Morgunblaðið - 06.03.1980, Side 10

Morgunblaðið - 06.03.1980, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 82455 Seljahverfi raðhús Höfum til sölu glæsileg raöhús á fallegasta stað í Seljahverfi, á tveimur hæöum. Selst fokhelt. Teikningar og nánari uppl. á skrifstofu, ekki í síma. Kjarrhólmi 3ja herb. Glæsileg íbúö á 1. hæö. Suöur svalir. Blikahólar 4ra herb. Falleg íbúö á 7. hæð, bílskúr. Kríuhólar 4ra—5 herb. óvanalega glæsileg íbúö, bílskúr. Asparfell 4ra—5 herb. Góð íbúð á 2. hæö, bílskúr. 2ja herb óskast Höfum mjög fjársterka kaup- endur aö 2ja og 3ja herb. blokkaríbúðum. 4ra herb. óskast Við höfum mjög fjársterka kaupendur aö 4ra og 5 herb. blokkaríbúöum. Raöhús óskast Við höfum mjög fjársterka kaupendur að raöhúsum, bæði á byggingarstigum og fullbún- um. Hjá okkur er miðstöð fasteignaviöskiptanna. Skoðum og metum samdægurs EIGNAVCR Suöurlandsbraut 20, símar 82455 - 82330 Árni Elnarsson lögfrsölngur Ólatur Thoroddsen lögfraöingur. Oskar Kokoschka Það fer ekki millum mála, að nú eru þeir óðum að tínast til feðra sinna, er skópu menningu og þær stórkostlegu hreyfingar í listum á því tímabili, er við kölllum tuttugustu öldina. Einn þeirra var Oskar Kokoschka, sem er látinn fyrir nokkrum dögum yfir níræður að aldri. En hvernig sem á því stendur, hefur ekki, svo að mér sé kunnugt, komið orð um fráfall Kokoschka í fjölmiðlum hérlendis. En er- lendis hafa flest blöð sagt frá fráfalli þessa merka listamanns. Kokoschka var Austurríkis- maður, fæddur 1886, og kom fyrst fram sem ljóðskáld, og eru til eftir hann bæði ljóðasöfn og leikrit. Snemma hneigðist hugur hans að málverki, og var hann einn þeirra ungu manna, er hinn frægi Valden, er var lífið og sálin í Sturm-hópnum, kom á framfæri. Þar kom Finnur okkar Jónsson við sögu, eins og allir vita, sem hafa fylgst með okkar þróun hér heima. En færri vita ef til vill, að Helga W. Foster var nemandi Kokoschka á hans efri látinn Myndllst eltir VALTÝ PÉTURSSON árum og átti í bréfaskriftum við meistara sinn, meðan hans naut við. Það var nokkuð óvenjulegur listamannsferill hjá Kokoschka. Hann var eins og áður er getið, fæddur í Austurríki og var af gyðingaættum. Frægð sína öðl- aðist hann fyrst og fremst í London, og eru mörg hans bestu verk einmitt máluð þar, en bjó í Sviss. Hann var álitinn Express- ionisti í málverki sínu og jafnvel mjög óhlífinn í meðferð sinni á mannlegu eðli í málverkum sínum. Verk hans vöktu jafnan mikið umtal, og voru ekki allir þar á sama máli, en engum dettur til hugar að halda því fram, að hann hafi ekki verið einn af þeim stóru, eins og sagt er. Það er sagt að Picasso hafi hringt í Chagall, er Matisse lést, og sagt við hann: Jæja, Matisse er látinn, þá erum við aðeins tveir eftir. Ekki veit ég um sannleikann í þessari sögu, en Chagall er enn lifandi og málar mikið þrátt fyrir háan aldur. Hvað mætti hann ekki segja nú, þegar Oskar Kokoschka er allur? Þessar fáu línur eru aðeins til að láta vita af fráfalli eins af meisturum tuttugustu aldar á sviði málaralistar. Það má eng- inn taka þetta skrif sem viðun- andi eftirmæli um Kokoschka. Til þess þarf lengra mál, ef vel ætti að vera. En mér finnst það ekki sæma pressu okkar, að hún minnist ekki á fráfall jafn þekkts listamanns og þar að auki manns, sem haft hefur áhrif hér á landi. 