Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 * * Alyktun aðalfundar Verzlunarráðs Islands: Nýting aukinnar tækniþekkingar forsenda efnahagslegra framfara og raunverulegra kjarabóta hér ÍSLENZKT eínahagslíí er í miðjum vítahring verðbólgu- vandans. Ör verðbólga torveld- ar aukna framleiðni, en án aukinnar framleiðni verða kauphækkanir að verðbólgu i stað kjarabóta. Til þess, að hér á landi takist að skapa efna- hagslegar framfarir og raun- verulegar kjarabætur þarí að gera atvinnulífinu kleift að nýta tækniþekkingu í þágu aukinnar framleiðni og bættr- ar stjórnunar á komandi ára- tug. Forsenda þess, að svo verði, er breytt stefna í efna- hags- og atvinnumálum. Þetta segir meðal annars í ályktun, sem samþykkt var á aðalfundi Verzlunarráðs íslands s.l. fimmtudag. Þá segir, að Verzlunarráðið telji aldrei nægilega varað við þeirri hættu, sem efnahagsleg- um framförum stafi af verð- bólgunni, slæglegri stjórn efna- hagsmála og óviðunandi starfs- skilyrðum atvinnuveganna. í þessu sambandi ítrekar að- alfundur Verzlunarráðs Islands stefnu ráðsins í efnahags- og atvinnumálum og bendir sér- staklega á eftirfarandi atriði, sem telja verður forsendur þess, að atvinnufyrirtækjum takist að nýta tækniframfarir komandi áratugar: • Brotizt verði út úr vítahring verðbólguvandans með sam- ræmdri og markvissri efna- hagsstefnu. • Stuðlað verði að lækkun vöruverðs með því að verð- myndun verði gefin frjáls og samkeppni örvuð. • Frjáls sparnaður í þjóðfélag- inu, sem er forsenda arðbærs rekstrar og heilbrigðra fjár- festinga, verði örvaður. • Stefnan í utanríkisviðskipt- um verði fríverzlun og frjáls gjaldeyrisviðskipti. • Dregið verði úr heildarskatt- heimtu samhliða því, sem tekið verði upp nýtt skatt- kerfi, sem hvetur til framfara í atvinnulífinu. • Efnahagslegt sjálfstæði at- vinnulífsins verði aukið, því veitt nauðsynlegt frjálsræði til athafna og margs konar dýrt og ónauðsynlegt eftirlit með eðlilegri starfsemi fyrir- tækja afnumið. • Loks þarf að takmarka og endurskipuleggja útgjöld og umsvif hins opinbera sam- hliða endurbótum á hag- stjórn þess og fjármálum. Grundvallarstefnan í efna- hagsmálum þarf að fela í sér skilyrði fyrir frjálst framtak einstaklinga og samtaka þeirra í atvinnulífinu. Slík stefna byggir á frjálsu markaðskerfi, sem grundvallarskipulagi efna- hagslífsins. Aðalfundur Verzl- unarráðs íslands telur, að efna- hagsstefna níunda áratugarins verði að byggjast á slíkum grunni til þess að afkastaauk- andi tækninýjungar verði inn- leiddar í atvinnulífinu í sama mæli og hjá keppinautum okkar erlendis. Markvissar aðgerðir gegn verðbólgunni og nýtt frjálsræði til athafna er nauð- synleg forsenda fyrir örum framförum og öflugri sókn þjóð- arinnar til bættra lífskjara, segir að síðustu í ályktun aðal- fundarins. + Bróðir minn, HAUKUR VIGFUSSON, Auðbrekku 29, varð bráökvaddur að heimili sínu 4. marz. Siguröur Vigfússon. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma, ARNFRÍOUR LÁRA ÁLFSDÓTTIR frá Flateyri, sem andaöist að Hrafnistu 27. febrúar, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. marz kl. 10.30 f.h. Álfheiður Guðjónsdóttir, Arngrímur Guðjónsson, Sigríöur Jónsdóttir, Stefén Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Oddur Friöriksson, Rannveig Jónasdóttir, Guðni Guðjónsson, Anne Karen Jónsson, Jón Rafnsson — Minningarorð + Konan mín, móðir okkar og tengdamóöir, PÁLÍNA KRISTIN JÓNSDÓTTIR, Háa-Rima,Þykkvabæ, verður jarðsungin frá Hábæjarkirkju, laugardaginn 8. marz kl. 13. Guðni Sigurösson, börn og tengdabörn. + Maðurinn minn og faöir okkar, EDILON KRISTÓFERSSON, Asparfelli 6 veröur jarösunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 8. mars kl. 2. Bílferö veröur frá B.S.