Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 7 Pólitískt trú- boö. Aöstaöa misnotuð Dagblaðiö Tíminn segir í leiöara í g»r: „Talsveröar umræður hafa að undan förnu orð- ið um Háskóla íslands vegna þeirrar afgreiðslu sem umsóknir um kenn- araembætti í sagnfræði hlutu af hálfu Heimspeki- deildar skólans. Nú um sl. helgi bættist það við þessar umræður, að nemandi í dönsku við HAskólann sagði í Morg- unblaðinu farir sínar ekki sléttar af samskiptunum við kennara í námsgrein- inni. í báðum þessum mál- um er því haldið fram að innan háskólans sé rekið pólitískt trúboð af mikilli harðfengi. Annars vegar er því haldið fram að menn njóti ekki sann- mælis við embættaveit- ingar og umsagnir um umsækjendur, en hins vegar að nemendur nái ekki rétti sínum í skiptum við kennara. i báðum atvikunum er pólitískri einstefnu og öfgum um kennt. I þessum umræðum hefur það hvergi komið fram að Háskóli islands eigi ekki aö njóta þess sjálfstæðis sem stofnun- inni hefur verið fengiö, enda helgast það af aug- Ijósum ástæðum. Því er aftur á móti haldið fram að forráðamenn skólans, í þessum málum báðum forráðamenn Heimspeki- deildar, misnoti aðstöðu sfna til misbeitingar á þessu sjálfstæði." Háskólinn og þjóöin Og enn segir Tíminn, er hann fjallar um stöðu Háskólans í hugum al- mennings í landinu: „Nú er það að vísu svo, að þaö sem sagt er af kennarastólum háskól- ans er ekki allt heilagt orö, og ber nú nýrra við ef námsmenn eru farnir aö trúa hverju einasta orði sem út gengur af munni lærifeðra. Þjóöin getur svo sem lifað góöu lífi, þótt einhverjir há- skólakennarar beri á móti því. Og skíptír ekki allt miklu sem þar er sagt. Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir sjálfstæði há- skólans, hlýtur stofnun- inni að vera það ótvírætt hagsmunamál að starfs- aðferðir þar verði ekki tortryggðar meðal al- mennings, um fram venjulega fordóma sumra í garð allrar menntunar og fræða, en um það tjóar aldrei aö fást að nokkru marki. Sé það til dæmis rétt, aö umsagnir um fræði- lega hæfni umsækjenda um kennarastöður fari að einhverju leyti eftir póli- tískri afstöðu, er oröið örvænt um að almenn- ingur skilji við hvað er átt með því að háskólinn eigi að vera sjálfstæður and- spænis pólitískum yfir- völdum." Könnun tímabær Loks segir í leiðara Tímans um þörf könnun- ar á pólitískri misbeit- ingu og nauðsyn þess að eyða efasemdum ( garð æöstu menntastofnunar þjóðarinnar: „Og ef einhver hæfa er í því að kennsla og náms- efni í einstökum náms- greinum lúti svo mjög pólitískum öfgum og ein- stefnu að nemendur haldist ekki við og nái ekki réttlæti í meðferð úrlausna á prófum, þá er orðið tímabært að kanna hvað snýr upp og hvað niður f andlegu frelsi í Háskóla íslands. Það er vitað að alls kyns tískustefnur ganga yfir í háskólafræöum, rétt eins og í klæðaburöi. Enginn fer að krefja for- ráðamenn Heimspeki- deildar um skýringar á tískustefnum, enda er hverjum og einum frjálst — vonandi — að fara sína leið í þeim efnum. — Og þó virðist það vera spurningin: Er mönnum frjálst að fara sínar leiðir ( fræðilegum efnum, eða er einhver hæfa ( því aö pólitísk einstefna sé orðin alls ráðandi í æðstu mennta- stofnun þjóðarinnar? Hér skal engu haldið fram um rétt svar við þessari spurningu. Hins vegar hlýtur það að vera hagsmunamál Háskóla íslands sjálfs að eyða efasemdum um þessi efni — og það sem allra fyrst." MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRETI • SÍMAR: 17152-1735S |= Knattspyrnudeild Vals óskar eftir 2ja—5 herb. íbúð í Reykjavík fyrir reglusama unga fjölskyldu sem fyrst og til 1. október. Vinsamlega leggið nöfn og símanúmer inn á augld. Mbl. fyrir 11. marz merkt: „íbúð — 6165“. Jektorar * * Suction^ D»livry I^L 1 SöyoHmogjíuicr rJMis 5®0T1 & ©® TELEPHONES 1 4610 81 1 )210 | ESTABLISH ED 1 925 - TELEXi 2057 STURLA-1S NÁMSKEIÐ Hvernig má verjast streitu? Á liönu ári hélt Stjórnunarfélagið fjögur nám- skeiö þar sem kenndar voru aöferöir sem nota má til aö draga úr áhrifum streitu og innri spennu á daglega líöan manna. Námskeiö þessi þóttu afar fróöleg, og sóttu þau um 170 þátttakendur. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Dr. Pétur Guðjónsson félags- sálfræðingur en hann hefur á undanförnum árum haldið þessi námskeið í Bandaríkjunum, þar sem hann er búsettur. Stjórnun- arfélagið mun nú í marz efna til tveggja námskeiða undir leið- sögn Dr. Péturs þar sem hann kennir tækni til varnar streitu. Fyrra námskeiðið verður haldið á Hótel Esju dagana 10. og 11. marz’kl. 13.30—18.30 en hið síðara 12. og 13. marz á sama tíma. Nánari uppl. og skráning þátttakenda hjá Stjórnunarfélagi íslands, Síöumúla 23, sími 82930. Sími 82930 Leiöbeinandi: Dr. Pétur Guöjónsson félagssálfræöingur WWWKWWK**WWWW*æKW*#W*SS**æ***8BI8K********#******i«****

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.