Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 Sigmar Þ. Sveinbjörnsson stýrimaður, Vestmannaeyjum: Auðvelda má að- gang að gúnuní- björgunarbátum Enn hafa hörmuleg sjóslys dun- ið yfir. 6 sjómenn fórust fyrir skömmu með þremur bátum í fárviðrinu sem gekk yfir Vestfirði, allt ungir menn í blóma lífsins. Einnig fórst sjöundi sjómaðurinn í þessu sama veðri þegar skip hans fékk á sig brotsjó. Það má víst teljast Guðs mildi að ekki urðu meiri slys á mönnum er tveir aðrir bátar fengu á sig brotsjó í þessu óskapleg veðri og margir bátar voru hætt komnir. í skýrslu sjóslysanefndar frá 1978 kemur fram, að 321 sjómaður varð fyrir slysi á árinu og er frá vinnu í 10 daga eða meira. Þar af eru 15 dauðaslys og af þessum 15 mönnum drukknuðu 7 sjómenn. Þetta eru háar tölur þegar haft er í huga að sjómenn ''ecu aðeins 5000—6000 talsins. í könnun sem Tómas Helgason próf. dr. med. gerði um heilbrigði sjómanna kemur fram, að um það bil 4.5% af sjómönnum sem Sigmar b. Sveinbjörnsson stunda fiskveiðar verða árlega fyrir slyslum. Nærri 20% af öllum vinnuslysum sem skráð voru hjá Tryggingastofnun ríkisins 1978 voru slys á sjómönnum, þrátt fyrir það pö þeir voru ekki nema 8% af þeim sem eru starfandi í atvinnu- lífinu. Nálægt 10% af öllum slys- um sem verða á sjó eru banaslys. Þegar þessar tölur um slys á sjómönnum eru athugaðar vekja þær til alvarlegrar umhugsunar um hvort nóg sé gert í slysavörn- um á sjó. Sjóslysanefndin vinnur ómetanlegt starf með því að rann- saka öll meiriháttar slys sem verða til þess að reyna að komast að orsökum þeirra svo að unnt sé að fyrirbyggja þau. Niðurstöður af þessum rannsóknum gefur nefnd- in síðan út og dreifir til allra sjómanna. Getum við margt af þeim lært. Erindreki frá Slysa- varnafélagi íslands hefur ferðast um landið og kynnt björgunar- tæki. Þetta hafa verið fróðlegir og gagnlegir fundir, sem allt of fáir sjómenn sækja. Ég vil nota tæki- færið og þakka þessum aðilum fyrir þessi nauðsynlegu störf þeirra. Á síðustu árum hafa margar nýjungar komið fram í slysavörn- um á skipum. Skal þar fyrst nefna öryggisloka á línuspilum, sem eflaust hefur fækkað mjög slysum við spil. Öryggisbelti með línu þegar menn eru að vinna við skutrennu á skuttogurum og síð- ast en ekki sízt sjálfvirkan sleppi- búnað á björgunarbáta sem virkar þannig í stuttu máli: Björgunar- báturinn losnar á 8—12 feta dýpi ef hann sekkur með skipinu. Þessi fáu dæmi sýna að alltaf er hægt að bæta útbúnaðinn. Ég er þeirrar skoðunar að hægt væri að bæta til muna staðsetningu og sjósetningu gúmmíbjörgunarbát- anna. í Morgunblaðinu 10. júní 1979 vakti ég athygli á hugmynd um skotpall fyrir björgunarbáta á stýrishúsi. Hugmyndina átti Sig- urður Óskarsson og kom hún fyrst fram 1970. Hún var í því fólgin að hægt yrði að sjósetja björgunar- bátinn án þess að fara upp í stýrishúsið. Gert er ráð fyrir að með handfangi inni í stýrishúsinu sé unnt að skjóta bátum út af stýrishúsinu. Eftir að þessi grein birtist í Morgunblaðinu komu margir sjómenn að máli við mig og voru þeir mér sammála