru svo skammt und-
an, að draumar hans ættu að
rætast í heimi handan við allt sem
við þekkjum.
Ég fékk að kynnast honum sem
ástríkum föður litlu barnanna
sinna, sem góðum bróður og syni,
sem hugulsömum og hugsandi
ferða-félaga. Hann átti von sem ég
fékk að deila með honum á stuttri
ferð, en ég veit að hún lifir áfram
um eilífð.
Ingibjörg Björnsdóttir.
ánægja að hitta hann sólríkan
haustdaginn seinna niðri við tjörn
og taka hann tali á ný. Þannig
gerði maður ráð fyrir að fylgjast
með framförum hins unga manns,
sem hafði unnið hug okkar og
hjörtu.
En nú er æfi hans öll. Hann
fékk þá aðeins hálft ár til viðbótar
til að ljúka ferðalagi sínu hér á
jörðinni, kippt burt fyrirvara-
laust. Við sem enn erum á ferðinni
hörmum harðneskju þeirra ör-
laga. Hvort sem kynni okkar við
Pétur hafa verið langvinn eða ný
af nálinni, þykir okkur leiðar en
orð fá lýst, að hann fékk ekki að
njóta lífsins lengur og aðrir
lífsgleði hans.
En mér koma í hug eftirmæli
prests frá fyrri öldum um annan
ungan og glæsilegan íslending,
sem vonir voru tengdar við, en þau
voru að mig minnir á þá lund, að
svo hafi Guð öfundað sjálfan sig
af þessu sköpunarverki sínu, að
hann kallaði unga manninn til sín.
Þrátt fyrir skilningsskort okkar
og vanmátt andspænis ráðgátum
lífs og dauða, treystum við því þó
alla vega, að rétt sé á málum
haldið til lengdar og ennfremur að
við fáum að lokum sáttfúsum
huga skilið réttum skilningi það,
sem fram fer. Á meðan geymast
minningar um góðan dreng, sem
ég minnist hér.
Öðrum þræði eru línur þessar
skrifaðar til að votta foreldrum og
öðrum aðstandendum Péturs hlut-
tekningu mína og fjölskyldu
minnar. Guð styrki þá í sorg
þeirra og sárum söknuði.
Þór Jakobsson
Borg i Miklahoitshreppi, 13. febr.
Oft er veðráttan tal milli
manna, ekki síst bænda sem eiga
allt sitt undir sól og regni. Sá hluti
vetrar sem liðinn er, hefur verið
hér ákaflega veðurgóður og úr-
komur litlar. Nú í dag er algjör-
lega snjólaust á láglendi. Síðustu
dagar hafa verið mildir, hiti
komst upp í 6—7 stig. Ekki er
hægt að kalla það harðan þorra
sem þannig er. En þrátt fyrir
milda tíð og góðan vetur, hefur
sauðfé verið lítið beitt, einstöku
bóndi lætur út til þess að viðra féð
og gefa því hreyfingu, aðrir opna
ekki hús til beitar. Sumsstaðar er
búið að rýja, „klippa" féð.
Heilsa fjár hefur verið í góðu
lagi í vetur, en ekki hægt að segja
slíkt um kýrnar. Nokkuð hefur
borið á súrdoða og legbólgu í kúm,
þrátt fyrir góð og lystug hey frá
síðasta sumri, sem var hér óvenju
sólríkt. Eftir áramótin urðu hér
dýralæknaskipti. Valdimar Brynj-
ólfsson, sem verið hefur dýra-
læknir hér í nokkur ár, fékk árs frí
frá störfum. Er nú heilbrigðis-
fulltrúi á Akureyri. Valdimar hef-
ur reynst okkur bændum hér mjög
traustur og ötull dýralæknir.
Fylgja honum góðar óskir í nýju
starfi og kærar þakkir héðan fyrir
vel unnin og farsæl störf í þágu
okkar bænda, við oft erfiðar að-
stæður. Rúnar Gíslason dýralækn-
ir tók við starfi Valdimars og
bindum við góðar vonir við störf
hans.
Samgöngur hafa verið í besta
lagi í vetur, enda kemur það sér
vel, því á síðastliðnu ári var
tekinn burt héðan úr hreppnum
veghefill sem var búinn að vera
hér í mörg ár og gegndi þýð-
ingarmiklu starfi. Nokkur um-
ferðaróhöpp hafa orðið hér, en
sem betur fer hafa ekki hlotist af
því slys.
Aðfaranótt sl. sunnudags lenti
bíll útaf við brúna á Grímsá,
sunnan Vegamóta. Lenti bíllinn í
ánni, en valt ekki. Bíllinn
skemmdist mikið og var ekki
ökufær. Var hann fyrir 6 farþega
en í honum voru 8 farþegar.
Lögregla og læknir komu á stað-
inn og voru allir farþegar fluttir
til Stykkishólms. Er þetta annar
bíllinn sem lendir í þessari á nú á
skömmum tíma. Þá er ekki langt
síðan jeppi rakst á brúarstöpul á
brúnni á Straumfjarðará. Bíllinn
skemmdist mikið, en tveir piltar,
sem í honum voru, sluppu furðu
lítið meiddir.
Sl. laugardagskvöld var þorra-
gleði haldin að Breiðabliki; gest-
gjafar voru íbúar Miklaholts-
hrepps. Til þess ágæta mannfagn-
aðar var boðið íbúum úr Staðar-
sveit, Eyjahreppi og Kolbeins-
staðahreppi. Rúmlega 200 manns
sóttu þetta kvöld. Öll skemmti-
atriði, sem tókust ágætlega, voru
heimaunnin og vöktu mikla
kátínu.
Síðan var dansað af miklu fjöri
frameftir nóttu. Hljómsveit ungra
manna spilaði og söng með mikl-
um ágætum.
í gærkvöldi kom að Breiðabliki
leikflokkur frá Samvinnuskólan-
um að Bifröst og sýndi Kertalog
eftir Jökul Jakobsson. Var þessi
leiksýning vel sótt og flutningur
leikara á þessu verki með ágætum.
Hafi þeir heilar þakkir fyrir
komuna hingað.
Skólahald í Laugagerðisskóla
hefur gengið ágætlega í vetur.
Engar farsóttir hafa komið í
skólann og skólastarf verið því
óhindrað á allan hátt.
Á sl. sumri var mikið byggt eins
og undanfarin ár. Vinnuflokkur á
vegum búnaðarsambandsins hefur
farið um héraðið. Byggð voru sl.
sumar 2 íbúðarhús á vegum þessa
vinnuflokks og auk þess gripahús
og flatgryfjur.
Þrátt fyrir óhagstæð lánakjör
ríkir enginn samdráttur í fram-
kvæmdum hjá bændum þessa
byggðarlags.
- Páll.
Minning — Pétur
Kristófer Ragnarsson