16650 Fyrir kaupanda með -6.0 millj. viö samning og ca. 14 millj. innan 2ja mán., 4ra—5 herb. íbúö meö bílskúr í Breiðholti eöa Kópavogi. Fyrir kaupanda utan af landi meö 15 millj. við samning og yfir 35 millj. heild- arútb., íbúð eöa hús meö 4 svefnherb. og bílskúr í Fteykjavík vestan Elliðáa, Aust- urbæ Kópavogs eöa eldri bæn- um í Hafnarfiröi. Vesturbær — Lúxusíbúð Ný ca. 100 ferm íbúö í gömlu þríbýlishúsi við Öldugötu, end- urbyggö frá grunni. Tvö stór svefnherb., meö innbyggöum skápum. Stórt flísalagt bað- herb. með lögnum fyrir þvotta- vél, stórar samliggjandi stofur meö bjálkaklæddu rislofti, hlað- inn arinn. Til afhendingar í maí n.k. Teikningar á skrifstofunni. Fasteignasalan Skúlatúni 6 — 3. hœð. sölustjóri Þórir Sæmundsson, Róbert Árni Hreiðarsson hdl. Miðbæjarmarkaöurinn Aðalatræti 9 sími: 29277 (3 línur) Grétar Haraldsson hrl. Bjarni Jónsson s. 20134. Hrafnhólar — 4ra herb. glæsileg íbúð á 5. hæö. Mikiö útsýni. Vandaöar og skemmtilegar innréttingar. Verö 34 millj. íbúðin er til sýnis í dag. Endaraðhús við Miklubraut Húsiö er 3x90 fm. og stendur á fallegri ræktaöri lóö. í kjallara væri möguleiki á aö gera sér íbúö. Bein sala. Heiðarsel — Raðhús m. innbyggðum bílskúr Húsiö selst fokhelt og er til afhendingar strax. Nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofunni. Hringbraut Hafn. — 3ja herb. 90 fm. íbúð. Timburhús óskast í Hafnarfirði eöa nágrenni. Má vera gamalt og þarfnast standsetningar. Hús í Smáíbúðahverfi óskast Húsiö mætti þarfnast lagfæringa. Byggingarlóðir óskast Sumarbústaður eöa gott land fyrir sumarbústaö. Eingöngu góður sumarbú- staður eða gott sumarbústaðaland kemur til greina. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Alþjóðlegur bænadagur kvenna Samkoma veröur föstudaginn 7. mars kl. 20.30 í Dómkirkjunni. Aö samkomunni standa konur úr ýmsum kristnum söfnuðum í Reykjavík. Allir hjartanlega velkomnir. Undirbúningsnefnd Eskihlíð 3ja herb. Höfum í einkasölu góða 95 ferm. 3ja herb. íbúð á 3ju hæð með aukaherb. í risi. Góð fjárfesting. Laus um næstu áramót gegn hagstæðum greiöslukjörum. Upplýsingar á skrifstofunni. Húsafell fasteksnasala Langhoitsvegi 115 Aöalsteinn Pétursson ( Bæjarleibahúsinu) simi-81066 Bergur Guönason hdl ptí»y0jsjjlrl$í$ii§» Morgunblaðið óskar eftir blaöburöarfólki Uppl. í síma 35408 Vesturbær: Hávallagata Aðeins 50 eintök. Úthverfi: Heiðargerði Yfir Hraundranga Meira en trúlegt þykir mér, að Halldór Kristjánsson hafi rétt fyrir sér, þar sem hann í grein sinni, „Skin bak við ský“, sem birtist í „Tímanum" 10. jan. sl., segir Kvæðafylgsni Hannesar Péturssonar vera merkisbók. Væri slíkt ekki nema í samræmi við það, hve ágæta bók Hannes skrif- aði um Steingrím skáld Thor- steinson fyrir nokkrum árum. En varðandi það, sem Halldór segist vera Hannesi sammála um, að ljóð sitt Ferðalok hafi Jónas Hall- grímsson ekki ort fyrr en á síðustu dögum sínum, virtist mér Tómas skáld Guðmundsson vera á öðru máli. „ ... en það (ljóðið) er til orðið eftir ferðalag úr skóla, norður heiðar og heim í Öxnadal verið 1828 og hét þá Astin min og seinna Gömul saga,“ segir Tómas í ritgerð, sem prentuð er framan við útgáfu á ritsafni Jónasar 1971. En er nú ekki hugsanlegt að láta sjálfa ástarstjörnuna skera hér úr? Hafi hún sem kvöldstjarna verið mjög hátt á lofti sumarið og haustið eftir að samfylgd þeirra Jónasar og Þóru Gunnarsdóttur átti sér stað, en að því ætti að mega komast, þá þætti mér þar vera góður stuðningur við þetta, sem Tómas heldur þarna fram. Reyndi ég að nokkru að gera mér grein fyrir þessu varðandi kvöld- stjörnuna, er ég síðsumars fyrir nokkrum árum átti leið um Öxna- dal, og varð mér ljóst, að einmitt frá Steinsstöðum getur hana borið yfir Hraundranga, þegar hún fer sem hæst, verður „pólhverf", sem stökusinnum á.sér stað. Man ég, hve eðlilegt mér fannst, þegar ég var að athuga þetta um leið og bíllinn bar mig þarna hjá, að ljóðið hefði í aðaldráttum, eða a.m.k. fyrsta erindi þess, orðið þarna til eitthvert kvöld, þegar ský skýldu stjörnunni, þar sem hún áður hafði hlegið í heiði yfir Hraundranga. Að hafa einhvern- tíma síðar farið að segja um þetta það, sem ekki var, finnst mér að verið hafi fjarri skáldinu og nátt- úrufræðingnum Jónasi Hall- grímssyni. Til þess held ég að hann hafi verið um of raunsögul- an. Þorsteinn Jónsson á Úlfsstöðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.