um að þetta væri spor í rétta átt. Þegar farið var að ræða þessa hugmynd nánar manna á milli kom fram að ekki voru allir á einu máli um að hagkvæmast væri að skjóta bátn- um út, heldur ætti að koma fyrir sleðum eða rennu sem báturinn gæti runnið á út í sjó. Yrði hún þannig útbúin að möguleikarnir væru á bæði borð, eða eftir því á hvort borðið báturinn hallaði. Að sjálfsögðu þarf að þróa og gera tilraunir með þennan útbúnað og finna með því beztu lausnina. Aðalatriðið er að unnt sé að losa bátinn á sem skemmstum tíma. Hugsum okkur bát sem er á keyrslu, fær á sig brot og fer á hliðina. Oft hefur það komið fyrir að menn sem eru í stýrishúsi komast ekkitút um hurð, heldur verða þeir að troða sér út um glugga og beint í sjóinn. Þá eiga þeir eftir að klöngrast upp á stýrishús jafnvel í aftakaveðri og losa gúmmíbjörgunarbátinn, henda honum út og blása hann upp. Við skulum gera okkur grein fyrir því að menn, sem koma upp úr lúkar á bát sem er á hliðinni, lenda beint út í sjó. Það hlýtur því að vera erfitt fyrir mennina hvar sem þeir eru í skipinu að nálgast björgunarbátinn á stýrishúsinu þegar báturinri er á hliðinni. Jafnvel þótt þeir sem eru í stýr- ishúsinu geti notað hurð á, hvort borð sem hentar, en þess ber að geta að á mörgum smærri bátum er aðeins ein hurð á stýrishúsinu. Gerum ráð fyrir að þessi útbún- aður sem ég hef fjallað um sé til staðar. Þá getur maður sem er í stýrishúsi losað gúmmíbjörgunar- bátinn með einu handtaki og skotið honum fyrir borð þegar hann sér hvað er að gerast. Þegar menn koma síðan út úr stýrishús- inu eða lúkar liggur björgunarbát- urinn laus og jafnvel uppblásinn við skipshlið. Ég er sannfærður um að þessi aðferð er til bóta og gæti bjargað mörgum mannslíf- um. Því skora ég á viðkomandi aðila að taka upp og kanna það til hlítar, ekkert er eins dýrt eins og mannslíf. Ég vil að endingu hvetja sjómenn til þess að hugsa um þessi mál og vona að aðilar sem hafa forgöngu um slysavarnir á sjó taki umrædda hugmynd til framkvæmda. Hún er áreiðanlega þess virði. Athugasemd við skrif Ásgeirs Jakobssonar og Jóns úr Vör. í Lesbók Morgunblaðsins 23.2. sl. skrifar Ásgeir Jakobsson Rabb-þátt, „Þeir vilja frið, en valda stríði", en í Morgunbl. 28. s.m. gerir Jón úr Vör síðan athugasemd, sem hann nefnir „Viðkvæm deilumál". Jón tekur mjög óstinnt upp lýsingu Ásgeirs á friðarsinnum og formælendum hlutleysisstefnu sem nytsömum sakleysingjum. Grein Ásgeirs er hvasst skrifuð, og undirritaður hefur engan sérstakan áhuga á því að taka upp eftir honum orð, sem virðast særa Jón sérstaklega. Það er hins vegar álit undirritaðs, að efnislega sé grein Ásgeirs fyllilega réttmæt. Það er söguleg stað- reynd, að bæði í Bretlandi og Frakklandi var lengi vanmetin sú hætta, sem stafaði af Hitler og uppgangi nazista. Smærri ríki þ.