Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 23 Úr bœjarlífinu é tygnum dagí. Guömundur á SóMMum. Eins og ajé mé ar þakið jérnlaust sftir óvsöriö. Hvirfilvindur tartti þatta varfc til og fré. Skúrinn viö húsiö og gémurinn fuku langar laiöir (férviörinu og skúrinn lenti m.a. é Volvobifrsiö- inni og stórskammdi hana. Guömundur é Sólstöðum Kofinn fauk um an húsiö sjéift hristist svo og nötraöi aö vatnslsiöslur hrukku (sundur. Upprsnnandi Súgfiröingar. væri að fara á loft“ Sigga é Sólstööum hellir é könnuna eigendatryggingu hjá Brunabóta- félaginu og hjá honum varð tjón af smærri stærðargráðu, rúða brotn- aði, hurð inni og þakskegg, en tjónið er metið á tæplega hálfa milljón króna. Ég hef skráð liðlega 60 skemmdartilfelli alls, á húsum og bátum aðallega. Bátar sem voru í uppsátri urðu fyrir skemmdum og m.a. skemmdist radar á einum bátnum. Þá er ljóst að endurnýja þarf mörg þök bæði hér í þorpinu og til sveita. Tvær hlöður fuku á Galtarvita, hesthús á Bæ fauk í heilu lagi og það má segja að menn hér í þorpinu sem voru úti við hafi hangið í föstum hlutum eins og pappír í roki á gaddavír. Engin slys urðu, en hins vegar fauk bárujárnið þannig um þorpið að það hefði getað höggvið menn í herðar niður eins og segir í forn- sögunum. í einni hviðunni stóð ég skammt frá barnaleikvellinum og sá hvernig stórt grindverk gekk skyndilega inn á völlinn án þess að nokkur hlutur fyki í það. Líkast var sem handsprengju hefði verið varpað á það og það splundraðist inn, en í sömu andrá var sem það væri slegið til baka og síðan hrundi það niður götumegin. Bíllinn hjá mér tókst á loft einu sinni en skall rétt niður og það var furðulegt að sjá sjóinn skrúfast upp í stróka og tætast síðan í bullandi sjóroki yfir bæinn. Þetta var rosahvellur í eina fjóra klukkutíma og slíkar voru sviptingarnar að það bar við að menn fuku fyrir horn, og síðan aftur til baka.“ „Jörðin gekk í bylgj- um og gólfið titraði“ Guðmundur og Sigríður á Sól- stöðum undir Spilli hafa búið þar í um það bil 40 ár og byggðu sjálf húsið. Hann er níutíu og tveggja ára, en hún er sjötíu og þriggja. Þau hafa ekki rafmagn og engan síma, en 50 kindur hafa þau liðlega, tvær kýr og hest að ógleymdum traktor sem Sigga ekur. Þau urðu fyrir tilfinnanlegu tjóni í fárviðr- inu því helmingurinn af þakjárn- inu og pappanum fauk og húsið er ekki vatnshelt eins og stendur og tjónið a.m.k. milljón kr. Við hittum Guðmund í þorpinu þar sem hann var að hitta sveitarstjórann og nýja kaupfélagsstjórann til þess að reyna að kanna möguleika á bráðabirgðaviðgerð að minnsta kosti, en þau Sigga hyggjast gera fullnaðarviðgerð í sumar. Guð- mundur hafði komið gangandi í þorpið, hálftíma labb, og er þó enginn hægagangur á kempunni þótt árin að baki séu 92, fæddur 1888. Við brugðum okkur með Guðmundi að Sólstöðum og röbb- uðum við þau hjón. Sigga var í hlöðu að bjástra þegar okkur bar að garði, en það var gengið til eldhúss. „Jörðin gekk í bylgjum," sagði Guðmundur og tyllti Sér niður á eldhúskoll. „Það titraði gólfið hérna hjá okkur og ég var dauðhrædd hér inni,“ sagði Sigga um leið og hún mældi kaffi í pokann, “ég hef aldrei vitað veðrið svona sterkt. En það er verst með skemmdirnar, því þótt það takist að ná í efnið verður líklega erfiðara að fá smiðina. Það fuku tvær hliðar af fjórum á þakinu og nú rignir niður á loft- panilinn á efri hæðinni.“ „Það er mikill kraftur í þessum sterku veðrum," hélt Guðmundur áfram og sötraði kaffið úr gljá- fægðum kaffibollanum, „ég man ekki eftir svona vondu veðri í minni tíð og eru árin þó orðin 92.“ „Þetta var ofsarok,“ sagði Sigga, „stormurinn óskaplegur og hvítfreyðandi sjór.“ „Sjórinn var eins og gufa,“ hélt Guðmundur áfrarn," stormurinn reif upp jörðina, grjótið rifnaði upp úr freðinni jörð og gekk á glugg- ana. Þetta veður tók út yfir allt. Hann þorri var mildur en þetta kom með góunni. Þorri skilaði jörðu blóðrauðri, það var ekkert annað, en svo fennti með góunni." „Það hefði engin lifandi maður getað staðið úti í þessu veðri, hann hefði kastast til og marist sundur. Þetta lék allt á reiðiskjálfi." „Ég var uppi þegar rúða fór hér niðri og hún hvarf alveg. Sigga lét mig vita af þessu. Það var rösklega tekið til verka í þessum veðraham, engin máttleysishandtök. Öll laus- leg áhöld við bæinn sópuðust á haf út.“ „Ég var svo hrædd um að húsið myndi fjúka og verst þótti mér að vera ekki klár á því hvar við ættum að vera á meðan, því ekki vildi ég velta með húsinu." Talið bai-st úr einu í annað, sólbrot læddist inn um eldhús- gluggann og þau veltu því'fyrir sér hvort það væri að hlýna úti, hvort þau gætu komist af með minni kyndingu. Þau fara með 1000 lítra af olíu á 6 vikum, 140 þús. kr. takk. En allt er nýtt til fulls. Þau prjóna klæðin sjálf og Sigga var meira að segja búin að sauma sér samfesting úr nælonpokum til útiverka. Fyrir ofan eldavélina hékk kippa af heimaprjónuðum belgvettlingum. „Sólin kom 6. febrúar á Sólstöð- um, fór í endaðan október. Þeir eru márgir sólarlausu mánuðirnir hér,“ sagði Sigga. „Þá er að hafa sól í sinni,“ skaut ég inn í. „Sólin í okkur eyðist, það eru búin að vera svo mörg rigningar- sumur hér og þau eyða sólarsinn- inu í manni. Það eru líklega 20 ár síðan gott sólár hefur komið hér, þetta hefur aðallega verið bleyta, nema í ágúst í fyrra, hann var dásamlegur. Það er því aðeins farið að dvína sólarsinnið, en hitt er að sé maður fæddur léttlyndur, og það erum við, þá helzt það nú nokkuð frameftir." Grein: Arni Johnsen Myndir: Kristjón Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.