Í. kl. 7.30 og til baka um kvöldiö. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir, en bent á Björgunarsveit Slysavarnafélagsins, Ólafsvík. Lilja Ágústadóttir og börn + Eiginmaður minn og faöir minn, STEFÁN STURLA STEFÁNSSON, veröur jarðsunginn frá Dómkirkju Krists Konungs, Landakoti, föstudaginn 7. marz kl.15. Blóm eru afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Styrktarfélag vangefinna eöa aörar líknarstofn- anir. Katrín Thors, Sofía Erla Stefánsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö fráfall og útför, ÁGÚSTS BENT BJARNASONAR, Ferjubakka 2. Gunnhildur Guöjónsdóttir, Bjarni Ágústsson, Sigríður Einarsdóttir, Jóhann Bjarnason, Gunnjóna Guðmundsdóttir, Birna Ágústsdóttir, Sigbert Hannesson, Sigríður Ágústsdóttir, Óli Halldórsson, Selma Ágústsdóttir, Bryndís Ágústsdóttir, Linda Jónsdóttir Sigrún Jónsdóttir Guöjón Jónsson, Sigrún Jónsdóttir. Fæddur 6. marz 1899. Dáinn 20. febrúar 1980. Einn af stofnendum S.Í.B.S. og í fyrstu stjórn sambandsins, Jón Rafnsson, sem orðið hefði 81 árs í dag, er fallinn frá. Fáir eru nú eftir af þessum brautryðjendum, sem hófu merkið fyrir rúmum fjörutíu árum og stofnuðu samtök til baráttu fyrir bættri félagslegri aðstöðu fár- sjúkra sjúklinga, sem bjuggu á yfirfullum berklahælum með væg- ast sagt vafasamar batahorfur, eða atvinnumöguleika, er þeir losnuðu af hælunum, þar sem atvinnuleysið eða harðræðið beið þeirra. Þessu vildu sjúklingarnir sjálfir breyta og bæta, enda þekktu þeir best hvar skórinn kreppti að í þeim efnum. I hópi frumherjanna, sem hófu undirbúning að stofnun samtaka berklasjúklinga, var Jón Rafns- son, sem þá var sjúklingur á Reykjahæli í Ölfusi. Var hann einn af þrem í undir- búningsnefnd Reykjahælis sem eftir frumkvæði Kristneshælis hóf bréfaskriftir til sjúklinga á hæl- unum, Vífilsstöðum og Kópavogi. Sambandið var svo stofnað í október 1938 á Vífilsstöðum og var Jón Rafnsson kosinn í fyrstu stjórn Sambands ísl. berklasjúkl- inga. Var það fyrsta gæfuspor þess- arra nýstofnuðu samtaka, bjarg- arlausra og vonlítilla sjúklinga, að til forystu völdust hinir mætustu foringjar, sem höfðu bjartsýnina og kjarkinn að leiðarljósi. Jón Rafnsson var í forystusveit fyrstu starfsára S.Í.B.S. en óskaði eindregið eftir að fara úr stjórn sambandsins vegna síns pólitíska litarháttar, sem kynni að skaða stuðning þjóðarinnar við málaleit- an sambandsins ef áberandi ein- staklingar í hinni pólitísku bar- áttu væru einnig stjórnarmenn þessarra samtaka sjúklinganna, sem þyrftu á óskiptum stuðningi þjóðarinnar að halda ef markið að styðja sjúka til sjálfsbjargar ætti að verða að veruleika. Þótt Jón færi úr stjórn sam- bandsins var hann ávallt á þing- um þess, og tel ég víst að hann sé eini maðurinn sem setið hefur öll þing S.Í.B.S. sl. 40 ár, jafnvel var hann við setningu síðasta þings 1978, þótt hann væri þá farinn að kröftum. En hugurinn var sá sami sem fyrr að styðja eftir sinni getu og fylgjast með óskum skjólstæðinga sambandsins. Þegar berklasjúklingum á Reykjalundi fækkaði var Jón Rafnsson mjög á verði fyrir hönd berklasjúklinganna um að þeirra forgangur til dvalar þar skertist ekki, þótt staðurinn væri opnaður fyrir öðrum þurfandi sjúklingum. Voru ræður Jóns á þingum S.