á m. Danmörk, Noregur, Hol- land og Belgía skákuðu í skjóli hlutleysis, sem reyndist haldlaust, þegar til kastanna kom. Útþenslu- stefna Sovétríkjanna eftir stríð er ekki síður söguleg staðreynd, ljós öllum mönnum, sem hafa skiln- ingarvitin opin og siðferðilegt þrek til að horfast í augu við uggvænlegan veruleika. Dr. Sigurður H. Friðjónsson: Um íriðarsiima og styrjaldir Gamall kunningi minn, Ásgeir Jakobsson fri Bolungarvík, hef- ur ritað óvenju ósmekklegan Rabbþátt i síöustu Lesbók Morg- unblaösins og fylgir mynd af hernámsandstaeðingum. Hann fjallar þar um eitt viökvæmasta deilumál okkar kynslóöar, friö- arstefnu vinstri manna og and- stööu þeirra við hernaðarþátt- töku Islendinga. Inn i þetta blandar hann veraldarsögu milli stríðsáranna með furöulega ósvífnum hætti. Málflutningur Ásgeirs og myndbirtingin snertir mig sér- staklega illa, vegna þess að ég hef tekið þátt í ritun þessara Rabbpistla í þeirri trú, að þeir ættu ekki að fjalla um pólitík. Ég hélt líka að þeir ættu að vera á hærra plani en þessi ritsmíö. tvo einstaklinga í þessu sam- bandi: Matthías Jóhannessen skáld og ritstjóra og undirritað- an. Við eru eiginlega fæddir til þess aö vera andstæöingar í pólitík. En það er skylda okkar að reyna aö skilja hvor annan og virða, á meðan við berjumst heiðarlega, eða látum vera að berjast. Þegar tveir deila hafa báðir oft á röngu að standa. Þegar um stórþjóðir eða stórveldi er að ræða, er áreiðanlega öruggast fyrir venjulegt fólk smáþjóðar, að ganga út frá því sem vísum hlut, að úr því fáist aldrei skorið hvors glæpaferill sé og verði stórkostlegri. Þess vegna geta þær, smáþjóðirnar, átt líf og velferð sína í nútíð og framtíð undir því komna, að halda vöku Jón úr Vör Jón úr Vör: Viðkvæm deilumá! Ég vísa lesendum til hennar. Hún er gott dæmi þess, hvernig ekki * að taka til orða um alvarleg málefni. Hvert svívirð- ingarorð, sem hann varpar að herandstæðingum og friðarsinn- um, sem hann að hætti trúustu Morgunblaðsmanna kallar nyt- sama sakleysingja, hlýtur að snerta mig persónulega eins og aðra skoðanabræður mína og systur. Vissulega er það fleira en gáfur og andleg skarpskyggni, sem skipta mönnum í pólitíska hópa og trúarsöfnuði. Sá maður, sem nú er biskup yfir íslandi mun fyrstur manna hérlendis hafa notið þess heiðurs að vera titlaður nytsamur sakleysingi, sinni, verða ekki múgæsingum að bráð. Sérstaklega eru smá- þjóðir í mikilli hættu á okkar tímum. Nú eru æsingatækin svo stórtæk og máttug. Oft hefur maður heyrt stjóm- málaspekinga fullyrða: Hlut- leysisstefna íslendinga, sem annarra þjóða, sýndi best hald- leysi sitt í síðari heimsstyrjöld- inni. Síðan er talað um okkur, sem ekki erum á sama máli, eins og við séum auðtrúa börn, bján- ar eða þjónustumenn erlendra ofstækiskenninga. Hið sanna er náttúrlega, að hlutleysisstefna í utanríkismálum er fræðileg kenning, sem studd er margs- konar gáfulegum rökum. Auðvit- nA ar hcp<rt nð nnHmnpln hanni an hervernd og veita því afnot af landi sínu. Slíkt væri neyðarúr- ræði. Síðan mætti hverfa aftur til hlutleysis, þegar friður væri kominn á. Við hernámsandstæðingar höfum sérstaka áherslu lagt á þetta: Herstöð kallar á hernað- arárásir væntanlegs óvinaríkis. Meginhluti þjóðarinnar, byggð og mannvirki eru á mesta hættu- svæðinu. Við getum ekki vitað