Morgunblaðið - 06.03.1980, Síða 32

Morgunblaðið - 06.03.1980, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980 „Barnið er ekki „eign“ foreldra sinna heldur sjálfstæður einstaklingur. Samfara aukinni áherzlu á hagsmuni barnsins, er nú farið að líta öðrum augum á réttindi barna gagnvart foreldrum sínum“, úr framsöguerindi á ráðstefnunni. en engar lagareglur eru til um það hvernig eigi að haga uppeldi barna. Inn í rétt og skyldu til uppeldis og umönnunar barns grípur m.a. heilbrigðislöggjöfin og skólalöggjöfin. I uppeldisskyld- unni felst skylda til menntunar, hæfileikaþroskunar, eftirlits, viss aga í uppeldisskyni (takmarkaður af ákvæðum barnaverndarlaga og refsilöggjafarinnar), nafngjöf, ákvörðun um dvalarstað barns, og fleira. Þá ræddi Guðrún um mismun sem gerður væri á forsjárskyldum og réttindum foreldra skilgetinna og óskilgetinna barna í lögum, og takmarkanir á forsjá (lög um vernd barna og unglinga, almenn hegningarlög, lög um grunnskóla, heilbrigðislöggjöf, lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir, lög um ættleiðingu, trúfélög, og fleira), sjálfsákvörðunarrétt barna, fram- færsluskyldu foreldra skilgetinna og óskilgetinna barna, fjárhald barna, fyrirsvar í dómsmálum, og réttarstöðu barns gagnvart öðrum en foreldrum, m.a. um barna- verndaryfirvöld og úrræði þeirra, skaðabótaábyrgð barna og ábyrgð foreldra og annarra forsjármanna barna og nýjar stefnur varðandi réttaröryggi barna. í lok erindis síns sagði Guðrún að í því frum- varpi til barnalaga sem lengi hefur legið fyrir Alþingi, væru ákvæði sem tryggðu betur rétt,- arstöðu barna gagnvart foreldrum sínum, en nú væri, því tekið væri tillit til sjálfsákvörðunarréttar barnsins og hvatt til samráða foreldra og barna. Ef rétt yrði með farið, mundi frumvarpið leiða til þess að viðhorf fullorðinna gagnvart börnum breyttist á þann veg, að þeir gerðu sér grein fyrir því, að barn er einstaklingur sem á rétt á að tillit sé til hans tekið og réttindi hans yrðu ekki fótum troðin. II. Heimilið og fjölskyldan Björg Einarsdóttir skriístofu- maður flutti erindi undir þessu heiti um gildi fordæmis. Björg sagði m.a. að þegar um efni ráðstefnunnar væri fjallað hlytum við að spyrja okkur, hvers vegna við viljum stuðla að því, að ábyrgð foreldra á börnum sínum verði sem jöfnust. Með lögum nr. 78/ 1976 um jafnan rétt og skyldur karla og kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins hafi stefnumið KRFI raunverulega náð fram að ganga. En það sé vitað mál að lagabókstafuririn einn sér nái ekki tilgangi sínum til fullnustu, ef viðhorf fólks fyjgja ekki eftir. Það sé starf KRFÍ á næstunni að raungera þessi sjónarmið. Skilyrði atvinnuþátttöku, — eins og hún gerist með hverri þjóð og frelsi til að mennta sig og velja starf, væri eitt af grundvallaratriðunum til að ná jöfnum rétti og jafnri ábyrgð kvenna og karla. Forsjá og ábyrgð á börnum væri e.t.v. ánægjulegasta viðfangsefni fullorðins fólks, en samtímis sú mesta skuldbinding, sem fólk tek- ur á sig. Mest öll innri ábyrgð á heimili og fjölskyldu hafa fallið í hlut kvenna og öll verkaskipting milli karla og kvenna, fram undir okkar daga, stuðlaði að því að svo væri. Við þau umskipti að konur, að eigin ósk eða tilneyddar af fjárhagsástæðum, fari á síðari tímum að starfa utan heimilis, taka þær að axla ábyrgðina af tekjuöfluninni, án þess að af þeim væri létt, svo nokkru næmi, þeirri ábyrgð sem þær bera á börnum og heimilishaldi. Skilyrði þess að báðir foreldrar geti notið sin við störf utan heimilis væru þau að KRFÍ, — ráðstefna um jafna foreldraábyrgð: „Viðhorfsbreytinga er þörf á heimilum og vinnumarkaði á ábyrgð foreldra á uppeldi og umönnun barna sinna" Kvenréttindafélag íslands hélt s.l. laugardag ráð- stefnu um „Jafna foreldraábyrgð“. Ráðstefnuna sóttu tæplega hundrað manns, en til hennar var boðið einstaklingum og fulltrúum félagasamtaka, vinnumark- aðar og stjórnvalda og var áhugamönnum um þetta efni opinn aðgangur. Flutt voru átta framsöguerindi og að þeim loknum var unnið í hópum og í lokin fóru fram almennar umræður. I lok ráðstefnunnar var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Ráðstefna KRFÍ um jafna foreldraábyrgð, haldin að Hótel Borg 23. febrúar 1980, beinir þeirri áskorun til ríkisstjórnarinnar, að hún hlutist til um, að frumvarp til barnalaga, sem lagt hefur verið fyrir 102. löggjafarþing 1979—1980 og fyrst kom fram á Alþingi 1976, verði nú þegar tekið til formlegrar meðferðar og afgreiðslu þess hraðað eins og frekast er kostur.