Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980
45
véLvakandi
SVARAR í SÍMA 10100
KL. 13-14 FRÁ
MANUDEGI TIL
FÖSTUDAGS
vilji segja upp varnarsamningnum
við Bandaríkin og hvorki heyra né
sjá útvarp né sjónvarp úr þeirri
átt. Ég er viss um að allir
íslendingar vilja vera lausir við
erlendan her hér á landi. En við
verðum að horfast í augu við
staðreyndir, og eins og ástandið er
nú í heiminum er mjög varhuga-
vert að láta herinn fara. Okkur
óar við hvað þá gæti gerst.
Það er athyglisvert, hvernig
„bjargvættirnir“ ota fram nokkr-
um unglingum, þegar þeir sjá sér
þóknanlegt að mótmæla ein-
hverju, en standa sjálfir álengdar
og horfa á hvernig gengur. Mér er
spurn, myndu þeir sjálfir standa í
fylkyningarbrjósti, ef til raun-
verulegra frelsisbaráttu kæmi og
fórna þyrfti lífi fyrir föðurland
sitt? Ég efast um það. Ég hygg að
þeir myndu fyrstir manna renna
af hólmi og láta aðra um barátt-
una.“
• Mannslífum
bjargað
Og Tryggve heldur áfram:
„Þessir „bjargvættir" hafa fá
orð um það, að Bandaríkjamenn-
irnir hafa oft og tíðum bjargað lífi
manna hér, þegar slys hafa borið
að höndum. Þá hafa þeir tíðum
lagt sig í hættu. Þetta eigum við
að þakka þó að ég viti að þakklæt-
is sé ékki vænst. Fyrir þetta
hjálparstarf bera margir hlýjan
hug til þeirra. Og svo geta
„bjargvættirnir" hóað í hæðirnar
mín vegna.
Tryggve
Thorstensen“
• Eins og þú
ávarpar aðra,
ávarpa aðrir þig
Kristín Tómasdóttir hringdi:
„Vegna ummæla Sigrúnar Stef-
ánsdóttur í sjónvarpinu s.l. þriðju-
dagskvöld og umfjöllunar á því að
íslendingar noti enska tungu í
stað norrænnar, er þeir ræða við
norræna frændur sína, vil ég segja
frá minni reynslu, sem starfs-
maður Sundlaugar Vesturbæjar.
Margir útlendingar af norrænu
bergi sækja sundlaugina. Ekki
einn einasti þeirra hefur ávarpað
mig þar á norrænu, — þeir nota
fremur merkjamál, ef þeir eru
ekki talandi á enska tungu. Og er
ekki eðlilegt að eins og þú ávarpar
aðra, ávarpi þeir þig?-
• Leiðrétting
á ummælum
Ásgeir M. hringdi.
Út af símhringingu minni, sem
Velvakandi birti fyrir mig þriðju-
daginn 4. marz og fjallaði um efni
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
sjónarpsþáttar, þar sem lýst var
æfingu björgunarsveitar, vil ég fá
að koma með leiðréttingu á um-
mælum mínum.
Stjórnandi björgunarsveitar-
innar hefur upplýst mig um það
sem þarna fór fram og að í förinni
hafi allt gengið að óskum, sem
sneri að mannskapnum, það sem
fundið var að í sjónvarpsþættin-
um var að allur tækjabúnaður
sveitarinnar, sem þeir eiga sjálfir,
er orðinn meira en 40 ára gamall
og þess vegna úr sér genginn.
Gagnvart búningum sveitarinnar
er það að segja, að þeir eiga þá
góða.en geta ekki notað þá þegar
þeir eru á gönguæfingum.
Sjónvarpsþátturinn var það
takmarkaður vegna þess hversu
knappur tíminn var, að þar kom
aðeins að mínu áliti fram skugga-
hliðin á þessu máli og vil ég því
leiðrétta ummæli mín hér með og
ádeilu á sveitina.
Ásgeir M.
CHLOR1DE
S3.6
[3Ú3
BORRIS
9 wam
8 '57 3
CENTRA
66.51 SOCJtU
Ct koma
LYAC
PAXKAÍ^VTm.a
AXWJ
SALAMA
TL'DOR
LORiDE .4 62 9? soatu '
P M.1 _ f .. .i
70 49.71 L 1
soatu
55,4
"r__46.6
-T* [54,4Ú scali^__________‘
U4 149,4!
Í52 6f
scahj
6? 5. SQQ
fió 'W.2Í
t?4 ..I
Skýringin á þessari velgengni CHLORIDE
er án efa 350 manna rannsóknarstofa
sem rekin er í Englandi.
Enda ekki af neinu aö CHLORIDE raf-
geymirinn er sá mest seldi í heiminum ár
eftir ár.
Rafgeymaverksmiðjan Pólar h/f fram-
leiöir CHLORIDE á mjög hagstæöu veröi
og CHLORIDE er til sölu í flestum
kaupfélögum og bifreiöaverzlunum lands-
ins.
Pólar h.i.
Einholti 6. Sími 18401.
Finnska ríkistæknistofnunin framkvæmdi
neðangreinda kaldræsis prófun fyrir
stuttu. 24 rafgeymar (3 af hverri tegund)
voru álagamældir í -í-180 C og í h-28° C
frosti.
HVERJIR
ERU
BEZTIR?