nema hér séu geymd kjarnorku- vopn og vetnissprengjur sem gætu sprungið vegna mistaka. Við erum í stöðugri menningar- legri hættu vegna sjónvarps og útvarps erlends stórveldis í eigin landi. Nú þessa dagana er á daírskrá harátlo firrír Undirrituðum er ekki kunnugt, hvort Jón úr Vör hefur kynnt sér sérstaklega herfræðileg mál, en eftir athugasemdum hans að dæma virðist ekki líklegt, að svo sé. Hann útskýrir stuttlega þá afstöðu sína, að hlutleysi sé fyrst og fremst friðarstefna, en viður- kennir, að það sé í sjálfu sér engin vörn gegn innrás og ofbeldi sterkari þjóðar. Eftir að styrjöld væri skollin á, gæti að hans áliti hlutlaust ríki í neyð beðið annað ríki um hervernd og veitt því aðstöðu í landi sínu. Það er álit undirritaðs, að þessi afstaða Jóns úr Vör sé afar óraunsæ. Einhliða afvopnun ríkis eða ríkjabandalags eykur ekki friðarlíkur. Þvert á móti er það ótvíræður dómur sögunnar, að hernaðarlegt misvægi, raunveru- legt eða ímyndað, sé vísasti vegur til styrjaldar. Ein af forsendunum fyrir „Barbarossa", innrás Þjóð- verja í Sovétríkin 1941, var van- mat þeirra á hernaðarmætti Sov- étríkjanna. Þetta mat Þjóðverja var m.a. byggt á hrakförum Sovét- manna fyrir Finnum 1940 og mati á búnaði sovézku hersveitanna í Austur-Póllandi. Enn má nefna sem annað dæmi, að ein af ástæð- unum fyrir heimsstyrjöldinni fyrri voru þau veikleikamerki, • sem Bretar sýndu í Búastríðinu. Friður verður ekki tryggður með einhliða aðgerðum. Ef annar aðil- inn lætur ófriðlega á hinn einskis annars úrkosti en grípa til nauð- synlegra gagnráðstafana. Vígbúnaðarkapphlaup Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna er sú grundvallarstaðreynd, sem mótað hefur sögu eftirstríðsáranna öðru fremur. Hin mikla uppbygging sovézka flotans er einn þáttur þessa kapphlaups, er valdið hefur Vesturveldunum verulegum áhyggjum. Þar sem þessi þróun snertir beint stöðu íslands og öryggi, er ekki úr vegi að fara um hana nokkrum orðum. Eftir heimsstyrjöldina síðari voru Bandaríkjamenn og Bretar hin sterku flotaveldi. Það er mik- ilvægt að undirstrika, að Vestur- veldin eru flotaveldi af efnahags- legri nauðsyn. Viðskipti og flutn- ingar lífsnauðsynlegra hráefna þ.á m. olíu fara sjóleiðis, og þessar efnahagslegu slagæðar verða Vesturveldin að geta tryggt fyrir truflunum utanaðkomandi aðila. Sovétríkin og fylgiríki þeirra mynda hins vegar samfelldan landmassa, eru sjálfum sér nóg um nær öll hráefni og ekki háð siglingum á sama hátt og Vestur- veldin. Þar við bætist að land- fræðilegar aðstæður gera Sovét- ríkjunum afar erfitt um vik að verða öflugt flotaveldi. Þrátt fyrir allt þetta hafa Sovétríkin á árun- um frá 1965 byggt upp öflugan flota. í ljósi ofangreindra kring- umstæðna hlýtur slík flotastefna að vera áhyggjuefni og er til þess fallin að auka viðsjár í milli- ríkjaviðskiptum. Hin mikla uppbygging sovézka flotans fylgdi í kjölfar Kúbudeil- unnar í október 1962, en þar hafði bandaríski flotinn gegnt lykilhlut- verkf. Hin öfluga flotastefna Sov- étríkjanna síðan miðar væntan- lega að því að rjúfa