Í.B.S. um þessi hugðarefni sín öllum minnisstæðar sem á hlýddu, því hann var með mælskustu mönnum og sæknustu ef því var að skipta, og gamansamur gat hann éinnig verið og hagmæltur vel og greip þá gjarnan til þeirrar náðargáfu sinnar til að létta þingfulltrúum skapið frá hefð- bundnum þingstörfum. Þegar háhýsi Öryrkjabandalags íslands að Hátúni 10, Reykjavík tók til starfa flutti Jón Rafnsson í litla íbúð þar og undi glaður við sitt í hópi gamalla félaga og í snertingu við samtök öryrkja er honum höfðu alltaf verið svo kær Sjávarútvegs- sýning í Kaupmannahöfn í byrjun júnímánaðar í sumar verður haldin mikil sjávarút- vegssýning í Bella Center í Kaup- mannahöfn. Kallast sýningin „Heimssýning fiskveiða og sjávarútvegs", en slík sýning var síðast haldin í Halifax í Kanada og sóttu hana 25 þúsund gestir frá 41 landi, en 187 aðilar frá 41 landi tóku þátt í sýning- unni. Búist er við, að mun meiri fjöldi taki þátt í og heimsæki sýninguna í Kaupmannahöfn 2. — 9. júní í sumar. Leiðréttíng Rangt var farið með nafn í frétt Morgunblaðsins í gær, er sagt var að Baldur Berndsen væri að taka við skrifstofu Iscargo í New York. Hann heitir Baldvin Berndsen, og eru viðkomandi beðnir velvirð- ingar á þessu ranghermi. og þau notið góðs af hans góðu gáfum og forystustörfum, sér- staklega á erfiðustu bernskudög- um sínum. Á 40 ára afmæli S.Í.B.S. átti vinur Jóns, Jóhann Kúld, sem einnig var einn af frumkvöðlum samtaka berklasjúklinga viðtal við hann um stofnunina fyrir rit sambandsins Reykjalund, þar sem Jón talar um þá „aðkallandi nauð- syn á því að stofnað væri svo fljótt sem hægt væri fullkomið vinnu- hæli fyrir berklasjúklinga, sem yrði einskonar brú milli hælanna og hins daglega lífs í landinu." Á þessum árum var það sorgleg staðreynd að ýmsir sem útskrifuð- ust af hælunum með sæmilega heilsu komu þangað aftur og aftur að stuttum tíma liðnum vegna þess að nauðsynleg skilyrði vant- aði er út af hælunum var komið.“ Þetta var Jóns brennandi áhugamál og þeirra félaga allra enda þekktu þeir best þörfina á bættri aðstöðu fyrir sjúka og að byggja brúna frá hælunum til lífsins sem varð Reykjalundur en sú stofnun hefur verið í fylkingar- brjósti um alla endurhæfingu í landinu og þótt víðar væri leitað. S.Í.B.S. hefur sæmt Jón Rafns- son heiðursmerki sambandsins og sýnt honum allan þann sóma, sem unnt hefur verið að sæma slíkan stuðningsmann og frumherja samtaka okkar fyrir öll hans ómetanlegu störf. I desember sl. heilsaði ég uppá félaga minn Jón Rafnsson þá sjúkan á Vífilsstaðaspítala, en samt hressan í anda spyrjandi um gang mála hjá S.Í.B.S. því allar götur frá stofnun sambandsins hefur hann verið brennandi í áhuganum og að fylgjast með gangi mála. Hjá Jóni var þá einnig stödd Helga systir hans en með þeim systkinum voru ávallt miklir kærleikar. Jón Rafnsson eignaðist son Valdimar, sem nú er skólastjóri á Isafirði. Þegar að kveðjustundinni kem- ur er S.Í.B.S. efst í huga þakklæti til vinar og brautryðjanda, sem var í fylkingarbrjósti á bernskuár- um samtaka okkar fyrir hans farsælu leiðsögn yfir erfiðasta hjalla bernskuára samtakanna og sendum við syni og ættingjum öllum fyllstu samúðarkveðjur. Kjartan Guðnason, formaður S.Í.B.S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.