“ Var það samdóma álit ráðstefnugesta, að þegar leitað væri leiða til jafnrar ábyrgðar foreldra, skyldi velferð barna ævinlega höfð að leiðarljósi. Hér á eftir fer hluti úr erindum þeim sem flutt voru á ráðstefnunni, en í ályktun Sameinuðu þjóðanna um barnaárið var sérstaklega vakin athygli á þessu umfjöllunarefni ráðstefnunnar. Undirbúningur ráð- stefnunnar var í höndum Esterar Guðmundsdóttur og Jör.ínu Guðnadóttur, I. Loggjof í sögulegu samhengi Fyrsti framsögumaður var Guð- rún Ene^ttlr dóse"t og fjall- aði hún um löggjöf i e^u samhengi. Lét Guðrún þe99 getið í byrjun, að ekki væri unnt að gera tæmandi grein fyrir réttarstöðu barna í stuttu framsöguerindi og takmarkaði hún því efnið við að lýsa réttarstöðu barna gagnvart foreldrum sínum og ábyrgð for- eldranna gagnvart þeim og jafn- fjallaði hún um það frum- varp til barnalaga, sem legið hefur fyrir Alþingi frá árinu 1976. Guðrún sagði m.a. að í lögfræði- ritum hefði lítið verið skrifað um réttindi og réttaröryggi barna. Börnin væru minni máttar í aug- um laganna, vegna smæðar sinnar og valdaleysis, sem gerði að verk- um, að hagsmunir barna ættu á hættu að verða fyrir borð bornir. Refsilöggjöfin væri t.d. eina laga- verndin, sem börn hefðu gegn misþyrmingum af hálfu foreldra sinna. Breytt staða fjölskyldunnar úr bændasamfélagi í iðnaðarþjóðfé- lag gerði það að verkum, að einangrun fjölskyldunnar væri rofin. Þjóðfélagið tæki að sér æ fleiri þætti, sem áður voru inntir af hendi af fjölskyldunni. Uppeldi og umönnun barna væri þó enn eitt aðalhlutverk fjölskyldunnar. Nú yrði fjölskyldan fyrir sam- keppni úr ýmsum áttum, — frá skólum, fjölmiðlum, kvikmynda- húsum, skemmtistöðum, auglýs- ingum o.fl. Þannig hefði starfsemi fjölskyldunnar breytzt. Togað væri i hvern fjölskyldumeðlim úr ýmsum áttum og það veikti sam- stöðu fjölskyldunnar. Foreldrar gætu ekki fylgzt eins vel með börnum sínum og áður fyrr og fylltust öryggisleysi í uppeldis- starfi sínu, en þjóðfélagið hefði samt sem áður’ áhuga á að við- halda fjölskyldunni sem þjóðfé- lagsstofnun og vildi einnig vernda þá, sem eru minni máttar. I barnalöggjöf hefði frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar mest borið á eftirfarandi hugmyndum: I fyrsta lagi, að tryggja jafnrétti kynjanna að því er varðar forsjá fyrir börnum. í öðru lagi hefði verið stefnt að þvi að afnema alla mismunun á skilgetnum og óskil- getnum börnum og í þriðja lagi væri nú viðurkennt í ríkum mæli, að barn sé ekki „eign“ foreldra sinna heldur sjálfstæður einstaki- ingur og samfara aukinni áherslu á hagsmuni barnsins, væri nú farið að líta öðrum augum á réttindi barna gagnvart foreldrum sínum. Síðan ræddi Guðrún um hug- takið forsjá barna. Samband for- eldra og barna tækni nú fremur mið af skyldum foreldranna og ábyrgð heldur en valdi og yfirráð- um. I samræmi við starfsemi fjölskyldunnar í dag hefðu for- eldrar bæði réttindi og skyldur gagnvart börnum sínum, sem þeir ættu að beita með hagsmuni barnanna fyrir augum. Hugtakið foreldravald, sem víða kæmi fyrir í íslenzkum lögum ætti því ekki lengur rétt á sér. — í forsjá felst réttur til að taka á persónulegum málefnum barns, — hagsmunir barnsins eiga að vera þar í fyrirrúmi. Þá felst í forsjá skylda til að ala barnið upp, % m *#* #*##«*:»# | «* *-*•* **•* * ## * »•* •* * t * » m tW1* * - #m i w*. * # 1 í ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.