þá einokunar- aðstöðu, sem Vesturveldin áður nutu á heimshöfunum. Önnur ástæða er mikilvægi kjarnorku- knúinna kafbáta, sem eru búnir kjarnayddum ' eldflaugum gegn skotmörkum á landi. Eldflaugun- um má skjóta úr kafi, og eru slíkir kafbátar tiltölulega óhultir fyrir árásum á núverandi stigi hernað- artækni. En hin sovézka flotauppbygging gengur miklu lengra. Auk mikils fjölda kafbáta af eldri og ófull- komnari gerðum hafa Sovétríkin teflt fram öflugum flota kjarn- orkuknúinna árásarkafbáta, sem eru vopnaðir gegn skipum. Þar er um að ræða bæði langdræg tund- urskeyti og eldflaugar, en sumum þeirra er unnt að skjóta úr kafi. Floti Vesturveldanna er byggð- ur upp á verulega annan veg en sovézki flotinn, og endurspeglar það mismunandi verkefni. Banda- ríski flotinn hefur treyst mjög á flugvélaskip sem meginvopnakerfi og byggir þar á reynslu úr heims- styrjöldinni síðari, einkum Kyrra- hafsstríðinu við Japani. Hvort nútímaeldflaugar hafa gert flug- vélaskip jafnúrelt og lofthernaður í heimsstyrjöldinni síðari hafði gert orrustuskip þá, er umdeilt meðal sérfræðinga í sjóhernaði. Hitt er hins vegar ekki umdeilt, að alvarlegasti veikleiki sovézka flot- ans er hin erfiða landfræðilega staða hans. Sovézki flotinn er klofinn í Svartahafs-, Eystra- salts-, Hvítahafs- og Kyrrahafs- flota. Svartahafs- og Eystrasalts- flotarnir eru nær algerlega inni- lokaðir og verða að fara um þröng sund til að ná opnu hafi, en veðráttan á Barentshafi truflar hins vegar siglingar Hvítahafs- flotans. Þótt flestir telji, að Bandríkin séu enn öflugasta flotaveldið, hafa þau nú eignazt skæðan keppinaut. I ljósi hins mikla misræmis milli flotaþarfa Vesturveldanna annars vegar og Sovétríkjanna hins veg- ar, er rætt var stuttlega hér að ofan, hlýtur hin mikla flotaupp- bygging hinna síðarnefndu óhjá- kvæmilega að vekja tortryggni og gæti auðveldlega leitt til árekstra. Flotaþarfir Sovétríkjanna eru fyrst og fremst hernaðarlegar og stjórnmálalegar, en ekki efna- hagslegar eins og flotaþarfir Vest- urveldanna eru. Hin hraða upp- bygging sovézka flotans verður aðeins skilin sem liður í útþenslu- stefnu og er ógnun við öryggi Vestur-Evrópu. (Um herskipastól í heiminum sjá t.d.: World Árma- ments and Disarmament. SIPRI Yearbook 1975 (Stockholm Inter- national Peace Research Insti- tute). Sjá ennfremur: J.M. Collins # A.H. Cordesman. Imbalance of Power. Presidio Pr. 1978.) Sovétríkin hafa byggt upp öfl- ugan flota, sem á stríðstímum hlyti að verða alvarleg ógnun við samgönguleiðir Vesturveldanna. í slíkum átökum yrði bæði ísland og Norður-Noregur í víglínu. Þeir menn, sem trúa því í alvöru, að við þessar aðstæður sé öryggi og hagsmunum Islands bezt borgið með hlutleysi eða að minnsta kosti varnarleysi, gera sig seka um mikið óraunsæi, að ekki sé sagt einfeldni. Hin landfræðilega erf- iða staða sovézka flotans táknar, að flotaaðstaða annaðhvort í Norður-Noregi eða á Islandi mundi stórefla hernaðargetu hans og að sama skapi veikja stöðu Vesturveldanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.